Morgunblaðið - 28.09.2019, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
60 ára Erna er Horn-
firðingur og er grunn-
skólakennari að mennt.
Hún er umsjónarkenn-
ari í 6. bekk í Grunn-
skóla Hornafjarðar.
Erna er formaður
Kvennakórs Horna-
fjarðar og er trommuleikari í kvenna-
hljómsveitinni Guggurnar.
Maki: Haukur Reynisson, f. 1956, starfs-
maður hjá Skinney-Þinganesi.
Börn: Heiðdís, f. 1981, Reynir Haukur, f.
1986, og Hafdís, f. 1991. Barnabörnin eru
Ari, Gísli Ólafur, Auður, Egill og Óðinn
Karl.
Foreldrar: Gísli Arason, f. 1917, d. 2017,
mjólkurfræðingur að mennt og var safn-
vörður, heilbrigðisfulltrúi og fleira, og Álf-
heiður Magnúsdóttir, f. 1919, d. 2015,
húsmóðir á Höfn.
Erna Gísladóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það eru einhverjir sem geta ekki
stillt sig um að reyna að gera þér lífið leitt.
Vertu ánægður með þig og hæfileika þína
og njóttu þess sem lífið er þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Aðalverkefni dagsins felst í að leiða
fólkið – beina því í rétta átt, halda því við
áætlunina þína svo það átti sig á sýn þinni.
Reyndu að vera jákvæður.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur ástæðu til þess að vera
í góðu skapi og ættir að njóta þess sem
lengst. Vinir og ráðgjafar færa þér góðar
fréttir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú dregst varla úr sporunum um
þessar mundir, reyndu að taka þér pásu
og endurnæra þig. Farðu varlega þegar þú
ert á ferðinni, hvort sem það er fótgang-
andi eða undir stýri.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er óþarfi að taka alla skapaða
hluti bókstaflega því það kallar bara á álag
og örvæntingu. Einbeittu þér að þínu
verki, þú ert á réttri leið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að eiga betra með að ein-
beita þér nú þegar þú hefur sett þér tak-
mark. Rökhugsun þín og vilji til þess að
hjálpa verða þess valdandi að aðrir virða
þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnst einhvern veginn eins og
hlutirnir gerist allt of hratt. Varastu allt
það sem gæti sett stöðu þína í tvísýnu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert óánægður með að fá
ekki til baka það sem þú hefur lánað.
Gættu þín á því að segja ekki einhverjum
eitthvað sem er betur látið ósagt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Eitthvað brjálæðislega fyndið
mun ýta þér upp úr hjólfarinu sem þú ert
ofan í, líka því sem snýr að fjármálum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er rétti tíminn til að gera
breytingar hvort heldur er heima fyrir eða
í starfi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft ekki að íhuga í lengri
tíma til að ná orkunni upp. Mundu að fólk
þarf ekki endilega að vera sammála þér
þótt það elski þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Eigirðu í deilum við samstarfs-
mann þinn þýðir ekkert að vera eins og
köttur í kringum heitan graut.
67 ára, ég hef unnið þá á geðdeild-
unum á sumrin og það hefur komið
ágætlega út en því lýkur núna.“
Kolbrún sat á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna 1983, var á
vegum Alþingis á þingi Alþjóða-
þingmannasambandsins í Mexíkó
geðhjúkrun. Svo þegar skilning-
urinn á geðsjúkdómum dýpkaði þá
missti ég ekkert áhugann á því að
starfa með þessum hópi ein-
staklinga sem glímir við þessi
vandamál. Við höfum búið hluta af
árinu á Tenerife frá því að ég var
K
olbrún Margrét Hauk-
dal Jónsdóttir er
fædd 28. september
1949 á Skagaströnd
og ólst þar upp.
Kolbrún tók sjúkraliðapróf á
Borgarspítalanum 1971, var í námi
á viðskiptabraut 1982-1983, lauk
framhaldsnámi fyrir sjúkraliða í
geðhjúkrun 1995, lauk námi í
hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands
1999 og í kennslufræði til kennslu-
réttinda frá Háskólanum á Akur-
eyri 2003, í geðheilsumati og
geðhjúkrunargreiningum frá HÍ
2007, tók 30 einingar í meist-
aranámi í heilsuhagfræði 2008-2009,
og tók námskeiðið Máttur kvenna
við Háskólann á Bifröst 2012.
Kolbrún var í búskap í Þykkva-
bæ í Djúpárhreppi 1973-1978, vann
hjúkrunarstörf á elli- og hjúkrunar-
heimilinu í Hornafirði 1978-1981 og
var forstöðukona þess síðasta árið.
Hún var við hjúkrunarstörf á
sjúkrahúsi Húsavíkur frá 1981-
1983, var alþingismaður Norður-
lands eystra 1983-1987, fyrst
kvenna í því kjördæmi, og sat fyrir
Bandalag jafnaðarmanna og síðan
Alþýðuflokkinn. „Þetta var mjög
lærdómsríkur og kröfuharður tími,
við vorum fámennur þingflokkur og
hver þingmaður þurfti að vera í
mörgum nefndum. Mér er minn-
isstætt þegar ég mætti veik á Al-
þingi til að greiða atkvæði með
frjálsu útvarpi og það munaði einu
atkvæði að það yrði ekki samþykkt.
Margir þingmenn voru mér reiðir
fyrir þetta.“
Kolbrún hefur starfað við geð-
deild Borgarspítalans í Arnarholti
frá 1991 og síðan Landspítala eftir
sameiningu þessara stofnana. Hún
var hjúkrunarfræðingur á geðdeild-
um Landspítala 1999-2008, for-
stöðukona í Hörðukór, íbúðakjarna
fyrir geðfatlaða hjá Kópavogsbæ
2008-2009, hjúkrunarforstjóri á
hjúkrunarheimili fyrir geðfatlaða á
Fellsenda í Dölum 2009-2013 og
hjúkrunarfræðingur á bráðageð-
deild Landspítala 2013-2019. „Ég
byrjaði ung að vinna í Arnarholti á
Kjalarnesi sem var vistheimili fyrir
geðfatlaða og þá kviknaði áhuga á
að vinna við hjúkrun og ekki síst
1985 og í Argentínu 1986. Hún átti
sæti í öryggismálanefnd sjómanna
1984-1986, var í hreppsnefnd Kjal-
arneshrepps 1990-1998 og sat í
stjórn Sambands sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu 1994-1998.
Kolbrún hefur gaman af göngu-
ferðum og útivist og þau hjónin
byrjuðu í golfi fyrir tveimur árum.
„Við erum með heilsárshús á
Bjarnastöðum í Hvítársíðu í Borg-
arfirði. Þar erum við fimm systur
með sumarbústaði hlið við hlið og
tvær dætur okkar eru búnar að fá
sér lóðir á þessum stað. Þetta er
því fjölskyldureitur og mjög gott að
fara í gönguferðir þar. Gaman að
taka hring við Barnafossa sem tek-
ur bara einn og hálfan tíma og stutt
er á golfvellina.“
Fjölskylda
Eiginmaður Kolbrúnar er Þor-
valdur Á. Hauksson búfræðingur, f.
28.2.1949. Foreldrar hans voru
hjónin Haukur Benediktsson fram-
kvæmdastjóri, f. 29.4. 1924, d. 30.8.
2008, og Arndís Þorvaldsdóttir
kaupmaður, f. 23.3. 1924, d. 23.1.
2003.
Börn Kolbrúnar og Þorvaldar
eru 1) Hafrún Mara Zoldos snyrti-
fræðingur, f. 7.11. 1969, búsett í
Larvík í Noregi. Börn hennar eru
Kolbrún M. Haukdal Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrv. þingmaður – 70 ára
Á Tenerife Kolbrún og Þorvaldur ásamt börnum og barnabörnum.
Mætti veik til að styðja frjálst útvarp
Þingmaðurinn Kolbrún var fyrsti kvenþingmaður Norðurlands eystra.
Hjónin Kolbrún og Þorvaldur.
50 ára Eiríkur er Bol-
víkingur en býr í
Reykjavík. Hann er
með BA í bókmennta-
fræði og MA í íslensk-
um bókmenntum frá
HÍ. Hann er rithöf-
undur og dagskrár-
gerðarmaður á Rás 1. Hann hefur skrifað
skáldsögurnar 39 þrep á leið til glötunar
(2004), Undir himninum (2006),
Sýrópsmáninn (2010), 1983 (2013), Rit-
gerð mín um sársaukann (2018), ljóða-
bókina Blindur hestur (2015) og ritstýrði
heildarútgáfu á verkum Steinars Sigur-
jónssonar (2008).
Sonur: Kolbeinn Orfeus, f. 2004.
Foreldrar: Guðmundur Sigmundsson, f.
1934, d. 2006, stærðfræðingur og kenn-
ari, og Guðfinna Elísabet Benjamínsdóttir,
f. 1933, ljósmóðir, búsett í Reykjavík.
Eiríkur Guðmundsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is