Morgunblaðið - 09.10.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tveir bandarískir vísindamenn og
einn Breti fá Nóbelsverðlaun í líf-
og læknisfræði í ár. Nóbelsnefnd
Karólínsku stofnunarinnar til-
kynnti það á blaðamannafundi í
Stokkhólmi í fyrradag. Sigurður
Ingvarsson, forstöðumaður Til-
raunastöðvar Háskóla Íslands í
meinafræði og prófessor við Há-
skóla Íslands, hefur unnið að rann-
sóknum með Peter J. Ratcliffe,
breska vísindamanninum sem fær
verðlaunin.
Nýjar leiðir til lækninga
Vísindamennirnir þrír, Ratcliffe
og Bandaríkjamennirnir William G.
Kaelin og Gregg L. Semenza, fá
verðlaunin sameiginlega fyrir upp-
götvanir á því hvernig frumur lík-
amans skynja og bregðast við
breytilegu magni súrefnis, meðal
annars með nákvæmri stjórnun
umritunar.
Dómnefndin sagði uppgötvanir
þeirra hafa leitt til þess að vinna er
hafin við lofandi nýjar leiðir til þess
að takast á við blóðleysi, krabba-
mein og fleiri sjúkdóma.
Grein um umritunarþátt
Sigurður var í doktorsnámi í
krabbameinslíffræði við Karólínsku
stofnunina í Stokkhólmi á árunum
1984 til 1989 og vann síðan um tíma
við sameindalíffræðideild sjúkra-
hússins. Á þeim tíma gekk hann til
liðs við rannsóknahóp í Bretlandi
þar sem Peter J. Ratcliffe var
einnig.
Þeir voru meðal annars meðhöf-
undar að grein um lykilumritunar-
þáttinn Hif1, um það hvernig hon-
um er stjórnað og hvernig hann
stjórnar efnaskiptum, æðamyndun
og fleiri ferlum. Greinin birtist í
Nature Cell Biology árið 2012.
Sigurður tekur fram að hann hafi
ekki kynnst Ratcliffe persónulega
og þekki bandarísku vísindamenn-
ina ekki. Segir hann vísindamenn-
ina vel að Nóbelsverðlaununum
komna. Viðfangsefni þeirra sé mik-
ilvægt, sé lykilþáttur í því hvernig
líkaminn þroskast og þróast og
hvernig
Fylgist með í fræðunum
Segir Sigurður að fyrrverandi
samstarfsmenn sínir á Karólínska
séu komnir á eftirlaun og hann hafi
fyrir löngu dregið sig út úr þessum
rannsóknum. Hann reyni eigi að
síður að fylgjast vel með fræðunum.
Vel að verðlaununum komnir
Sigurður Ingvarsson, prófessor og forstöðumaður á Keldum, vann að verkefni
með einum af þremur vísindamönnum sem fá Nóbelsverðlaun í líf- og læknisfræði
Peter J.
Ratcliffe
Sigurður
Ingvarsson
Karlmaður á fertugsaldri var í gær
úrskurðaður í tíu daga gæslu-
varðhald að kröfu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu í þágu rann-
sóknar á ætluðu kynferðisbroti,
líkamsárás og heimilisofbeldi
mannsins gegn unnustu sinni.
Tilkynning um málið barst lög-
reglu á mánudagsmorgun og var
maðurinn handtekinn um hádegisbil
samdægurs. Lögreglan fór á vett-
vang í húsnæði í vesturhluta borgar-
innar og hitti þar fyrir unnustu
mannsins, sem var flutt alvarlega
slösuð á slysadeild. Maðurinn hafði
flúið vettvang þegar lögreglu bar að
garði en fannst síðar eftir leit í íbúð í
öðru hverfi borgarinnar og var þá
handtekinn, að því er fram kom í til-
kynningu frá lögreglu.
Í frétt Stöðvar 2 í gærkvöldi sagði
að samkvæmt heimildum hefði
maðurinn margoft komið við sögu
lögreglu og verið dæmdur fyrir
ofbeldisbrot og heimilisofbeldi.
Tíu dagar
í gæslu-
varðhaldi
Grunaður um til-
raun til manndráps
Meirihluti Samfylkingarinnar, Við-
reisnar og Pírata í skóla- og frí-
stundaráði Reykjavíkurborgar sam-
þykkti á fundi sínum í gær tillögu um
að fela sviðsstjóra skóla- og frí-
stundaráðs að setja af stað starfshóp
um öryggi barna í skóla- og frístunda-
starfi borgarinnar. Starfshópurinn á
að skila tillögum af sér eigi síður en 1.
febrúar 2020.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
skóla- og frístundaráði lögðu fram
efnislega sams konar tillögu en sú til-
laga gerði ráð fyrir því að skóla- og
frístundasviði yrði falið að samræma
öryggisreglur og grípa til viðeigandi
aðgerða strax í stað þess að fela
starfshópi að fjalla um málið þangað
til í febrúar á næsta ári.
Starfshópurinn á að skoða þá ör-
yggisferla sem fyrir hendi eru í dag
og gera tillögu að samræmdum ferl-
um. Þá á hann að kanna kosti þess að
nýta í auknum mæli öryggismynda-
vélar, merkingar starfsfólks og
strangari aðgangsstýringu.
Brýnt að fara í málin sem fyrst
Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins sagði að mikilvægt væri að „ör-
yggismál skólanna verði tekin til
gagngerrar endurskoðunar sem allra
fyrst“ í ljósi nýliðins alvarlegs atviks í
einum grunnskóla borgarinnar þar
sem brotið var á barni af utanaðkom-
andi aðila sem komst inn í skólann.
„Það sem skilur á milli þessara til-
lagna er að við vildum að þetta kæmi
til framkvæmda mjög fljótlega. En
meirihlutinn vildi setja þetta í starfs-
hóp og við þekkjum nú að vinna
starfshópa getur dregist á langinn og
stundum skila þeir seint og illa af sér.
Auðvitað vonar maður að það verði
ekki í þessu tilfelli því það er brýnt að
fara í þessi mál sem fyrst,“ sagði
Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í skóla- og frístunda-
ráði, við Morgunblaðið.
Skúli Helgason, formaður skóla- og
frístundaráðs, segir meirihlutann
ekki deila áhyggjum Mörtu. „Við höf-
um mjög góða reynslu af því að þeir
starfshópar sem við höfum skipað
hafa bæði unnið hratt og vel og skilað
mjög góðum niðurstöðum.“
Starfshópur skoði öryggi
barna í skólum borgarinnar
Kanni kosti þess að nýta meira öryggismyndavélar
Íslenskur karlmaður á fimmtugs-
aldri var nýverið dæmdur í sjö mán-
aða fangelsi í héraðsdómi í Sogni og
Firðafylki í Noregi fyrir auðkennis-
þjófnað, skjalafals og fjársvik sem
hann framdi í sumar.
Maðurinn notaði persónuupplýs-
ingar kærustu sinnar til að svíkja
um 550 þúsund danskar krónur,
rúmlega 10 milljónir íslenskra
króna, út úr norskum bönkum, m.a. í
formi vaxtahárra lána.
Þá notaði hann bankaupplýsingar
konunnar til að fjárfesta í nýju rúmi
með greiðsludreifingu. Á meðan
kærasta hans svaf í rúminu að nóttu
til notaði hann persónuupplýsingar
hennar til að skuldsetja hana enn
frekar, að því er fram kemur í frétt
norska ríkisútvarpsins NRK.
Maðurinn hefur verið dæmdur fyrir
skjalafals og fjársvik á Íslandi, síð-
ast árið 2018. Í dóminum segir að
maðurinn sé þaulvanur þegar kemur
að svikum og blekkingum.
Sjö mánaða
fangelsi
í Noregi
Sagður þaulvanur í
svikum og blekkingum
Bjart og milt veður var yfir borginni í gær og
logn við Elliðaárósa. Spáð er áfram björtu og
stiltu veðri sunnan- og austanlands í dag og á
fimmtudag. Hiti mun ná allt að 10 stigum en
kólna mun eftir því sem líður á vikuna. Annars
staðar á landinu mun rigna með köflum. Eftir
því sem nær dregur helgi mun kólna talsvert og
er vætu spáð í flestum landshlutum og jafnvel
má búast við snjókomu til fjalla.
Spáir áframhaldandi hlýju og mildu lofti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Göngu- og hjólabrúin yfir Elliðaárósa tók sig einstaklega vel út í veðurblíðunni í borginni í gær