Morgunblaðið - 28.09.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Aðsókn á sjávarútvegssýninguna í
Laugardalshöll hefur verið meiri en
áður, að sögn Ólafs M. Jóhannes-
sonar, framkvæmdastjóra sýningar-
innar. „Okkur sýnist þetta verða um
17 þúsund gestir,“ sagði Ólafur þeg-
ar blaðamaður ræddi við hann síð-
degis í gær. Hann útilokar ekki að
það gæti orðið hærri tala þegar end-
anlegar tölur lægju fyrir. Bendir því
allt til þess að sett verði aðsókn-
armet, en árið 2016 mættu 15 þús-
und gestir. Þegar rætt var við fram-
kvæmdastjórann voru tveir tímar
eftir af sýningunni, sem hófst á mið-
vikudag og lauk í gær. „Sýningin
hefur gengið rosalega vel, það er
bara yfir fullt, langar raðir, en geng-
ur reyndar mjög hratt.“
Það sást glögglega í Laugar-
dalnum í gær að mikill áhugi var á
sýningunni, en talsverður vandi var
að finna bílastæði í nágrenni
Laugardalshallar og gengu bíla-
stæðaverðir um og sektuðu þá sem
höfðu lagt ólöglega til þess að kom-
ast á sýninguna. Létt virtist þó vera
yfir gestum sem skoðuðu helstu nýj-
ungar innan íslensks sjávarútvegs.
Tækifæri til viðskipta
Margir gestir og sýnendur á
sýningunni mæta til þess að skapa
tengsl og afla nýrra viðskiptavina
eða finna tæki, tól eða þjónustu sem
þá vantar. Ólafur segist vita af fleiri
samningum sem hafi verið gerðir á
sýningunni. „Ég er búinn að heyra
um mjög marga samninga sem
menn hafa verið að gera. Einn var til
dæmis í gær [fimmtudag] að selja
einhver sjö tæki og svo var annar að
semja um innréttingar í heilt frysti-
hús, svo það hefur verið ýmislegt í
gangi,“ segir hann og bætir við að
honum þyki vera „mikill sóknar-
hugur í mönnum og í sjávarútveg-
inum, þetta er svo öflugur iðnaður.“
Nýtt aðsóknarmet sett á
sjávarútvegssýninguna
Morgunblaðið/Eggert
Margmenni Fjöldi fólks lagði leið sína á sjávarútvegssýninguna.
Gestir um
sautján þúsund
síðdegis í gær
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Kristófer Oliversson, framkvæmda-
stjóri Center-hótela og formaður
FHG-fyrirtækja í hótel- og gisti-
þjónustu, segir að rík ástæða sé til
að hafa áhyggjur af því hversu stór
markaðshlutdeild Airbnb er hér á
landi, ekki síst nú þegar harðnar í
ári. Svo virðist sem eitthvað hafi
dregið úr á Airbnb-útleigu á höfuð-
borgarsvæðinu en nú sé fyrirtækið í
sókn á landsbyggðinni.
Kristófer sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að stjórn FHG-
fyrirtækja hefði í fyrradag fundað
um stöðu greinarinnar og horfur.
„Við vorum almennt að ræða horf-
urnar í greininni, einkum með hlið-
sjón af greiningum bankanna. Ein
helsta niðurstaða okkar nú er að það
þurfi að taka enn fastar á því að
koma skuggahagkerfinu í gistiþjón-
ustu upp á yfirborðið og jafna sam-
keppnisstöðu á öllum sviðum, m.a. í
skattamálum. Ef allir keppa á sömu
forsendum, einnig Airbnb, höfum við
engar áhyggjur. Ef okkur tekst það
ekki er rík ástæða til að hafa áhyggj-
ur,“ sagði Kristófer.
Hlutdeild Airbnb vex úti á landi
Kristófer segir það hafa komið
skýrt fram í greiningu Landsbank-
ans í fyrradag að markaðshlutdeild
Airbnb væri mjög stór og hún færi
vaxandi á landsbyggðinni, en sam-
dráttur á höfuðborgarsvæðinu væri
sáralítill.
„Þetta er stóra málið fyrir okkur,
auk þess sem við höfum miklar
áhyggjur af því skattaumhverfi sem
hótel og gistiheimili búa við. Gisti-
náttaskatturinn var þrefaldaður eins
og kunnugt er haustið 2017 og við
erum því að búa okkur undir við-
ræður við stjórnvöld sem taka þarf
mjög alvarlega,“ sagði Kristófer.
Almenna viðhorfið segir Kristófer
vera að vilji sé til þess að gestir búi á
hóteli eða gistiheimili á meðan á dvöl
þeirra hér á landi stendur. „Ég hef
líkt þessu við það almenna viðhorf
hér á landi að vilji er til þess að
fiskurinn okkar sé veiddur af skip-
um sem hafa kvóta og gera það lög-
lega,“ sagði Kristófer.
Kristófer segir að horfurnar fyrir
veturinn séu nokkuð mismunandi
eftir svæðum. „Mönnum er í besta
falli að takast að verja stöðuna frá
því í fyrra, en það er á hinn bóginn
mjög algengt að um einhvern sam-
drátt sé að ræða. Það hlýtur auðvit-
að segja til sín einhvers staðar þegar
ferðamönnum fækkar yfir 17% yfir
verðmætasta tímann sl. sumar og
um 13% það sem af er árinu. Þar
hefur fall WOW spilað inn í og einnig
vandræðin með Max 8-vélarnar.
Það er ekkert hrun fram undan að
okkar mati en menn eru vissulega
áhyggjufullir yfir stöðunni eins og
hún nú blasir við,“ sagði Kristófer
Oliversson að lokum.
Vilja skugga-
hagkerfið upp
á yfirborðið
FHG hefur áhyggjur af stærð mark-
aðshlutdeildar Airbnb úti á landi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Áhyggjur FGH hefur áhyggjur af
markaðshlutdeild Airbnb hér.
Íslensk ferðaþjónusta á að vera leið-
andi í sjálfbærri þróun. Þetta er
megináherslan í nýrri framtíðarsýn
og leiðarljósum ferðaþjónustunnar
til ársins 2030 sem kynnt voru í
gær. Stefna þessi er afrakstur sam-
starfs fólks hjá ráðuneyti ferðamála,
Samtökum ferðaþjónustunnar og
Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
90% verði jákvæð
Til að styðja við framtíðarsýnina
hafa verið sett markmið um að árið
2030 verði heildarútgjöld ferða-
manna 700 milljarðar króna, yfir
90% landsmanna verði jákvæð í
garð ferðaþjónustu og virkri álags-
stýringu hafi verið komið á.
Annað stórt verkefni í ferðaþjón-
ustu sem kynnt var í gær er Jafn-
vægisásinn. Hvar ferðaþjónustan
stendur gagnvart yfir 60 mæli-
kvörðum sjálfbærrar nýtingar er
markmiðið með þessu mikilvæga
tæki. Er þá horft til samfélags-,
efnahags- og umhverfisþátta. Þetta
er í fyrsta sinn í heiminum sem
svona verkefni er unnið á landsvísu.
Mælikvarðarnir spanna allt frá
ástandi náttúrunnar og ánægju
heimamanna til framboðs á heima-
gistingu og ástandi vegakerfisins.
Nálgast þolmörk
„Meginniðurstaðan er að núver-
andi ástand sé á heildina litið farið
að nálgast þolmörk. Að óbreyttu
þolir Ísland tveggja prósenta árleg-
an vöxt til ársins 2030 en við fimm
prósenta vöxt værum við komin yfir
þolmörk árið 2030,“ segir í frétt frá
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytinu.
„Við ætlum að vera leiðandi í
sjálfbærri þróun, hafa samkeppnis-
hæfni að leiðarljósi og starfa í sátt
við land og þjóð. Setja arðsemi
framar fjölda ferðamanna, vinna að
ávinningi heimamanna um allt land,
gæta jafnvægis milli verndar og
nýtingar og miða að einstakri upp-
lifun, gæðum og fagmennsku,“ sagði
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
ferðamálaráðherra á fundi með
ferðaþjónustufólki þar sem Jafn-
vægisásinn var kynntur. Tækið seg-
ir hún eiga að tryggja að ferðaþjón-
ar beini kröftum sínum í rétta átt að
settu marki, sem sé sú stefna sem
mörkuð hefur verið. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamál Miða að einstakri upplifun, gæðum og fagmennsku, sagði Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra.
Jafnvægisásinn fyrir
sjálfbæra ferðaþjónustu
Þolmörkin nálgast Jafnvægi milli verndar og nýtingar
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 199.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
Við bjóðum upp á glæsilega aðventuferð til Austurríkis
og hefjum ferðina í borg barokksins, hinni stórkostlegu
Salzburg. Borgin er einstök á aðventunni og jólamarkaður
hennar einn sá fallegasti í heimi. Virkisbærinn Kufstein
í Tíról tekur því næst á móti okkur og minnir helst á
myndskreytt ævintýri. Upplifðu allt það stórkostlega sem
aðventan í Austurríki hefur upp á að bjóða!
Aðventusveifla íSalzburg&Tíról
1. - 8. desember
Fararstjóri: Þóra Björk Valsteinsdóttir