Morgunblaðið - 09.10.2019, Síða 1
Morgunblaðið/RAX
Fóður 95% af metangaslosun
Jórturdýra kemur frá ropa.
Bylting er að verða í tækniþróun í
fóðurframleiðslu með tilkomu nýs
íblöndunarefnis í fóður fyrir jórtur-
dýr, að sögn Eyjólfs Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Fóðurblönd-
unnar.
Eyjólfur segir frá því í ítarlegu
viðtali í ViðskiptaMogganum í dag
að um 10% af kolefnislosun heimsins
komi frá jórturdýrum, en von sé á
nýju bætiefni á markaðinn innan
þriggja ára sem minnka muni
metangaslosun og um leið kolefnis-
spor jórturdýra um 30%. „Þetta er
íblöndunarefni í fóður og þegar það
kemur á markaðinn mun það
minnka árlegan kolefnisútblástur
hér á Íslandi um meira en sem nem-
ur útblæstri alls íslenska bílaflot-
ans.“
Noregur vill skilyrða notkun
Hann segir að ríkisstjórnir bæði
Nýja-Sjálands og Noregs hafi nú til
skoðunar að banna sölu fóðurs í
löndunum nema það innihaldi þetta
nýja efni þegar það verður tilbúið.
„Það er búið að prófa efnið í til-
raunabúum með 7-800 kýr í Banda-
ríkjunum og Kanada og það hefur
gefið mjög góða raun.“
Kolefnis-
jafna bíla-
flotann
Nýtt efni í fóður
fyrir jórturdýr
M I Ð V I K U D A G U R 9. O K T Ó B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 237. tölublað 107. árgangur
TÍÐINDA AÐ
VÆNTA Í FLUG-
GEIRANUM SEX Í SVEIT
SNÖGG AÐ
GERA LJÚFFENGA
LIFRARPYLSU
DÓMUR bbbmn 29 SLÁTURGERÐ 11VIÐSKIPTAMOGGINN
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð-
ingur Íslandsbanka, segir fjárfesta
hafa sýnt sértryggðum skuldabréfum
takmarkaðan áhuga undanfarið. Það
skerði svigrúm banka til að fylgja
grunnvöxtum við útgáfu íbúðalána.
„Vaxtakjör sértryggðu bréfanna
hafa ekki lækkað til samræmis við
grunnvexti á markaði,“ segir Jón
Bjarki. Meðal þessara fjárfesta hafi
verið lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og
Íbúðalánasjóður. Þótt lífeyrissjóðum
bjóðist í sumum tilfellum betri kjör af
sértryggðum skuldabréfum en af út-
gáfu íbúðalána kjósi þeir lánin.
„Einhverjir sjóðanna eru að lána
beint til sjóðfélaga með minni ávöxt-
unarkröfu en þeir gætu fengið með
því að kaupa sértryggð skuldabréf.
Þar er búið að dreifa áhættunni og
taka út vafstur sem fylgir beinum út-
lánum. Það er dálítið sérstök staða,“
segir Jón Bjarki.
Með þessu móti hafi lífeyrissjóðir
áhrif á markaðinn úr tveimur áttum;
sem fjárfestar og umsvifamiklir lán-
veitendur íbúðalána.
Stóru bankarnir skoða nú vaxta-
lækkun eftir að Seðlabankinn lækkaði
vextina. Hátt í 20 lánveitendur bjóða
nú íbúðalán á Íslandi. Snorri Jakobs-
son, forstöðumaður greiningardeildar
Capacent, segir of marga lánveitend-
ur á Íslandi. „Samkvæmt fræðunum
ætti í mesta lagi að vera einn banki á
Íslandi. Jafnvel þótt við værum með
einn banka væri hann of lítill,“ segir
Snorri og bendir á áhrif bankaskatta
á vaxtastigið í landinu.
Takmarkar útlán banka
Lífeyrissjóðirnir velja frekar að veita íbúðalán en kaupa skuldabréf hjá bönkum
Forstöðumaður greiningar hjá Capacent segir of marga veita íbúðalán á Íslandi
MVitnar um óhagkvæmt … »4
Seltún er eitt helsta hverasvæðið í Krýsuvík og
þar er hægt að ganga á milli leirhvera og gufu-
hvera og sjá gufustróka stíga til himins. Leirinn
er síbreytilegt listaverk sem skartar grænum,
gulum og rauðleitum litum sem skipta um svip-
mót eftir veðrinu.
Fallegir litir og litaafbrigði í kvöldsólinni í Krýsuvík
Morgunblaðið/Eggert
Hjálmar Gísla-
son, stofnandi
hugbúnaðarfyrir-
tækisins GRID,
segir við Við-
skiptaMoggann
að fyrirtækið geti,
gangi áætlanir
þess eftir, aflað
árstekna upp á
10-15 milljarða
króna á næstu 7-
10 árum. GRID býr til skýrslugerðar-
og útgáfutól sem vinnur með töflu-
reiknum á borð við Excel, og hyggst
setja vöruna á markað eftir áramót.
2.500 manns eru á biðlista fyrir próf-
unarútgáfu sem kemur út á næstu
vikum. GRID var stofnað fyrir rúmu
ári og hefur samtals hlotið 4,5 millj-
óna bandaríkjadala fjármögnun.
Mögulegur notendahópur er talinn í
hundruðum milljóna.
Hjálmar
Gíslason
2.500 á biðlista eft-
ir prófunarútgáfu
Fuglaáhuga-
menn glöddust
um helgina þeg-
ar spörfuglinn
tígultáti sást hér
á landi, en hann
er afar sjaldgæf-
ur í Evrópu.
Fuglinn hefur að
öllum líkindum
borist hingað
með lægðagangi
helgarinnar sem hefur feykt honum
úr vesturvegi hingað til lands.
Tígultátinn er spörfugl af kardín-
álaætt, sem er bundin við Ameríku,
og er þetta í þriðja skiptið sem
hann hefur sést á Íslandi. »4
Tígultáti af ætt
kardínála sást hér
Tígultáti Fuglinn er
ungur karlfugl.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta
er skrefi nær Evrópumótinu í Eng-
landi sem fram fer 2021, eftir 6:0-
stórsigur á Lettlandi við afar krefj-
andi aðstæður í Liepaja í gærkvöld.
Keppnisvöllurinn var svo illa farinn
að hann gat vart talist boðlegur.
Ísland lýkur þar með keppnis-
árinu 2019 með fullt hús stiga í
undanriðli sínum, eftir sigra á Lett-
um, Slóvökum og Ungverjum, en á
nýju ári eru fyrir höndum tveir leikir
við Svía sem munu ráða úrslitum um
hvort liðanna endar í efsta sæti
riðilsins og kemst beint á EM. Liðið
sem hafnar í 2. sæti þarf að ná góð-
um árangri í samanburði við aðra
riðla, og því gæti hvert stig og jafn-
vel hvert mark reynst dýrmætt.
Hin 19 ára gamla Alexandra Jó-
hannsdóttir lék fyrsta mótsleik sinn
fyrir Ísland í gær og skoraði fyrsta
landsliðsmark sitt, en hún hafði áður
leikið fjóra vináttulandsleiki. Þær
Hlín Eiríksdóttir, jafnaldra hennar,
hafa komið sterkar inn í lið sem ann-
ars er skipað afar reyndum leik-
mönnum sem sumar hverjar hafa
farið þrisvar sinnum í lokakeppni
EM. »27
Stórsigur á óboðlegum velli
Ísland nær EM í Englandi Tvær fæddar 2000 efla liðið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Góð byrjun Ísland hefur unnið alla
þrjá leiki sína í undankeppni EM.