Morgunblaðið - 28.09.2019, Page 20
ÚR BÆJARLÍFINU
Björn Björnsson
Sauðárkróki
Um helgina reka Skagfirðingar stóð til Lauf-
skálaréttar í Hjaltadal og ef að vanda lætur
verður þar fjöldi glæsihesta sem verða nú að yf-
irgefa frelsið í sumarhögum. Einnig og eftir
vandanum, verður verulegur mannfjöldi sam-
ankominn til að sjá og taka þátt í rekstrinum of-
an úr Kolbeinsdal og til réttarinnar. Allar líkur
eru á góðviðri að þessu sinni, en stundum hefur
slagveðursrigning og kuldi sett sinn svip á rétt-
ardaginn.
Nýlega var Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra settur í fertugasta sinn, en það var Jón
Friðberg Hjartarson sem setti skólann í fyrsta
sinn hinn 22. september 1979. Ingileif Odds-
dóttir skólameistari bauð gesti velkomna og
sérstaklega nýnema sem nú væru að hefja nám
í verk- og bóknámsgreinum að loknum grunn-
skóla. Í ávarpsorðum hennar þar sem hún rakti
í stuttu máli sögu skólans sem tók við af Iðn-
skóla Sauðárkróks og framhaldsdeild Gagn-
fræðaskólans, kom fram að miklar breytingar
hefðu orðið bæði hvað varðaði námið sjálft og
svo umgjörð alla. Glæsileg og vel búin heima-
vist rúmar alla þá sem lengra þurfa að sækja og
vel búin bók- og verknámshús þjóna vel nem-
endum og starfsliði.
Allnokkrar breytingar hafa orðið á upp-
tökusvæði nemenda sem áður var einkum
Norðurland vestra, en nú stunda nemendur
nám við skólann með fjarnámi nánast frá öllum
landshornum, m.a. í samvinnu við Mennta-
skólann á Ísafirði og Verkmenntaskóla Austur-
lands. Þá má geta þess að nú á haustönn eru í
fyrsta sinn allar námsbrautir við skólann
kenndar samkvæmt nýrri námsskrá. Í dag eru
60 starfsmenn við skólann og eins og und-
anfarin ár um 500 nemendur í staðar- og fjar-
námi, brautskráðir frá upphafi eru 2.663 nem-
endur.
Gríðarlegar framkvæmdir hafa í sumar
verið á hinum fornfræga áningarstað Varma-
hlíð, sem segja má að frá upphafi bílaaldar á Ís-
landi hafi verið viðkomustaður allflestra þeirra
sem leið áttu á milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Löngum fóru allir landflutningar frá Reykjavík
og allt til sunnanverðra Austfjarða um þessa
leið og var þá oft þröng á þingi, ekki hvað síst
þegar færð var erfið og bíða þurfti moksturs
um Öxnadalsheiði. Verslunarhúsin í Varmahlíð
hafa alltaf verið í eigu Kaupfélags Skagfirðinga
og allt fram til 1. nóvember síðastliðinn ann-
aðist KS allan rekstur, en þá var gerður samn-
ingur við Olís sem er nú rekstraraðili á verslun
og olíusölu.
Þegar eftir að samningar voru undirritaðir
var hafist handa um endurbætur innanhúss í
versluninni sem nú er björt, rúmgóð og vel
skipulögð og er þeim breytingum nánast lokið,
en utandyra er enn verið að ganga frá aðkomu-
svæði fyrir flutningabíla og bifreiðastæðum
fyrir viðskiptamenn verslunarinnar. Þá hafa
eldsneytisdælur verið fluttar og gerðar mun
aðgengilegri og þrengja ekki lengur að aðkomu
verslunarinnar. Að sögn Péturs Stefánssonar,
rekstrarstjóra verslunarinnar, er þess vænst
að öllum frágangi utanhúss verði lokið fyrir
veturinn, og segist hann verulega ánægður með
alla útkomu á þessum miklu framkvæmdum
sem verið hafi stundum umfangsmeiri en gert
var ráð fyrir en öll vandamál hafi verið leyst.
Veruleg aukning hefur verið á umsvifum við
Sauðárkrókshöfn á þessu ári og munar þar
mest um að fleiri útgerðaraðilar hafa séð sér
hag í að landa afla á Sauðárkróki og má þar
nefna Brim, Zophonías Cesilsson, Vísi og svo
heimaskip FISK Seafood, svo einhverjir séu
nefndir. Þess utan eru bæði dragnóta- og línu-
bátar, auk 10-12 handfærabáta heimamanna,
sem meðal annars nýta sér að komið er útibú
frá Fiskmarkaði Íslands, vel staðsett við höfn-
ina. Dagur Þ. Baldvinsson hafnarstjóri segir að
allt árið í fyrra hafi verið landað um 25 þúsund
tonnum en það sem af er ári hefur löndunin los-
að 21 þúsund tonn og segist hann búast við að
enn verði fyrra met slegið. Þá segir Dagur að
nú þegar hafi ný þjónusta skotið upp kolli, því
boðuð hafi verið koma tveggja skemmti-
ferðaskipa á næsta sumri og undirbúningur sé í
fullum gangi til móttöku þeirra.
1238 Baráttan um Ísland, nefnist sýndar-
veruleikasýning sem opnuð var um eða eftir
mitt sumar og segir Áskell Heiðar Ásgeirsson,
einn af forstöðumönnum sýningarinnar, að að-
standendur hennar geti ekki verið annað en
ánægðir með viðtökurnar. Aðsókn var betri en
þorað var að vona, þar sem engin kynning var
meðal þeirra ferðahópa sem á flakki voru þetta
sumarið, en fyrir næsta sumar yrði sýningin
kunnug öllum þeim túristum sem hér legðu
land undir hjól. Sagði Áskell Heiðar að nú væri
verið að búa sig undir haustið og að taka á móti
skólum og ýmsum hópum sem kynna vildu sér
þá ríku söguhefð sem í Skagafirði væri og þá
örlagaatburði þegar veldi Sturlunga yfir Ís-
landi var hnekkt, er Gissur Þorvaldsson og Kol-
beinn ungi drápu á Örlygsstöðum Sighvat
Sturluson og syni hans og réðu þar með öllu Ís-
landi. Eftir var bara að gera Snorra Sturluson
óvirkan og svo einn bróður Þórð kakala, en
hann var úti í Noregi og ekki talinn líklegur til
eftirmála.
En frammi á Kringlumýri, gegnt Varma-
hlíð býr Sigurður Hansen, einhver gagnfróðasti
maður um þau umbrotaár í sögunni þegar land-
ið var að tapa sjálfstæði sínu og um þau átök
sem urðu og eftirmál mannvíga þegar stóru
ættirnar bárust á banaspjót. Sigurður hófst
handa árið 2009 með því að setja upp eitt
stærsta útilistaverk landsins, þegar hann gerði
tilgátumynd af því hvernig hann sá fyrir sér að
Þórður kakali hefði skipað liði sínu er hann
réðst á móti Brandi Kolbeinssyni, sem Kol-
beinn ungi hafði falið forystu Ásbirninga í
Skagafirði, og endurheimti veldi Sturlunga.
Laust fylkingunum saman á svonefndu Haugs-
nesi árið 1246 og varð það mannskæðasta orr-
usta Íslandssögunnar en á annað hundrað
manna féll. Flutti Sigurður stóra steina og rað-
aði upp sem táknuðu hvern mann í liðunum
enda kemur fram í sögunni hvar aðalmenn í
hvoru liði fóru fyrir mönnum sínum. En Sig-
urður hélt ótrauður áfram, gömul loðdýrahús á
Kringlumýri urðu að fundar- og samkomusal
að hluta til árið 2012 en síðan var annar hluti
tekinn undir gagnmerka sýningu um Þórð ka-
kala, líf hans og endalok.
Fékk Sigurður í lið með sér listamanninn
Jón Adolf Steinólfsson og saman ákváðu þeir að
bjóða til samstarfs innlendum og erlendum
listamönnum til að túlka sögu kakalans og aug-
lýstu eftir þátttakendum. Á milli 80 og 90 um-
sóknir bárust og völdu þeir félagar úr 14 lista-
menn, innlenda og erlenda, frá alls 10
þjóðlöndum. Eftir að valið hafði verið var hverj-
um listamanni send hljóðupptaka á ensku þar
sem sagði frá þeim atburðum sem hann átti að
túlka og kom þessi hópur svo saman í vor og
vann að listaverkunum í nokkrar vikur en Jón
Adolf hélt utan um hópinn og stýrði verkum.
Sýningin var svo sett upp og opnuð formlega
18. ágúst síðastliðinn. Sagði Sigurður að þrátt
fyrir litla auglýsingu hefði aðsókn verið nokkuð
góð og ganga gestir í gegnum sýninguna undir
hljóðleiðsögn þar sem sagt er frá hverju verki
fyrir sig. Þeir Sigurður og Áskell Heiðar eru
sammála um að þessar tvær sýningar um sögu
héraðsins styðji hvor aðra og nálgist söguna
hvor á sinn hátt en frá ólíkum sjónarhornum.
Svo sem sjá má er margt að gerast í
Skagafirði og nóg við að vera og svo njóta menn
bara blíðviðrisins dag eftir dag og láta hverjum
degi nægja sína þjáningu, eins og stundum áð-
ur.
Haustblíða og nóg við að vera í Skagafirði
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Kakalaskáli Sigurður Hansen hjá listaverki um það þegar eitrið draup í bikar Þórðar kakala.
Framkvæmdir við endurheimt vot-
lendis eru að hefjast á vegum Vot-
lendissjóðs. Framkvæmdir næstu
vikna jafnast á við að slökkt væri á
rúmlega 1.000 fólksbílum, segir í
frétt frá sjóðnum.
Leyfi hefur borist frá Hafnar-
fjarðarbæ fyrir endurheimt votlendis
í Krísuvíkurmýri og Bleiksmýri, rétt
tæplega 60 hektara, sem þýðir end-
urheimt upp á um það bil 1.100 tonn
af CO2 ígildum á ári. Framkvæmdir
hefjast á mánudag. Umhverfis- og
framkvæmdanefnd Ísafjarðarbæjar
hefur samþykkt framkvæmdir um
endurheimt votlendis á jörðinni
Kirkjubóli í Önundarfirði. Þær munu
tryggja stöðvun á losun sem nemur
481 tonni á ári og eiga að hefjast í
byrjun október.
Þá standa yfir framkvæmdir á
jörðinni Hofi í Norðfirði. Þar ákváðu
eigendur að leggja sitt af mörkum til
að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda framkvæma endurheimtina
með fjárstuðning frá Votlendissjóði.
Í gær áttu að hefjast framkvæmdir á
spildu við Bessastaði.
Verið er að undirbúa fram-
kvæmdir fyrir Grafarkot í Borg-
arfirði en þar hafa landeigendur
lengi haft á stefnuskránni að end-
urheimta votlendi á jörðinni en þar
er um að ræða 52 hektara með losun
upp á 1.040 tonn af CO2 ígildum.
Líkatjörn komin aftur
Á heimasíðu Skógræktarinnar er
sagt frá endurheimt votlendis í Mos-
felli í Grímsnesi til mótvægis við land
sem tapast við gerð Brúarvirkjunar í
Haukadal. Í leyfisferli Brúarvirkj-
unar gerði Skipulagsstofnun þá
kröfu að votlendi yrði endurheimt í
stað þess lands sem færi undir vatn.
Þar sem Haukadalslandið er í um-
sjón Skógræktarinnar var ákveðið að
finna framræst land á vegum stofn-
unarinnar annars staðar.
Fyrir valinu varð svæði í Mosfelli í
Grímsnesi þar sem áður var meðal
annars falleg tjörn, Líkatjörn. Svæð-
ið var ræst fram 1988 í því skyni að
þar yrði ræktaður skógur, en ekkert
hefur orðið af skógrækt þar. Þegar
affallið var stíflað fylltist tjörnin á ný
og nú er yfirborð hennar komið í eðli-
lega hæð.
Örnefnið Líkatjörn er sagt vera
dregið af því að lík Jóns Vídalíns
biskups hafi verið þvegið í tjörninni á
leið í Skálholt, segir á vef Skógrækt-
arinnar. Jón lést í Biskupsbrekku á
Uxahryggjaleið 1720. aij@mbl.is
Framkvæmdir
hjá Votlendissjóði
Líkt og slökkt væri á þúsund bílum
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
skoðið úrvalið á facebook
Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu
okkar og fengið sent hvert á land sem er.
Opið: laugardag frá 10-18 – sunnudag frá 11-17
Ný sending af Hum
mel vörum
Breytt og
bætt búð
Allir velkomnir
á frábæru verði fyrir alla fjölskylduna
SKÓR, FATNAÐUR, ,LEIKFÖNG, HANDKLÆÐI, YOGA DÝNUR, BAKPOKAR, GÖNGUSTAFIR, ÍSBRODDAR, GLERAUGU, LOPI,
PRJÓNAR, NÁLAR, NEON VETTLNINGAR, GUMMITÚTTUR, SUNDGLERAUGU, SPIL, HÁRBURSTI, BENDLABÖND, VETTLINGAR,
HÚFUR, GJAFAPOKAR, KORT, NAGLAKLIPPUR, DÚKKUR, TÖSKUR, TÓBAKSKLÚTAR, NÆLONSOKKAR, SKÓHORN, INNLEGG,
BOLTAR, SÁPUKÚLUR, HLAUPASOKKAR, GJAFAVARA o.m.fl.