Morgunblaðið - 04.10.2019, Side 32
Listahátíðin List án landamæra
verður sett á morgun, laugardag, kl.
15 í menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í Breiðholti. Hátíðin stendur
yfir til 20. október og á dagskrá
verða bæði viðburðir í Gerðubergi og
víðar á höfuðborgarsvæðinu. Eliza
Reid forsetafrú mun setja hátíðina í
dag og veita Atla Má Indriðasyni við-
urkenningu sem listamanni Listar án
landamæra árið 2019. Dagskrá há-
tíðarinnar má finna á listin.is..
List án landamæra
hefst í Gerðubergi
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 277. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Ég er eingöngu að hugsa um það
núna að standa mig með KR. For-
sendurnar hafa breyst hjá mér eftir
að ég kom heim frá Noregi. Það er
ekki draumur minn eða stefna í dag
að komast aftur í atvinnu-
mennsku,“ segir Kristinn Jónsson,
sem í annað sinn er leikmaður árs-
ins hjá Morgunblaðinu á Íslands-
mótinu í fótbolta. »24
Hugsa bara um að
standa mig með KR
ÍÞRÓTTIR MENNING
RIFF spjall nefnist viðburður á
vegum Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík,
RIFF, sem fram fer í dag kl. 16 í
Norræna húsinu. Á honum mun
fólk sem náð hefur eftir-
tektarverðum árangri í kvikmynda-
gerð flytja erindi. Eru það Ísold
Uggadóttir, leikstjóri og handrits-
höfundur; framleiðandinn Katja
Adomeit, Zeina Abi Assy, handrits-
höfundur og fjöllistamaður; Nanna
Kristín Magnúsdóttir, leikkona og
kvikmyndagerðarmaður;
Davíð Óskar Ólafsson,
framleiðandi og leik-
stjóri; Þórður Pálsson
leikstjóri og Ómar
Ragnarsson, hand-
hafi umhverf-
isverðlauna RIFF,
Græna lundans.
Spjallað um kvikmyndir
„Við Óttar Felix spiluðum saman í
Pops og svo hef ég verið heiðurs-
gestur hjá Gullkistunni á Þrettánda-
gleði á Kringlukránni, en nú hef ég
verið dreginn undir regnhlífina með
þessum strákum sem ég hef þekkt
frá fermingu og suma lengur. Það er
alltaf gaman að hitta menn sem eru
með svipaða lífsreynslu og áhuga-
mál.“
Í Gullkistunni eru, auk Magnúsar,
Gunnar Þórðarson gítarleikari, Jón
Ólafsson bassaleikari, Ásgeir Ósk-
arsson trommuleikari og Óttar Felix
Hauksson gítarleikari. Á nýafstað-
inni Ljósanótt í Reykjanesbæ spilaði
bandið á horni Tjarnargötu og Hafn-
argötu, þar sem keflvískir tónlistar-
menn hafa oft spilað við hátíðleg
tækifæri. „Þarna sá ég Hljómana
fyrst spila og áður hafði ég séð þar
Hljómsveit Guðmundar Ingólfs-
sonar,“ rifjar Magnús upp. „Nú var
ég loksins kominn upp á sama pall og
Guðmundur Ingólfs hafði staðið á,
með Gunna Þórðar á sviðinu með
mér og ljósastaur beint fyrir framan
sem tileinkaður er laginu „Skólaball“
eftir mig.“
Breytt Gullkistan spilar að sjálf-
sögðu þekkt lög eftir Magnús eins og
til dæmis „My Friend and I“ og „To
be Grateful“ á tímamótaballinu. „Nú
er bara að búa sig undir bjarta og
gefandi fortíð,“ segir tónlistarmað-
urinn, sem hefur annars verið önnum
kafinn við hljóðfæraleik, kórvinnu og
kennslu. „Ég geri allt sem mér finnst
skemmtilegt og það verður gaman að
spila með strákunum.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hljómborðsleikarinn Magnús Kjart-
ansson hefur lítið látið fyrir sér fara
um árabil, en kom tvíefldur til leiks á
Ljósanótt í Reykjanesbæ fyrir
skömmu. Hann er genginn til liðs við
hljómsveitina Gullkistuna og spilar
með henni á tíu ára starfsafmæli
bandsins á Kringlukránni annað
kvöld, 56 árum upp á dag frá því
Hljómar komu fyrst opinberlega
fram í félagsheimilinu Krossinum í
Ytri-Njarðvík.
„Ég hef siglt undir radarnum,“
segir Magnús, sem flutti austur fyrir
fjall fyrir um áratug. Hann bendir á
að sú ákvörðun hafi haft álíka áhrif á
suma og hafi hann farið með geimfari
sambandslaus áleiðis til mars.
„Þegar mér varð þessi staða ljós
með Marsferðina ákvað ég að það
væri mitt að leiðrétta málið,“ segir
hann um endurkomuna í Gullkistuna,
sem áður hét Stjörnuband að sunn-
an. „Ég var á sama punkti og einhver
sem flytur til útlanda og skammar
alla fyrir að vera ekki í sambandi.
Það var ég sem fór úr sambandi og
því sneri ég mér að því á ný að vera í
sambandi við vini og félaga, þökk sé
ljósleiðaranum og GSM-símanum, og
sýna um leið að ég væri ekki í geim-
fari á leið til Mars.“
Merkilegur ferill
Tónlistarferill Magnúsar „undra-
barns“, eins og Benedikt Viggósson
blaðamaður kallaði hann, er langur
og merkilegur. Hann hófst í drengja-
lúðrasveit barnaskólans í Keflavík og
síðan lék hann með mörgum þjóð-
þekktum hljómsveitum eins og til
dæmis Óðmönnum, Júdas, Trúbroti,
Mannakorni, Brunaliðinu, Brimkló,
Haukum, HLH-flokknum, Hljóm-
sveit Björgvins Halldórssonar og
Hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonar. Hann hefur komið að yfir 200
plötum og geisladiskum sem hljóð-
færaleikari, útsetjari eða upptöku-
stjóri, starfað í leikhúsum, verið
hljómsveitarstjóri og samið tónlist
fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti.
Björt og gefandi for-
tíð Magga Kjartans
Tíu ára afmæli Gullkistunnar fagnað á Kringlukránni
Ljósmynd/Jens Ormslev
Gullkistan Í viðbragðsstöðu. Frá vinstri: Óttar Felix Hauksson, Gunnar
Þórðarson, Magnús Kjartansson, Ásgeir Óskarsson og Jón Ólafsson.
Á ENDANUM
VELUR ÞÚ
COROLLU
VERÐUR
ÞÚ HEPPINN
ÁSKRIFANDI
sem verður dreginn út 16. október?
Allir áskrifendur Morgunblaðsins eru
með í leiknum. Hér má sjá valkostina
sem einn af áskrifendum okkar fær
að velja um þegar hann fær að gjöf
nýja og glæsilega Toyota Corolla.*
Fylgstu með.
*Heppinn áskrifandi fær að velja á milli Corolla Hatchback,
Corolla Touring Sports og Corolla Sedan; þriggja glæsilegra
Hybrid-bíla með 1,8 lítra vél í Active-útfærslu.