Morgunblaðið - 04.10.2019, Side 20

Morgunblaðið - 04.10.2019, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt NÁTTFÖT Kr. 18.900.- Kr. 18.900.- Kr. 18.900.- Kr. 15.900.- Kr. 15.900.- www.frusigurlaug.is Frí póstsending ekkert vesen! MJÓDD | S. 774-7377 MARGAR GERÐIR Laugavegi 178, 105 Reykjavík sími 551 3366. Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 LOKAÐ 28. SEPT VEGNA FRAMKVÆMDA Misty Eco Si - Stærðir M-XXL Svart og hvítt. Verð 1.790 kr. Eco Fi - Stærðir M-XXL Svart og hvítt. Verð 1.790 kr. Tahoo Maxi - Stærðir S-3XL Svart, hvítt og beige. Verð 1.790 kr. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba Gold 60+ kl. 10.30, opið námskeið. BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 krónur, allir vel- komnir. Kaffi kl. 14.30-15. Boðinn Vöflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 15. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Heimsókn frá Stakkaborg kl. 10.15. Á stúfana, Gerðasafn í Kópavogi heimsótt kl. 13. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Hádegismatur alla virka daga kl. 11.30-12.20. Bridge í handavinnustofu 13. Bíósýning kl. 13.15. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi kl. 9.45. Boccia kl. 10. Föstudagshópurinn hittist kl. 10. Tálgað í tré kl. 13. Frjáls spilamenn- ska kl. 13-16.30. Handaband kl. 13. Bingó kl. 13.30. Hádegismatur frá kl. 11.30-12.30 og vöfflukaffi kl. 14.30. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Nánari upplýsingar í síma 411 9450. Verið öll hjartanlega velkomin á Vitatorg. Garðabæ Dansleikf. Sjál kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hlei- num kl. 12.30, og frá Garðatorgi 7. kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Smiðjan Kirkjuhv. opin kl. 14-17 allir velkomnir Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl.10.30. Leikfimi Maríu 10.30-11.15. Bókband m/leiðb. kl. 13-16. Kóræfing kl.13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 Boccia-æfing, kl. 9.30 postulíns- málun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 Félagsvist FEBK. Gullsmára Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Ljósmyndaklúbbur. Bingó kl. 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður og tálgun kl. 9-12. Boccia kl. 10- 11. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl. 8-12. Línudans kl. 10.30. Bridge kl. 13. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9 í Borgum, sundleikfimi kl. 9 í Grafarvogssundlaug, gönguhópar kl. 10 í Borgum. Bridge hópur Korpúlfa kl. 12.30 í dag og hannyrðahópur Korpúlfa á sama tíma í Borgum. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13. HATTADAGUR, allir að mæta með hatta í dag í Borgir og vöfflukaffið hefst kl. 14.30 í dag. Gleðilegan hattadag. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í sal- num á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13. Spilað í króknum kl. 13.30. Bridge í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Íslendingasögur/fornsagna- námskeiðið -Laxdæla kl. 10 og kl. 13. Leiðbeinandi Baldur Hafstað. Dansleikur, Stangarhyl 4, sunnudagskvöld 6. október kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni frá kl. 13- 14. Kaffi kl. 14-14.30. Allir velkomnir. Rað- og smáauglýsingar ✝ Jón ÓlafurÞórðarson fæddist á Ísafirði 16. janúar 1946. Hann varð bráð- kvaddur 23. sept- ember 2019. Eftirlifandi eig- inkona Jóns Ólafs er Bjarnveig Bjarnadóttir, sér- kennari, f. 19. apríl 1953. Foreldrar Bjarnveigar voru Hólmfríður Einarsdóttir, f. 9. ágúst 1915, d. 4. desember 1972, og Bjarni Sigurgeir Guðjónsson, f. 3. júní 1911, d. 27. nóvember 1987. Bjarnveig og Jón Ólafur voru gefin saman 14. apríl 1974. Börn þeirra eru Fríða, fædd Jónsdótt- ir, nú Metz, heilsuhagfræðingur, f. 20. maí 1975, gift Saad Metz verkfræðingi, f. 8.febrúar 1967. Þau eru búsett í Kanada. Þórður Jónsson, f. 2. júní 1976. Býr í Reykjavík. Foreldrar Jóns Ólafs voru Aðalheiður Bára Hjaltadóttir, f. 11. október 1922, d. 1. nóvember 2000, og Þórður Júlíusson, f. 4. ágúst 1918, d. 15. ágúst 2010. Systkini: Ásthildur Cecil, f. 11.11. 1944, d. 30.8. 2018, Hjalti, var í bæjarstjórn frá 1974 fram til 1981 er hann flutti úr bænum. Í Reykjavík hóf hann störf hjá skattrannsóknarstjóra og vann þar til 1983 er hann hóf eigin rekstur og deildi húsnæði með Sverri Sigurjónssyni viðskipta- fræðingi. Hann starfaði sjálf- stætt frá þessum tíma til dauða- dags. Í allmörg ár starfaði hann í sama skrifstofuhúsnæði og Brynjar Ívarsson sem rak skipa- söluna Báta og búnað og ann- aðist samninga og önnur lög- mannsstörf fyrir hann. Eftir að þeir flutti skrifstofur sínar að Barónsstíg 5 annaðist Jón Ólaf- ur einnig alla samninga fyrir fasteignasölu Brynjólfs Jóns- sonar sem var á sama stað. Allan tímann var hann með sína lög- mannsstofu og sinnti margskon- ar lögmannsstörfum ásamt bók- haldsvinnu og uppgjöri fyrir- tækja og einstaklinga. Árið 2010 flutti Jón Ólafur lögmannsstofu sína að Elds- höfða og hætti þá störfum fyrir skipasöluna og fasteignasöluna og vann sem einyrki ýmis lög- mannsstörf ásamt bókhaldi. Árið 2013 flutti hann starf- semi sína, Jón Ólafur Þórðarson ehf., nálægt heimili sínu í Mos- fellsbæ og vann alveg fram á síð- asta dag. Útför hans fer fram frá Guð- ríðarkirkju í Grafarholti í dag, 4. október 2019, klukkan 13. Jarðsett verður í Mosfells- kirkjugarði í Mosfellsdal. f. 14.8. 1953, Gunn- ar, f. 4.10. 1954, Halldóra, f. 20.10. 1957, Sigríður, f. 21.11. 1959, Inga Bára, f. 15.2. 1965, Júlíus, f. 12.6. 1967, d. 14.1. 1968. Jón Ólafur varð stúdent frá MA 1966 og hóf þá um haustið nám í lög- fræði við HÍ. Hann lauk fyrri hluta lögfræðiprófs vorið 1970 með ágætiseinkunn og síðari hluta embættisprófs í lögfræði vorið 1972, einnig með ágætiseinkunn. Hann lauk við að flytja próf- mál sem þá þurfti til að verða héraðsdómslögmaður sama ár. Sumarið 72 vann hann við smíð- ar á Ísafirði en fyrri sumur hafði hann oftast verið til sjós. Haust- ið 1972 hóf hann störf hjá Fast- eignasölunni Eignir í Reykjavík og starfaði þar fram á vor 1973. Þá réðst hann sem fulltrúi sýslu- manns við sýslumannsembættið á Ísafirði og vann þar til 1981 er hann fluttist til Reykjavíkur ásamt eiginkonu og börnum þeirra. Á Ísafirði gegndi Jón Ólafur ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann Fyrir hálfri öld kynntist ég ást- inni minni. Ég var að verða sextán ára. Hann að verða tuttugu og þriggja. Leiðir okkar lágu saman í Gúttó á Ísafirði. Hann bauð mér upp í dans og bað um síðasta dans- inn. Eftir ballið gengum við um bæinn í vetrarkyrrðinni. Hann fylgdi mér að húsinu þar sem ég bjó. Hann hélt að mér væri kalt og breiddi frakkann sinn yfir mig og var sjálfur á skyrtunni. Hann sagði svo margt fallegt við mig og ég skynjaði strax þessa fallegu sál, þennan ljúfling. Ég skynjaði hversu skemmtilegur, greindur og hlýr hann var. Áður en við kvöddumst með saklausum kossi við húsdyr frænda míns þar sem ég bjó bað ég hann um heimilisfang hans. Hann var þá við nám í lögfræði við HÍ. Ekki hafði gefið til flugs og því var hann enn á Ísafirði eftir jólafrí. Ég fimmtán ára ungling- urinn sem hafði ekki aldur til að vera á þessu balli fór með eldri vinkonu minni. Þegar leið frá fann ég að ég yrði að kynnast þessum unga og áhugaverða manni og skrifaði honum. Ég fékk svar og við skrif- uðumst á fram á vor. Um vorið kom hann heim frá námi. Það sumar voru margar ferðir inn í Súðavík til að hitta mig. Við höfum átt yndislegan tíma öll þessi ár og aldrei mátt hvort af öðru sjá. Við eignuðumst gullin okkar Fríðu og Þórð og byggðum okkur hús á Ísafirði. Frá 1973 til 1981 vorum við á Ísafirði. Fluttum þá til Reykjavíkur til að leita hjálpar fyrir Þórð okkar sem þá var ljóst að átti við fötlun að stríða. Nonni minn var skarpgreindur maður sem fljótur var að greina kjarnann frá hisminu. Hann setti sig vel inn í málin, las sér til og kynnti sér vel. Það kom enginn að tómum kofunum hjá honum og hann var einstaklega rökfastur. Hann var skemmtilegur maður sem einstaklega gott var að búa með. Hann hafði góðan húmor og reyndi alltaf að sjá spaugilegu hliðarnar á ýmsu í tilverunni. Hann var drengur góður og húm- anisti. Hann hafði áhuga á mörgu svo sem tónlist, bókmenntum, fal- legu málfari, kvikmyndum og fleiru. Á yngri árum var hann góð- ur íþróttamaður og mikið á skíð- um. Hann þaut með Þórð okkar og leiddi hann niður skíðabrekk- ur. Hann kenndi honum að synda með því að hafa hann á bakinu. Fríðu okkar hafði hann í sérstök- um stól á bakinu og fór með hana þannig á skíði þegar hún var árs- gömul. Hann sagði skemmtilega frá og hefði getað skrifað frábærar bæk- ur. Hann sagði brandara þannig að fólk hló sig máttlaust. Sorgin nístir þegar ég hef ekki lengur klettinn minn, heimakæru ástina mína með hlýja faðminn sinn sem ég gat alltaf treyst. Hann sem hvatti mig og studdi í hverju sem ég tók mér fyrir hend- ur. Honum var alltaf svo umhugað um velferð mína og barnanna okk- ar. Ég þakka honum hversu góður hann hefur alltaf verið okkur, hversu umburðarlyndur hann hef- ur verið Þórði okkar og gagnvart ýmsum erfiðleikum sem fylgja fötlun hans. Ég þakka honum fyr- ir allt sem hann var mér. Sú von býr mér í brjósti að ég eigi eftir að hitta hann aftur í sumarlandinu. Góða ferð, ástin mín, sértu Guði falinn. Sjáumst þegar minn tími er kominn. Þín að eilífu elskandi Badda. Bjarnveig Bjarnadóttir. Elsku besti pabbi, hetjan mín. Ég trúi ekki að þú sért farinn. Þú varst svo yndislegur pabbi, hjartahlýr og studdir mig í öllu sem ég gerði. Það er stórt skarð í hjarta mínu sem mun aldrei gróa. Þegar ég hugsa til baka koma svo margar góðar minningar upp í hugann. Sérstaklega man ég eftir kvöldunum í Mosfellsbænum þeg- ar þú gerðir besta túnfisksalat í heimi og við horfðum á vestra saman í sjónvarpinu. Man hvað ég var spennt þegar þú byrjaðir að útbúa salatið, ég fylgdist alltaf með af fullum áhuga og svo var það framreitt með Bugles eða brauði. Ég mun líka sakna steikta fisksins þíns, þú eldaðir hann allt- af fyrir mig í seinni tíð þegar ég kom til landsins. Mér fannst líka alltaf svo gaman að koma á skrif- stofuna þína. Leit svo upp til þín og fannst þú svo flottur karl. Þeg- ar ég var unglingur mátti ég svo vinna hjá þér í eitt sumar sem rit- ari. Ég veit nú ekki hversu mikið gagn var í mér en ég fékk að vél- rita eyðublöð og ýmislegt fleira og þú varst alltaf svo ánægður með allt sem ég gerði. Í raun er það þér að þakka að ég lærði að vélrita því þú lést mig hafa bók til að læra rétt fingragrip og hefur það nýst mér vel í lífinu. Ég man svo vel eftir skútuferðunum og öllum æv- intýrunum sem þeim fylgdu. Það var alltaf svo gaman að vera í kringum þig og þú hafðir alltaf skemmtilegar sögur á reiðum höndum og reyttir af þér brand- arana. Ég er svo þakklát að hafa fengið þessar fjórar vikur með þér í Halifax þegar þú komst í heim- sókn núna í ágúst. Var svo ynd- islegur tími. Einnig fyrir alla göngutúrana með þér. Þegar ég kom í janúar fórum við á hverjum degi saman niður að Esjunni. Það var þinn staður. Ég vildi óska þess að ég gæti fengið að knúsa þig einu sinni enn og segja hvað þú varst yndislegur pabbi, þakka þér fyrir stuðninginn sem þú hefur alltaf sýnt mér í öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur í gegnum tíðina. Þú studdir mig líka í nám- inu og ég verð þér ævinlega þakk- lát fyrir það. Ég er viss um að þú sért á góðum stað því þú ert svo góð sál. Ég er líka viss um að þú eigir eftir að passa upp á mömmu og fylgjast með henni. Þið voruð mínar fyrirmyndir og ástarsagan ykkar er svo falleg. Ég á alltaf eft- ir að sakna þín. Þín elskandi dóttir, Fríða. Jón Ólafur Þórðarson  Fleiri minningargreinar um Jón Ólafur Þórðar- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.