Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 32
Listahátíðin List án landamæra verður sett á morgun, laugardag, kl. 15 í menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi í Breiðholti. Hátíðin stendur yfir til 20. október og á dagskrá verða bæði viðburðir í Gerðubergi og víðar á höfuðborgarsvæðinu. Eliza Reid forsetafrú mun setja hátíðina í dag og veita Atla Má Indriðasyni við- urkenningu sem listamanni Listar án landamæra árið 2019. Dagskrá há- tíðarinnar má finna á listin.is.. List án landamæra hefst í Gerðubergi FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 277. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. „Ég er eingöngu að hugsa um það núna að standa mig með KR. For- sendurnar hafa breyst hjá mér eftir að ég kom heim frá Noregi. Það er ekki draumur minn eða stefna í dag að komast aftur í atvinnu- mennsku,“ segir Kristinn Jónsson, sem í annað sinn er leikmaður árs- ins hjá Morgunblaðinu á Íslands- mótinu í fótbolta. »24 Hugsa bara um að standa mig með KR ÍÞRÓTTIR MENNING RIFF spjall nefnist viðburður á vegum Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, RIFF, sem fram fer í dag kl. 16 í Norræna húsinu. Á honum mun fólk sem náð hefur eftir- tektarverðum árangri í kvikmynda- gerð flytja erindi. Eru það Ísold Uggadóttir, leikstjóri og handrits- höfundur; framleiðandinn Katja Adomeit, Zeina Abi Assy, handrits- höfundur og fjöllistamaður; Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona og kvikmyndagerðarmaður; Davíð Óskar Ólafsson, framleiðandi og leik- stjóri; Þórður Pálsson leikstjóri og Ómar Ragnarsson, hand- hafi umhverf- isverðlauna RIFF, Græna lundans. Spjallað um kvikmyndir „Við Óttar Felix spiluðum saman í Pops og svo hef ég verið heiðurs- gestur hjá Gullkistunni á Þrettánda- gleði á Kringlukránni, en nú hef ég verið dreginn undir regnhlífina með þessum strákum sem ég hef þekkt frá fermingu og suma lengur. Það er alltaf gaman að hitta menn sem eru með svipaða lífsreynslu og áhuga- mál.“ Í Gullkistunni eru, auk Magnúsar, Gunnar Þórðarson gítarleikari, Jón Ólafsson bassaleikari, Ásgeir Ósk- arsson trommuleikari og Óttar Felix Hauksson gítarleikari. Á nýafstað- inni Ljósanótt í Reykjanesbæ spilaði bandið á horni Tjarnargötu og Hafn- argötu, þar sem keflvískir tónlistar- menn hafa oft spilað við hátíðleg tækifæri. „Þarna sá ég Hljómana fyrst spila og áður hafði ég séð þar Hljómsveit Guðmundar Ingólfs- sonar,“ rifjar Magnús upp. „Nú var ég loksins kominn upp á sama pall og Guðmundur Ingólfs hafði staðið á, með Gunna Þórðar á sviðinu með mér og ljósastaur beint fyrir framan sem tileinkaður er laginu „Skólaball“ eftir mig.“ Breytt Gullkistan spilar að sjálf- sögðu þekkt lög eftir Magnús eins og til dæmis „My Friend and I“ og „To be Grateful“ á tímamótaballinu. „Nú er bara að búa sig undir bjarta og gefandi fortíð,“ segir tónlistarmað- urinn, sem hefur annars verið önnum kafinn við hljóðfæraleik, kórvinnu og kennslu. „Ég geri allt sem mér finnst skemmtilegt og það verður gaman að spila með strákunum.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hljómborðsleikarinn Magnús Kjart- ansson hefur lítið látið fyrir sér fara um árabil, en kom tvíefldur til leiks á Ljósanótt í Reykjanesbæ fyrir skömmu. Hann er genginn til liðs við hljómsveitina Gullkistuna og spilar með henni á tíu ára starfsafmæli bandsins á Kringlukránni annað kvöld, 56 árum upp á dag frá því Hljómar komu fyrst opinberlega fram í félagsheimilinu Krossinum í Ytri-Njarðvík. „Ég hef siglt undir radarnum,“ segir Magnús, sem flutti austur fyrir fjall fyrir um áratug. Hann bendir á að sú ákvörðun hafi haft álíka áhrif á suma og hafi hann farið með geimfari sambandslaus áleiðis til mars. „Þegar mér varð þessi staða ljós með Marsferðina ákvað ég að það væri mitt að leiðrétta málið,“ segir hann um endurkomuna í Gullkistuna, sem áður hét Stjörnuband að sunn- an. „Ég var á sama punkti og einhver sem flytur til útlanda og skammar alla fyrir að vera ekki í sambandi. Það var ég sem fór úr sambandi og því sneri ég mér að því á ný að vera í sambandi við vini og félaga, þökk sé ljósleiðaranum og GSM-símanum, og sýna um leið að ég væri ekki í geim- fari á leið til Mars.“ Merkilegur ferill Tónlistarferill Magnúsar „undra- barns“, eins og Benedikt Viggósson blaðamaður kallaði hann, er langur og merkilegur. Hann hófst í drengja- lúðrasveit barnaskólans í Keflavík og síðan lék hann með mörgum þjóð- þekktum hljómsveitum eins og til dæmis Óðmönnum, Júdas, Trúbroti, Mannakorni, Brunaliðinu, Brimkló, Haukum, HLH-flokknum, Hljóm- sveit Björgvins Halldórssonar og Hljómsveit Magnúsar Kjartans- sonar. Hann hefur komið að yfir 200 plötum og geisladiskum sem hljóð- færaleikari, útsetjari eða upptöku- stjóri, starfað í leikhúsum, verið hljómsveitarstjóri og samið tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Björt og gefandi for- tíð Magga Kjartans  Tíu ára afmæli Gullkistunnar fagnað á Kringlukránni Ljósmynd/Jens Ormslev Gullkistan Í viðbragðsstöðu. Frá vinstri: Óttar Felix Hauksson, Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson, Ásgeir Óskarsson og Jón Ólafsson. Á ENDANUM VELUR ÞÚ COROLLU VERÐUR ÞÚ HEPPINN ÁSKRIFANDI sem verður dreginn út 16. október? Allir áskrifendur Morgunblaðsins eru með í leiknum. Hér má sjá valkostina sem einn af áskrifendum okkar fær að velja um þegar hann fær að gjöf nýja og glæsilega Toyota Corolla.* Fylgstu með. *Heppinn áskrifandi fær að velja á milli Corolla Hatchback, Corolla Touring Sports og Corolla Sedan; þriggja glæsilegra Hybrid-bíla með 1,8 lítra vél í Active-útfærslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.