Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Sögur um ástina eiga alltaf erindi. Þetta er sammannleg saga um ást í meinum sem fær ekki að blómstra. Þetta er líka óður til leikhússins og skáldskaparins,“ segir Selma Björnsdóttir, sem leikstýrir einu umfangsmesta verkefni Þjóðleik- hússins á leikárinu, hinum róman- tíska gamanleik Shakespeare verð- ur ástfanginn. Frumsýning verður í kvöld föstudag á Stóra sviðinu og spennan var þó nokkur þegar blaðamann bar að garði örfáum dögum fyrr og spjallaði við Selmu og Aron Má Ólafsson (Ar- on Mola), en hann leikur hið unga skáld Will Shakespeare. „Ég fæ mar- traðir á nóttunni. Mig hefur verið að dreyma undanfarið að ég komi inn á röngum stað á sviðið og gleymi texta,“ segir Aron og Selma bætir við að það sé hluti af starfinu. „Þetta er alltaf sama ferlið, maður fer alveg í hnút síðustu dagana fyrir frumsýningu. Ég held að við séum öll hætt að sofa,“ segir hún og hlær. „Það er alltaf kúnst að láta allt virka í stórum flóknum uppsetn- ingum, öll þessi tækni, finna taktinn og flæðið,“ segir Selma sem sá fyrir mörgum árum kvikmyndina Shake- speare in Love, sem leikritið er byggt á. Selma sá verkið einnig á sviði í Svíþjóð rétt áður en æfingar hófust hér heima. „Verkið gerist árið 1593 í London og við höfum verið að grúska í því tímabili með dramatúrgum þjóðleik- hússins, til að skapa ákveðinn tíðar- anda í umgjörð og búningum. Ég hef lesið þó nokkuð af verkum Shakespeare og séð mörg leikrit eftir hann í ólíkum löndum. Ég hef því séð misjafnar nálganir á hin ýmsu verk hans á sviði. Ég féll fyrir Shakespeare þegar ég var 25 ára og fór á Shakespeare-námskeið hjá Martin Regal í Háskólanum. Þegar ég fór svo í nám til Bretlands þar sem Shakespeare er á hverju horni sá ég margar uppsetningar á verk- um hans. Ég reyni alltaf að nýta tækifærið og sjá einn Shakespeare þegar ég er að leikstýra erlendis.“ Aron segist ekki hafa verið neitt sérstaklega hrifinn af Shakespeare fyrr en hann kynntist honum í leik- listarskólanum í sérstökum áfanga um þennan forna meistara. „Við fengum enskumælandi kenn- ara sem kenndi okkur allt um Shakespeare og þá féll ég fyrir hon- um. Þegar við þurftum að læra text- ana hans á ensku áttaði ég mig á því hversu vel textinn er skrifaður.“ Gömlu kempurnar styðjandi Þegar Selma er spurð hvað hafi ráðið vali hennar á Aron í aðal- hlutverkið til að túlka ástfanginn Shakespeare segir hún að Aron hafi smellpassað í hlutverkið, hann sé ungur og upprennandi, rétt eins og Shakespeare, sem er 29 ára í leik- ritinu og upprennandi skáld. „Aron er nýútskrifaður en leiðir okkar lágu saman í sjónvarpsþátt- unum Ófærð þar sem ég sá um leik- araval. Ég tók hann í prufur fyrir þættina og leist vel á hann og hann stóð sig vel. Mér finnst líka spenn- andi að gefa ungi fólki tækifæri í leikhúsinu, hleypa því að. Aron er með mikla reynslubolta í kringum sig í þessari uppfærslu, sem er mik- ill stuðningur og lærdómur. Í leik- hópnum er mikil breidd, bæði í aldri og reynslu. Yngst er tónlistarkonan GDNR, eða Guðrún Ýr Eyfjörð, sem er um tvítugt, en elstar eru Edda Björgvins og Ragnheiður Steindórsdóttir, leikkonur sem eru að nálgast sjötugt. Það er ofsalega gaman að hafa svona mikla breidd, þá myndast skemmtileg dýnamík. Reyndari leikararnir eru örlátir og koma með hugmyndir og tillögur, sem gefur verkinu enn meiri kraft og dýpt. Allir eru í sama liði og við hjálpum hvert öðru að blómstra.“ Aron segir það hafa verið frábært að fá að vinna með reynslubolt- unum, eldri leikurunum. „Þau eru öll mjög styðjandi og halda alveg við bakið á okkur ný- græðingunum. Þessar gömlu kemp- ur koma með góða punkta og nálg- ast þetta með opið hjarta og af mikilli þolinmæði. Ég er þakklátur fyrir að fá að njóta þess.“ Athygli vekur að meðal leikara í sýningunni er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, en hún hefur ekki leik- ið mikið á sviði undanfarið enda komin til annarra starfa. „Ég bauð henni hlutverk Elísa- betar drottningar af því að mér finnst Jóhanna mikil drottning og tilvalin í þessa rullu. Hún sló til og er að stíga í sitt allra fyrsta sinn á svið í Þjóðleikhúsinu, sem er alveg magnað. Borgarleikhúsið hefur not- ið leiklistarkrafta hennar allan hennar feril. Hún er því að debú- tera 51 árs á sviði Þjóðleikhússins.“ Núna þarf ég að stækka mig Aron segir að honum hafi gengið vel að tengja sig við persónuna sem hann leikur, hinn unga og ástfangna Shakespeare. „Við eigum margt sameiginlegt, erum báðir ástríðufullir listamenn og stórir karakterar, blóðheitir og miklar tilfinningaverur. Við erum líka báðir örvhentir,“ segir Aron og bætir við að það sé dýrmætt fyrir hann að fá þetta stóra tækifæri. „Ég var mjög stressaður yfir þessu eftir að Selma hringdi í mig og bauð mér hlutverkið. Þetta er mjög nýtt fyrir mig, að fara af litlu sviði og úr því að leika í kvikmynd- um yfir í að stíga á stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu. Þegar maður er í leiklistarskólanum er maður alltaf inni í litlu svörtu boxi og maður þarf ekkert að hafa mikið fyrir röddinni, svo núna er það nýjast fyrir mér að stækka mig. Þetta er risastórt skref en rosalega gaman. Það er líka mikil áskorun fyrir mig að takast á við textann, því hluti verksins er í bundnu máli.“ Selma bætir við að það sé mikil kúnst að fara með slíkan texta. „Við fórum alla leið í því að fá að- stoð við það. Ragnheiður Steindórs- dóttir hefur mikla reynslu í slíku og hún lærði í Bretlandi, en hún leið- beindi og ráðlagði með hljómfall, áherslur og annað. Kristján Þórður Hrafnsson, sem þýddi verkið, var líka með okkur í þeirri vinnu.“ Ég legg mikið á hann Aron Selma segir að til sé ákveðin tón- list sem fylgi leikverkinu, en hana hafi langað til að gera eitthvað ann- að. „Mig langaði að tónlistin fengi að standa ein og sér, eiga þannig sam- tal við fortíðina. Ég fékk því Frikka Dór og Jón Jónsson til liðs við okk- ur, af því mig langaði í alþýðlega stemningu fyrir leikhúsheiminn. Mig langaði líka í fallegar ástar- ballöður, en þeir bræður eru miklir melódíusmiðir. Guðrún, eða GDRN, sér um að syngja með sinni íðil- fögru rödd. Hún og Matthías Stef- ánsson, fiðlu-, gítar- og mandólín- leikari, standa á sviðinu en eru í eigin heimi og tímalaus. Við erum svolítið að leika okkur með því að tímaflakka og það er talað um það í þessu leikverki að ástargyðjan Afródíta sé skáldgyðjan hans Shakespeare, hún var hans inn- blástur. Ég hugsa GDRN sem ástargyðjuna sem fagnar ástinni en huggar einnig brostin hjörtu. Eng- inn sér hana en hún sér allt og veit allt.“ Þegar Aron er spurður hvernig hafi verið að vinna undir stjórn Selmu svarar hann í glettni að hann sé skíthræddur við hana. „Selma veit nákvæmlega hvað hún vill, sem mér finnst gott. Hún lætur mig al- veg vita ef ég fer aðeins út af spor- inu, en hún kann líka að hrósa þeg- ar maður gerir vel. Hún gerir miklar kröfur en þetta hefur verið gott samstarf og mjög gaman.“ Selma segist vita að hún leggi mikið á hann. „Þetta er búið að vera strangt ferli og ég geri mér grein fyrir að ég hendi honum út í djúpu laugina. En ég sagði honum strax í byrjun að við gerðum allt til að hjálpast að við að láta það ganga upp.“ Ljósmynd/Saga Sig. Ástfangin Aron í hlutverki Shakespeare og Lára Jóhanna Jónsdóttir á svölunum í hlutverki Víólu de Lesseps. Báðir blóðheitar tilfinningaverur  Rómantíski gamanleikurinn Shakespeare verður ástfanginn frumsýndur í kvöld í Þjóðleikhúsinu  Aron Már leikur Shakespeare og segir þá eiga margt sameiginlegt, þeir séu ástríðufullir listamenn Selma Björnsdóttir BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR • Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré • Mikið úrval efna, áferða og lita • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.