Morgunblaðið - 09.10.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 09.10.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty 10% AF SÖLU Á VÖLDUMVÖRUM HJÁ OKKUR 1.-15. OKTÓBER RENNA TIL KRABBAMEINSFÉLAGSINS BLEIKA SLAUFAN Þegar Píratar buðu fyrst framátti flokkurinn að vera öðru- vísi en þeir sem fyrir voru og margir kjósendanna töldu að hon- um væri ætlað að hrista upp í kerfinu og horfa á viðfangsefni stjórnmálanna ferskum augum. Þetta hefur ekki gengið eftir. Flokkurinn þróað- ist hratt út í að vera dæmigerður vinstriflokkur þar sem lausnirnar voru aukin útgjöld og frekari umsvif hins opinbera þó að á slíku væri síst skortur.    Fáir flokkar ef nokkur hafameiri trú á opinberum stofn- unum en Píratar, að minnsta kosti þingmenn þess flokks þó að óvíst sé að kjósendur flokksins séu jafn einbeittir áhugamenn um ríkis- lausnirnar því að þingmenn Pírata reyna enn að halda í þá ímynd að þeir séu öðruvísi.    Nýlegt dæmi um ofurtrú þing-mannanna á stofnunum birt- ist í þingsályktunartillögu sem þeir lögðu fram á dögunum um „stofnun embættis tæknistjóra ríkisins“.    Þessi nýja stofnun á að hafa„yfirumsjón með tæknilegum innviðum Stjórnarráðsins, svo unnt verði að taka þau föstum tök- um og m.a. byggja upp góða tækniþekkingu innan stofnunar- innar og lækka útgjöld ríkisins með stærðarhagkvæmni“.    Stofnunin nýja á sem sagt ekkiaðeins að bæta tæknimálin heldur líka að spara fé. En er reynsla skattgreiðenda að nýjar stofnanir dragi úr útgjöldum? Eða getur verið að þær auki umsvif hins opinbera og útgjöldin um leið? Er hagkvæmt að fjölga stofnunum? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra segir íslensk stjórnvöld hafa miklar áhyggjur af þeirri ákvörðun Tyrkja að ráðast inn í norðurhluta Sýrlands. Innrásin geti haft áhrif á heimsvísu, þá helst ef hryðjuverkasamtökin Ríki íslams spretta aftur upp. Bandarísk yfirvöld eru byrjuð að flytja hersveitir sínar frá norður- hluta Sýrlands og landamærum Tyrklands. Með því er leiðin greið fyrir Tyrki að ráðast gegn Kúrdum sem eru staðsettir við landamærin. Kúrdar voru helstu bandamenn Bandaríkjamanna í stríðinu gegn Ríki íslams í Sýrlandi. „Afstaða okkar er alveg skýr. Við höfum miklar áhyggjur af því að Tyrkir ætli að ráðast inn,“ sagði Guðlaugur Þór við mbl.is síðdegis í gær og bætti við: „Við höfum áhyggjur af þessu vegna fyrirséðra áhrifa, meðal annars á almenna borgara. Við höfum líka áhyggjur af því að ef árásir verða á Kúrda gæti það leyst hryðjuverkasamtökin Ríki íslams aftur úr læðingi. Sýrlenskir Kúrdar hafa staðið í fylkingarbrjósti í baráttunni við þessi illræmdu sam- tök.“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að rústa efnahag Tyrkja ef þeir ganga lengra en eðlilegt er, að hans mati, gegn Kúrdum. Bæði Bandaríkin og Tyrkland eiga að- ild að NATO og spurður hvað geti gerst þegar eitt aðildarríki NATO hótar slíkum að- gerðum gegn öðru segir Guðlaugur: „Þetta er mjög viðkvæmt ástand. Þetta var tekið upp á vettvangi NATO í fastaráði í dag. Við erum ekki einir um að hafa áhyggjur af þessu. Við höfum áður tekið þetta upp á vettvangi NATO og beint við Tyrki líka. Þetta er einhliða aðgerð af þeirra hálfu og fer ekki fram í um- boði eða með samþykki Atlantshafs- bandalagsins, það liggur alveg fyrir.“ Logi Einarsson, þingmaður Sam- fylkingarinnar, hefur óskað eftir því að utanríkisráðherra komi fyrir utanríkismálanefnd vegna málsins. Guðlaugur er staddur erlendis eins og stendur en ætlar að verða við beiðni Loga fljótlega eftir að hann kemur til landsins. Óttast afleiðingar innrásar í Sýrland Guðlaugur Þór Þórðarson  Gæti blásið nýju lífi í Ríki íslams Ætla má að útsvarstekjutap Reykjavíkurborgar vegna skatt- frjálsrar greiðslu séreignarsparn- aðar inn á fasteignalán nemi alls u.þ.b. 4,5 til 5 milljörðum á tíma- bilinu frá 1. júlí 2014 til 30. júní 2021. Talið er að árlegt tekjutap sveitarfélaga landsins vegna þessa úrræðis nemi tveimur milljörðum á ári. Þetta kemur fram í umsögn Reykjavíkurborgar við fjárlaga- frumvarpið. Framlengd tvisvar Þar segir að síðustu ár hafi skattfrjáls nýting séreignarsparn- aðar tekið við af vaxtabótum sem úrræði til að létta undir með íbúða- kaupendum og hafi því ríkið velt stórum hluta af kostnaðinum yfir á sveitarfélög. Heimildin hafi verið framlengd tvisvar sinnum. Þessar aðgerðir hafi bein áhrif á útsvarstekjur sveitarfélaga og krefst Reykjavíkurborg þess að borginni og öðrum sveitarfélögum „verði bætt það útsvarstekjutap að fullu sem hefur hlotist af ákvörðun Alþingis um skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar“. Segir einnig að 244 milljóna kr. sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði sem fékkst árið 2017 til að bæta fyrir tekjuskerðinguna bæti þó að- eins lítinn hluta af útsvarstekjutap- inu. »14 Sveitarfélög segjast tapa milljörðum  Krefst að ríkið bæti tap vegna skattfrjálsrar greiðslu séreignarsparnaðar Morgunblaðið/Ómar Ráðhúsið Borgin segist tapa 4,5 til 5 milljarða útsvarstekjum á sjö árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.