Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Hreint loft - betri heilsa Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglu- gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. Verð kr 18.890 Verð kr 49.920 Verð kr. 35.850 Verð kr. 15.960 BIRGIR VAR EKKI VEIKUR – EN ÞAÐ VAR HUGHREYSTANDI AÐ VITA AÐ EINHVERJIR HÉLDU AÐ HANN VÆRI ÞAÐ. „VERTU EKKERT AÐ LÁTA OKKUR STOPPA ÞIG EF ÞÚ ÆTLAR ÚT.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá það ekki af sér að segja bless. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VÍSINDAMENN GERÐU UPPGÖTVUN Í DAG … EFTIR ÍTARLEGAR RANNSÓKNIR Á ANDFÝLU HUNDA … HAFA ÞEIR KOMIST AÐ ÞVÍ AÐ HÚN LEYSIR UPP MÁLNINGU LOKSINS NOT FYRIR HUNDA ÞÚ VELDUR MÉR MIKLUM VONBRIGÐUM, HEPPNI EDDI! ÞÚ HLJÓPST Í FELUR Í MIÐRI ORUSTUNNI! DAUÐINN VÆRI VIRÐINGAR- VERÐARI EN ÞETTA! EN HRÓLFUR! EINN ÓVINANNA SNEIDDI Í SUNDUR SERKINN MINN AÐ AFTAN! ÉG VAR BERRASSAÐUR! DÆS … ÆTLI ÉG GETI EKKI FYRIRGEFIÐ ÞÉR! Leifs Guðmundssonar: Guðrún Pál- ína, f. 3.8. 1929, d. 10.11. 2012, prentari; Ástríður, f. 15.2. 1931, d. 9.12. 2003, hjúkrunarfræðingur; Guðmundur Stefán, f. 20.3. 1932, vélstjóri. Alsystkini Þrastar: Hrafnhildur Snædal, f. 19.5. 1926, húsfreyja í Reykjavík; Hanna Jórunn, f. 26.12. 1937, íþróttakennari í Ohio í Bandaríkjunum; Guðmundur Páll, f. 2.6. 1941, d. 30.8. 2012, rithöf- undur og náttúrufræðingur í Stykkishólmi. Foreldrar Þrastar voru hjónin Ólafur Friðbjarnarson, f. 26.2. 1900, d. 6.11. 1966, búfræðingur á Húsavík og síðast húsvörður í Reykjavík, og Brynhildur Snædal Jósefsdóttir, f. 3.9. 1902, d. 3.11. 1991, barnakennari á Látrum og Húsavík en síðast í Reykjavík. Úr frændgarði Þrastar Ólafssonar Þröstur Ólafsson Sólveig S. Davíðsdóttir húsfreyja frá Blómstur völlum í Eyjafi rði Sigurbjörn Bjarnason vinnum. á Höfðastr. og í Fnjóskadal Rósa Sigurbjörnsdóttir húsfr. á Rauðaskriðu og Kaðalstöðum Ólafur Friðbjarnarson búfr. á Húsavík, í Heiðarbót og í Rvík Friðbjörn Jónsson b. á Rauðaskriðu í Aðaldal og Kaðalstöðum í Fjörðum Guðrún Jónatansdóttir húsfreyja á Eyvindará Jón Eiríksson b. á Eyvindará á Flateyjardal Jónas Þórðarson b. í Austurgörðum í Kelduhverfi Þórður Friðbjarnarson á Húsavík Björn Ó. Björgvinsson endurskoðandi Guðný Friðbjarnardóttir húsfr. á Klausturhólum í Grímsnesi Guðmundur Páll Ólafsson rithöfundur og náttúrufræðingur Hrafnhildur Snædal húsfr. í Rvík Torfi Ásgeirsson listmálari Hanna Jórunn Forrest íþróttakennari í Ohio Arick Forrest yfi rlæknir í Ohio Kristín Hermannsdóttir húsfreyja á Sléttu Hermann Guðmundsson b. á Sléttu í Sléttuhreppi Jósef Hermannsson b. og sjóm. á Atlastöðum í Fljótavík Vernharður Jósefsson b. og sjóm. á Atlastöðum í Fljótavík Jósef Hermann Vernharðsson rafvirki á Ísafi rði Guðmundur Hannesson bæjarfógeti á Siglufi rði Sigríður Laufey Guðmundsdóttir leirkera smiður í Rvík Ásgeir Daníelsson hagfræðingur Pálína Ástríður Hannesdóttir húsfr. á Látrum og Siglufi rði Jórunn Einarsd. Sívertsen húsfr. á Látrum Hannes Sigurðsson útvegsb. og hreppstj. á Látrum í Aðalvík Guðrún Pálína Karlsd. prentari Inga L. Andreassen háskólak. í Bergen Ástríður Karlsdóttir hjúkrunar- fræðingur Leifur Rögnvaldsson ljósm. og fram- kvstj. í Rvík Brynhildur Snædal Jósefsdóttir kennari, Látrum, Húsavík, Rvík Guðmundur Stefán Karlsson vélstjóri Ólafur Pálmason sendi mér gottbréf á þriðjudaginn: „Þú birtir í morgun vísu sem þið sr. Hjálmar eignið Rósberg G. Snædal. Ég hef einhvers staðar fengið þessa vísu í öðru formi sem mér þykir betra, en þá var hún eignuð Jóni Rafnssyni. Ekki veit ég frekari deili á því: Því er ég orðinn elliær eins og mig hefur reyndar grunað að vísuna sem ég gerði í gær get ég nú ekki lengur munað. Svipaðs efnis eru þessar: Er gekk ég vestur Grandaveg af gömlum leiðum vana eina vísu orti ég, ekki man ég hana. (Jón Ingvar Jónsson) Gekk ég niður Gnoðarvog gneypur mjög og þagði, góða vísu gerði og gleymdi henni að bragði. (Jón Ingvar Jónsson) Leikmenn jafnt og lærðir prestar mér löngum færðu sanninn heim að jafnan eru bögur bestar ef búið er að gleyma þeim. (Hjálmar Freysteinsson) Með góðri kveðju“. Ég ítreka þakkir mínar fyrir þetta skemmtilega bréf og er sjálf- sagt að hafa það sem sannara reyn- ist. Ég fletti upp á timarit.is. Þar segir Guðmundur Valtýsson í hag- yrðingaþætti sínum númer 76 í Feyki að hann hafi fengið þær fregnir að höfundur vísunnar sé Kristján Ólason og hefur hana svona: Vísuna sem ég gerði í gær get ég ekki munað. Ég er að verða elliær eins og mig hefur grunað. Þegar hér var komið sögu hringdi ég í séra Hjálmar, sem sagði mér að Rósberg Snædal hefði sjálfur kennt sér vísuna og sagt hana eftir sig. Þannig hefur það löngum verið, að tvennum og þrennum sögum fer um höfund vísna. Ég hef sjálfur reynslu af því. Á göngu niður Oddeyrargötu orti ég: Hver er þessi eina á sem aldrei frýs gul og rauð og græn og blá og gjörð af SÍS? Mér til undrunar birtist hún nokkrum árum síðar undir nafni annars manns, sem þá var látinn fyrir mörgum árum og gat því ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Hins vegar höfðu ljóð hans og vísur kom- ið út og þar var þessi vísa ekki sem von var – hún var óort og ekki eftir hann! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Rétt eða rangt feðruð vísa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.