Morgunblaðið - 28.09.2019, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 28.09.2019, Qupperneq 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 og fá helling af kossum, knúsum og sögum. Á Hólabrautinni hékk fallegt dagatal uppi á vegg þegar ég var lítil og ég elskaði að fá að raða dögunum. Fljótlega komst sú hefð á að dagatalið hélst oftast nær óbreytt á milli heimsókna minna. Þegar ég kom hlaupandi inn um dyrnar kom Gugga oftast á móti mér: „Ertu komin, litla skotta? Það þýðir bara eitt, þú veist að það bíður eftir þér á sínum stað.“ Í flestum tilfellum kom Gugga með mér að dagatalinu og við áttum ótrúlegar stundir við að raða því réttu. Eftir dagatalsleiðréttingu var svo farið inn í eldhús og bakk- elsi borið á borð. Ég fékk auðvitað að hjálpa til og á meðan sagði Gugga mér hverja söguna á fætur annarri. Gugga var oft búin að segja mér að einn daginn yrði þetta dagatal að mínu, með því loforði að ég myndi halda áfram að sjá um það. Sjokkið var samt töluvert á fermingardaginn minn þegar ég opnaði pakka frá þeim hjónum og úr honum kom fallegur grár bak- poki og dagatalið. Skilaboðin sem fylgdu var að ég myndi örugglega hafa meira gaman af því að sjá um dagatalið núna og því ætti það heima hjá mér. Ég viðurkenni fús- lega að það voru tár sem féllu þetta kvöld – en síðan þá hefur dagatalið hangið á vegg hérna heima og vel verið hugsað um það. Í dag er ég virkilega þakklát fyrir þessar minningar og að fá að hafa dagatalið hjá mér um ókomna tíð – það er ótrúlegt hvað einn hlutur getur rifjað mikið upp. Mér þótti svo ótrúlega vænt um að þau hjónin gerðu sér ferð aust- ur á land til þess að koma í ferm- inguna mína fyrir nokkrum árum. Ef ég þurfti að útskýra fyrir fólki hver þau væru talaði ég alltaf um að þetta væri bróðir afa og konan hans, en þau væru mér svona eins og þriðja settið af ömmu og afa – sem ég var ótrúlega heppin að eiga. Síðustu dagar hafa verið ótrú- lega erfiðir. Það er skrítið að hugsa til þess að eiga ekki eftir að hitta elsku Guggu sína aftur eða að fá eitt knús í seinasta skipti. Ég lifi þó í þeirri trú um að henni líði betur núna þegar hún er laus við þann hræðilega sjúkdóm sem hún barðist við eins og hetja undanfar- in ár. Ég á mikið af frábærum minn- ingum sem munu lifa í huga mín- um og hjarta um ókomna tíð. Ég er virkilega þakklát fyrir að hafa haft þig í lífi mínu öll þessi ár, það gerði lífið svo miklu skemmtilegra – ég elska þig alltaf. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku Brói minn, Anna Linda, Jónas, Ásthildur og fjölskyldur, ykkar missir er mikill. Megi guð styrkja ykkur í gegnum þennan erfiða tíma. Stefanía Hrund Guðmundsdóttir. Elsku amma. Það er víst komið að því, kveðjustundinni. Tilfinningarnar hrannast upp bæði yfirþyrmandi sorg en einnig þakklæti fyrir að hafa átt þig að. Það er ómögulegt að koma því á blað hversu einstök manneskja þú varst og hversu mikil áhrif þú hafðir á líf svo margra. Einstakur stuðpinni og gleðigjafi en einnig svo hlý og góð. Þú varst ein skemmtilegasta manneskja sem ég hef kynnst. Þegar ég lít til baka hef ég ver- ið að syrgja þig í fleiri ár þar sem þú hefur verið að hverfa frá okkur hægt og rólega. Sem betur fer á ég ótal minningar sem ég get huggað mig við: Allir laugardags- morgnarnir á Hólabrautinni þeg- ar ég kom nokkurra ára ásamt Sigurgeiri til að horfa á „Með afa“ í sjónvarpinu, morgunmaturinn sem þú færðir okkur í hvert skipti, brauð skorið horn í horn með mis- munandi áleggi og ávexti. Þegar við systkinin bjuggum hjá ykkur afa í fleiri vikur sumarið 1994 þeg- ar mamma var svo lasin. Hvernig þú gafst þér endalausan tíma í spjall, gafst mér hlýju og kenndir mér að róa mig með því að kitla andlitið með horninu á sængur- verinu þegar ég saknaði mömmu og pabba sem mest. Kitlið inn í lófann og á framhandlegginn sem þú gafst ósjálfrátt ef maður sat við hlið þér. Grínið og glensið sem einkenndi samverustundirnar þar sem við lágum endurtekið öll stór- fjölskyldan uppi í hjónarúmi hjá ykkur afa, yfirleitt pakksödd eftir einhverjar kræsingarnar. Ferð- irnar með þér á leikæfingar sem var algjör ævintýraheimur fyrir barn. Þú varst frábær leikari og besti sögumaðurinn. Gast enda- laust sagt sögur, margar þeirra heyrði ég aftur og aftur en þær voru alltaf jafn skemmtilegar. Sögurnar af æsku þinni í Hafn- arfirðinum, t.d. gleðinni sem fylgdi því þegar þið gátuð unnið ykkur fyrir mat eftir erfiða daga á heimilinu, prakkarastrikum Önnu Lindu, þegar pabbi faldi súkku- laðið á ljósakrónunni og þegar ég sagði smámælt þriggja ára: „Mamma mín setur aldrei rusl í matinn minn,“ þegar þú hafðir sett lárviðarlauf í kjötréttinn. Endalaust spjall við matar- borðið á Hólabrautinni, oftast með eitthvað gott að borða, t.d. bestu ástarpungana, ristað brauð, skonsurnar þínar eða nýbakað brauð. Ferðin til Danmerkur 2008 þegar við heimsóttum Sigurgeir og Ásdísi og yndislegu tilraunir þínar og mömmu við að tjá ykkur. Þú komst alltaf fram við mig sem jafninga og varst alltaf heiðarleg alveg sama hversu ung ég var. Þannig treysti ég þér 100% og gat tjáð mig um allt, jafnvel hluti sem flestir tala ekki um við ömm- ur sínar. Ég þrái að knúsa þig einu sinni enn þar sem þú hlærð og ruggar þér aðeins á staðnum og ég myndi hvísla að þér að ég lofa að ég hafi aldrei fundið gömlu-konu-lykt af þér eins og við lofuðum þér. Ef þú manst það ekki þá langar mig líka að segja þér að afi hefur staðið sig eins og klettur við hlið þér síðustu árin, það sem ég er stolt af hon- um! Veit þú værir það líka. Ó, hvað ég á eftir að sakna þín! Þín Dagrún. Elsku Gugga systir mín hefur kvatt þennan heim eftir erfið veik- indi. Það er ósanngjarnt þegar hún sem alltaf var svo hraust er tekin frá fjölskyldu og vinum. Gugga sem alltaf var svo flott og í góðu líkamlegu formi, hún minnti mig oft á tugþrautarkonu. Minningar frá uppvaxtarárun- um eru ofarlega í huga mér. Við vorum alltaf mjög náin. Margir héldu að við Gugga værum tvíbur- ar svo lík vorum við því Reynir tvíburabróðir minn var talsvert ólíkur okkur. Það voru ekki nema rúmir 18 mánuðir á milli okkar. Lífsgleði, dugnaður, hjálpsemi, góða skapið og einstaklega góð framkoma við alla sem hún um- gekkst var áberandi í fari Guggu. Ég man aldrei eftir því að hún reiddist eða talaði illa um sam- ferðafólk. Ég er þakklátur fyrir öll árin sem við áttum saman á uppvaxt- arárunum. Það var ekki mikið gólfrými á Álfaskeiðinu eða flott útvarpstæki eða hljómtæki en við þær aðstæður kenndi Gugga mér að dansa „djæf“ „rokk“ og gömlu dansana. Danstímarnir voru þeg- ar „Óskalög sjúklinga“ og „Óska- lög sjómanna“ voru fluttir í út- varpinu. Skemmtilegir danstímar þar sem lífsgleðin var mikil. Við vildum alltaf gefa mömmu og systkinum okkar gjafir á jól- unum. Til þess að geta það urðum við að vinna fyrir þeim. Við seld- um fagurlega skreytt bréfblóm sem listakona í Hafnarfirði útbjó. Við gengum hús úr húsi og seld- um þessi bréfblóm. Gugga var mikill sölumaður ég fékk að njóta þess. Saman fórum við svo í jóla- gjafaleiðangur og gáfum saman mömmu og systkinum okkar. Gugga var í Fimleikafélaginu Björk í Hafnarfirði þegar hún var unglingur. Hún var í sýningar- hópi Bjarkanna. Ég man hvað ég var montinn af Guggu þegar Hafnarfjarðarbær hélt upp á 50 ára kaupstaðarafmæli og sýning- arhópur Bjarkanna sýndi fim- leika á stóru sviði á Thors plani, þar var Gugga fremst í flokki. Ung að árum ákvað Gugga að freista gæfunnar og réði sig i vinnu á Hótel Blönduós. Síðan lá leiðin í Húsmæðraskólann þar. Á Blönduósi réðust örlög henn- ar. Þar hitti hún Bróa sinn og þar hafa þau búið nær allan sinn bú- skap. Ég hefði viljað hafa hana lengur í Hafnarfirði, en auðvitað er það bara eigingirni. Þó að við hittumst ekki eins oft og við vild- um þá voru tengslin svo sterk að endurfundir urðu alltaf eins og við hefðum hist í gær. Á mörgum ferðum okkar Sifjar og barnanna norður í land var skemmtilegt að koma við á Hóla- brautinni. Þá voru á augabragði veisluföng fram borin, mikið rætt um menn og málefni, þá sérstak- lega frá Hafnarfirði og Húna- þingi. Aldrei var farið norður án þess að stoppa á Blönduósi. Elsku Brói, Jónas, Anna Linda, Ásthildur og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur, minn- ingin um elsku Guggu systur lifir áfram í hjarta okkar. Rúnar og Sif. Nú hefur Gugga okkar elsku- leg kvatt okkur í hinsta sinn. Gugga var alveg einstök kona sem náði til allra; barna, unglinga, ungs fólks og aldraðra. Pabbi minn hann Deidei átti góðan vin þar sem Gugga var. Hún var allt- af með bros á vör, var hlý og góð- ur hlustandi. Margir áttu einlægt samtal við hana. Hún sagði skemmtilega frá og svo var hún líka svo fyndin eins og sonardóttir mín sagði svo fallega við mig í vik- unni. Ég man aldrei eftir henni öðru- vísi en í góðu skapi sumarið 1964 sem ég var í vist hjá þeim Guggu og Bróa. Já, hún kunni svo vel að geyma barnið í sjálfri sér, sem fáum er gefið. Gugga var vinsæl í vinnu og hafði gaman af að þjóna fólki. Margir sem nutu þjónustu henn- ar minnast hennar fyrir góða og skemmtilega þjónustu. Hún var líka góð leikkona og tók þátt í nokkrum leiksýningum. Hún var mikil handavinnukona og var lengi í bútasaumsklúbbi. Eftir að hún veiktist kom hún í heimsókn til okkar og dáðist Leif- ur minn að bútasaumsrúmfata- poka þeirra hjóna. Hún vildi endi- lega sauma svona poka handa okkur og gerði það með góðri hjálp vinkonu sinnar. Hún var svo glöð þegar hún færði okkur fal- legan rúmfatapoka og munum við varðveita hann vel í minningu um hana. Það eru svo margir sem munu sakna hennar Guggu enda var hún elskuð af öllum þeim sem kynntust henni. Alltaf var fullt hús af ættingj- um, vinum og nágrönnum í kaffi og mat hjá Guggu og Bróa, sem oftast eru nefnd saman. Þetta hafa verið erfið ár fyrir Bróa frænda minn sem sat alla daga hjá Guggu sinni og einnig fyrir fjölskylduna sem kveður elskulega móður, ömmu og lang- ömmu. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar frá okkur Leifi. Blessuð sé minning Guggu Páls. Hildur. Gugga tók við mér rúmlega mánaðargömlum og passaði mig hálfan vetur og svo aftur veturinn eftir. Þá urðu til tengsl sem ekki rofnuðu. Snemma fór ég að þvælast um einn, eins og tíðkaðist á lands- byggðinni í svokallaða gamla daga. Þá fór ég oft í heimsókn til Guggu og Bróa til að hitta þau og Patta, hundinn þeirra. Mamma segir að ég hafi oft horfið og þá hafi hún byrjað að leita að mér á Hólabraut 1. Þegar þau eignuðust yngsta barnið sitt hana Ásthildi var ég á fjórða ári. Þau kölluðu hana kan- arífuglinn sinn ég og fékk að hjálpa Guggu að passa hana. Við Gugga skiptumst á gjöfum fyrir jólin og hjá henni föndraði ég fyrstu gjafirnar sem ég gaf mömmu og pabba, meðal annars klósettrúlluhaldara, sem hún kall- aði skeini. Gugga var alltaf kát og glöð og hafði einstaklega notalega nær- veru. Hún sagði mikið af sögum, þar sem skemmtanagildið var að- alatriðið. Sérstaklega var eftirminnileg bókin um Gulskinna sem hún las fyrir mig aftur og aftur og allar hundabaksferðirnar á Patta með aðstoð Bróa. Á fullorðinsárum þegar ég var fluttur frá Blönduósi kom ég oft við þar til að kynna Guggu og Bróa fyrir börnunum mínum og til að heyra þennan einstaka hlátur sem Gugga átti og var ekki spör á. Þá var gott að vera kallaður „ást- arpungur“ aftur, en það var gælu- nafnið sem Gugga gaf mér. Síðustu heimsóknirnar voru ekki eins góðar þar sem lífsgleði Guggu var ekki lengur til staðar. Þá sá maður svo vel hversu ein- staka fjölskyldu hún átti, sérstak- lega Bróa sinn sem var hjá henni alla daga, og Önnu Lindu. Ég votta þeim og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð. Takk fyrir allt, elsku Gugga mín, og hvíldu í friði. Reynir Finndal Grétarsson. ✝ Anna Jónas-dóttir fæddist í Reykjarfirði á Hornströndum 19. júlí 1927. Hún lést 16. september 2019. Hún var elsta dóttir hjón- anna Jónasar Guð- jónssonar og Alex- andrínu Bene- diktsdóttur. Al- systur hennar, Svanfríður Vigdís, Ólína Ket- ilríður og Jensína Rósa, fædd- ust 1928, 1930 og 1932. Að auki átti hún fjögur samfeðra hálfsystkini, þau Högna, Krist- ján, Margréti og Guðnýju. Anna ólst upp í Reykjarfirði. Fyrri eiginmaður Önnu var Jakob Kristján Einarsson frá Kollsá í Jökulfjörðum. Þau giftust 28. desember 1946. Þau bjuggu á Kollsá ásamt foreldrum Jakobs uns þau brugðu búi árið 1957 og fluttu til Ísafjarðar. Þau eignuðust tvo syni, Guðfinn Ellert ár- ið 1943 og Svan- berg Kristin árið 1949. Síðari eiginmað- ur Önnu var Sveinbjörn Vetur- liðason en þau giftust árið 1966. Kjördóttir þeirra er Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir en þau ólu einnig upp Guðmund Jakob Svanbergsson, sonarson Önnu. Afkomendur Önnu eru tveir synir auk kjördóttur, níu barnabörn, ellefu barnabarna- börn og eitt barnabarnabarna- barn, alls 24 afkomendur. Útförin fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag, 28. sept- ember 2019, klukkan 11. Kær frænka mín, Anna Jón- asdóttir, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju í dag. Anna var náskyld mér í báð- ar ættir. Móðir hennar Alex- andrína Benediktsdóttir var hálfsystir móðurömmu minnar og faðir hennar föðurbróðir minn. Móðir Önnu bjó sín fyrstu búskaparár í Reykjar- firði þar sem hún átti einn þriðja hluta jarðarinnar. Síðar flutti hún að Höfðaströnd í Jök- ulfjörðum með fjölskylduna. Anna fór ung í vinnumennsku í Trékyllisvík hjá Önnu föður- systur sinni og manni hennar. Aðstæður höguðu því þannig að hún fermdist þar í sveit og móðir hennar komst ekki í fermingu hennar vegna veðurs. Frænka hennar og nafna sem hún bjó hjá gerði þó sitt til þess að gleðja hana. Haldið var kaffiboð og einhverja gjöf fékk hún líka. Anna giftist fyrri manni sínum Jakobi Einarssyni bónda á Kollsá í Jökulfjörðum, næsta bæ við Höfðaströnd og hefur það eflaust átt þátt í því að móðir hennar flutti þangað. Anna og Jakob eignuðust tvo syni, Guðfinn og Svanberg. Ég var mörg sumur í sveit hjá Alexandrínu á Höfðaströnd og kom stundum að Kollsá sem stelpa, þá vorkenndi ég Önnu alltaf svolítið, hún var svo ung, lítil og grönn og í mörgu að snúast á stóru heimili. Þau flutt til Ísafjarðar þegar þau brugðu búi og skildu nokkru síðar. Á Ísafirði kynntist Anna seinni manni sínum, Sveinbirni Vet- urliðasyni. Þau tóku í fóstur stúlku sem ólst upp hjá þeim. Ég kynntist Önnu betur eftir að hún kom til Ísafjarðar og heimsótti hana ævinlega ef ég fór vestur. Hún var alltaf glöð og hress í tali og mér fannst hún blómstra á miðjum aldri. Síðustu árin bjó hún á Hlíð, íbúðum aldraðra á meðan hún hafði heilsu og líkaði það mjög vel. Allra síðast var hún á hjúkrunarheimilinu Eyri. Þar var vel hugsað um hana. Gegn- um tíðina tók Anna mér alltaf hlýlega og við höfðum nóg að spjalla. Með Önnu er gengin mæt og góð kona. Börnum hennar, systrum og fjölskyldu allri sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minn- ing hennar. Þrúður Kristjánsdóttir, Búðardal. Anna Jónasdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær eiginmaður minn, sonur, bróðir, mágur, frændi, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN ANDRÉSSON, lést 22. september Útförin fer fram frá Grensáskirkju miðvikudaginn 2. október klukkan 15. Ingibjörg Magnúsdóttir Sigríður Ágústsdóttir Katrín H. Andrésdóttir Sveinn Ingvarsson Kristleifur Andrésson Hanna M. Harðardóttir Sóley Andrésdóttir Björgvin Njáll Ingólfsson og afkomendur Bóndi minn, faðir okkar og tengdafaðir, HEIÐAR KRISTJÁNSSON frá Hæli, Austur-Húnavatnssýslu, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Blönduósi, mánudaginn 23. september. Útförin fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 5. október klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Austur-Húnavatnssýslu. Kristín Jónsdóttir Bryndís Þorbjörg Heiðarsd. Axel Gígjar Ásgeirsson Jón Þorvaldur Heiðarsson Jóhanna Hjartardóttir Berglind Salvör Heiðarsd. Borgar Guðjónsson Kristján Björn Heiðarsson Ingunn Þorkelsdóttir og afkomendur Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.