Morgunblaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 Áfimmtudaginn boðaði Íslensk málnefnd til málræktarþings umþau rafrænu gögn um íslenskt mál sem almenningur hefur op-inn aðgang að. Þar ber hæst málið.is á vef Árnastofnunar meðnýrri beygingarlýsingu Kristínar Bjarnadóttur og orðanetinu sem Jón Hilmar Jónsson setti saman – auk orðabóka. Á vefnum má einnig komast í textasöfn og Ritmálssafn gömlu Orðabókar Háskólans með orða- forðanum frá 1540 til nútímans. Til að fletta upp í forna málinu þarf að fara til Kaupmannahafnar á Ordbog over det norrøne prosasprog. Flest ættu að komast áleiðis í mál- farsefnum með því að gramsa í gagnasöfnum stofnunarinnar, bæði til að finna svör við spurn- ingum og spyrja nýrra. „Vandi íslenskrar tungu á vorum dögum“ felst ekki í skorti á aðgengilegum upplýs- ingum um gott mál og vont, eða rétt mál og rangt að fornu og nýju. Upp- byggilegar leiðbeiningar eru auðfáanlegar. Hér sem víðar á við að þótt öll þekkingaratriði um málið séu aðgengileg og öllum opin er gallinn sá að fólk aflar sér þeirra ekki. Það liggur fyrir að börn læra tungumál af því að talað er við þau og af bókum sem þurfa helst alltaf að vera aðeins ofar þeirra þroskastigi þannig að þeim miði áfram í máltökunni fremur en að stauta árum saman við að botna í „Sísí sá sól“ – uns Sísí fríkar loks út. Í pólitíkinni kemur slík stöðnun fram í staglkenndum málflutningi sem tekur aldrei mið af fyrirliggjandi upplýsingum eða fram komnum rökum. Í málpólitíkinni veldur slík einangrun frá þekkingu ekki síður stöðnun og orðafátækt. Og það getur reynst erfitt að bjarga börnum og unglingum úr orðafátæktargildru skilaboðaskjóða símamiðlanna þegar þau hætta að lesa lengri texta en þá sem rúmast á skjánum eða hætta að tala í heyranda hljóði við sér eldra fólk og jafnaldra. Segja má að það sé jaðarskatturinn sem unga fólkið greiðir fyrir afþreyinguna í símanum: orðaforðinn skreppur saman miðað við það sem hann gæti verið með þroskandi mál- notkun í ræðu og riti. „Vilji er allt sem þarf,“ orti Einar Benediktsson þegar hann vildi hvetja þjóð sína til dáða. Gunnar Thoroddsen tók þessi orð Einars upp á níunda áratug síðustu aldar þegar hann hafði sannfært nokkra vini sína í Sjálf- stæðisflokknum um að mynda með sér ríkisstjórn til vinstri framhjá for- ystu flokksins. Í málfarsefnum þarf fólk að vilja halda áfram að tala ís- lensku; hafa trú á henni og treysta henni sem fullgildu máli meðal mála. Skólakerfið getur hjálpað til með því að láta af því að leiða unglinga í vafa- samar villugildrur á samræmdum prófum. Besta málræktin er að nota málið á fjölbreytilegan og nýstárlegan hátt í þeim aðstæðum sem við mæt- um á hverjum degi. Gamla málið dugar skammt í breyttum heimi ef við leggjum ekki stöðugt kapp á að það endurnýist og dafni á vörum kynslóð- anna – um leið og við höldum gömlu gögnunum til haga í tölvunum okkar og bókskápunum í betri stofunni. Endurnýjun lífdaga málsins Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Þessa dagana er að koma út ný bók eftir JónBaldvin Hannibalsson, fyrrverandi formannAlþýðuflokks, þingmann og ráðherra, semnefnist Tæpitungulaust – lífsskoðun jafn- aðarmanns. Bókin kemur í bókabúðir eftir helgi. Um er að ræða safna blaðagreina og viðtala, svo og ræður við ýmis tilefni o.fl. Stóra myndin, sem birtist við lestur þessarar bókar, er sú mikla og skarpa yfirsýn, sem höfundur hefur yfir þjóðfélagsumræður okkar samtíma, bæði hér heima og í öðrum löndum og þá fyrst og fremst í helztu nágranna- löndum okkar. Þótt greinarhöfundur hafi rifizt við bókarhöfund um pólitík frá unglingsárum kemur þessi mikla yfirsýn mér á óvart og er sennilega fátíð á okkar litlu eyju hér norð- ur í höfum. Jón Baldvin er með jafnaðarstefnuna í blóðinu, ef svo má að orði komast. Hann er sonur Sól- veigar Ólafsdóttur og Hannibals Valdi- marssonar, sem var einn helzti alþýðu- foringi Íslands á 20. öldinni vegna þess að hann gegndi forystuhlutverki í verkalýðshreyfingunni áratugum sam- an en var jafnframt í leiðandi hlutverki á hinum pólitíska vettvangi. Og svo er hann skírður í höfuðið á Jóni Baldvinssyni, sem var á sinni tíð forseti Alþýðusambands Íslands og formaður Alþýðuflokksins á sama tíma og gjarnan verið litið til, sem eins merkasta leiðtoga þess flokks. Honum hefur því runnið blóðið til skyldunnar á póli- tískri vegferð hans um ævina. Í ræðu, sem Jón Baldvin flutti á flokksþingi Alþýðu- flokksins fyrir formannskjör 1984 sagði hann m.a.: „Gleymum því aldrei að frá og með þeim degi, sem sjómaðurinn við færið, verkamaðurinn við bygging- arkranann og uppfræðari æskunnar finna það ekki í hjarta sínu lengur að okkar flokkur sé þeirra flokkur, þá hefur okkur mistekizt, þá höfum við hreinlega brugðizt skyldu okkar og ætlunarverki.“ Getur verið að í þessum orðum Jóns Baldvins fyrir tæpum fjórum áratugum megi finna skýringuna á til- vistarkreppu jafnaðarmanna um þessar mundir, bæði hér á Íslandi og í nálægum löndum? Er svo komið að sjómaðurinn, verkamaðurinn og kennarinn finni ekki lengur í hjarta sínu að Samfylk- ingin, arftaki Alþýðuflokksins og hluta Alþýðu- bandalags, sé þeirra flokkur? Heldur miklu fremur flokkur háskólaborgara sem hafi týnt tengslunum við rætur sínar? Kannski hefur Jón Baldvin haft slíkar áhyggjur af Alþýðuflokknum, þegar hann flutti þessa ræðu. Og áreiðanlega ekki að ástæðulausu. Mér er minnisstætt, að í kosningum til stjórna verkalýðsfélaga í Reykjavík á fyrstu árum Viðreisnarstjórnarinnar upp úr 1960 var hópur fólks úr lýðræðisflokkunum, sem svo voru nefnd- ir, saman kominn í stórum sal. Við eitt lítið borð í salnum sátu þeir Alþýðuflokksmenn, sem voru að vinna í kosn- ingunum. Á nánast öllum öðrum borðum voru sjálfstæð- ismenn. Það var á þeim árum þegar Sjálfstæðisflokk- urinn var annar stærsti „verkalýðsflokkur“ landsins. Móðurafi minn, sem reri á árabátum frá Skálavík, vestan Bolungarvíkur, og var síðar hafnarverkamaður í Reykjavík sagði frá því að hann hefði á yngri árum alltaf kosið Alþýðuflokkinn en farið að skammast sín fyrir þann flokk og þess vegna kosið Sameiningarflokk alþýðu – Sósíalistaflokkinn eftir að hann kom til sögunnar. Kannski hefur Alþýðuflokkurinn verið byrjaður að gleyma uppruna sínum miklu fyrr eða í stríðsbyrjun? Í raun og veru má segja að hin nýja bók Jóns Baldvins sé eins konar kennslubók um sögu jafnaðarmanna í fortíð og nútíð fyrir ungt fólk á vinstri kantinum á okkar tímum. Þar er að finna rökræður fram og aftur um sjón- armið og álitamál yfir margra áratuga tímabil og sigra og ósigra þeirra. Og að sjálfsögðu um ójöfnuðinn en rætur hans hafa verið eitt af helztu rifrildisefnum okkar Jóns Baldvins í seinni tíð. Ég held því fram að ákvörðun vinstri stjórnar Steingríms Hermannssonar 1988-1991 um frjálst fram- sal veiðiheimilda – en bæði Alþýðuflokkur og Alþýðu- bandalag áttu aðild að þeirri ríkisstjórn – hafi lagt grunn að þeim gríðarlega tekju- og eignamun, sem orðið hafi á síðustu þremur áratugum og með þeirri ákvörðun hafi fyrstu milljarðamæringarnir orðið til á Íslandi. Jón Baldvin segir í grein, sem birt er í þessari bók og birtist fyrst í Fréttablaðinu fyrir tveimur árum, að ég hafi með þeim staðhæfingum „spillt … skynsamlegum umræðum með því að afflytja staðreyndir um stórmál“. Í bók Jóns Baldvins er að finna ítarlega umfjöllun um Evrópusambandið og EES-samninginn, svo og um þátt hans í sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna, þegar Sovétríkin voru að falla. Þegar EES-samningurinn var í farvatninu, átti Jón Baldvin tveggja kosta völ, þ.e. að verða forsætisráðherra í vinstristjórn eftir kosningarnar vorið 1991 en sjá fram á að EES-samningurinn yrði ekki gerður eða ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn undir forsæti Davíðs Oddssonar og ná þeim samningi fram. Hann valdi síðari kostinn og verður því ekki sakaður um að hafa tekið per- sónulegan frama fram yfir þann málefnalega árangur, sem hann vildi ná. Og staðreynd er að afstaða Íslands skipti máli þegar kom að sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna og kannski er það eina dæmið um slíkt í lýðveldissögunni. Tæpitungulaust er lifandi og læsileg bók og ekki frá- leitt að halda því fram að hún geti orðið til þess að flokk- ar jafnaðarmanna finni rætur sínar á ný og að það rifjist upp fyrir þeim til hvers þeir urðu til. Geta jafnaðarmenn fundið rætur sínar á ný? Kennslubók um póli- tík fyrir ungt fólk á vinstri kantinum Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Jón Þorláksson lýsti viðhorfi sam-starfsmanns síns, Hannesar Hafsteins ráðherra, til utanríkismála svo í Óðni 1923, að „hann vildi afla landinu þeirra sjálfstæðismerkja og þess sjálfstæðis, sem frekast var samrýmanlegt þeirri hugsun að halda vinfengi danskra stjórnmála- manna og fjármálamanna og áhuga þeirra fyrir að veita þessu landi stuðning í verklegri framfaraviðleitni sinni“. Hannes var Danavinur, hvorki Danasleikja né Danahatari. Að breyttu breytanda fylgdi Ólaf- ur Thors sams konar stefnu, eins og Þór Whitehead prófessor skrifaði um í Skírni 1976: Ólafur vildi verja full- veldi þjóðarinnar eins og frekast væri samrýmanlegt þeirri hugsun að halda vinfengi Bandaríkjamanna, sem veitt gátu Íslendingum ómetan- legan stuðning. Honum og Bjarna Benediktssyni tókst vel að feta það þrönga einstigi eftir síðari heims- styrjöld. Þeir voru Bandaríkjavinir, hvorki Bandaríkjasleikjur né Banda- ríkjahatarar. Þriðji stjórnmálamaðurinn í þess- um anda var Snorri Sturluson. Hann hafði verið lögsögumaður frá 1215 til 1218, en fór þá til Noregs til að koma í veg fyrir hugsanlega árás Norð- manna á Ísland, en þeir Hákon kon- ungur og Skúli jarl voru Íslendingum þá ævareiðir vegna átaka við norska kaupmenn. Jafnframt vildi Snorri endurvekja þann íslenska sið að afla sér fjár og frægðar með því að yrkja konungum lof. Honum tókst ætl- unarverk sitt, afstýrði innrás og gerðist lendur maður konungs (bar- ón). Snorri hefur eflaust sagt Hákoni og Skúla hina táknrænu sögu af því, þegar Haraldur blátönn hætti við árás á Ísland, eftir að sendimaður hans hafði sér til hrellingar kynnst landvættum, en hana skráði Snorri í Heimskringlu. Og í ræðu þeirri, sem hann lagði Einari Þveræingi í munn, kemur fram sams konar hugsun og hjá Hannesi og Ólafi: Verum vinir Noregskonungs, ekki þegnar hans eða þý. Við þetta sætti konungur sig hins vegar ekki, og var Snorri veginn að ráði hans 1241. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Utanríkisstefna Hann- esar, Ólafs og Snorra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.