Morgunblaðið - 28.09.2019, Page 40

Morgunblaðið - 28.09.2019, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 ✝ Ómar Ár-mannsson fæddist á Stöðv- arfirði 4. sept- ember 1956. Hann lést á Landspít- alanum 5. sept- ember 2019. Foreldrar hans voru Jóhanna Sól- mundsdóttir, f. í Laufási á Stöðv- arfirði 19. ágúst 1932, og Ármann Jóhannsson, f. á Kirkjubóli í Fáskrúðsfirði 1. ágúst 1928. Systkini Ómars: Óttar, f. 25.8. 1957, Ævar, f. 2.10. 1958, d. 31.7. 2019, Örv- ar, f. 1.3. 1962, Guðrún, f. 19.6. 1963, Ásdís, f. 23.5. 1967, og Hlynur, f. 26.1. 1975. Fyrir utan fjögur af fyrstu æviárunum á Fáskrúðsfirði ólst Ómar upp á Stöðvarfirði. Að loknum barnaskóla lá leiðin í Héraðsskólann á Laugum í Reykjadal, hann fór síðan í Eiðaskóla í einn vetur, þá tók við Lindargötuskóli og loks Ármúlaskóli. Ómar útskrif- aðist svo sem uppeldisfræð- ýmis störf á sjó og landi og seinna greip Ómar oft í þessi störf með kennslunni. Í Ástr- alíu vann hann í fiskvinnslu- stöð öll árin sem hann dvaldi þar. Eftir að hann fluttist aftur á Stöðvarfjörð varð hann stuðningskennari nemenda með námsörðugleika við grunnskólann á Fáskrúðsfirði uns hann varð óvinnufær vegna heilablóðfalls. Ómar var mjög sjónskertur þar til hann fór í augnsteina- skipti árið 1988. Sjónleysið hindraði hann þó ekki í því að ferðast mikið og stunda ýmsar íþróttir. Ómar spilaði knatt- spyrnu með Súlunni í nokkur ár, stundaði og keppti í borð- tennis hér á landi og í Ástralíu auk þess sem hann spilaði reglulega brids. Ómar var með meðfæddan hjartagalla og árið 2008 voru settar í hann nýjar hjartalokur. Hann fékk mjög alvarlegt heilablóðfall 2015 og var eftir það bundinn við hjóla- stól. Ómar var síðan búsettur á Sjálfsbjargarheimilinu í Há- túni í Reykjavík til dánardæg- urs. Útför Ómars fer fram frá Stöðvarfjarðarkirkju í dag, 28. september 2019, klukkan 14. ingur frá Háskóla Íslands árið 1982. Árið 1984 kynnt- ust Ómar og Bonni Yeatman og gengu í hjónaband árið 1990. Þau eign- uðust saman tvær dætur, þær Freyju Yeatman, f. 20.3. 1987, og Sunnefu Yeatman, f. 2.3. 1989. Ómar og Bonni skildu árið 1993 og flutti Bonni til Ástralíu með báðar dæturnar skömmu síðar. Ómar flutti í kjölfarið einnig til Ástr- alíu en sneri aftur heim á æskustöðvarnar á Stöðvarfirði eftir sex ára dvöl þar ytra. Dætur hans fluttust seinna báðar til Íslands og unnu nokk- ur ár í Alcoa Fjarðaáli á Reyð- arfirði. Í framhaldi af því fóru þær báðar í háskólanám til Reykjavíkur, Freyja í verk- fræði og Sunnefa í lífvísindi. Ómar vann að loknu námi sem kennari í fjölmörgum grunnskólum á landinu. Á námsárunum stundaði hann Það er skrítin tilfinning að sitja hérna og skrifa þessi orð til minningar um bræður mína sem voru teknir frá okkur allt of fljótt. Ævar lést 31. júlí síð- astliðinn eftir stutta baráttu við illvígt krabbamein á hjúkrunar- heimilinu Uppsölum, Fáskrúðs- firði . Ómar rúmum mánuði síð- ar, 5. september eftir bráðaveikindi á Landspítalan- um. Margs er að minnast frá uppeldisárum okkar á Stöðv- arfirði, við Ævar mikið á ferð- inni að veiða lækjarlontur eða þorsk í fjörunni eða við bryggj- urnar. Ómar aftur á móti rólegri og yfirvegaðri en var fljótur að koma okkur til hjálpar ef á þurfti að halda, sérstaklega þegar hann taldi að á okkur bræður væri hallað. Við vorum allir mikið í íþróttum, sérstaklega fótbolta. Ómar var hálfblindur á yngri árum og haft á orði að hann heyrði frekar í boltanum og að- stæðingum en sæi, og var því hafður í bakverðinum alla tíð. Hann sleppti sjaldan fram hjá sér bæði manni og bolta. Ég minnist með gleði veiði- ferðar sem við þrír fórum með pabba að Ánavatni á Jökuldals- heiðinni. Við bræður 12-14 ára, þetta var að vori og enn skaflar á heiðum. Farið var með stóran fiski- kassa í ferðina sem stóð frá föstudagskvöldi og fram á miðj- an sunnudag, gist var í tjaldi. Strax fyrsta kvöldið veiddi Óm- ar stóra bleikju sem reyndist stærsti fiskur ferðarinnar og taldi sig ekki þurfa að veiða meira í þessari ferð. Við Ævar og pabbi fylltum fiskikassann og ísuðum fiskinn á milli daga með snjó. Saxbauti í dós var hitaður á prímusnum og borð- aður í flest mál. Allt var þetta dásamlegt nema þegar heim var komið þá var bleikja á borðum í hvert mál í tvær vikur og allir komir með upp í háls af fiskisúpu. Ævar var besti veiðimaður sem ég hef kynnst þegar kem- ur að stangveiði með spún og maðk. Hann las vatnið eins og opna bók bæði í lax- og silungs- veiði. Eftir eina velheppnaða ferð af mörgum í Selá í Vopnafirði þar sem við veiddum eins mikið og við gátum borið í bakpok- unum hélt ég að hann hugsaði eins og lax. Minnisstætt er þegar Ævar byggði einbýlishús fyrir mig á Egilsstöðum og við Ómar töld- um okkur bestu handlangara á Héraði. Endalaust má ylja sér við minningarnar og margar tengdar veiði, bridsspila- mennsku og íþróttum en læt ég hér staðar numið. Ég minnist bræðra minna með hlýju og söknuði, blessuð sé minning þeirra. Óttar Ármannsson. Sérhvert tímabil lífsins hefur sína töfra. Minningar um sam- ferðafólk vega þar þyngst og eiga mestan þátt í að glæða þessi löngu liðnu tímabil lífi. Þrátt fyrir að leiðir skilji verða góð kynni og minningar ekki frá okkur tekin. Ómar Ármannsson er einn þessara einstaklinga sem ljúft er að minnast. Við vorum skólasystkin í framhaldsskóla og nú þegar komið er að kveðjustund langar okkur að minnast hans með ör- fáum orðum. Ómar var sérlega ljúfur skólabróðir. Hann var dagfarsprúður og kurteis. Orð eins og traust og heilindi koma upp í hugann þegar við lítum til baka. Það voru engin læti í Ómari en hann hafði skemmtilega kímni- gáfu. Segja má að við vinkon- urnar höfum verið pennavinir Ómars. Við skiptumst á bréfum í kennslustundum og við ortum vísur og ljóð til að senda á milli. Ómar var vel hagmæltur en það sama gilti ekki um okk- ur. Hann tók leirburðinum frá okkur með bros á vör og fáir, ef nokkrir, vissu um þessa iðju okkar. Eins og algengt var á þessum árum fluttu krakkar ut- an af landi til Reykjavíkur til að fara í framhaldsskóla. Ómar var einn þessara krakka. Þrátt fyrir mikla sjón- skerðingu og það að þurfa bráðungur að standa á eigin fótum lét hann ekkert stoppa sig enda góður námsmaður þar á ferð. Sem betur fer fékk hann síð- ar heilmikla bót á sjónskerðing- unni. Að sjá jafnilla og Ómar truflaði hann verulega í námi, að sjá illa t.d. handskrifaðar glósur og útreikninga í stærð- fræði kallaði á aukna vinnu og yfirlegu, en það stoppaði ekki Ómar í að ná góðum árangri. Við völdum okkur öll kennslu sem starfsvettvang og í gegn- um árum vissum við alltaf af Ómari þó svo að samskiptin á fullorðinsárum yrðu ekki mikil. Við minnumst þessa skóla- bróður okkar með hlýhug og þökkum fyrir góð kynni og gleðileg á okkar yngri árum. Fjölskyldu hans vottum við innilega samúð og biðjum Guð að blessa minningu Ómars Ár- mannssonar. María Solveig Héðinsdóttir, Fanný Gunnarsdóttir. Kveðja frá fyrrverandi samstarfsfólki við Grunn- skóla Fáskrúðsfjarðar Ómar kom til starfa við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar í ársbyrjun 2006 og starfaði þar í rúm níu ár eða þar til hann veiktist og varð að snúa sér að glímunni við heilsuna. Að jafnaði sinnti Ómar kennslu nemenda á unglinga- stigi sem unnu samkvæmt ein- staklingsnámskrá og náði sér- stöku sambandi við margra þeirra. Þar nýttust hæfileikar hans og jafnaðargeð vel. Við erum ekki viss um að við hin höfum alltaf áttað okkur á þeim mik- ilvægu verkefnum sem hann og nemendur hans unnu. Hann var duglegur að miðla sinni þekkingu til annarra nem- enda, í frímínútum, á þemadög- um, útvistardögum eða við önn- ur tækifæri. Þannig innleiddi hann al- mennan borðtennisáhuga í skólanum og kom á árlegum borðtennismótum. Hann kenndi líka mörgum að tefla en erf- iðara reyndist að vekja almenn- an áhuga á skákinni. Hann var frekar hlédrægur og rólegur en mjög þægilegur í samstarfi og virtist njóta sín vel í samfélag- inu innan skólans á þessum ár- um. Hann var samviskusamur og við munum varla eftir að hann vantaði til vinnu þó að stundum væri færðin á leiðinni frá Stöðvarfirði leiðinleg að morgni dags. Hann naut sín alltaf mjög vel þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp hvort sem það var á þemadögum, á skemmti- kvöldum með nemendum eða þegar starfsfólk gerði sér daga- mun. Sérstaklega hafði hann gaman af óvissuferðum starfs- manna þar sem hann var tilbú- inn að taka þátt í allavega uppátækjum þrátt fyrir feimn- ina. Það dró úr samskiptunum eftir að Ómar varð að flytja suður en við vissum að hann hugsaði bæði til nemenda og starfsfólks. Við fundum það oft hvað honum þótti innilega vænt um dætur sínar og teljum óhætt að segja að fátt hafi glatt hann meira en þegar þær ákváðu báðar að flytja til Íslands frá Ástralíu eftir skyldunám og láta reyna á líf og starf á Ís- landi. Hann var líka virkilega stolt- ur af verkefnum þeirra og ár- angri. Þá var stuðningur þeirra við hann ómetanlegur í veikind- unum síðustu ár. Á sinn góðlátlega hátt minnti hann okkur oft á að veðrið á Stöðvarfirði hefði nú verið gott að morgni dags og náttúran þar skartað sínu fegursta ekki síð- ur en á Fáskrúðsfirði. Við sendum dætrum Ómars, systkinum og fjölskyldum okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd samstarfsfólks við Grunnskóla Fáskrúðsfjarð- ar, Eygló og Líneik. Ómar Ármannsson Skarð er hoggið í Garðhúsafrænku- hópinn við fráfall elsku Dæju. Sam- verustundir okkar frænka verð- ur ekki samar. Þegar við hitt- umst síðast hafði Dæja fengið vondar fréttir deginum áður, en lét sig ekki vanta frekar en fyrr. Mætti með sitt fallega bros, milda hlátur og sína góðu nær- veru og lét engan bilbug á sér finna. Hún leyfði okkur samt að fylgjast með veikindum sínum frá fyrstu tíð, vissi að í þessum hópi hefði hún stuðning. Hún var ekkert að barma sér en svaraði af heillindum væri hún spurð. Í tvígang fengum við frænk- urnar að njóta gestrisni hennar fyrir norðan, bæði á heimili hennar og Bjarna í Furulund- inum og eins í sloti þeirra að Laugum. Ferðin þangað og gestrisni þeirra hjóna er ein af eftirminnilegustu samveru- Dagný Magnea Harðardóttir ✝ Dagný MagneaHarðardóttir fæddist 8. júní 1961. Hún lést 20. september 2019. Útför hennar fór fram 27. september 2019. stundum okkar frænka í mínum huga. Gist var í tveimur húsum og samveru notið yfir helgi á dásamleg- um stað í dá- samlegu umhverfi. Ferðin var ekki síður eftirminnileg fyrir þær sakir að þær Harðarsystur höfðu gleymt eftirrétti á annars drekkhlöðnu veisluborðinu en það er eftirlætisréttur Garð- húsafrænka. Leitað var í öllum skápum og skúffum að hráefni til að búa til eitthvað sykursætt og svo hleg- ið að öllu saman. Eftirréttur skyldi ekki gleymst héðan í frá. Ég á ljósmynd úr þessari ferð þar sem Dæja stendur í dyragættinni í slotinu sínu og veifar okkur frænkum í kveðju- skyni. Nú kveð ég þig elsku frænka. Mikið á ég eftir að sakna þín í okkar samveru- stundum. Bjarna, börnum þeirra, barnabörnum og stórfjölskyldu sendi ég djúpar samúðarkveðj- ur. Svanhildur Eiríksdóttir. ✝ Ólöf Erla Árna-dóttur fæddist á Akureyri 29. september 1941 og ólst þar upp. Hún lést á sjúkrahúsi í Stokkhólmi 6. apríl, 2019. Foreldrar henn- ar voru Elísabet Jónsdóttir og Árni Friðriksson. Systk- ini Ólafar Erlu eru: Kolbrún Árnadóttir, Friðrik Árnason, Kári Árnason og Jón Einar Árnason. Hálfsystkini Ólafar eru: Rósa Árna- dóttir, Svana Árna- dóttir og Kristján Árnason (látinn). Útför hennar fór fram í kyrrþey. Ættingjar stóðu fyrir minning- arathöfn í kapell- unni á Akureyri 16. júlí sl. og var aska hennar jarðsett í duftreit á Akureyri. Síðsumars frétti ég að vinkona mín og skólasystir, Ólöf Erla Árnadóttir, væri látin og jarðar- förin hefði farið fram í kyrrþey. Mig langar að minnast Ollýjar eins og hún var kölluð. Við urðum skólasystur í Fóstruskóla Sumar- gjafar 1961. Samveran í skólan- um og námið var góður tími. Hópurinn var samhentur og glað- vær undir styrkri stjórn þeirrar merku konu Valborgar Sigurðar- dóttur skólastjóra. Við vorum 14 sem útskrifuðumst árið 1963 en sex eru fallnar frá. Við Ollý urð- um nánar vinkonur þegar við vor- um samtíða í Svíþjóð árin 1966- 1968. Þar unnum við fyrst á Sol- bergahemmet í Järna í Suður-Svíþjóð. Vinnan var mikil lífsreynsla og við lærðum margt á þessum tíma. Solbergahemmet starfaði í sama anda og Sól- heimar í Grímsnesi; drifið af hug- sjónafólki sem gott var að kynn- ast og læra af. Flest börnin sem við hugsuðum um voru einhverf eða með Downs-heilkenni. Skóli var á staðnum við hæfi þessara barna og í anda þeirrar hug- myndafræði sem þá ríkti. Eftir átta mánaða vinnu á Sol- bergaheimilinu langaði okkur að prófa eitthvað annað. Við fengum fljótlega vinnu á leikskólum Stokkhólmsborgar. Eftir að við fluttumst til Stokkhólms bjuggum við hvor á sínum staðnum en hittumst oft á kaffihúsum eftir vinnu. Þegar ég ákvað að fara heim til Íslands ár- ið 1968 vildi Ollý vera áfram í Stokkhólmi. Hún gat ekki hugsað sér að fara aftur á ótryggan leigumarkað í Reykjavík og lifa á þeim launum sem leikskólakenn- urum buðust. Í Stokkhólmi hafði hún góð laun og íbúð sem hún gat búið í til langframa, í einhvers- konar búsetakerfi miðsvæðis í Stokkhólmi. Þar bjó hún til dauðadags. Ég hitti Ollý fyrir nokkrum ár- um í Stokkhólmi, þá sagði hún mér að hún hefði lært blóma- skreytingar og unnið í blómabúð í nokkur ár. Ég frétti einnig að hún hefði verið vökukona á sjúkrahúsi um tíma. Meðan móð- ir hennar var á lífi kom Ollý reglulega til Íslands og hitti ég hana þá stundum þau ár. Þá sagði hún mér að hún umgengist helst sænskar vinkonur sem hún kynntist á sínum fyrsta vinnustað í Stokkhólmi. En starf leikskóla- kennara er erfitt og margir leik- skólakennarar fara snemma á eftirlaun. Það átti einnig við um hana. Hún sagði mér að eftir endurtekin veikindaleyfi hefði hún orðið að fara á eftirlaun 62 ára vegna heilsubrests. Síðustu árin var ung frænka hennar, Ing- unn Elísabet, við nám í Stokk- hólmi og sinnti hún Ollýju vel og flutti ættingjum fréttir af högum hennar. Blessuð sé minning góðrar vin- konu. Margrét Hrefna Sæmundsdóttir. Ólöf Erla Árnadóttir Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN EINARSDÓTTIR, Miðhúsum, lést 25. september á hjúkrunarheimilinu Dyngju. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju fimmtudaginn 3. október klukkan 14. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ANNA JÓHANNSDÓTTIR, áður Gullsmára 9, lést á Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili, 14. september. Útför fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 3. október klukkan 13. Starfsfólk Grundar fær þakkir fyrir einstaka alúð og umhyggju. Hrönn Pálmadóttir Sævar Guðbjörnsson Rögnvaldur Pálmason Ágústa G. Sigurbjörnsdóttir Örn Pálmason Anna Karen Káradóttir ömmu- og langömmubörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.