Morgunblaðið - 18.09.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 18.09.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019 Þægileg leið fyrir viðskiptavininn. Kemur honum í beint samband við réttan starfsmann sem klárar málið. Góð yfirsýn og gegnsæi með verkefnunum. Kynntu þér málið á www.eignarekstur.is eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Þjónustugátt Eignareksturs Traust - Samstaða - Hagkvæmni Kosning formanns og varafor- manna er á dagskrá fundar um- hverfis- og samgöngunefndar Al- þingis sem boðaður er klukkan þrjú í dag. Ekki tókst að kjósa formann á fundi nefndarinnar í gær. Fulltrúi Miðflokksins á að fá embætti formanns umhverfis- og samgöngunefndar, samkvæmt sam- komulagi stjórnarandstöðuflokk- anna. Bergþór Ólason var formað- ur þar til hann tók sér frí frá þingstörfum vegna Klausturmáls- ins. Miðflokkurinn tilnefnir hann í embættið nú. Björn Leví Gunn- arsson, þingmaður Pírata, stakk hins vegar upp á Karli Gauta Hjaltasyni, samflokksmanni Berg- þórs. Fundinum var þá frestað og hafði hann aðeins staðið í fimm eða sex mínútur. Aftur reynt að kjósa formann nefnd- arinnar á fundi í dag Áhrif áfalla og fíknar í fjöl- skyldum nefnist námskeið sem haldið verður í Akoges-salnum í Lágmúla frá kl. 9-16. í dag. Fyr- irlesari er Claudia Black Ph.D. en yfir- skrift námskeiðsins er titill bókar sem hún tók saman og hefur verið gefin út á íslensku af SJ-útgáfunni. Sigurlína Davíðsdóttir er þýðandi bókarinnar. Norræna fagráðið stendur að námskeiðinu en í tilkynningu frá ráðinu segir m.a. að Claudia sé eft- irsóttur fyrirlesari víða um heim, ásamt því að hafa hannað meðferð fyrir börn og unglinga í Bandaríkj- unum. Námskeið um áhrif áfalla og fíknar Claudia Black Hæstiréttur Ís- lands og Háskóli Íslands, í sam- vinnu við Rann- sóknastofnun Ár- manns Snævarr um fjölskyldu- málefni, bjóða til heiðurssamkomu í dag í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu Ármanns Snæv- arr, fyrrverandi rektors Háskóla Íslands. Samkoman fer fram í há- tíðasal Háskóla Íslands og hefst klukkan 16. Meðal þeirra sem flytja ávörp eru Jón Atli Benediktsson rektor og Ár- mann Snævarr, dóttursonur og al- nafni rektorsins fyrrverandi. Fund- arstjóri er Garðar Gíslason, fv. hæstaréttardómari. Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar. Málþing til heiðurs Ármanni Snævarr Ármann Snævarr BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Utanríkisráðuneytið telur sér ekki fært að afhenda drög að samningi við Kínastjórn varðandi innviða- verkefnið Belti og braut. Vísað var til upplýsingalaga um að „heimilt sé að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almanna- hagsmunir krefjist, enda hafi þau að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir“. Belti og braut er eitt umfangs- mesta, ef ekki umfangsmesta, inn- viðaverkefni sögunnar. Með því hyggst Kínastjórn færa Kína nær mörkuðum í Mið-Asíu, Evrópu og Afríku með uppbyggingu innviða og samgöngumannvirkja. Markmiðið er meðal annars að stytta flutnings- tíma og greiða almennt fyrir við- skiptum. Siglingaleiðin norður fyrir Rússland er hluti af áformunum en sú leið gæti legið framhjá Íslandi. Vísaði ummælum Pence á bug Í heimsókn sinni til Íslands þakk- aði Mike Pence, varaforseti Banda- ríkjanna, stjórnvöldum fyrir að hafna samstarfi við Kína um Belti og braut. Jin Zhijian, sendiherra Kína á Íslandi, sagði síðan í samtali við Morgunblaðið að þetta væri alrangt. Pence varaði líka stjórnvöld við samstarfi við kínverska tæknirisann Huawei m.t.t. öryggissjónarmiða. Samkvæmt heimildum blaðsins úr fjarskiptageiranum hefur Banda- ríkjastjórn einkum áhyggjur af væntanlegri innleiðingu 5G-kerfisins í farsímakerfi Vesturlanda. Ástæðan sé grunsemdir um að Huawei geti skilið eftir bakdyr í kerfið. Með því að tengja helstu stjórnkerfi við 5G- kerfið geti stjórnvöld á Vestur- löndum því orðið berskjölduð fyrir árásum. Þannig verði fræðilega séð hægt að koma fyrir njósnabúnaði í hugbúnaði, eins konar Trójuhesti, sem geri kleift að sækja upplýsingar í kjarnabúnað og jafnvel taka stjórn á virkni tækja, á borð við sjálfkeyr- andi bíla, skip og læknabúnað. Þeir sem tortryggja tæknirisana hafa bent á leyniskjöl nefnd eftir uppljóstranum Edward Snowden. Þar komi m.a. fram að bandaríska tæknifyrirtækið Cisco hafi verið með bakdyr í búnað sinn. Búnaður frá Cisco kemur við sögu í stórum hluta netumferðar á Íslandi. Stefna á innleiðingu 5G 2020 Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, segir styttast í innleiðingu 5G- kerfisins. Hún segir aðspurð að Nova notist við kerfi frá Huawei. „Nova hefur tekið í notkun fyrsta 5G-sendinn á Íslandi og hefur hafið prófanir á 5G farsíma- og netþjón- ustu til viðskiptavina sinna. Nova sótti um 5G-tilraunaleyfið til Póst- og fjarskiptastofnunar fyrr á þessu ári. Tilraunirnar munu taka nokkra mánuði en þróunin í búnaði fyrir þráðlaus fjarskipti hefur verið mjög hröð að undanförnu. Næsta skref er tíðniúthlutun Póst- og fjarskipta- stofnunar. Búast má við að 5G-kerfið verði komið í almenna útbreiðslu hér á landi á næsta ári, árið 2020. Þegar uppfærslu fjarskiptakerfis Nova í 5G verður lokið munu notendur njóta að meðaltali tífalt meiri net- hraða miðað við 4G,“ segir Margrét. Hún segir aðspurð að Nova og Hua- wei hafi átt í samstarfi allt frá stofn- un Nova, eða frá árinu 2006. Samn- ingurinn sé ekki tímabundinn. Fylgjast vel með umræðunni Spurð út í varnaðarorð Pence varðandi Huawei segir Margrét að Nova leggi áherslu á öryggismál. „Við fylgjumst mjög vel með um- ræðunni og leggjum gríðarlega áherslu á áreiðanleika og öryggi kerfa okkar. Við gerum reglulega áhættumat á kerfum Nova og upp- færum það mat með tilliti til umræð- unnar. Ennþá hefur ekkert komið fram um óeðlilega eða óásættanlega veikleika og því miður virðist um- ræðan ákaflega pólitísk. Öryggið er ávallt í fyrirrúmi hjá Nova. Það er sjálfsagt að það eigi sér stað um- ræða um þessi mál en slík umræða ætti að fara fram á faglegum grunni frekar en eingöngu pólítískum.“ Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýn- ar, sem hefur umboð fyrir Vodafone, er höfundur bókarinnar Norður- slóðasókn sem kom út árið 2013, eða sama ár og Xi Jinping Kínaforseti greindi frá Belti og braut. Áhuginn á norðrinu eðlilegur Heiðar er jafnframt formaður Efnahagsráðs norðurslóða (AEC). „Áhugi mest hraðvaxandi hag- kerfa heims á norðurslóðum er eðli- legur og það ætti ekki að gera þeim upp annarlegan tilgang. Þessi lönd eru við Kyrrahafið og þau skortir hrávörur, flutningaleiðir og aðgang að ýmsu sem er nær Evrópu og Atl- antshafinu. Um 2 milljarðar manna munu færast úr lágstétt í miðstétt í Asíu á næstu tíu árum. Þetta fólk skortir góðan fisk og aðgang að ýms- um orkugjöfum, hreinum og endur- nýjanlegum, en líka olíu og gasi. Svo vilja þessar þjóðir finna betri leiðir til að koma vörum á markað, hvort sem það eru gagnaflutningar eða siglingar. Það er því eðlilegt að verk- efni eins og Belti og braut, sem gengur út á að tengja betur Asíu og Evrópu, sé í gangi. Það tengist ekki aðeins Kína heldur líka áhuga Suð- ur-Kóreu og Japans og fleiri ríkja sem eru með ört vaxandi hagkerfi.“ Ekki hægt að flytja innviði Heiðar telur ekki ástæðu til tor- tryggni hvað snertir mögulegar fjár- veitingar úr sjóðum Beltis og braut- ar til innviðauppbyggingar á Íslandi. „Það er vegna þess að innviðir eru þeirri náttúru gæddir að þeir eru ekki færanlegir. Það væri ekki nema að það væru 63 Kínverjar á Alþingi sem ég hefði áhyggjur. Meðan við erum sjálfstæð þjóð og ráðum okkar lögum og reglum, og löggjafinn er íslenskur, hef ég ekki áhyggjur af því,“ segir Heiðar og bendir á að Kína hafi samið um Belti og braut við um 140 þjóðir, þar af um 20 í Evrópu. „Áætlunin gæti orðið allt að 50 sinnum stærri en Marshall- áætlunin sem endurbyggði Evrópu eftir síðari heimsstyrjöldina.“ Yrðu háð einum birgi Það séu engir færari en Kínverjar í uppbyggingu innviða. Tækifærin á Íslandi geti m.a. falist í hafnargerð, flugvöllum og uppbyggingu fjar- skipta- og rafkerfa. Allt séu þetta fjármagnsfrekir innviðir. Spurður um áhyggjur Banda- ríkjastjórnar af Huawei bendir Heiðar á að tveir risar séu nú á fjar- skiptamarkaðnum, Ericsson og Huawei. Með því að hafna við- skiptum við annað fyrirtækið missi viðskiptavinurinn samningsstöðu og verði um leið háður einum birgi. „Enginn viðskiptamaður kemur sér vísvitandi í þá stöðu. Við getum horft á Vodafone í Þýskalandi sem kýs að vera í viðskiptum við bæði Ericsson og Huawei. Mér vitanlega hefur ekkert land í Evrópu sagt að það ætli sér ekki að nota búnað frá Huawei. Þótt Pence hafi komið hing- að og sagst hafa fengið þau skilaboð frá pólsku ríkisstjórninni að hún ætl- aði ekki að nota tæki frá Huawei kannast enginn í Póllandi við það.“ Þá segir hann aðspurður óþarft að hafa áhyggjur af því að Huawei gæti komist í stjórnkerfi á Íslandi í gegn- um bakdyr í 5G-kerfið. „Það gengur ekki upp nema þeir reki búnaðinn á Íslandi. Ástæðan er sú að Ísland er eyja og íslenska ríkið og Farice reka gagnaflutninga til og frá landinu. Einkafyrirtæki, sem eru nánast ein- göngu í eigu Íslendinga, reka svo kerfið innanlands. Við stýrum virka búnaðinum á kerfunum. Því sem fer um rörið, eða turninn, er stjórnað af þessum virka búnaði,“ segir Heiðar. Hann telur aðspurður „ómögulegt“ að sækja upplýsingar í gegnum slík- ar bakdyr í núverandi kerfi. Andvíg aðkomu Kínverja Þá telur Heiðar aðspurður að Bandaríkjastjórn sé andvíg aðkomu Kínverja að uppbyggingu innviða í nágrenni Bandaríkjanna. Þ.m.t. á Grænlandi og Íslandi. „Það er af því að þeir vilja ekki samkeppni. Þeir vilja sitja einir að uppbyggingu inn- viða í kringum þessi samfélög. Það er í raun hernaðarhyggja sem ræður þessu frekar en nokkrir viðskipta- hagsmunir. Það er í raun fráleitt að Bandaríkjastjórn blandi sér í íslensk innanlandsmál og setji þrýsting á hvaða birgja við notum. Ef við fylgj- um því ekki, hvað þá? Hvað ætlar hún að gera? Sé skoðað hverjir vilja leggja fjármuni í uppbyggingu á norðurslóðum eru það Kínverjar, Suður-Kóreumenn, Japanar og Rússar. Bandaríkjastjórn segir ríkj- unum í norðri að bíða þar til henni hugnast að gera eitthvað á svæð- inu,“ segir Heiðar Guðjónsson. Leynd er yfir samningnum  Utanríkisráðuneytið hafnar afhendingu samnings við Kína um Belti og braut  Forstjóri Sýnar segir ekkert að óttast varðandi áhuga Kínverja á innviðum Margrét Tryggvadóttir Heiðar Guðjónsson AFP Risi Huawei er orðið eitt stærsta fyrirtæki heims á snjallsímamarkaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.