Morgunblaðið - 28.09.2019, Síða 53

Morgunblaðið - 28.09.2019, Síða 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00 VELKOMIN Í URÐARAPÓTEK VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bandaríski leikarinn John Hawkes er staddur hér á landi sem einn af heiðursgestum Alþjóðlegrar kvik- myndahátíðar í Reykjavík, RIFF, en hann leikur í kvikm ynd leik- stjórans Elfars Aðalsteins, End of Sentence, opnunarmynd hátíðar- innar sem hófst í fyrradag. Í myndinni segir af feðgum, Frank sem Hawkes leikur og Sean sem leikinn er af Logan Lehrman, sem eiga ekki skap saman, svo vægt sé til orða tekið. Sean afplán- ar fangelsisdóm fyrir bílþjófnað og þegar móðir hans og eiginkona Franks, Anna, deyr af völdum krabbameins kemur í ljós að henn- ar hinsta ósk var að feðgarnir færu til Írlands og dreifðu ösku hennar við tiltekið stöðuvatn. Þegar Sean losnar úr fangelsi er hann alls ekki á því að fara með föður sínum í þetta ferðalag en lætur að lokum til leiðast. Feðgarnir eru eins og svart og hvítt, sonurinn hvatvís með stuttan kveikiþráð en faðirinn ákaflega hlé- drægur og lokaður og lætur allt yf- ir sig ganga. Ástæðan fyrir þessu stirða sambandi eða sambandsleysi feðganna liggur ekki fyrir til að byrja með en eftir því sem líður á myndina geta áhorfendur gert sér í hugarlund hvað veldur. Gott handrit og vinalegur leikstjóri Hawkes hefur hlotið mikinn fjölda tilnefninga og verðlauna fyr- ir leik sinn og hlutverkin sem hann hefur tekið að sér eru afar fjöl- breytt. Hann var tilnefndur til Ósk- arsverðlauna fyrir eftirminnilegan leik sinn i Winter’s Bone og hefur á ferlinum hlotið 17 verðlaun, þar af nokkur fyrir frábæran leik sinn í kvikmyndinni The Sessions. Í henni leikur hann lamað ljóðskáld. Blaðamaður hitti þá Elfar og Hawkes í fyrradag, á upphafsdegi RIFF, og spurði Hawkes fyrst hvernig óþekktum, íslenskum leik- stjóra hefði tekist að landa svo þekktum og virtum leikara. „Ég hitti Jonna [Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðanda] og Elfar og okkur kom mjög vel saman. Ég kunni líka vel að meta handritið og sá líka stuttmyndina sem Elfar gerði með John Hurt, Sailcloth, og fannst hún falleg. Ég vissi ekki að Elfar væri óþekktur, hann leit ekki út fyrir að vera það,“ segir Hawkes sposkur, „og það hefði ekki skipt neinu máli,“ bætir hann við, „mað- ur fær á tilfinninguna þegar maður hittir einhvern í fyrsta sinn hvort hann sé vingjarnlegur og hvort maður geti hugsað sér að vinna með honum.“ Hawkes bætir við að fyrir leikara skipti öllu máli að geta treyst leik- stjóranum, rætt opinskátt við hann og mikilvægt sé að hafa trú á getu hans til að segja sögu í kvikmynda- formi. Óvenjulegt samband Elfar segir myndina vera vega- mynd sem fjalli um laskað sam- band föður og sonar. Þetta kjarna- samband feðganna í handritinu var það sem vakti áhuga hans, segir hann. „Ég átti sjálfur í óvenjulegu sambandi við föður minn og á fjög- ur börn, þar af þrjá syni, þannig að mig langaði að kanna þetta sam- band frá báðum hliðum.“ Elfar segir söguna hafa hreyft við honum og að hann hafi unnið áfram í handritinu með handrits- höfundinum, Michael Armbruster, í tæpt ár, allt fram að tökum á myndinni. „Sagan varð á endanum persónuleg fyrir okkur báða sem skiptir öllu máli,“ segir Elfar blaða- manni. Heiðarleiki Hawkes er spurður að því hvort hann búi að svipaðri reynslu og Elf- ar þegar kemur að samskiptum við föður hans. Nei, ekki er það svo, hann segist hafa elskað föður sinn heitinn þó svo að hann hafi yfirgefið hann og móður hans þegar Hawkes var ellefu ára. „Samband okkar feðganna var kannski ekki flókið en það var óvenjulegt og drengir sem alast upp meira eða minna föður- lausir mótast af því á ákveðinn hátt,“ segir Hawkes. „Það er áhugavert að kanna fjölskyldusam- bönd með heiðarlegum hætti og mér fannst ákveðinn sannleikur og heiðarleiki einkenna þetta handrit þegar kemur að slíkum samböndum og hversu flókin þau geta verið.“ Leikarinn segist hafa getað sett sig í spor Franks líkt og annarra persóna sem hann hefur leikið þó svo hann eigi ekki börn sjálfur. Hann bendir brosandi á að leikari þurfi ekki að vera morðingi til að geta leikið morðingja. Fjötrandi stífni Hawkes er spurður að því hvern- ig maður Frank sé. „Frank er mjög góð manneskja en stífnin reynist honum stundum fjötur um fót. Þeg- ar maður er að leika ákveðna per- sónu er það reynsla mín að áhuga- verðara sé að finna sannleikann í henni, fela hann svo og láta hann skína í gegnum brynvörnina,“ svar- ar Hawkes. Frank sé einstaklega vandur að virðingu sinni og rólynd- ismaður en undir niðri kraumi mik- il reiði í garð sonarins og skelfi- legra veikinda og andláts eiginkonunnar. „Verkefni mitt fólst í því að fela þessar staðreyndir. Frank er einfaldur á yfirborðinu en flókinn undir niðri.“ Undirbúningurinn flóknastur Hawkes segist hafa notið þess til hins ýtrasta að vinna með Elfari og hrósar honum fyrir vandaða leik- stjórn. Hann segir Elfar hafa veitt leikurum myndarinnar svigrúm til að kanna ólíkar leiðir og gera mis- tök sem leiddu til endurbóta. Leikstjórinn er í kjölfarið spurð- ur að því hvað hafi reynst honum erfiðast við að gera fyrstu kvik- myndina í fullri lengd. Hann svar- ar því til að undirbúningurinn hafi verið flóknastur, að láta allt smella saman, bæði hvað varðar fjár- mögnun og tímasetningar. „Þetta tók aðeins á því ég vann einnig sem framleiðandi en með samstilltu átaki með þeim sómamönnum sem framleiddu með mér, Sigurjóni Sighvatssyni og írska framleiðand- anum David Collins, gekk þetta á endanum upp,“ segir Elfar. „Ég hélt að þú myndir segja „að keyra á vinstri akrein vegarins,““ skýtur Hawkes þá inn í prakk- aralegur og þeir félagarnir hlæja innilega. Elfar bendir Hawkes á að hann hafi búið lengi á Englandi og eigi því auðvelt með vinstri umferð. Elfar er með óvenjulegan bak- grunn af kvikmyndaleikstjóra að vera, starfaði sem forstjóri útgerð- arfélagsins Eskju áður en hann ákvað að láta þann draum sinn rætast að fara í kvikmyndanám. Það sama má segja um Hawkes, bakgrunnur hans er heldur óvenjulegur líka. Hann hefur aldr- ei stundað leiklistarnám og segist hafa ætlað að verða glímukappi. Nú hváir blaðamaður. Glíma? „Já, glíma,“ svarar Hawkes. Hann hafi verið efnilegur sem drengur en misst áhugann þegar nýr þjálfari tók við. Þá var ekki lengur gaman og meiðsli fóru líka að hrjá hann. Leiklist, tónlist og dans Hawkes ólst upp í smábæ í Minnesota, tók þátt í skólaleikriti í miðskóla og smitaðist af hinni al- ræmdu leiklistarbakteríu. „Ég flutti til Austin í Texas þegar ég var 18 ára og ætlaði að starfa þar sem smiður. Það var mikið að ger- ast í borginni á þeim tíma, ódýrt að búa þar og mikið að gerast í listalífinu. Ég hékk mikið með mér eldra og gáfaðra fólki sem kenndi mér að segja sögur, tók þátt í stofnun leikfélags, var í hljómsveit og vann við nútímadans. Þetta var minn háskóli,“ segir Hawkes. Nú hváir blaðamaður aftur. Nú- tímadans? Var hann líka dansari? „Ég átti vini sem voru í nútíma- dansi og drógu mig inn í sýningar. Ég bjó ekki heldur yfir neinni þjálfun í dansi og var bara meira í því að hreyfa mig. Ég lærði teygj- ur sem ég geri enn í dag og stund- um fékk ég að leika tónlist eða tala. Ég er ekki hæfileikaríkur dansari,“ svarar Hawkes kíminn. Sýningar leikhópsins fyrrnefnda vöktu athygli umboðsmanna og Hawkes fór að fá lítil hlutverk í Hollywood-myndum sem teknar voru í Austin. Þá fór boltinn að rúlla, hlutverkunum fjölgaði með árunum og á endanum flutti Haw- kes til Los Angeles að freista gæf- unnar. Þar hefur hann búið síðan, í 29 ár og hlutverkin skipta nú tugum. Hawkes segist hafa áttað sig á því í Austin að hann væri betri leikari en smiður. „Ég ákvað að þetta væri það sem ég vildi gera.“ Ástríðuverkefni Eins og fjallað hefur verið um í Morgunblaðinu er næsta verkefni Elfars kvikmynd eftir bók Jóns Kalmans, Sumarljós og svo kemur nóttin. Hann vonast til þess að geta hafið tökur næsta sumar og vetrartökurnar fylgi svo í desem- ber ef allt fer að óskum. Elfar er spurður að því hvort ekki hafi ver- ið snúið að laga bókina að kvik- myndarforminu. Jú, hann segir svo hafa verið, bókin sé mjög ljóð- ræn og þorpið verði í raun aðalpersónan sem leiði okkur frá sögu til sögu. „Jón er einn af þess- um kynngimögnuðu höfundum sem geta farið með prósann úr litlu þorpi lengst út í geim og aftur til baka í sömu málsgreininni og það verður gaman að takast á við slíkt í myndmálinu. Við erum að vinna í að klára fjármögnunina eins og er sem tekur alltaf sinn tíma,“ segir Elfar. Spurður út í leikaraval segist hann einungis búinn að finna nokkra af aðalleikurunum sem verða 12 talsins. „En hér heima eru svo góðir leikarar að ég hlakka sérstaklega til þess að hefja prufur,“ segir Elfar. „Ein af persónunum verður kannski bandarískur blaðamaður af íslenskum uppruna,“ bætir hann við og horfir lymskulega á Hawkes. Blaðamaður spyr leik- arann hvort hann ætli að leika þann náunga. Hawkes hlær við, segir „já, já, ekkert mál“ og gefur síðan hljóðdæmi, bablar eitthvað sem á líklega að vera íslenska. Við ákveðum að það séu viðeigandi lokaorð. Eða lokababl, öllu heldur. Betri leikari en smiður  John Hawkes er einn af heiðursgestum RIFF í ár  Leikur kvalinn ekkil, Frank, sem á í afar erf- iðu sambandi við son sinn í kvikmynd Elfars Aðalsteins, End of Sentence  Einfaldur á yfirborðinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vinir Elfar og Hawkes í setustofu Hotel Marina. Þeir náðu vel saman við gerð kvikmyndarinnar End of Sentence. Ljósmynd/Bernard Walsh Bollaleggingar John Hawkes, Elfar Aðalsteins og Logan Lerman spá í spil- in við tökur á íslensk-írsku kvikmyndinni End of Sentence á Írlandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.