Morgunblaðið - 28.09.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 28.09.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Vörður ÞH 44, nýr togari Gjögurs hf. sem kom til landsins sl. miðviku- dag, fer til veiða síðari hlutann í október ef allt gengur upp. Skipið er nú komið til Hafnarfjarðar þar sem vinnslulína og annar slíkur búnaður verður settur um borð. Þegar öllum fínstillingum á þeim tækjum og öðru verður haldið á miðin. „Þetta er glæsilegt skip sem fer vel bæði með afla og áhöfn. Með smíðinni erum við að fylgja þróun tímans, í sjávarútvegi frekar en öðr- um atvinnugreinum er aldrei neitt stopp. Þetta er endalaus framþró- un,“ segir Ingi Jóhann Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Gjögurs. Sjö litlir togarar Um þessar mundir eru sjö nýir togarar að koma til landsins, allir sömu gerðar og smíðaðir í Brattvaag í Noreg. Þegar er Vestmannaey VE, sem smíðuð var fyrir Berg-Hugin/ Síldarvinnsluna, komin til landsins og svo Vörður. Á næstu vikum fær Gjögur svo systurskipið Áskel ÞH. Hin skipin fara til Skinneyjar- Þinganess á Hornafirði og Samherja á Akureyri. Nýju skipin sjö eru litlir togarar, lengdin tæpir 30 metrar, breiddin 12 metrar og stærðin 611 brúttótonn. Íbúðir eru fyrir 13 manns og lestin tekur 80 tonn af fiski. Kaupverð fyr- ir hvert þeirra er um 100 milljónir norskar krónur eða um 1,3 millj- arðar íslenskra króna. Skipin sem Gjögur skiptir út fyrir ný hafa nú verið seld til FISK- Seafood í Grundarfirði og koma í nýja heimahöfn þar í dag. Þar verða þau Sigurborg SH og Farsæll SH. Líður vel á hafinu Lögheimili útgerðarfyrirtækisins Gjögurs hf. er á Grenivík. Ástæðuna segir Ingi Jóhann þá að fyrirtækið hafi verið stofnað þar og gott sé að byggja á sögunni. Nyrðra er fyrir- tækið með frystihús og fiskvinnslu, skrifstofur eru í Reykjavík en á sjó- inn er sótt frá Grindvík. Þegar tekið var á móti Verði GH í Grindavík í vikunni blessaði séra Pálmi Matthíasson skipið, en hann er frændi fólksins í fjölskyldunni sem á og rekur Gjögur. Nefndi Pálmi að fyrirtækið og starfsemi þess hefði jafnan verið lífæð bæði á Grenivík og í Grindavík. Nafnið Vörður segi líka sitt; það sé sá sem vakir, verndar og leggur lið. Þorgeir Guðmundsson, skipstjóri á Verði, kveðst ánægður með skipið nýja, það sé stöðugt og líði vel á haf- inu. Fyrir gamalreyndan skipstjórn- armann eins og sig sé nýmæli að ekki séu lengur takkar í stjórntækj- um. Nú sé tækjum og tólum stýrt með snertiskjái sem séu margir. Mest á Vestfjarðamiðum „Mest sækjum við á Verði í bol- fiskinn og erum stærstan hluta árs- ins á Vestfjarðamiðunum. Á vetr- arvertíðinni, frá í mars og fram í maí, höldum við okkur hins vegar mest hér við suðurströndina enda er þá nóg af þorski hér skammt frá. Al- mennt eru veiðiferðirnar hjá okkur stuttar, gjarnan tveir til fimm dag- ar,“ segir Þorgeir sem hefur verið á Gjögurskipum frá árinu 1978. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Útgerðarmaður Þetta er endalaus framþróun,“ segir Ingi Jóhann Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gjögurs. Vakir og verndar  Vörður er glæsilegur togari í Grindavík  Fer vel bæði með afla og áhöfn  Einn af sjö nýjum  Sótt í bolfiskinn Feðgar Þorgeir Guðmundsson skipstjóri með Brynjari Frey syni sínum. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans, greindi í gær í vikulegum pistli sínum til starfsfólks frá fyr- irhuguðum breytingum á skipuriti spítal- ans sem taka gildi 1. október. Svandís Svavars- dóttir heilbrigðis- ráðherra hefur staðfest skipu- ritsbreytingarn- ar. Í pistli Páls kemur fram að skipuriti spítalans var síðast breytt árið 2009. „Þær breytingar sem þá voru gerðar skiptu sköpum í þeim öldusjó sem var í kjölfar fjármála- hrunsins en þáverandi skipurit hentar ekki lengur verkefnum spít- alans,“ skrifar Páll. Í pistlinum segir að meginmark- mið breytinganna sé að sníða skipu- lag starfseminnar og stjórnunar- fyrirkomulag að aðalverkefnum spítalans og síbreytilegum þörfum samfélagsins um leið og hagrætt sé í stjórnunarþætti Landspítala. Á sama tíma sé leitast við að ná betri heildarsýn á núverandi flæði og þjónustu við sjúklinga með því að draga úr sílóum og samhæfa starf- semina þvert á núverandi svið. „Það er mat okkar að nýtt skipurit styðji við undirbúning að starfsemi spít- alans í nýju húsnæði við Hring- braut,“ skrifar Páll. Þrjár stöður í stað níu Samkvæmt pistlinum felst meg- inbreytingin í því að starfsemi sjö klínískra sviða og rekstrarsviðs verður skipt milli þriggja sviða: meðferðarsviðs, aðgerðasviðs og þjónustusviðs. Vegna þess hafi stöð- ur níu framkvæmdastjóra á spítal- anum verið lagðar niður og í stað þeirra auglýstar stöður fram- kvæmdastjóra þessara þriggja sviða. Munu nýir framkvæmdastjór- ar taka til starfa 1. október. Páll lýkur pistli sínum á að vara við að það muni taka lengri tíma að ganga frá þeim breytingum sem fylgja muni nýju skipuriti, en unnið verði eins hratt og unnt er. Framkvæmda- stjórum fækkað á Landspítala  Nýtt skipurit tekur gildi 1. október Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn Þrír framkvæmda- stjórar verða í stað níu áður. ÞJÓNUSTUSVIÐAÐGERÐASVIÐMEÐFERÐARSVIÐ Nýtt skipulag Landspítala 2019 Hringbrautarverkefnið FORSTJÓRI Fagráð Ráðgjafarnefnd FRAMKVÆMDASTJ. HJÚKRUNAR FRAMKVÆMDASTJ. LÆKNINGA Vísindi og menntun Gæði og öryggi Rannsóknarstofur Blóðbanki Myndgreining SkurðlækningarBráðaþjónusta Lyflækningar Endurhæfing Aðföng – Fasteignir – Umhverfi Skurðstofur Gjörgæsla Öldrunarþjónusta Hjarta- og æðaþjónusta Geðþjónusta BarnadeildirKvennadeildir BUGL Lyfjaþjónusta Ráðgjafarþjónusta Fjarheilbrigðis- þjónusta Heilbrigðis- og upplýsingatækni Lyfjanefnd FJÁRMÁL – MANN- AUÐSMÁL Páll Matthíasson www.apotekarinn.is - lægra verð Nýtt Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. ERT ÞÚ MEÐ HÁLSBÓLGU? Bólgueyðandi og verkjastillandi munnúði við særindum í hálsi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.