Morgunblaðið - 28.09.2019, Side 47

Morgunblaðið - 28.09.2019, Side 47
HANDBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Stórskyttan Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, segir að leiðin geti bara legið upp á við hjá landsliðinu sem mætir Frökkum í öðrum leik sínum í undankeppni EM á Ásvöllum í Hafnarfirði á morgun klukkan 16. Íslenska liðið beið afhroð gegn Kró- ötum í Osijek í fyrsta leik sínum í undankeppninni á miðvikudaginn, 29:8, en þrátt fyrir það segir Hanna að stemningin sé góð í íslenska hópnum. „Við erum allar mjög spenntar fyrir leiknum á sunnudaginn og stemningin í hópnum er góð. Það er ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst til þess að spila við eitt besta lið heims. Að sama skapi er þetta gott tækifæri fyrir okkur til þess að rífa okkur upp eftir síðasta leik, sem var einfaldlega ekki nægilega góður, og við erum staðráðnar í að gera bet- ur gegn Frökkum. Það er í raun ekk- ert annað í stöðunni en að horfa upp á við eftir leikinn gegn Króötum. Þó að úrslitin hafi ekki verið okkur í hag voru ljósir punktar hjá liðinu inni á milli slæmu kaflanna, sem við ætlum okkur að taka með okkur inn í leik- inn gegn Frökkum. Það er líka hell- ingur sem við getum bætt og við höf- um æft mjög vel undanfarna daga til þess að mæta betur undirbúnar í leikinn á sunnudaginn.“ Mikill vilji í hópnum Arnar Pétursson tók við þjálfun íslenska liðsins 1. ágúst síðastliðinn. Arnar stýrði fyrstu æfingu sinni með liðið í Osijek, degi fyrir leikinn af- drifaríka, en Hanna telur að liðið og þjálfarateymið þurfi sinn tíma til þess að vinna saman. „Auðvitað hefur það einhver áhrif að við náðum bara einni alvöru æf- ingu fyrir leikinn gegn Króatíu. Vissulega vorum við byrjaðar að undirbúa okkur fyrir leikinn með myndbandsklippum og öðru í gegn- um internetið en það er ekki það sama og að vera inni á gólfi með þjálfarateyminu á alvöru æfingu. Að sama skapi getum við ekki falið okk- ur á bak við lítinn tíma til undirbún- ings og það eitt og sér er ekki ástæð- an fyrir slæmum úrslitum í Osijek. Ég hef hins vegar mikla trú á því að leiðin muni liggja upp á við þegar þjálfararnir geta farið að setja sinn svip á liðið og við fáum meiri tíma til þess að vinna saman. Ég held að þeir geti gert góða hluti með liðið og ég er virkilega spennt fyrir komandi tímum með landsliðinu. Það hefur lengi verið draumur hjá mér að kom- ast á stórmót, en ég kom fyrst inn í landsliðið í desember 2014. Ég var þess vegna ekki hluti af liðinu þegar það fór síðast á stórmót 2012. Það er mikill vilji í hópnum að koma sér á stórmót og vonandi tekst það frekar fyrr en seinna.“ Öðruvísi áskorun í Frakklandi Hanna gekk til liðs við franska 1. deildarliðið Bourg-de-Péage um miðjan júlí, en hún hefur farið mjög vel af stað í Frakklandi og er á meðal markahæstu leikmanna deildar- innar. „Mér líður mjög vel í Frakklandi og ég hef aðlagast mjög vel. Þetta er frábært tækifæri fyrir mig persónu- leg að spila gegn þessum sterku lið- um í frönsku deildinni. Þetta er nýr handbolti fyrir mig, þannig séð, og öðruvísi áskorun. Ég finn fyrir trausti í mínu liði frá þjálfarateym- inu og mér líður virkilega vel þarna, þótt ég skilji ekki orð í frönsku ennþá, en það reddast alltaf á end- anum. Við vinnum vel saman sem lið og ég hef líka verið að taka vítin í mínu liði, sem hífir upp markafjöld- ann. Mér líður virkilega vel inni á vellinum með þeim leikmönnum sem ég spila með. Flæðið er mjög gott og þá myndast ákveðnar glufur sem ég hef náð að nýta mér hingað til. Það er smá munur á frönsku deildinni og þeirri íslensku en heilt yfir myndi ég segja að sú franska væri sterkari,“ sagði Hrafnhildur Hanna í samtali við Morgunblaðið. Dreymir um stórmót með íslenska kvennalandsliðinu  Leiðin getur bara legið upp á við  Þakkar traustið með frábærri spilamennsku Morgunblaðið/Valli Atkvæðamikil Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir er í sjöunda sæti yfir markahæstu leikmenn frönsku 1. deildar- innar með 34 mörk. Lið hennar Bourg-De-Péage er í tíunda sæti í tólf liða deild eftir fyrstu sex leiki sína. ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 Líklega þyrfti að gera tölu- verða leit að ensku knatt- spyrnuliði sem ekki á stuðnings- mann á Íslandi. Stuðningur Stefáns Pálssonar sagnfræðings við Luton Town er ekki það eina frumlega sem finna má hérlendis þótt það sé með þekktustu dæm- unum. Af einhverjum ástæðum hafa Ís- lendingar margir hverjir tengst fjarlægum liðum svo sterkum til- finningaböndum að það getur haft veruleg áhrif á geðsveiflur, eins og sést stundum í tölvu- póstum sem berast hingað á rit- stjórnina þegar ensk lið eru til umfjöllunar. Mun meiri líkur virðast vera á því að menn móðgist vegna þeirr- ar umfjöllunar en umfjöllunar um íslensk lið. Líklega væri þetta upplagt rannsóknarefni fyrir þá Arnar Eggert Thoroddsen og Við- ar Halldórsson í félagsfræðinni. Í vikunni sló d-deildarliðið Col- chester United lið Tottenham Hotspur út úr deildabikarkeppn- inni. Guðjón Helgason, upplýs- ingafulltrúi Isavia, birti mynd af sér hæstánægðum með Col- chester-trefil á samskipta- miðlum. Hamingjan var svo mikil á myndinni að Guðjón hefði ekki verið kátari þótt flugfélögin hefðu staðgreitt lendingargjöldin áratug fram í tímann. Ég man eftir einum íslenskum leikmanni hjá Colchester, en Ís- firðingurinn Matthías Vilhjálms- son var þar um hríð. Liðið á nokkra stuðningsmenn hérlendis. Vésteinn Ingibergsson, skóla- bróðir Guðjóns úr stjórnmála- fræðinni, styður liðið einnig, sem og Ingvi Örn Kristinsson hag- fræðingur og Einar Kristinn Guð- finnsson, fyrrverandi ráðherra. Eiga fjórmenningarnir það sameiginlegt að hafa numið við Essex-háskóla í Colchester. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Kaplakriki: FH – Grindavík .................. L14 Samsung-völlur: Stjarnan – ÍBV .......... L14 Greifavöllur: KA – Fylkir ...................... L14 Norðurálsvöllur: KA – Fylkir................ L14 Origo-völlur: Valur – HK....................... L14 Kópavogsvöllur: Breiðablik – KR......... L14 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Framhús: Fram – Haukar ..................... L14 Hleðsluhöllin: Selfoss – HK................... L18 Kaplakriki: FH – Afturelding........... S19.30 Undankeppni EM kvenna: Ásvellir: Ísland – Frakkland.................. S16 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Austurberg: ÍR – ÍBV U ........................ S14 Bikarkeppni karla, Coca Cola-bikarinn: Vestm.eyjar: ÍBV 2 – Grótta.................. S16 KÖRFUKNATTLEIKUR Meistarakeppni karla: Origo-höllin: KR – Stjarnan................... S17 Meistarakeppni kvenna: Origo-höllin: Valur – Keflavík........... S19.15 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Akureyri: SA – SR............................. L16.45 Enski boltinn á Síminn Sport Sheffield United – Liverpool ............ L11.30 Tottenham – Southampton.................... L14 Everton – Manchester City .............. L16.30 Leicester – Newcastle ....................... S15.30 UM HELGINA! Svíþjóð Borås – Köping Stars.......................... 90:91  Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig, gaf 6 stoðsendingar, tók 6 fráköst og stal boltanum þrisvar fyrir Borås. KÖRFUBOLTIHeimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum hófst í Doha í Katar í gær. Í gærkvöldi hófst maraþonhlaup kvenna og höfðu keppendur ekki skilað sér í mark þegar blaðið fór í prentun. Hlaupið hófst á miðnætti að staðartíma en ekki eru fordæmi fyrir slíku áður á HM. Er það væntnalega gert vegna hitans í Kat- ar og ekki keppendum bjóðandi að hafa þolgreinar yfir daginn þegar hitinn er mestur. Keppt var í undanrásum í ýmsum greinum í gær. Meðal annars voru undanrásir í 100 metra hlaupi karla, einni vinsælustu greininni. Mótið er fyrsta HM sem fram fer eftir að heimsmethafinn Usain Bolt ákvað að hætta keppni eftir stórkostlegan fer- il. Því fá fleiri spretthlauparar at- hygli en áður. AFP Vökvi Hiruni Kesara Wijayaratne frá Srí Lanka gætir þess að drekka nóg í maraþonhlaupinu í gærkvöldi. Maraþon á miðnætti í Katar Gylfi Þór Sig- urðsson og sam- herjar hans hjá Everton fá verð- ugt verkefni í ensku úrvals- deildinni í dag. Everton fær meistarana í Manchester City í heimsókn. Í síð- asta leik City í deildinni fyrir viku fóru meist- ararnir hamförum og rótburstuðu Watford 8:0. Gylfi og samherjar hans mega því hafa sig alla við í dag en liðið hefur ekki byrjað sér- lega vel og er með 7 stig eftir fyrstu sex leikina. City er með 13 stig í 2. sæti á eftir Liverpool sem er með fullt hús stiga. Liverpool leikur snemma í dag og mætir Sheffield United á útivelli í fyrsta leik dagsins. Burnley, lið Jóhanns Bergs Guðmundssonar, heimsækir Aston Villa til Birm- ingham en Burnley er með 50% ár- angur eftir fyrstu sex leikina. Tvo sigra, tvö jafntefli og tvö töp. Í Þýskalandi verður Alfreð Finn- bogason væntanlega í fremstu víg- línu hjá Augsburg sem tekur á móti Bayer Leverkusen. Augsburg er með 5 stig eftir fimm leiki en Lev- erkusen með 10 stig. Gylfi fær meistarana í heimsókn Gylfi Þór Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.