Morgunblaðið - 28.09.2019, Side 38

Morgunblaðið - 28.09.2019, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 ✝ Guðrún Páls-dóttir (Gugga) fæddist í Hafnarfirði 15. september 1943. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi 14. september 2019. Foreldrar Guggu voru Páll M. Guðmundsson sjómaður, f. á Neistastöðum í Flóa 13. febrúar 1918, d. 17. janúar 2003, og Ingibjörg Jóns- dóttir húsmóðir, f. í Mósgerði í Fljótum 22. nóvember 1917, d. 8. janúar 1989. Guðrún giftist 10. september 1961 eftirlifandi eiginmanni sínum, Sigurgeiri Þór Jón- assyni (Bróa) bifreiðastjóra, f. 13. maí 1941. Brói er sonur hjónanna Jónasar Vermunds- sonar veghefilsstjóra, f. 18. júní 1905, d. 25. ágúst 1989, og Torfhildar Þorsteinsdóttur, f. 13. júlí 1897, d. 3. janúar 1991. Systkini Guðrúnar eru, Anna, f. 26. júlí 1939, d. 12. júní Jónsson, f. 29. júní 1975. Anna Linda átti tvær dætur fyrir, Berglindi Ósk, f. 1. febrúar 1985, og Rakel Marín, f. 26. júní 1998. Jón Þór á tvö börn fyrir. Samtals eru barnabörn Önnu Lindu tvö og þar að auki tvö stjúpbarnabörn. Ásthildur Guðrún, f. 20. september 1976, búsett í Reykjavík. Sambýlismaður Ást- hildar er Laufar Ómarsson og eiga þau saman einn son, Balt- asar Þór, f. 14. júlí 2009. Fyrir átti Ásthildur tvo drengi með Arnari Þór Þorsteinssyni, f. 23. desember 1973. Synir þeirra heita Birgir Freyr, f. 14. apríl 1999, og Tristan Steini, f. 18. ágúst 2003. Gugga og Brói eiga samtals 11 barnabarnabörn. Gugga byrjaði ung að vinna eða aðeins 15 ára gömul þegar hún hóf störf á hótelinu á Blönduósi. Í mörg ár vann hún hjá Pósti og síma og þá á skipti- borði Símans á Blönduósi. Gugga starfaði hjá Búnaðar- banka Íslands og síðan hjá Ar- ion banka sem var hennar síð- asti vinnustaður. Útför Guðrúnar fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 28. sept- ember 2019, klukkan 13. 2018, Reynir, f. 2. mars 1945, d. 22. mars 2009, Rúnar, f. 2. mars 1945, og El- ín, f. 1.12. 1949. Bræður Bróa sam- mæðra eru Þor- björn, f. 1917, d. 1988, Þormóður, f. 1919, d. 2012, Þor- geir, f. 1928, d. 2015, og Þorsteinn Frímann, f. 1934. Börn Guggu og Bróa eru: Jónas Þór, f. 1. apríl 1962, bú- settur á Blönduósi. Var kvænt- ur Lilju Jóhönnu Árnadóttur, f. 2. júlí 1961, þau slitu sam- vistum. Sambýliskona Jónasar er Bryndís Sigurðardóttir, f. 18. desember 1962. Bryndís átti fyrir fjögur börn og á nú átta barnabörn. Börn Jónasar og Lilju eru Árni Þór, f. 7. nóv- ember 1977, Dagrún, f. 28. des- ember 1985, Sigurgeir Þór, f. 23. desember 1987. Samtals eru barnabörn Jónasar og Lilju sjö. Anna Linda, f. 11. júlí 1966, búsett í Reykjavík. Sambýlis- maður Önnu Lindu er Jón Þór Mamma. Elsku mamma mín, hvað það er stórt tómarúm innra með mér eft- ir að þú kvaddir daginn fyrir af- mælið þitt, en ég veit að með tím- anum fyllist það tómarúm með fallegum minningum um þig. Við vorum svo tengdar og gátum eytt ótrúlega löngum stundum í sam- tal eða símtal stundum nokkur á dag. Þú hefur kennt mér svo margt, elsku mamma, t.d. að vera jákvæð hvað sem á dynur það koma alltaf betri tímar og þú sagðir svo oft við mig „Anna Linda mín, hugsa áður en þú tal- ar,“ sem tekst reyndar ekki alltaf enn í dag. Þú kenndir mér líka að heiðarleiki og kærleikur virkar alltaf betur en gremja, reiði og neikvæðni. Ég var ekki alltaf auðvelt barn eða unglingur og margt sem ég hefði gert öðruvísi í dag en þú kenndir mér líka að við lærum af mistökum okkar og hægt að bæta fyrir flest. Það sem við gátum oft hlegið mikið og bara látið eins og kjánar. Dætur mínar voru svo heppnar að eiga þig fyrir ömmu, þú varst svo mikið uppáhalds hjá svo mörgum. Þolinmóð, sann- gjörn og vildir alltaf öllum svo vel. Við höfum gengið í gegnum alls konar á þessum rúmum 53 árum saman og mér finnst svo óréttlátt að svona sterk, heilbrigð, klár kona sem elskaði lífið fái þennan hrikalega sjúkdóm sem Alzheim- er er. Þú varst mikil félagsvera varst í leikfélaginu saumaklúbbnum Bútos, hugsaðir alltaf vel um heilsuna og þér fannst gaman að ferðast, ég tala nú ekki um með pabba á húsbílnum ykkar og ekki fáar ferðirnar sem við fórum sam- an í ferðalög með hjólhýsið og hittumst við ansi oft á uppáhalds- staðnum þínum við Hrafnagil í Eyjafirði. Síðasta ferðin okkar saman var erfið þar sem sjúkdóm- urinn gerði þig hrædda og óör- ugga. Þessi sjúkdómur breytti okkur öllum í fjölskyldunni, þú fórst að gleyma og við fórum að hugsa eins vel um þig og þú hafðir hugsað um okkur öll. Pabbi var hjá þér og studdi þig hvern ein- asta dag, ég fór að koma oftar og fann hvað það var auðvelt að gleðja þig þrátt fyrir þennan sjúk- dóm. Okkar stundir breyttust, við fórum að föndra saman og skoða myndir og hlusta á Björgvin Hall- dórsson í tíma og ótíma. Ég kom aðra hverja helgi til ykkar pabba, svo kom erfiði tíminn, þú gast ekki verið lengur heima, en ég hélt áfram að koma aðra hverja helgi í meira en þrjú ár. Stundum ein, stundum með Jóni Þór og krökk- unum en sjúkdómurinn ágerðist og þú vissir ekki alltaf að þú ættir börn. Týndir smátt og smátt öllu sem þú elskaðir svo heitt. Þú fékkst góða umönnun á heilbrigð- isstofnun Blönduóss og pabbi var hjá þér alla daga. Ég er svo þakk- lát fyrir öll jólin okkar saman og við náðum að taka þig heim í faðm okkar fjölskyldunnar undanfarin ár. Ég og systkinin mín gerðum okkar besta, mamma mín, með það sem við lofuðum þér, að þú værir alltaf fín þótt þú værir veik. Þú varst allt lífið þitt snyrtileg, gullfalleg að utan sem innan. Ég elska þig, mamma mín, nú ertu umvafin englum. Ég verð til staðar fyrir hann Bróa þinn (pabba) eins og ég get. Þín stelpa Anna Linda. Elsku mamma mín, ég er svo ekki tilbúin að sleppa þér, en mik- ið er ég heppin að hafa fengið þig sem móður, þó að tíminn hafi ver- ið stuttur þar sem ég er yngst þá þakka ég þér fyrir alla þá hluti sem ég hef gert rétta í lífinu. Það er ekki að ástæðulausu að fólk tal- ar um þig sem einstaka konu. Þú varst mér allt. Ég var óvenjuháð þér sem barn og það byrjaði strax í móðurkviði þegar þú áttir að eiga mig í lok ágúst en ég mæti nú ekki fyrr 20. september. Ég var kvíðin lítil stelpa sem vildi bara vera í mömmufangi en leikskólaárin voru erfiðust, en man alltaf þegar þú komst eftir vinnu þína að sækja mig að ég tók gleði mína á ný útgrátin af söknuð. En þetta tók líka á þig og við sættumst báð- ar þegar tekin var ákvörðun að ég fengi bara að vera hjá Torfhildi ömmu. Þegar ég kvaddi þig laug- ardaginn 14. september, daginn fyrir afmælið þitt, kom upp sama tilfinning og þegar ég var lítil, nema nú veit ég að þú kemur ekki aftur. Ég vill trúa því að ég fái faðmlag þitt aftur í sumarlandinu þegar minn tími kemur, en á með- an hugsa ég um allar okkar minn- ingar, elsku mamma. Strákarnir mínir þrír, sem þú sást ekki sólina fyrir frekar en öllum börnum í þínu lífi, sakna þín mikið, en þeir voru heppnir að fá að kynnast þér því þú varst einstök amma og áttir sérstakt samband við börn sem ég hef aldrei séð áður. Alzheimersjúkdómurinn er eitthvað sem kom aftan að okkur öllum og ég spyr mig af hverju þú hafir þurft að fá þetta ósigraða verkefni í hendur þínar. Þetta voru erfið ár fyrir okkur öll og allt það góða fólk í kring um þig, en alltaf varstu glöð og góð, þó að þú hafir ekki þekkt mig þá fékk ég lófann þinn á kinnina mína og bros. Þú lifðir lífinu svo sannar- lega lifandi og þú hugsaðir vel um fólkið þitt og sjálfa þig. Þú kunnir allt, bakaðir bestu kökur og brauð í heimi, eldaðir góðan mat, prjón- aðir og saumaðir og tókst þátt í fé- lagslífinu. Mér fannst þú besta leikkonan í öllum heiminum, ég fékk að vera á æfingum á fremsta bekk og horfði á þig með aðdáun þegar þú lékst með leikfélaginu á Blönduós. Þér gekk reyndar ekki vel þegar þú áttir að leika konu sem reykti mikið, það var bölvað vesen fyrir þig enda hafðir þú aldrei reykt. Hreyfing var þér líka mikilvæg og þér fannst líka mikilvægt að við værum í íþróttum. Mamma, þú ert fallegasta manneskja sem ég hef kynnst og ég er stolt að vera dótt- ir þín, það stígur enginn í þín spor en ég mun ávallt fara eftir þínum lífsreglum sem þú kenndir mér og gerðu mig að því sem ég er í dag. Þú varst dugleg að láta mig vita hvað þú værir stolt af mér. Elsku mamma mín, ég elska þig meira en allt og söknuðurinn er of mikill. Góða ferð í sumarlandið fagra þar sem ég veit að margt gott fólk tek- ur á móti þér fagnandi. Ég verð ávallt þitt þroskaleikfang eins og þú kallaðir mig. Takk fyrir að vera mamma mín. Þín dóttir Ásthildur. Það var rigning og þoka þegar mamma kvaddi okkur. Furðulegt að veðrið sé svona minnisstætt en þegar mamma kvaddi okkur fjöl- skylduna gekk ég út að gluggan- um á heilsugæslunni á Blönduósi og tíminn hafði stöðvast, furðuleg tilfinning og sorg sem blandaðist saman við það að þetta var mömmu fyrir bestu, en hún hafði barist við sjúkdóminn alzheimer í nokkur ár. Mamma andaðist 75 ára gömul hinn 14. september en hún hefði orðið 76 ára 15. sept- ember. Þegar maður sest niður til að skrifa nokkur orð um mömmu hugsar maður til barnsáranna þegar hún var að kenna mér að elda og það var auðvitað til að gera drenginn sjálfbjarga, og hann býr að þessu enn í dag. Hún var svo skynsöm í öllu, sparaði án þess að nokkur fyndi fyrir því í mat og öðru. Þannig var mamma alin upp en það var ekki neitt bruðl hjá Ingibjörgu ömmu í Hafnarfirði enda þurfti hún að framfleyta fimm börnum með lág- marks innkomu og systkinin lærðu af því. Mamma sagði mér oft frá upp- eldisárum sínum í Hafnarfirði sem voru skemmtileg og nokkuð um saklausa hrekki sem krydd- uðu sögur mömmu frá þessum tíma. Hún hafði einstaka hæfni til að segja sögur og sérstaklega börnum sem báðu um sömu sög- una aftur og aftur, það var nú ekki vandamálið að segja sögur aftur og aftur. Mamma og pabbi virtust treysta okkur systkinunum alla tíð og ekkert stórmál þegar ég og vinur minn fórum í ferðalag yfir Kjöl á skellinöðrum í fjögurra daga ferð, þá var ég 15 ára. Síðan þegar ég keypti mér stærri mót- orhjól var mamma ekki sátt og alltaf hrædd um drenginn, ég skildi það ekki þá og fór ekki eftir góðum ráðum hennar, sennilega í fyrsta skipti. Efst í huga mér er þakklæti fyrir uppeldið sem gekk stundum ágætlega, allt það sem mamma kenndi okkur var svo úthugsað og hún var svo skynsöm. Hún kenndi okkur að sauma og prjóna og fleiri heimilisstörf og svo bara að eyða aldrei um efni fram. Mamma mín, takk fyrir mig. Jónas Þór. Elsku Gugga mín, margs er að minnast og margs er að sakna. Mín fyrsta minning sem kemur upp er fyrir mörgum árum, ég var að vinna í vefnaðarvörudeildinni í kaupfélaginu hér á Blönduósi, 15 ára gömul, og það komu ný efni og eitt sem mér þótti voða flott, þú komst að versla og ég sýndi þér efnið flotta. Þú sagðir: Bryndís mín, kauptu efnið og ég skal sauma á þig kjól sem og þú gerðir. Ég var alsæl með nýja kjólinn og þar sem þú varst svo nýtin þá saumaðir þú úr afganginum slauf- ur, rósir og dúllur sem ég gat not- að með kjólnum. Leiðir skildi og ég flutti suður í Hafnarfjörðinn okkar en þar vor- um við báðar fæddar og uppaldar að mestu. Mörgum árum síðar hittumst við aftur þegar ég og Jónas sonur þinn fórum að vera saman. Þið Brói tókuð mér opnum örmum eins börnunum mínum og barna- börnum. Alltaf var nú gott að koma á Hólabrautina til ykkar Bróa og fá kaffi og nýsteikta punga og gott spjall. Ekki gleymi ég utanlands- ferðunum okkar saman. Fyrst þegar Brói þinn var sjötugur þá fórum við Jónas með ykkur til Al- bir á Spáni og svo þremur árum seinna þegar þú varðst sjötug en þá fórum við til Krítar, ekki var það nú síðri ferð. Þú kynntist konu sem vann í morgunverðar- salnum á hótelinu, þið urðuð ágætis vinkonur hlóguð, dönsuðuð og töluðuð fingramál saman alla morgna þegar þið hittust. Elsku Gugga mín, mér þykir afskaplega vænt um stundirnar okkar á H.S.N. Blönduósi þar sem ég reyndi sem oftast að koma fyr- ir klukkan þrjú á daginn svo við gætum fengið okkur kaffi og með því saman. Ég veit að þú ert hvíld- inni fegin eftir þennan erfiða og vonda sjúkdóm sem alzheimer er. Nú hafa Anna systir þín, Reyn- ir bróðir þinn og allt þitt fólk, Jón- as tengdapabbi þinn, sem þótti alltaf undurvænt um þig og voruð þið miklir vinir, tekið vel á móti þér. Öllum þótti vænt um Guggu. Með virðingu og þökk kveð ég þig, elsku tengdamamma og vin- kona. Bryndís Sigurðardóttir. Ég er svo heppin að amma mín og afi bjuggu á Blönduósi þegar ég var barn og stutt frá bjuggu bróðir hans afa, Brói, og konan hans Gugga. „Ætlum við ekki örugglega að stoppa hjá Guggu og Bróa?“ var algeng spurning sem heyrðist úr aftursætinu í hvert skipti sem við keyrðum í gegnum Blönduós. Svarið var auðvitað alltaf það sama – „jú“. Það var alltaf jafn þægilegt að koma á Hólabrautina Guðrún Pálsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR SVEINSSON, Efstaleiti 12, Reykjavík, lést á Brákarhlíð í Borgarnesi 21. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Agnes Jóhannsdóttir börn, tengdadóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra VIKTORÍA KRISTJÁNSDÓTTIR Suðurhólum 14, Reykjavík, lést á heimili sínu 23. september. Útför hennar fer fram frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 3. október klukkan 13. Þorkell Snorri Sigurðarson Bjartmar Þórðarson Karítas Þorkelsdóttir Guðbjörg Berglind Joensen Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT INGÓLFSDÓTTIR, áður til heimilis í Mjóuhlíð 10, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudaginn 22. september. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 3. október klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir. Guðmundur Ingi Kristjánss. Árdís Ívarsdóttir Kristján Róbert Kristjánsson Soffía Thorarensen Ingólfur Björgvin Kristjánss. Þóra Hjartardóttir barnabörn og langömmubörn Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, KRISTÍN KRISTINSDÓTTIR, Ennisbraut 27, Ólafsvík, lést á Heilbrigðisstofnum Vesturlands, Akranesi, miðvikudaginn 25. september. Útförin verður auglýst síðar. Svanur Kristófersson Guðrún Kjartansdóttir Stefán Smári Kristófersson Hrefna Rut Kristjánsdóttir Kristinn Kristófersson Auður Sigurjónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, SIGRÍÐUR SVEINLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum 24. september. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 3. október klukkan 13. Elsa Óskarsdóttir Hafsteinn Eggertsson Ingvar Sigurðsson Pálína Þráinsdóttir Birna Leifsdóttir Sigurður Valgeirsson Guðmundur Leifsson Kristrún Runólfsdóttir Sævar Leifsson Hildur Benediktsdóttir Sigrún Leifsdóttir Útför okkar ástkæra ATLA ÞÓRS SÍMONARSONAR fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 2. október klukkan 13. Guðný Björk Atladóttir Hörður Albertsson Björgvin Atlason Dagmar Markúsdóttir Birta Lind Atladóttir Gunnar Páll Ægisson Edda Finnbogadóttir Guðgeir Pedersen barnabörn og systkini

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.