Morgunblaðið - 28.09.2019, Page 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
✝ HallgrímurHelgason
fæddist 30. júní
1927 á Hrapps-
stöðum í Vopna-
firði. Hann lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Sundabúð,
Vopnafirði, 18.
september 2019.
Foreldrar hans
voru Helgi Gíslason
bóndi og fræðimað-
ur, f. 6.2. 1897, d. 27.7. 1976, og
Guðrún Óladóttir húsfreyja, f.
4.4. 1897, d. 18.12. 1937. Systk-
ini Hallgríms voru: Gísli Sig-
urður, f. 1924, d. 2011, Helga
Vilborg, f. 1925, d. 1981, maki
var Helge Granberg. Stefán, f.
1929, d. 2019, maki Oddný Pál-
ína Jóhannsdóttir. Björn Ingvar,
f. 1929, d. 1985. Jónína, f. 1931,
maki var Jón Gíslason. Ástríður,
f. 1933, maki var Gunnsteinn
Karlsson. Ólöf, f. 1933, maki var
Sigurður Björnsson. Einar, f.
1935, d. 2015.
Þriggja ára gamall fór Hall-
grímur í fóstur til Helga Ein-
ur 7. janúar 1964, húsasmiður á
Vopnafirði, maki Katla Rán
Svavarsdóttir leikskólakennari,
þeirra synir eru a) Hemmert
Þór og b) Hallgrímur Freyr. 4)
Jakob Helgi, fæddur 8. ágúst
1965, húsasmíðameistari á Eg-
ilsstöðum, maki Halla Ormars-
dóttir klæðskeri og kennari,
þeirra dóttir er a) Irma Gná,
sambýlismaður hennar er Örvar
Þór Guðnason.
Hallgrímur var um tíma í far-
skóla, tvo vetur í smíðadeild
Héraðsskólans á Laugum og
1951 útskrifast hann búfræð-
ingur frá Hvanneyri eftir nám
þar í einn vetur. Hann var bóndi
og bjó fyrst á nýbýlinu Hrapps-
stöðum 2 og síðan á Þorbrands-
stöðum til 1993 er þau hætta bú-
skap. Hann stundaði ýmis störf
samhliða búskap, m.a. við við-
hald á gamla bænum á Bustarf-
elli. Hallgrímur lærði bókband
um sjötugt og hefur bundið inn á
þriðja hundrað bóka. Hann var í
Félagi safnamanna og fór oft á
farskóla þeirra. Hann tók virk-
an þátt í Félagi eldri borgara er
þar heiðursfélagi. Safnaði hann
saman ljóðum eftir pabba sinn
og einnig afa og gaf út ljóðin
hans í fyrra, Ljóð langafa.
Útför Hallgríms fer fram frá
Hofskirkju í dag, 28. september
2019, klukkan 13.
arssonar og Jónínu
Óladóttur á Þor-
brandsstöðum en
þau voru bæði
skyld honum og þar
er hann til 1945 er
þau bregða búi.
Hallgrímur
kvænist 1960 Sig-
rúnu Jakobsdóttir,
f. 17. október 1922,
d. 8. janúar 2009.
Þau eignuðust þrjá
syni og hún átti eina dóttur með
Úlfi Ingólfssyni frá Skjaldþings-
stöðum. 1) Jakobína, fædd 8.
desemer 1942, fyrrverandi
launafulltrúi, gift Óskari Han-
sen sem er látinn. Þau eiga þrjá
syni: a) Óskar. b) Einar Trausti,
maki Cassandra Clift, þau eiga
þrjá syni. c) Tryggvi Knud, maki
Andrea Jóhannsdóttir, þau eiga
tvær dætur. 2) Snorri, fæddur 7.
desember 1960, bílstjóri í Hafn-
arfirði, maki Svanhildur Hlöð-
versdóttir, skrifstofumaður,
dætur þeirra eru a) Sigrún
Alma, b) Kolbrún Ása og c)
Kristrún Halla. 3) Baldur, fædd-
Nú er von á góðum gesti
gengur allt í hag.
Afi minn sá allra besti
er að koma í dag.
Þessa vísu sendir þú dóttur
minni fyrir ekki svo löngu. Nú
ert þú lagður af stað í ferðalag
til sumarlandsins og trúi ég að
hún eigi vel við er þú nærð
áfangastað.
Ég vitna til þess sem var og er
hvað verður mun Guð einn ráða.
Glaður því áfram ég götuna fer
og geng til eilífra náða.
(Helgi Gíslason)
Ég var svo lánsamur að
njóta samvista með þér í rúm-
lega hálfa öld.
Elsku pabbi, takk fyrir allt.
Þinn sonur,
Jakob.
Elsku Hallgrímur afi, ég
man alveg síðan ég var pínulítil
og kom í heimsókn, við sett-
umst alltaf niður við eldhús-
borðið og spiluðum á spil, töl-
uðum saman um lífið og
tilveruna stundum klukkutím-
um saman. Þér fannst einnig
virkilega gaman að fara með
mig á rúntinn út í sveit, sér-
staklega utanvegar og í torfæru
til að sýna mér alls konar staði
og hluti og segja mér sögur frá
því í gamla daga. Þér fannst
alltaf nauðsynlegt að fara með
okkur út að borða sama hvort
það var bara í ís eða stærri
máltíðir. Í öllu sem þú dundaðir
þér við vildi ég vera með. Þeg-
ar ég eltist og þurfti hjálp við
námið þá hringdi ég alltaf í þig,
sérstaklega þegar það tengdist
íslensku, öll gömlu íslensku
orðin sem ég nota í dag kennd-
ir þú mér.
Það eru ófá símtöl sem ég
hef átt með þér í gegnum tíðina
og hef ég alltaf viljað vera helst
í Firðinum fagra með þér. Þú
kenndir mér ofboðslega margt
sem ég tek með mér alla daga.
Þú hefur alltaf verið mín helsta
fyrirmynd í lífinu, þú varst allt-
af góður við alla, fannst lausnir
á öllum málum og varst mjög
mannglöggur. Þegar við fjöl-
skyldan komum í heimsókn
beiðst þú alltaf með þitt fallega
bros, spenntur að hitta litlu
barnabörnin þín sem bjuggu
lengst í burtu frá þér seinustu
árin.
Það er rosalega sárt að
sakna, söknuðurinn er mikill og
verður það alltaf. Ég veit að þú
ert kominn á betri stað, í faðm
ömmu Rúnu sem þú hefur
saknað svo sárt. Ég veit að þú
fylgist vel með mér og sérð mig
vaxa og dafna. Þú hefur og
munt alltaf vera stoltur af öllu
sem ég tek mér fyrir hendur.
Þú hefur alltaf sagt mér að
halda fast í draumana mína og
það mun ég gera. Ég veit að þú
passar vel upp á mig.
Hvergi er fró á heimsins stig
hundruð óga sárin
alltaf snjóar ofan á mig
þó úr mér frói tárin
Þó mér lífið taki tár
tel ég það með hnossi
af því nú gróa öll mín sár
undir þínum kossi.
Þó mér lífið taki tár
treð ég létt í vosi.
Öll mín gróa gefin sár
góða í þínu brosi.
(Gísli Sigurður Helgason)
Bless í bili, þangað til minn
tími kemur, elsku afi minn.
Þín elskulega afastelpa,
Sigrún Alma.
Elsku lang-langbesti afi okk-
ar, þú varst alltaf svo góður,
skemmtilegur og glaður. Það
var alltaf mjög skemmtilegt,
gaman og glaðlegt að heim-
sækja þig því þú gafst okkur
alltaf bros og komst okkur allt-
af til að hlæja. Það var líka svo
gaman að fara með þér í bíltúr
því þú vildir alltaf fara utan
vegar og sýna okkur Vopna-
fjörð. Þú bauðst okkur alltaf ís,
nammi eða eitthvað gott að
borða í Kaupvangi þegar við
komum í heimsókn. Þú varst
alltaf svo duglegur að fylgjast
með ef við vorum að fara að
keppa og þú vildir vita hvernig
leikurinn fór, þú vildir líka vita
hvernig okkur gekk í náminu
og þú hvattir okkur alltaf
áfram í því og sagðir okkur
alltaf að lesa og lesa og núna
erum við búnar að bæta okkur
mikið í lestri. Þú hefur alltaf
verið uppáhaldsafi okkar og við
elskum þig endalaust. Vonandi
líður þér betur því þú ert núna
komin til ömmu.
Bless, bless, þínar afastelp-
ur,
Kristrún Halla
og Kolbrún Ása.
Hver af öðrum til hvíldar rótt
halla sér nú og gleyma
vöku dagsins um væra nótt
vinirnir gömlu heima.
Þó leið þín sem áður þar liggi hjá
er lyngið um hálsa brumar,
mörg höndin, sem kærast þig
kvaddi þá
hún kveður þig ekki’ í sumar.
Og andlitin, sem þér ætíð fannst
að ekkert þokaði úr skorðu
– hin sömu jafn langt og lengst þú
manst –
ei ljóma við þér sem forðum.
Og undrið stóra, þín æskusveit,
mun önnur og smærri sýnast.
Og loksins felst hún í litlum reit
af leiðum sem gróa og týnast.
(Þorsteinn Valdimarsson)
Þetta ljóð frænda, Steina frá
Teigi, kom strax upp í hugann
þegar ég frétti lát vinar míns
Hallgríms Helgasonar og ákvað
að minnast hans í örfáum orð-
um.
Okkar kynni hófust fyrir al-
vöru þegar hann flutti með fjöl-
skylduna á næsta bæ við mitt
æskuheimili. Heimili þeirra
Hallgríms og Rúnu á Þor-
brandsstöðum stóð manni ávallt
opið og þar fann maður sig vel-
kominn enda var gestrisni
þeirra við brugðið. Það henti
jafnvel að ef maður fór oft hjá
garði án þess að staldra við að
maður var minntur á að það
sakaði ekki að kíkja aðeins inn
ef ekkert lægi á.
Eins og nærri má geta hafa
nágrannar í sveit mikið sam-
starf, einkum í kringum fjárrag
hverskonar, göngur og réttir og
fleiri bústörf. Hallgrímur var
hagur á margt sem viðkom
byggingum og viðhaldi enda
var hann til margra ára verk-
stjóri við viðgerðir á Bustarf-
ellsbænum bæði í torfhleðslu
og smíði. Hann var útsjónar-
samur, athugull og leiðbein-
andi. Þegar byggingafram-
kvæmdir stóðu á
nágrannabæjum kom hann oft-
ast þar nærri enda bóngóður
með afbrigðum.
Það var reyndar ávallt mikil
samstaða og samhjálp í þess-
háttar framkvæmdum og að-
eins tekinn viljinn fyrir verkin.
Eftir að Hallgrímur hætti bú-
skap fékkst hann nokkuð við
bókband og fleira handverk.
Vænt þykir mér um lítið vísna-
kver sem hann gaf mér fyrir
nokkrum árum sem hann batt
sjálfur og er listavel gert. Hann
hafði gaman af lestri og ljóðum
og grúski ýmiskonar auk þess
sem hann skrifaði nokkuð af
greinum sem birtar hafa verið í
tímaritum.
Eitt vil ég nefna að lokum
sem var einn af hans góðu kost-
um, en það var skopskynið.
Hann hafði einstakt auga fyrir
að sjá spaugilegu hliðarnar á
lífinu.
Við sem þekktum hann vel
geymum ótal tilsvör og gull-
korn sem frá honum komu við
hin ýmsu tækifæri og eru oft
rifjuð upp í hópi góðra vina.
Ég og fjölskylda mín vottum
hans nánustu samúð okkar og
geymum minningu um góðan
vin.
Jón Trausti Jónsson.
Hallgrímur frá Þorbrands-
stöðum varð ein af heillastoðum
okkar Jóa í Stapa, vinar og
skólabróður, þegar hagyrðinga-
mótin hófu hringferð um land-
ið, sem stóðu í aldarfjórðung,
eða alls í 24 ár, frá 1989-2012.
Við Hallgrímur hittumst
fyrst á mótinu númer fjögur,
sem var í Skúlagarði. Sigvaldi
Jónsson, skólabróðir þeirra
Jóa, hafði veg og vanda af því
glæsilega móti þar á þingeyskri
grund. Þar tók Hallgrímur við
keflinu og efndi til fimmta
mótsins ári síðar. Því valdi
hann stað í hjarta Austurlands,
á Hallormsstað, fékk til öfluga
liðsmenn í Hákoni Aðalsteins-
syni og Helga Seljan, svo komu
margir á pall úr gestaröðum.
Við eigum stórt land, hér á
Íslandi, og okkur, aðstandend-
um mótanna, fannst við hafa
nokkuð að starfa að tengja fjar-
læg héruð og árgangurinn
þeirra Jóa, Hallgríms og Sig-
valda, að ógleymdum Hauki á
Snorrastöðum, áttu sannarlega
stóran þátt í því fyrirtæki. Þeir
Hvanneyringarnir héldu hóp-
inn, ræktuðu vináttuna og aðrir
nutu góðs af.
Þakkarefni var að fá kynnast
þeim hægláta og trausta manni,
Hallgrími Helgasyni, sem stóð
vörðinn austur í Vopnafirði.
Ingi Heiðmar Jónsson.
Hallgrímur
Helgason
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Emilía Jónsdóttir,
félagsráðgjafi
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Kær móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
PÁLÍNA MARGRÉT STEFÁNSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 1b,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum, Fossvogi,
föstudaginn 20. september. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
söfnunarreikning Kópavogskirkju: 0130-15-375312 kennitala
691272-0529.
Guðný Kristín Harðardóttir Bjarni Hermann Halldórsson
Eggert Þór Jóhannsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HALLGERÐUR SIGURGEIRSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 19. september.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 3. október klukkan 13.
Jón Bragi Gunnlaugsson
Björgvin L. Gunnlaugsson Arnheiður Guðmundsdóttir
Heiða Dögg Jónsdóttir
Aldís Geirdal Sverrisdóttir Gunnar Ingi Ágústsson
Vigdís Halla Björgvinsdóttir Flóki Þorleifsson
Gunnlaugur E. Björgvinsson
og langömmubörn
Elskuleg eiginkona mín, mamma mín
og systir,
INGIBJÖRG SIGMUNDSDÓTTIR,
Öldugötu 13, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum 4. september.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
2. október klukkan 13.
Starfsfólk á Landspítalnum við Hringbraut, 11G, fær þakkir fyrir
góða umönnun.
Albert H.N. Valdimarsson
Óskar Bergmann Albertsson
Guðmundur H. Sigmundsson
Svavar Sigmundsson
Ragnheiður Sigmundsdóttir
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar
og vinur,
EINAR ÞORKELSSON
húsasmíðameistari,
Stórateig 38, Mosfellsbæ,
lést 17. september á hjúkrunarheimilinu Eir.
Útförin fer fram 30. september klukkan 13. frá Grafarvogskirkju.
Kristín Guðrún Jóhannsdóttir
Elísa Hildur Einarsdóttir Arnór Á. Jónasson
Eydís Rún Einarsdóttir Jóhann Daði Magnússon
Guðrún Alfa Einarsdóttir Tryggvi Þór Árnason
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um hvar
og hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Ætlast er
til að þetta komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í minningargrein-
unum.
Minningargreinar