Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019
Evrópudeild UEFA
A-RIÐILL:
Sevilla – APOEL ...................................... 1:0
Dudelange – Qarabag .............................. 1:4
Sevilla 6, Qarabag 3, Dudelange 3, APO-
EL 0.
B-RIÐILL:
Malmö – FC Köbenhavn.......................... 1:1
Arnór Ingvi Traustason kom inn á sem
varamaður á 58. mínútu hjá Malmö.
Lugano – Dynamo Kiev ........................... 0:0
FC Köbenhavn 4, Dynamo Kiev 4,
Malmö 1, Lugano 1.
C-RIÐILL:
Krasnodar – Getafe................................. 1:2
Jón Guðni Fjóluson lék fyrri hálfleikinn
fyrir Krasnodar en var svo tekinn af velli.
Trabzonspor – Basel ................................ 2:2
Getafe 6, Basel 4, Trabzonspor 1, Kras-
nodar 0.
D-RIÐILL:
Sporting – LASK...................................... 2:1
Rosenborg – PSV ..................................... 1:4
PSV 6, Sporting 3, LASK 3, Rosenborg
0.
E-RIÐILL:
Celtic – Cluj .............................................. 2:0
Lazio – Rennes ......................................... 2:1
Celtic 4, Lazio 3, Cluj 3, Rennes 1.
F-RIÐILL:
Arsenal – Standard Liege ....................... 4:0
Vitória – Frankfurt .................................. 0:1
Arsenal 6, Standard Liege 3, Frankfurt
3, Vitória 0.
G-RIÐILL:
Young Boys – Rangers ............................ 2:1
Feyenoord – Porto ................................... 2:0
Feyenoord 3, Young Boys 3, Rangers 3,
Porto 3.
H-RIÐILL:
CSKA Moskva – Espanyol ...................... 0:2
Hörður Björgvin Magnússon og Arnór
Sigurðsson léku allan leikinn fyrir CSKA.
Ferencváros – Ludogorets...................... 0:3
Ludogorets 6, Espanyol 4, Ferencváros
1, CSKA Moskva 0.
I-RIÐILL:
St-Étienne – Wolfsburg........................... 1:1
Olexandriya – Gent .................................. 1:1
Wolfsburg 4, Gent 4, St-Étienne 1,
Oleksandria 1.
J-RIÐILL:
Basaksehir – Mönchenbladbach ............. 1:1
Wolfsberger – Roma................................ 1:1
Roma 4, Wolfsberger 4, Mönchenglad-
bach 1, Basaksehir 1.
K-RIÐILL:
Besiktas – Wolves .................................... 0:1
Braga – Slovan Bratislava....................... 2:2
Slovan Bratislava 4, Braga 4, Wolves 3,
Besiktas 0.
L-RIÐILL:
Astana – Partizan.................................... 1:2
Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leik-
inn og skoraði mark Astana.
AZ Alkmaar – Man. Utd.......................... 0:0
Albert Guðmundsson lék ekki með AZ
vegna meiðsla.
Partizan Belgrad 4, Man. Utd 4, AZ
Alkmaar 2, Astana 0.
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Icel. Glacial-höllin: Þór Þ. – Stjarnan..18.30
DHL-höllin: KR – Grindavík................20.15
1. deild karla:
Álftanes: Álftanes – Skallagrímur.......19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Vestri..........19.15
Ice Lagoon-höllin: Sindri – Hamar...........20
2. deild karla:
Sandgerði: Reynir S. – ÍA .........................19
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olís-deildin:
KA-heimilið: KA/Þór – HK .......................19
1. deild karla, Grill 66 deildin:
Laugardalshöll: Þróttur – KA U..........19.30
Hertz-höllin: Grótta – Þór Akureyri ........20
Ásvellir: Haukar U – Fjölnir U.................20
1. deild kvenna, Grill 66 deildin:
Hertz-höllin: Grótta – Valur U..................18
Dalhús: Fjölnir – ÍBV U ............................19
Í KVÖLD!
M-GJÖFIN
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn
þá er ég löngu hættur að fylgjast
með allri umfjöllun um liðið og mann
sjálfan. Maður kíkir kannski á það ef
einhver vinnufélagi potar í mann og
lætur vita af einhverju, en maður
finnur þegar maður eldist að þá fara
skoðanir þeirra sem standa utan við
liðið að hafa minna vægi. Maður
hlustar bara á þjálfarann og liðs-
félagana,“ segir besti leikmaður Ís-
landsmótsins í fótbolta 2019 að mati
Morgunblaðsins, Kristinn Jónsson
úr meistaraliði KR.
Kristinn hefur sem sagt ekki verið
vakinn og sofinn yfir einkunnagjöf-
um íþróttamiðla í sumar en þessi 29
ára bakvörður varð efstur í M-
einkunnagjöfinni ásamt Óskari Erni
Haukssyni liðsfélaga sínum. Báðir
fengu 18 M en Kristinn í færri leikj-
um, eða aðeins 19.
„Tímabilið byrjaði hægt hjá mér
því ég var meiddur nánast allt undir-
búningstímabilið. En eftir að ég kom
svo inn á í hálfleik á móti Grindavík
[í 4. umferð] finnst mér frammi-
staðan hafa verið frekar jöfn og ég
verið góður heilt yfir, eins og allt
KR-liðið. Ég er bara ánægður.“
Svo merkilega vill til að Kristinn
hefur áður orðið efstur á blaði hjá
Morgunblaðinu, árið 2015 sem leik-
maður Breiðabliks. Þá var hann á
leið í annað sinn út í atvinnu-
mennsku, hluti af íslenska landsliðs-
hópnum og í baráttu um að komast á
EM í Frakklandi. Kristinn gekk í
raðir Sarpsborg í Noregi en var þar
aðeins í eitt ár og fór til Sogndal,
þaðan sem hann hélt aftur til Breiða-
bliks á miðju sumri 2017. Og þó að
hann hafi ekki komist í EM-hópinn á
Kristinn að baki 8 A-landsleiki.
Núna er Kristinn hins vegar í vinnu
hjá Marel samhliða því að stunda
nám til meistaragráðu í verkfræði,
og hugurinn snýr því ekki lengur að
draumum um atvinnumennsku og
landsliðssæti.
Á flottum stað í lífinu
„Ég er eingöngu að hugsa um það
núna að standa mig með KR. Ég á
eitt ár eftir af samningnum mínum
þar, líður hrikalega vel og hef allt til
alls. Forsendurnar hafa breyst hjá
mér eftir að ég kom heim frá Noregi.
Það er ekki draumur minn eða
stefna í dag að komast aftur í at-
vinnumennsku. Ég einbeiti mér að
því sem ég hef hér heima og finnst
ég vera á flottum stað í lífinu. Það er
nóg að gera, og ég kann vel við að
hafa nóg að gera. Það var kannski
mesta sjokkið við að fara út á sínum
tíma. Í gegnum tíðina hefur maður
verið með dagskrá allan daginn, en
úti var maður bara með æfingu og
þurfti svo að fylla út í daginn ein-
hvern veginn. Það var svolítið skrýt-
ið,“ segir Kristinn, sem hafði farið til
sænska úrvalsdeildarfélagsins
Brommapojkarna árið 2014 áður en
hann reyndi fyrir sér í Noregi eftir
sumarið 2015.
Lærði helling af titilvörn Blika
Kristinn segir sumarið 2019 hafa
liðið allt of hratt og hann hlakkar til
að mæta í slaginn á næsta ári sem
ríkjandi Íslandsmeistari, rétt eins og
hann gerði með Breiðabliki 2011:
„Ég hef ágætis reynslu frá því eft-
ir tímabilið 2010 hve erfitt er að
verja titil. Þá var næsta tímabil mjög
þungt og ég lærði helling af því.
Maður fann ekki sömu einbeitingu
og greddu og á undirbúnings-
tímabilinu árið á undan, og það skil-
aði sér inn í nýtt tímabil. Eins og
Valur lenti líka í í ár þá er erfitt að
mæta til leiks þegar allir vilja sjá þig
tapa. Þetta verður virkilega
skemmtileg áskorun en það eru allir
hjá KR meðvitaðir um hve erfitt er
að verja titil og það verður allt gert
til að styrkja liðið enn frekar. Við
ætlum að njóta næstu 4-6 vikna og
koma svo núllstilltir inn í nýtt undir-
búningstímabil.“
Eins og fyrr segir heilluðu Krist-
inn og Óskar blaðamenn Morgun-
blaðsins í sumar og ljóst er að sam-
vinna þeirra á vinstri kantinum hafði
mikið að segja um hve vel KR gekk.
Við Óskar ekki ólíkar týpur
„Ég held ég hafi svo sem aldrei
rætt neitt sérstaklega við hann um
hvernig við ættum að spila saman.
Stundum er eins og hlutirnir smelli
bara með leikmönnunum sem maður
spilar með, og algjör óþarfi að ræða
það eitthvað í þaula. Ég held að við
séum ekkert ólíkar týpur. Hann
dregur sig til hlés og er mjög róleg-
ur, dálítið í sínum heimi, og það er
rosalega gott að spila með honum.
Ég hlakka mikið til þess að halda því
áfram,“ segir Kristinn. Hann bendir
á að Óskar hafi átt sinn þátt í því að
Kristinn kom til KR fyrir tveimur
árum, frá uppeldisfélagi sínu og eina
liðinu sem hann hafði spilað með hér
á landi:
„Blikarnir reyndu hvað þeir gátu
að halda mér og ég þurfti bara að
taka ákvörðun um hvort ég vildi vera
áfram hjá Breiðabliki eða prófa eitt-
hvað annað. Ég hafði komið heim frá
Noregi á miðju tímabili og bæði var
skrokkurinn ekki nægilega góður og
andlega hliðin ekki heldur, eftir
brotna drauma um atvinnumennsku.
Einnig voru hlutirnir svolítið í lausu
lofti varðandi þjálfaramál. Rúnar
[Kristinsson] og Bjarni [Guð-
jónsson] höfðu samband og mér leist
helvíti vel á það, og síðan ætla ég
ekkert að ljúga því að það hjálpaði til
að Finnur [Orri Margeirsson] og
Nóri [Arnór Sveinn Aðalsteinsson]
voru til staðar í KR. En einnig
fannst mér afar spennandi að spila
með Óskari Erni. Það hafði stór
áhrif á ákvörðunina.“
„Kann vel
við að hafa
nóg að gera“
Kristinn leikmaður ársins hjá Morg-
unblaðinu í annað sinn Í vinnu hjá
Marel og í meistaranámi í verkfræði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bestur Kristinn með verðlaunagrip sinn sem efsti maður M-gjafarinnar.
Frakkland
Nimes – París SG................................. 28:31
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 2 mörk
fyrir PSG.
Dominos-deild karla
Haukar – Þór Akureyri...................... 105:84
Fjölnir – Valur ...................................... 87:94
ÍR – Njarðvík........................................ 72:85
Tindastóll – Keflavík ............................ 77:86
1. deild karla
Breiðablik – Selfoss.............................. 98:70
HM Í FRJÁLSUM
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Hjón fögnuðu silfurverðlaunum á
sama kvöldi á heimsmeistaramótinu
í frjálsum íþróttum á sjöunda móts-
deginum í Doha í gær. Frábært
hlaup Shaunae Miller-Uibo frá Ba-
hama dugði henni ekki til sigurs í
400 metra hlaupi og eiginmaður
hennar, Eistlendingurinn Maicel
Uibo, horfði á eftir gullverðlaun-
unum í tugþraut í lokagreininni,
1.500 metra hlaupi, eftir að hafa ver-
ið efstur.
Það var hin 21 árs gamla Salwa
Eid Naser frá Barein sem varð
heimsmeistari í 400 metra hlaupi og
þar með þriðja konan frá Barein sem
verður heimsmeistari í frjálsum
íþróttum. Hún stakk keppinauta
sína af og kom í mark á 48,14 sek-
úndum – þriðja besta tíma sögunnar
og þeim besta í 34 ár. Miller-Uibo
virtist enda hálfundrandi því tími
hennar, 48,37 sekúndur, gerir hana
að sjöttu fljótustu 400 metra hlaupa-
konu frá upphafi og hefði fyrir fram
verið talinn duga til sigurs.
Spennan var magnþrungin í tug-
þrautarkeppninni en þar heltist
franski heimsmethafinn, og fráfar-
andi heimsmeistari, Kevin Mayer úr
lestinni eftir að hafa meiðst í grinda-
hlaupinu. Hann þráaðist við en varð
að játa sig sigraðan í stangarstökk-
inu. Í fjarveru hans bitust þrír um
efsta sætið og aðeins munaði 19 stig-
um á 1.-3. sæti fyrir lokagreinina.
Þar var hinn 21 árs gamli Þjóðverji
Niklas Kaul hins vegar langfljót-
astur en hann vann þrjár af fjórum
síðustu greinunum og ljóst að hann
gæti átt eftir að safna til sín miklum
fjölda verðlauna á komandi árum.
Kaul endaði 87 stigum fyrir ofan
Uibo sem fékk vatnsgusu frá eig-
inkonu sinni þar sem hann reyndi að
ná andanum, en líkt og Kaul náði
hann sínum besta árangri frá upp-
hafi eða 8.604 stigum.
Lijiao Gong frá Kína varð heims-
meistari í kúluvarpi kvenna en hún
kastaði lengst 19,55 metra. Danniel
Thomas-Dodd frá Jamaíku komst
reyndar nálægt því að tryggja sér
sigurinn með lokatilraun sinni en
var átta sentímetrum frá því.
Katarina Johnson-Thompson varð
heimsmeistari af öryggi í sjöþraut
með 6.981 stig, sem er breskt met.
Hún endaði rúmum 300 stigum á
undan Nafissatou Thiam frá Belgíu
sem fékk silfur.
Hjónin unnu bæði HM-silfur
Ung hlaupakona frá Barein og ungur, þýskur tugþrautarkappi senuþjófar í Doha
AFP
Heimsmeistari Salwa Eid Naser lítur upp og sér frábæran sigurtíma sinn í
400 metra hlaupi á HM í Doha, 48,14 sek. eða þriðja besta tíma sögunnar.