Morgunblaðið - 28.09.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
MAX-vélarnar í betra loftslag
Ferjaðar til Toulouse í Suður-Frakklandi Flugmenn Icelandair vilja ólmir fá verkefnið
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Boeing 737 MAX 8-farþegaþotum Icelandair
sem staðið hafa ónotaðar á Keflavíkurflugvelli
frá því um miðjan mars verður flogið ferjuflugi
til Toulouse í Suður-Frakklandi þar sem þær
verða geymdar þar til leyfi fæst til að taka þær
í notkun á ný. Ekki hefur verið ákveðið hvenær
vélunum verður flogið út en það verður
væntanlega strax eftir helgi.
Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs Icelandair, segir að rigning og
selta hafi slæm áhrif á flugvélar. Því hafi Ice-
landair ákveðið að færa MAX-vélarnar í betra
loftslag.
Icelandair þurfti heimild til ferjuflugs hjá
Boeing-verksmiðjunum í Bandaríkjunum og
flugmálayfirvöldum á Íslandi og í Evrópu.
Segir Jens að það hafi verið viðamikið ferli að
afla leyfanna. Að lokum var það Samgöngu-
stofu sem gaf út leyfið, að fengnu skilyrtu sam-
þykki frá evrópskum flugmálayfirvöldum.
Skilyrðin snúa meðal annars að því hvernig
vélunum verður flogið, í hvaða hæð, hvernig
þoturnar verða útbúnar og hverjir verða um
borð. Tilgangurinn er meðal annars að koma í
veg fyrir að sjálfvirkur öryggisbúnaður í
stjórnkerfi vélanna virkist, en hann er talinn
eiga þátt í því að tvær farþegaþotur af þessari
gerð hafa farist, sú seinni í mars á þessu ári.
Vilja komast aftur í loftið
Flugmenn Icelandair fljúga vélunum til
Frakklands, og verða væntanlega aðeins tveir
um borð. Jens segir að ekki sé vandamál að fá
flugmenn í verkefnið. „Þeir eru allir ólmir í að
fá að fljúga vélinni. Það er ekki vandamálið.
Þeim sem hafa flogið þessari vél hefur líkað
það vel og vilja endilega komast í loftið aftur.
Við höfum ekki upplifað neitt óeðlilegt í rekstri
okkar véla, ekkert hefur bent til annars en að
þær séu í fullkomnu lagi,“ segir Jens.
Boeing kyrrsetti þær 350 Boeing 737 MAX-
vélar sem verksmiðjurnar höfðu afhent um
miðjan mars. Jens bendir á að vel á annað
hundrað þeirra hafi verið flogið í ferjuflugi á
þessum tíma.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kyrrsettar Boeing 737 MAX 8-farþegaþotur Icelandair hafa staðið ónotaðar í Keflavík.
Arctic Fish er komið af stað með útflutning á fersk-
um laxi til Kína, eftir að síðustu hindrunum í fram-
kvæmd samnings um fríverslun vegna innflutnings
á laxi til Kína var rutt úr veginum. Þrjár sendingar
hafa farið í þessari viku, alls um 13 tonn, og meira er
í farvatninu, að sögn Sigurðar Péturssonar, fram-
kvæmdastjóra hjá Arctic.
Litlar tilraunasendingar fóru frá Keflavíkurflug-
velli í byrjun vikunnar og var Sjanghaí áfanga-
staðurinn. Flutningar og tollafgreiðsla gekk upp og
fór stærri sending í kjölfarið. Sigurður segir að
Arctic Fish njóti þess að eigendurnir hafi reynslu og
þekkingu í viðskiptum með fisk á alþjóðamarkaði.
Nefnir hann að Novo Food sé með söluskrifstofu á
Íslandi og öll tilskilin leyfi til útflutnings til Kína. Þá
sé Norway Royal Salmon með sölukerfi í Kína og
taki á móti laxinum ytra.
„Við erum að sá fræjunum og kynna vöruna.
Þetta lítur vel út. Viðskiptavinirnir eru ánægðir með
það sem þeir fá,“ segir Sigurður. Íslenski laxinn
þarf að vera í stærra lagi því hann endar í eldhúsum
veitingahúsa. Hann þarf einnig að vera í hámarks-
gæðum, sem Arctic Fish tryggir með umhverfis-
vottun sinni. helgi@mbl.is
Útflutningur fer vel af stað
Tilraunasendingar til Kína tókust Meira í farvatninu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Patreksfjörður Arctic Fish er með laxeldi í nokkrum
fjörðum Vestfjarða. Gæðafiskur er fluttur til Kína.
Gengið var í tilefni Alþjóðlega hjartadagsins í Elliðaárdalnum
í gærkvöldi, en hann verður haldinn hátíðlegur á morgun,
sunnudag. Gengu þátttakendur um fjóra kílómetra en þátt-
taka var ókeypis. Í dag verður svo haldið sérstakt hjarta-
dagshlaup, en boðið er upp á 5 og 10 km vegalengdir. Ræst
verður frá Kópavogsvelli og munu þátttakendur hlaupa um
Kársnesið til stuðnings bættri hjartaheilsu. Hlaupið hefst
klukkan tíu. Frjálsíþróttadeild Breiðabliks sér um fram-
kvæmd hlaupsins.
Gengið til stuðnings bættri hjartaheilsu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Haldið upp á Alþjóðlega hjartadaginn um helgina
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Palma
31. október í 4 nætur
Verð frá kr.
69.995
Borgarferð
de Mallorca