Morgunblaðið - 28.09.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 28.09.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. VERÐ FRÁ 129.900 KR. GOLFFERÐIR Á FRÁBÆRU VERÐI NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS GOLF ÁMANNM.V. 2 FULLORÐNA - BORG&GOLF Ómari Ragnarssyni voru í gær veitt verðlaunin Græni lundinn á RIFF, Alþjóðlegu kvikmynda- hátíðinni í Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn sem Græni lundinn er afhentur og var það Guð- mundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra sem afhenti Ómari verðlaunin. „RIFF heiðrar Ómar fyrir ævistarf sitt við kvikmyndun á nátt- úru landsins með því að veita honum þessi heið- ursverðlaun,“ segir í kynningu RIFF. Heiðraður á RIFF fyrir ævistarf sitt við kvikmyndun á náttúru landsins Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ómar fékk Græna lundann Sigurður Bogi Sævarsson Þór Steinarsson Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sín- um í gærmorgun að frumvarp Katr- ínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um sanngirnisbætur í kjölfar sýknu- dóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu á síðasta ári yrði lagt fram á Alþingi. Frumvarpið opnar á að greiddar séu bætur til að- standenda þeirra sýknuðu sem falln- ir eru frá. Tekur ekki afstöðu til upphæða Katrín Jakobsdóttir segir frum- varpið opna á bótagreiðslur. Það feli einnig í sér tæknileg atriði. Við gerð frumvarpsins er byggt á drögum frá sáttanefnd þar sem er upplegg um sanngirnisbætur. Einn- ig er gerð grein fyrir stöðu mála mið- að við sáttaumleitanir þar sem gert var ráð fyrir að samanlögð upphæð sanngirnisbóta yrði 759 milljónir króna. Spurð um hvað gæti talist sanngjarnar bætur sagðist forsætis- ráðherra vilja byggja á rökstuddum grunni sáttanefndar. „Ég er ekki að fara að taka afstöðu til nákvæmrar upphæðar,“ sagði Katrín. Alþingi átti fyrsta skrefið Bjarni Benediktsson fjármálaráð- hera segir að sér lítist vel á frumvarp forsætisráðherra um sanngirnisbæt- ur vegna Guðmundar- og Geirfinns- máls. Að sínu mati sé líka eðlilegt að málið gangi til Alþingis, enda hafi það verið fyrir tilstilli þingsins sem þessi mál voru opnuð að nýju. „Við værum ekki að ræða þessi mál nema vegna þess að Alþingi átti fyrsta skrefið,“ sagði Bjarni og ennfremur: „Nú þegar dómur Hæstaréttar liggur fyrir og skýr vilji stjórnvalda til þess að leita sátta um bóta- greiðslu er ekki nema eðlilegt að heimildir fyrir slíkum bótagreiðslum séu teknar til meðferðar á þinginu.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, lagði í gær á Alþingi fram fyrirspurn til forsætis- ráðherra vegna málefna Klúbbs- manna, þeirra Einars Bollasonar, Magnúsar Leopoldssonar, Valdi- mars Olsen og Sigurbjörns Eiríks- sonar sem árið 1976 sátu 105 daga í gæsluvarðhaldi grunaðir um að tengjast hvarfi Geirfinns Einarsson- ar, án þess að vera nokkru sinni ákærðir. Spyr Sigmundur hvort um- ræddir menn eða afkomendur þeirra verðskuldi frekari skaðabætur vegna varðhaldsins og áhrifa þess. Einnig hvort Katrín hafi hitt um- rædda menn eða fulltrúa þeirra og sé svo ekki, hvort hún sé reiðubúin til fundar. Segja að sáttaviljinn sé skýr  Frumvarp forsætisráðherra um sanngirnisbætur í Geirfinnsmálinu mun ganga til Alþingis  Byggt sé á starfi sáttanefndar, segir Katrín  Sigmundur Davíð spyr um frekari bætur til Klúbbsmanna Morgunblaðið/Hari Sýknudómi fagnað Ár var liðið í gær frá því Hæstiréttur Íslands sýknaði fimm sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Heildarkostn- aður við funda- ferðir Más Guð- mundssonar, fyrrverandi seðlabanka- stjóra, um landið í seinasta mánuði var samtals 1.544.840 kr. Þetta kemur fram í svari Seðlabankans við fyrirspurn Morg- unblaðsins sem send var eftir hringferð Más í seinasta mánuði. Már heimsótti fjóra staði á land- inu í ágúst, Ísafjörð, Akureyri, Nes- kaupstað og Árborg og voru tveir starfsmenn með honum á þremur fyrst töldu stöðunum. Fram kemur í svarinu sundurlið- aður kostnaður. Rúmlega 416 þús- und kr. fóru í auglýsingar í fjöl- miðlum, 348 þús. kr. í fundar- aðstöðu, tæpar 266 þús. kr. í hótelgistingu, 240.600 kr. í veit- ingar á fundum og 77 þús. kr. í aðr- ar veitingar í tengslum við ferð- irnar. Ferðakostnaður var samtals 196.833 kr. Fram hefur komið í fréttum blaðsins að tæplega 50 manns sóttu þrjá fyrstu fundina en seinasti fundurinn í Árborg var fjölmennari. Á fundunum fjallaði Már m.a. um árangur við stjórn efnahags- og peningamála frá fjár- málahruninu 2008. Már Guðmundsson Fundaferðin kostaði rúmar 1,5 milljónir Blaðamannafélag Íslands hefur slitið kjaraviðræðum við viðsemjendur fé- lagsins og var ríkissáttasemjara til- kynnt þetta með bréfi í gær. „Stjórn og samninganefnd Blaða- mannafélagsins voru á fundi núna hvor á eftir annarri í dag og það var samdóma niðurstaða að slíta viðræð- um í ljósi tilboðs sem við fengum í gær sem var algjörlega óviðunandi og úti á túni,“ sagði Hjálmar Jóns- son, formaður félagsins, við mbl.is í gær. Hann telur ekkert annað í stöð- unni en að grípa til verkfalla. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, sagði samtökin hafa lagt fram tilboð sem var sambæri- legt við aðra kjarasamninga sem SA hafa gengið frá á undanförnum vik- um og misserum. „Samtök atvinnulífsins eru búin að ljúka gerð kjarasamninga við um það bil 95% af sínum viðsemjendum og það hefur gengið ágætlega hingað til,“ segir Halldór sem bætir því við að nú þurfi að sjá hver framvinda málsins verði. Kjarasamningar blaðamanna hafa verið lausir frá 1. janúar en þeim var vísað til ríkissáttasemjara í lok maí. „Það er eins og ekkert hafi gerst í þá níu mánuði frá því að gildi síðasta samnings lauk. Við höfum átt í ítar- legum viðræðum í 5-6 mánuði. Í til- boðinu sem við fengum í gær er ekk- ert af þeim áhersluatriðum sem við höfum farið yfir,“ sagði Hjálmar. Næsta skref sé að fara í baklandið og kynna blaðamönnum hvað sé í boði og hvernig viðmót blaðamenn séu að fá frá sínum viðsemjendum og sínum atvinnurekendum. ,,Við hljót- um að grípa til aðgerða því það er það eina í stöðunni,“ sagði hann. Halldór kveðst ekki geta upplýst um neitt sem á sér stað inni á borði sáttasemjara. Stefna SA í þessum kjaraviðræðum sé orðin býsna skýr. Halldór býst við því að setjast aftur niður með samninganefnd Blaða- mannafélagsins fljótlega. BÍ slítur kjaraviðræðum Hjálmar Jónsson Halldór Benjamín Þorbergsson  „Hljótum að grípa til aðgerða“  Tilboðið sambærilegt öðrum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.