Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019
leiknum en stigin dreifðust nokkuð
vel hjá Njarðvíkingum.
Búlgarinn Georgi Boyanov var
mjög drjúgur hjá ÍR bæði í vörn og
sókn. Hann lofar virkilega góðu mið-
að við þennan leik en hann skoraði
27 stig. Evan Singletary virðist vera
hæfileikaríkur leikstjórnandi og
gæti orðið forvitnilegt að sjá til hans
þegar hann verður orðinn afslapp-
aðri hjá ÍR. Ég gæti trúað að Collin
Pryor muni reynast ÍR vel enda
orkumikill þótt ekki hafa allt gengið
upp hjá honum í gær.
Keflavík vann á Króknum
Keflvíkingar byrja tímabilið einn-
ig vel eins og nágrannar þeirra en
þeir unnu Tindastól á Sauðárkróki
86:77. Þar voru nýir menn at-
kvæðamiklir en Dominykas Milka og
Khalil Ullah Ahmad skoruðu sam-
tals 49 stig fyrir Keflavík. Stólarnir
voru án Péturs Rúnar Birgissonar
og munar um minna. Gerel Simmons
gerði 26 stig.
Leikur Fjölnis og Vals var jafn og
spennandi í Grafarvogi. Fjölnismenn
röðuðu stigum á Val í fyrri hálfleik
og voru þá yfir. Valur hafði þó betur
94:87 og skoraði Christopher Jones
31 stig fyrir Val. Jere Vucica skoraði
25 stig fyrir Fjölni. Haukar unnu
Þór Akureyri 105:84 og skoraði Kári
Jónsson 34 stig þótt hann væri að
spila sinn fyrsta leik í langan tíma.
Njarðvíkingar
byrja vel
Unnu ÍR-inga sannfærandi
Morgunblaðið/Hari
11 stig Hinn 38 ára gamli Logi Gunnarsson er enn hoppandi og skoppandi
úti um allan völl. Hann skorar hér tvö stig í gær en hann lék í 29 mínútur.
Í BREIÐHOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Njarðvíkingar byrjuðu Íslandsmótið
í körfuknattleik á góðum nótum í
gærkvöldi og náðu í tvö stig í Breið-
holtið. Njarðvík vann sannfærandi
sigur á ÍR 85:72. Í upphafi nýs
keppnistímabils er gott fyrir lið að
landa fyrsta sigrinum og ná þar með
úr sér hrollinum. Í þessu tilfelli á það
ef til vill sérstaklega vel við um
Njarðvíkinga því þeir luku síðasta
tímabili á að tapa þrisvar í röð fyrir
einmitt ÍR. Var það í 8-liða úrslitum.
Þótt einungis séu um fimm mán-
uðir liðnir voru liðin gerbreytt í gær.
Njarðvíkingar þurftu að sjá á eftir
Elvari Má Friðrikssyni og Jeb Ivey.
Telst það þó lítið í samanburði við ÍR
sem missti sex lykilmenn á einu
sumri eins og fram hefur komið. Lið-
ið kemur til með að þurfa nokkrar
vikur til að stilla saman strengi.
Njarðvíkingar höfðu frumkvæðið
svo gott sem allan leikinn og héldu
ÍR-ingum yfirleitt í ágætri fjarlægð.
Njarðvíkingar hafa náð sér í sterkan
miðherja í Wayne Martin jr. sem
skilaði 23 stigum og 15 fráköstum.
Hann var ekki að flækja hlutina og
skoraði margar einfaldar körfur.
Leikstjórnandinn Elvaldas Zabas er
vöðvabúnt sem komst einnig vel frá
Einn mikilvægasti leikmaður landsliðsins í
knattspyrnu, Dagný Brynjarsdóttir, mun
mæta Frökkum með brotið nef í vináttuleik
í Nimes í dag. Mun hún spila með grímu til
að verja nefið að sögn landsliðsþjálfarans
Jóns Þórs Haukssonar en Dagný brotnaði í
síðasta leik með Portland.
Jón gaf einnig upp að Sandra Sigurðar-
dóttir mun standa í markinu eins og í und-
anförnum leikjum. Í framhaldinu mun Ís-
land mæta Lettlandi á útivelli hinn 8.
október í undankeppni EM 2021. Ísland hef-
ur farið vel af stað í keppninni og vann
fyrstu tvo leikina á heimavelli gegn Ung-
verjalandi og Slóvakíu. sport@mbl.is
Dagný mun leika með
grímu gegn Frökkum
Morgunblaðið/Eggert
Brotin Dagný Brynjarsdóttir mun leika
gegn Frakklandi þrátt fyrir nefbrot.
Paul Pogba, miðtengiliður Manchester Unit-
ed, er ekki í landsliðshópi heimsmeistara
Frakka sem mæta Íslendingum í und-
ankeppni Evrópumótsins á Laugardalsvelli
hinn 11. október. Didier Dechamps lands-
liðsþjálfari Frakka opinberaði hópinn í gær
sem mætir Íslendingum og í framhaldinu
Tyrkjum í París.
Pogba hefur verið að glíma við meiðsli og
lék ekki með United gegn AZ í gær.
Tveir er bestu mönnum Frakka, Kylian
Mbappé og N’Golo Kanté, koma hins vegar
aftur inn í hópinn en þeir voru ekki með
Frökkum í leikjum þeirra gegn Albaníu og
Andorra í síðasta mánuði.
Paul Pogba kemur
ekki til Íslands
AFP
Meiddur Paul Pogba er á sjúkralistanum og
missir af Íslandsferð fyrir vikið.
FRJÁLSAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Afríkuríkið Búrkína Fasó fékk sín
fyrstu verðlaun á heimsmeistaramóti
í frjálsum íþróttum þegar Hugues
Fabrice Zango vann til brons-
verðlauna í þrístökki á HM í Katar.
Búrkína Fasó státar ekki af mörgum
íþróttaafrekum og verðlaun á stór-
móti sem þessu eru ánægjuleg tíðindi
fyrir þjóðina.
Búrkína Fasó hefur hvorki unnið
til verðlauna á Ólympíuleikum né
Paralympics (Ólympíumót fatlaðra).
Ekki hafa íþróttamenn frá Búrkína
Fasó heldur unnið til verðlauna á
Vetrarólympíuleikum eða Winter
Paralympics en þar sem um Afríku-
þjóð er að ræða þarf það ekki að
koma sérstaklega á óvart.
Búrkína Fasó er ekkert smáríki,
hvort sem horft er til íbúafjölda eða
flatarmáls. Þar búa rúmlega 20 millj-
ónir manna og er landið meira en
helmingi stærra en Ísland eða um 274
þúsund ferkílómetrar. Landið er í
vesturhluta álfunnar og á landamæri
að Malí, Níger, Benín, Tógó, Gana og
Fílabeinsströndinni.
Á meðal helstu íþróttaafreka Búrk-
ína Fasó er að karlalandslið þjóðar-
innar komst í úrslitaleik Afríku-
keppninnar árið 2013 og tapaði þar
fyrir Nígeríu 0:1. Þá hefur karla-
landsliðið í körfuknattleik einu sinni
komist í lokakeppni Afríkukeppn-
innar og var það einnig 2013.
Zango er 26 ára gamall og einn
þriggja íþróttamanna sem keppa fyr-
ir hönd Búrkína Fasó á HM í Katar.
Zango nam við háskóla í Frakklandi
og æfði því í Frakklandi um skeið.
Búrkína Fasó fékk sjálfstæði árið
1960 en var undir Frökkum þar á
undan.
Zango keppti á Ólympíuleikunum í
Ríó en komst ekki í úrslit. Þar stökk
hann lengst 15,99 metra og hafnaði í
34. sæti. Frammistaðan var þó öllu
betri en á HM árið á undan því þar
gerði Zango ógilt í öllum sínum til-
raunum.
Zango hefur hins vegar bætt sig
mikið og varð Afríkumeistari árið
2018. Jafnframt hafnaði hann þá í
sjötta sæti á HM innanhúss. Á HM í
Katar stökk hann miklu lengra en í
Ríó 2016. Nú stökk hann 17,66 metra
og setti Afríkumet. Væntingarnar til
hans voru nokkrar því hann fór með
næstlengsta stökkið inn í úrslitin eftir
undankeppnina.
Útkoman varð nokkuð dramatísk
hjá Zango því hann náði bronsinu í
sjöttu og síðustu tilraun. Bætti sig þá
um 10 cm því hann hafði stokkið 17,56
metra í fimmtu tilraun. Hann fór
naumlega fram úr Portúgalanum
Pedro Pablo Pichardo sem hafði
stokkið 17,62 metra í fjórðu tilraun og
sat eftir með sárt ennið.
Tímamót hjá Búrkína Fasó
Zango sló Afríkumet þegar hann vann fyrstu HM-verðlaun sinnar þjóðar
AFP
Ánægður Hugues Fabrice Zango fagnar verðlaunum sínum á HM í Doha.
Landsliðsmaðurinn Albert Guð-
mundsson verður frá keppni næstu
4-5 mánuðina vegna meiðslanna sem
hann varð fyrir í leik með AZ Alkmaar
gegn Heracles um síðustu helgi, í hol-
lensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Bein í
ökkla Alberts brotnaði og er það mat
lækna AZ að hann spili ekki aftur fót-
bolta fyrr en í febrúar.
Sigurður Egill Lárusson hefur
skrifað undir nýjan samning til þriggja
ára við knattspyrnudeild Vals. Hann
kom til félagsins frá Víkingi árið 2012.
Gestur Ólafur Ingvarsson, leik-
maður Aftureldingar í handbolta, sleit
krossband í hné þegar hann meiddist í
leik gegn FH á sunnudagskvöld. Hann
spilar því ekki meira á þessari leiktíð.
Þetta er í annað sinn á rúmu ári sem
Gestur slítur krossband í hné.
Sigurður Gunn-
ar Þorsteinsson,
landsliðsmaður í
körfubolta, mun
ekki leika með
franska liðinu Orc-
hies í vetur eins og
til stóð. Hann hef-
ur fengið samningi
sínum við félagið
rift. Þetta kemur fram á vefmiðlinum
karfan.is en þar segir að ástæðan sé
fjárhagserfiðleikar franska félagsins.
Orchies hafi ekki getað teflt Sigurði
fram í leikmannahópi sínum vegna
sektar frá franska körfuknattleiks-
sambandinu. Sigurður hyggst spila er-
lendis í vetur og er því ekki á leiðinni
aftur heim í Dominos-deildina. Hann
átti frábæra leiktíð með silfurliði ÍR á
síðustu leiktíð en leitar nú að nýju fé-
lagi erlendis.
Þórhallur Siggeirsson og aðstoð-
armaður hans, Halldór Geir Heið-
arsson, munu ekki stýra karlaliði
Þróttar R. í fótbolta lengur. Knatt-
spyrnudeild Þróttar hefur ákveðið að
finna nýjan þjálfara en liðið slapp með
miklum naumindum við fall úr 1. deild í
haust, á fyrstu og einu leiktíð sinni
undir stjórn Þórhalls.
Gunnar Magnús Jónsson verður
áfram þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í
fótbolta en hann hefur skrifað undir
samning til tveggja ára við félagið.
Undir stjórn Gunnars, sem stýrt hefur
Keflavík í fjögur ár, komst liðið upp í
úrvalsdeild í fyrra en féll þaðan í ár.
Valdís Þóra Jónsdóttir var í 105.
sæti eftir fyrsta hring á Hero Women’s
Indian Open, á Evrópumótaröðinni í
golfi. Hún lék á 8 höggum yfir pari.
Eitt
ogannað