Morgunblaðið - 09.10.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 09.10.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Landsréttur staðfesti 4. október dóm Héraðsdóms Austurlands þess efnis að einkahlutafélag og eigandi og for- svarsmaður þess hefðu ekki brotið lög um atvinnuréttindi útlendinga og lög um útlendinga. Ákærðu voru sökuð um að hafa ráðið erlenda ríkisborgara til land- búnaðarstarfa á jörð þar sem er stunduð sérhæfð lífræn grænmetis- ræktun af margvíslegum toga, án þess að þeir hefðu tilskilin atvinnu og dvalarleyfi. Fram kom í dómi héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti, að ákæruvald- ið hefði ekki sannað að ákærðu hefðu ráðið umrædda einstaklinga til starfa í þeim skilningi að til vinnuréttarsam- bands hefði stofnast þeirra á milli. Í dómi héraðsdóms segir m.a. að ákærði hafi sagt að um sjálfboðaliða hafi verið að ræða sem komu á býlið „fyrir tilstuðlan og samkvæmt beiðni samtakanna World Wide Opportuni- ties in Organic Farms (WWOOF)“. Þeir komu til að kynnast starfsemi búsins. Einnig var það mat dómsins að ekki væri séð að forsvarsmaðurinn og eigandinn hefði af ásetningi eða stór- felldu gáleysi nýtt sér starfskrafta fólksins með þeim hætti sem vísað væri til í ákvæðum laga sem tiltekin voru í ákæru. gudni@mbl.is Brutu ekki lög um at- vinnuréttindi útlendinga  Sjálfboðaliðar komu til að kynna sér lífrænan búskap Morgunblaðið/Hanna Landsréttur Málið snerist um út- lendinga og landbúnaðarstörf. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sjaldgæfur tígultáti barst til lands- ins frá Ameríku á mánudaginn og var hann merktur í trjálundi við Sel- tjörn á Reykjanesskaga. Hann hefur að öllum líkindum borist hingað með lægðagangi helgarinnar sem hefur feykt honum úr vesturvegi hingað til lands. Sömu sögu er að segja um talsverðan fjölda af evrópskum smá- fuglum, sem glöddu fuglaáhuga- menn um helgina. Þeir hafa borist til landsins með sterkri austanátt og fleiri gætu verið á leiðinni miðað við veðurspár. Tígultátinn er aðeins þriðji fugl- inn þessarar tegundar sem finnst hér á landi. Sá fyrsti fannst árið 2001 og næsti tígultátinn fannst dauður nú í vor. Yann Kolbeinsson fugla- fræðingur segir að fuglinn sem fannst um helgina sé ungur, mjög fallegur karlfugl, en þeir verði sér- staklega fallegir í fullorðinsbúningi að vori. Hann segir að tígultátar séu einnig sjaldgæfir í Evrópu og veki því athygli þegar þeir finnist á þeim slóðum. Tígultáti er spörfugl af kardínála- ætt sem er bundin við Ameríku. Tvær aðrar tegundir fugla af þeirri ætt hafa áður fundist hér, skarlats- táni og blátittlingur. Síkjasöngvari, mýrerla, næturgali og garðaskotta Af öðrum flækingum sem hingað komu um helgina má nefna síkja- söngvara, en hann fannst í Grinda- vík og var heimsókn hans sú 15. sem skráð hefur verið hér. Sömu sögu er að segja af mýrerlu, sem einnig var skráð í 15. skipti. Báðir þessir fuglar fundust í garði Eyjólfs Vilbergsson- ar í Grindavík. Þá má nefna nætur- gala, þann 13. sem hér finnst, en hann sást 29. september og er enn hér á landi. Einnig nefnir Yann nokkurn fjölda af hnoðrasöngvurum. Áður hafi þeir verið mjög sjaldgæfir hér en nú megi reikna með þeim þegar hressilega blæs af austri. Af öðrum gestum nefnir hann garðaskottu, flekkugríp og grágríp sem hafi glatt fuglaáhugamenn. Tígultáti gladdi fuglaáhugamenn  Í þriðja skipti sem þessi Ameríkufugl finnst hér  Einnig nokkur fjöldi evrópskra smáfugla Ljósmyndir/Eyjólfur Vilbergsson Frá Ameríku Tígultáti sást nú aðeins í þriðja skipti á Íslandi en er einnig fá- gætur annars staðar í Evrópu og vekur athygli þar sem hann finnst. Evrópufugl Mýrerlan í Grindavík var sködduð á stéli en gat bjargað sér. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vaxtamunur stóru bankanna þriggja hefur haldist um 3% síðustu ár. Mun- urinn er um tvölfalt meiri en á ár- unum fyrir efnahagsáfallið. Snorri Jakobsson, forstöðumaður greiningardeildar Capacent, fjallaði um vaxtamun í meistararitgerð sinni í hagfræði, Áhrif eignarhalds á rekstrarárangur íslenskra innláns- stofnana. Við rit- gerðarsmíðina tók hann saman gögn yfir vaxtamun stóru bankanna þriggja aftur til ársins 1997. Þau gögn eru hér endur- birt til ársins 2014. Tölur fyrir 2015 til og með annars ársfjórðungs 2019 eru svo fengnar frá Fjármálaeftirlitinu sem tók þær saman fyrir Morgun- blaðið. Með vaxtamun er átt við mun á útláns- og innlánsvöxtum. Vaxtamunurinn minnkaði á ára- tugnum frá árinu 1997 til ársins 2007. Haustið 2008 lentu bankarnir í brotsjó og skiptu um eigendur. Bankakerfið var endurreist. Næstu ár jókst vaxamunurinn og náði há- marki 2012, þegar hann var 3,1%. Hann hefur síðan verið nærri 3%. Snorri segir aðspurður að vaxta- munurinn veiti vísbendingu um stærðarhagkvæmni í bankarekstri. Umsvif bankanna hafi aukist mjög ár- in fyrir efnahagsáfallið og efnahags- reikningurinn vaxið í um tífalda landsframleiðslu. Samhliða miklum vexti hafi vaxtamunurinn minnkað í um 1,5%. Munurinn er nú sem áður segir 3%, eða tvöfalt meiri. Ekki jafn hagkvæmt Snorri segir þetta eina birtingar- mynd þess að bankakerfið á Íslandi sé óhagkvæmara en fyrir efnahags- áfallið haustið 2008. „Eftir því sem bankar verða stærri því lægri verður rekstrarkostnaður á allar eignirnar. Vaxtamunur stærri banka er almennt minni en smærri banka,“ segir Snorri. Hátt í 20 fjármálastofnanir og líf- eyrissjóðir veita nú íbúðalán. Snorri segir aðspurður að of marg- ir lánveitendur séu á Íslandi. Þá hafi nýir og sértækir skattar eftir efna- hagshrunið, bankaskattur, viðbótar- tekjuskattur og fjársýsluskattur, sitt að segja. Slík gjaldtaka hljóti að hafa áhrif á afkomuna. „Samkvæmt fræðunum ætti í mesta lagi að vera einn banki á Ís- landi. Jafnvel þótt við værum með einn banka væri hann of lítill. Svo hafa sértækir skattar mikil áhrif á bank- ana. Það má gefa sér að vextir séu 0,7% hærri en ella út af þessum sköttum,“ segir Snorri. Forsendur sértæku skattanna séu brostnar. Ekki réttlætanlegur lengur „Bankaskatturinn var réttlætan- legur þegar gríðarleg virðisaukning var í bankakerfinu. Fyrstu 5-6 árin eftir hrunið græddu bankarnir mikið á eignasöfnum sem þeir fengu frá föllnu bönkunum. Því var hægt að skattleggja virðisaukann af útlánum og hagnaðinn. Síðustu 3-4 ár hefur þessi banka- skattur hins vegar ekki verið réttlæt- anlegur. Hann felur í sér ákveðna ein- feldni enda leggst hann á viðskipta- vini. Vextir eru hærri en ella út af sértæku skattlagningunni. Þannig að bankaskatturinn er í raun sértækur skattur á skuldsett heimili og smærri fyrirtæki. Þetta bitnar mest á ungu fólki og skuldsettum heimilum,“ segir Snorri. Skekkir samkeppnisstöðuna Hann bendir svo á að stóru fyrir- tækin geti gert lánasamninga við er- lenda banka sem ekki þurfi að greiða sértæku skattana. Það skekki sam- keppnisstöðu smærri og stærri fyrir- tækja á Íslandi. „Þessir skattar munu minnka sölu- verðmæti bankanna sem eru í eigu ríkisins til jafns. Ef ætlunin er að selja bankana væri betra að leggja banka- skattinn af, fyrir utan brenglunina sem hann veldur í íslensku atvinnu- lífi,“ segir Snorri. Markaður með íbúðalán hefur breyst mikið á Íslandi síðustu ár. Hlutdeild lífeyrissjóða hefur vaxið hratt en þeir greiða ekki sértæku skattana sem bankarnir greiða. Til marks um aukið framboð eru óverðtryggð íbúðalán nú í boði hjá 13 lánveitendum. Vitnar um óhagkvæmt bankakerfi  Forstöðumaður greiningardeildar Capacent segir vaxtamun endurspegla óhagkvæmt bankakerfi  Munurinn hafi minnkað á árunum fyrir efnahagshrunið  Vaxtamunurinn er nú um tvöfalt hærri Vaxtamunur viðskipta- bankanna þriggja 1997 2008 2019 4% 3% 2% 1% 0% 3,7% 2,8% 3,3% 1,5% *2. ársfj. 2019. Heimildir: Tölur fyrir árin 1997-2014: greining Snorra Jakobssonar. Tölur fyrir árin 2015-2019 koma frá FME. $ * Snorri Jakobsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.