Morgunblaðið - 28.09.2019, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 28.09.2019, Qupperneq 48
VALUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Benedikt Blöndal, fyrirliði karlaliðs Vals í körfuknattleik, vonast til þess að Valsmenn geti tekið næsta skref á komandi tímabili í úrvalsdeild karla, Dominos-deildinni, í vetur. Valsmenn enduðu í níunda sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og rétt misstu af sæti í úrslitakeppninni. Liðið hefur styrkt sig mikið í sumar og er stefnan sett á að gera betur en á síðustu leiktíð. „Það hefur verið fín stígandi í þessu hjá okkur og við höfum verið vaxandi undanfarin tvö tímabili. Vet- urinn leggst þess vegna bara nokkuð vel í okkur og stefnan er að gera bet- ur en undanfarin ár. Við erum með nýtt lið og nýja leikmenn sem eiga enn þá eftir að spila sig saman en ég er mjög bjartsýnn á að við getum gert mun betur en síðustu ár.“ Valsmenn hafa bætt við sig öfl- ugum leikmönnum í sumar en þar ber hæst landsliðsmennina þá Pavel Er- molinskij og Frank Aron Booker sem skrifuðu undir samning við félagið í sumar. Góð stígandi á Hlíðarenda „Við höfum styrkt okkur í sumar og það gerir mikið fyrir liðið að fá þá Pavel og Frank Aron. Þetta eru landsliðsmenn og þeir komu inn með mikil gæði. Að sama skapi eru þetta nýir leikmenn og það er stundum þannig að því fleiri leikmenn sem þú færð inn því lengri tíma getur það tekið að móta liðið. Síðustu ár hefur orðið lítil breyting á leikmannahópn- um á milli ára en nú er breyting þar á. Allir þeir leikmenn sem eru komnir til okkar styrkja okkur og gæðin á æfingum eru orðin mun meiri með til- komu þessara leikmanna. Í dag erum við með þrjá leikmenn sem eru og hafa verið í kringum íslenska lands- liðshópinn á meðan við vorum með einn í fyrra. Það sem hefur kannski vantað hjá okkur á undanförnum ár- um er að klára leikina okkar en það breytist vonandi með tilkomu þessara leikmanna.“ Valsmenn hafa tekið skref fram á við frá því að liðið var nýliði í deildinni haustið 2017. „Það hefur verið ákveðin uppbygg- ing hjá félaginu, undanfarin ár. Valur var félag sem var að flakka mikið á milli efstu og næstefstu deildar og það gekk illa að gera liðið að stöðugu efstu deildar liði. Við tókum þrjú ár í 1. deildinni þar sem okkur tókst að búa til góðan leikmannakjarna og för- um svo upp í efstu deild 2017. Við gerðum vel tímabilið 2017-18 þar sem við héldum okkur í efstu deild og heilt á litið var spilamennska liðsins það ár mjög góð. Tímabilið 2018-19 bættum við okkur um eitt sæti og hefðum með smáheppni getað laumað okkur inn í úrslitakeppnina. Það hefur þess vegna verið góð stígandi í þessu hjá okkur undanfarin ár og við viljum að sjálfsögðu gera betur í vetur.“ Valsmenn setja stefnuna á að kom- ast í úrslitakeppnina á næstu leiktíð en Benedikt ítrekar að það sé ekki eina markmið liðsins. „Markmiðið er að sjálfsögðu sett á úrslitakeppnina en við ætlum okkur ekki að hætta þar. Það er ekki nóg að komast þangað og vera svo bara sátt- ur með sitt. Að sjálfsögðu viljum við gera eitthvað þar og vonandi getum við verið með smálæti í úrslitakeppn- inni.“ Mæta með læti í úrslita- keppnina Morgunblaðið/Árni Sæberg Fyrirliðinn Benedikt Blöndal segir að lið Vals hafi byggst upp smám saman á undanförnum árum og nú sé kominn tími til að komast lengra en áður.  Benedikt vonar að reynsla nýrra leikmanna auðveldi liðinu að klára leiki 48 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 MIÐHERJAR: Illugi Auðunsson Ragnar Ágúst Nathanaelsson Þjálfari: Ágúst S. Björgvinsson. Aðstoðarþjálfari: Sævaldur Bjarnason. Árangur 2018-19: 9. sæti. Íslandsmeistari: 1980, 1983. Bikarmeistari: 1980, 1981, 1983.  Valur heimsækir Fjölni í 1. um- ferð deildarinnar á fimmtudags- kvöldið kemur, 3. október og tek- ur á móti Þór frá Þorlákshöfn í fyrsta heimaleiknum 10. október. BAKVERÐIR: Austin Magnus Bracey Ástþór Atli Svalason Benedikt Blöndal Dominique Hawkins Egill Agnar Jónsson Frank Aron Booker Ólafur Heiðar Jónsson Pálmi Þórsson Snjólfur Björnsson FRAMHERJAR: Arnaldur Grímsson Bergur Ástráðsson Illugi Steingrímsson Pavel Ermolinskij Sigurður Páll Stefánsson Lið Vals 2019-20 KOMNIR Dominique Hawkins frá Rapla (Eistlandi) Frank Aron Booker frá Evreux (Frakklandi) Pálmi Þórsson frá Tindastóli Pavel Ermolinskij frá KR FARNIR Aleks Simeonov, óvíst Birgir Björn Pétursson í Álftanes Dominique Rambo, óvíst Gunnar Ingi Harðarson í Hauka Nicholas Schlitzer í Newcastle Eagles (Englandi) Oddur Birnir Pétursson, hættur Sigurður Dagur Sturluson, hættur Breytingar á liði Vals  Það verður fróðlegt að fylgjast með Valsliðinu í vetur. Þetta gæti orðið frábært tímabil hjá liðinu ef hópurinn smellur saman og spilar sem heild.  Síðan getur þetta líka orðið þvílíkt vonbrigða- tímabil ef þessir gæðaleikmenn ætla ekki að gera þetta saman og skjóta ótímabærum skot- um.  Tala nú ekki um ef menn ætla að spara sig í vörn og bíða bara eftir að komast í sókn.  Með Pavel Ermolinskij koma væntingar og nú reynir á Valsliðið að spila undir smá pressu. Benedikt Guðmundsson um Val  Haraldur Franklín Magnús endaði í öðru sæti á Lindbyvätten Masters- mótinu í golfi sem lauk í Svíþjóð í gær en mótið var hluti af Nordic- mótaröðinni. Haraldur Franklín lék þriðja og síðasta hringinn á 70 högg- um eða á tveimur höggum undir pari. Hann lauk þar með keppni á 14 högg- um undir pari eftir að hafa áður átt tvo frábæra hringi og hafnaði í öðru sæti á eftir Svíanum Tobias Ruth, sem lék á 16 höggum undir pari. Haraldur á ágæta möguleika á því að ná einu af fimm efstu sætunum á mótaröðinni og fá þannig keppnisrétt á Áskorenda- mótaröð Evrópu eins og Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði fyrr á þessu ári.  Ísak Bergmann Jóhannesson, sex- tán ára gamall Skagamaður, fékk sitt fyrsta tækifæri í sænsku úrvalsdeild- inni í fyrrakvöld. Hann kom þá inná sem varamaður á 83. mínútu hjá Norr- köping í 4:0 sigri liðsins á Eskilstuna. Ísak kom til liðs við sænska félagið frá ÍA í byrjun þessa árs en hann spilaði einn leik með Skagamönnum í 1. deild- inni 2018, þá 15 ára.  Kvennalandsliðið í knattspyrnu er áfram í 17. sætinu á heimslista FIFA sem gefinn var út í gær. Þar var liðið líka á síðasta lista, sem kom út í júní, en hafði þá klifrað upp um fimm sæti. Ísland er í 10. sæti af Evrópuþjóðum. Listinn er nær óbreyttur frá því í júní en efstu sætin skipa Bandaríkin, Þýskaland, Holland, Frakkland, Sví- þjóð, England, Kanada og Ástralía.  Arnór Atlason hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sín- um við Álaborg, dönsku meistarana í handknattleik.Arnór er aðstoðarþjálf- ari liðsins og er á sínu öðru tímabili í því starfi. Stefan Madsen, þjálfari liðs- ins, framlengdi einnig samning sinn við Álaborg fyrr í mánuðinum. Arnór er 35 ára gamall en lagði skóna á hilluna sumarið 2018 og lauk ferlinum með Álaborg. Hann var í liði Íslands sem vann til silfurverðlauna á Ólympíu- leikunum í Peking 2008 og til brons- verðlauna á EM í Austurríki 2010.  Júlían J.K. Jóhannsson fékk í gær bronsverðlaunin frá HM í kraftlyft- ingum 2018 um hálsinn tæpum ellefu mánuðum eftir að mótið fór fram í Sví- þjóð. Forsaga málsins er sú að Júlían hafnaði í 4. sæti í samanlögðu en þess má geta að hann setti heimsmet í rétt- stöðulyftu á mótinu. Sá sem hafnaði í 3. sæti á HM féll hins vegar á lyfjaprófi og því er Júlían í þriðja sæti í saman- lögðu en fékk að sjálfsögðu gull- verðlaun í réttstöðulyftunni.  Elvar Már Friðriksson, landsliðs- maður í körfuknattleik, lék í gær sinn fyrsta deildaleik í Svíþjóð þegar lið hans Borås tapaði fyrir Köping Stars á heimavelli 90:91 Elvar skoraði 16 stig fyrir Borås, gaf 6 stoð- sendingar og tók 6 fráköst og var því ansi atkvæðamik- ill á þeim 24 mínútum sem hann var inná. Borås glopraði niður miklu for- skoti í síðasta leikhlut- anum sem varð til þess að liðið tap- aði en Köping vann síðasta leikhlutann 32:15. Eitt ogannað Ingibjörg Valgeirsdóttir, markvörður úr KR, var í gær valin í íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu fyrir landsleikina í næsta mánuði. Hún kemur í staðinn fyrir Sonnýju Láru Þráinsdóttur, markvörð Breiðabliks, sem þurfti að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla. Ingibjörg er 21 árs Hornfirðingur og lék í marki meist- araflokks Sindra frá 14 ára aldri en hefur leikið með KR frá 2016. Hún hefur ekki áður verið í A-landsliðinu en á að baki 16 leiki með yngri lands- liðum Íslands. Ísland sækir Frakk- land heim í vináttuleik 4. október og leikur síðan í Lettlandi í undankeppni EM 8. október. vs@mbl.is Ingibjörg í stað Sonnýjar Morgunblaðið/Hari Landsliðið Ingibjörg Valgeirsdóttir er komin í hópinn sem er á leið utan. HK og Víkingur hafa slitið samstarfi sínu í knattspyrnunni en félögin hafa verið með þrjá sameiginlega kvennaflokka, meistaraflokk, 2. flokk og 3. flokk, undanfarna tvo áratugi. Lið HK/Víkings féll úr úr- valsdeildinni í haust, þar sem það hefur leikið samtals fjögur tímabil og þar af tvö þau síðustu. Félögin hafa gert með sér sam- komulag um að Víkingur taki sæti HK/Víkings í 1. deild kvenna á næsta keppnistímabili en HK sendi lið í 2. deild kvenna. Hinsvegar mun HK fá sæti HK/Víkings í A-deildinni á Íslandsmóti 2. flokks kvenna. vs@mbl.is HK og Víkingur slíta samstarfi Morgunblaði/Arnþór Birkisson Breytingar HK og Víkingur verða hvort með sitt liðið á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.