Morgunblaðið - 09.10.2019, Side 10

Morgunblaðið - 09.10.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019 Superior herbergi HVATAFERÐIR OG FUNDIR Superior herbergi Það fer vel um stóra og smáa hópa á fundum eða í hvataferð hjá okkur. Við sérsníðum móttökurnar að þörfum hópsins. Hótel Örk er steinsnar frá borginni í sannkallaðri náttúruparadís. Pantanir í síma 483 4700 booking@hotelork.is hotelork.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Skólabíll fer tvisvar á dag með börn í og úr skóla og einnig með börn í sund niður á Stokkseyri. Það er skelfilegt að láta börnin hristast í þessu alla daga,“ segir Margrét Jóns- dóttir, bóndi í Syðra-Velli í Flóa- hreppi, þegar hún er spurð um ástand Hamarsvegar sem hún býr við. Sveitarstjórn Flóahrepps hefur tekið undir lýsingu hennar og tveggja annarra sveitarstjórnarfull- trúa á ástandi malarvega og gert áskorun þeirra um úrbætur að sinni. Í áskoruninni er sérstaklega rætt um ástand þriggja malarvega og sagt að viðhaldi þeirra sé mjög ábótavant. Það eru Hamarsvegur frá Félags- lundi að Villingaholtsvegi, Urriða- fossvegur frá Villingaholtsvegi að hringvegi. Sagt er að þeir hafi nánast verið ókeyrandi mikinn hluta sum- ars. Sama megi segja um Önundar- holtsveg. Þar sé slælegt viðhald, eins og á öðrum malarvegum í sveitar- félaginu. Margrét segir að vaxandi umferð sé um þessa vegi, íbúum fjölgi og einnig fjölgi sífellt þeim ferðamönn- um sem um þá fara. Búskapur er rekinn við þessa vegi, ferðaþjónusta og ýmis annar atvinnurekstur. Því eru nokkrir þungaflutningar. Þá er skólabörnum ekið í Flóaskóla á hverjum degi og í sundkennslu. Þá aki fjöldi fólks þessa vegi dag hvern til og frá vinnu. Margrét bendir á að Vegagerðin eigi að sjá um viðhald heimreiða. Þær séu víða með mjög lélegu efni og verði fljótt eitt svað þannig að aurinn berist heim á hlað auk þess sem bílar skemmist. Takmarkað fjármagn Páll Halldórsson, rekstrarstjóri hjá Vegagerðinni á Selfossi, kannast við að erfitt sé að halda malarveg- unum við. Hann segir að vegirnir hafi verið ágætir langt fram eftir sumri. Vegagerðin hafi reynt eftir megni að rykbinda þá. Notuð hafi verið 700 tonn af salti til þess í sínu umdæmi en það hafi haft lítið að segja. Í þurrk- unum hafi efnið rokið úr slitlaginu og vegirnir gárast og að lokum myndast þvottabretti. Rigningarnar síðsum- ars hafi ekki bætt úr skák en þá hafi þó verið hægt að hefla. Allir vegirnir í Flóahreppi hafi verið heflaðir í haust. „Það er búið að styrkja flesta af þessum vegum og nýtt malarslitlag var sett á þá fyrir þremur árum en það þarf að bera ofan í þá alla aftur,“ segir Páll. Hann segir að vegirnir í Flóanum hafi verið forgangi og á meðan hafi lítið verið gert í upp- sveitum. Í sumar hafi mest verið unnið í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hann segir að Vegagerðin á Selfossi hafi 60 milljónir í viðhald malarvega á ári og þeir peningar séu fljótir að fara. Páll segir eðlilegt að fólk vilji fá bundið slitlag en það kosti enn meira en nýtt malarslitlag. „Það er mikill aðstöðumunur hjá fólki sem hefur ekki þannig vegi. Ég skil það vel að rykið er óþolandi og bæirnir rétt hjá,“ segir hann. Hann segir að mikil og vaxandi umferð sé frá hringvegi að Urriða- fossi og mikilvægt að leggja bundið slitlag á þann spotta. Skelfilegt að láta börnin hristast á vegi  Sveitarstjórn Flóahrepps vill meira viðhald á malarvegum Ljósmynd/Margrét Jónsdóttir Þvottabretti Þrátt fyrir að vegurinn um Gerðaheiði á Hamarsvegi hafi ver- ið heflaður er hann slæmur yfirferðar. Lítið er eftir af malarslitlaginu. Guðlaugur J. Albertsson gullialla@simnet.is Safnaðarheimili Patreksfjarðarkirkju var vígt við hátíðlega athöfn síðastlið- inn sunnudag. Að lokinni messu í kirkjunni vígði Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, húsið til al- menns safnaðarstarfs. Mikil og fjöl- breytt starfsemi er nú í safnaðar- heimilinu. Við messu í Patreksfjarðarkirkju prédikaði vígslubiskup og þjónaði fyr- ir altari ásamt sóknarpresti, séra Kristjáni Arasyni, og þremur fyrrver- andi þjónandi prestum prestakallsins, þeim séra Sigurði Jónssyni sem þjón- aði prestakallinu 1988-1991, séra Hannesi Björnssyni sem þjónaði 1992-2001 og séra Leifi Ragnari Jóns- syni sem þjónaði í Patreksfjarðar- prestakalli frá 2001-2017. Að messu lokinni var gengið yfir í safnaðar- heimilið þar sem heimilið var vígt og sóknin bauð gestum upp á kaffi og kökur. Patreksfjarðarkirkja fékk húsið að gjöf frá útgerðinni Odda hf. árið 2007, á 100 ára afmæli kirkjunnar. Síðan hefur sóknin staðið í miklum endur- bótum á húsinu með hjálp margra góðra manna og kvenna. Nú 12 árum síðar er húsið í mikilli og fjölbreyttri notkun allan ársins hring. Tólf ára gömul gjöf tekin í notkun Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson Prestar og prelátar Leifur Ragnar Jónson, Kristján Björnsson vigslu- biskup, Kristján Arason, Hannes Björnsson og Sigurður Jónsson. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Okkar fyrsti kostur er alltaf Land- eyjahöfn og um leið og við fáum það umhverfi sem til þarf siglum við þangað. Við munum sigla þangað aft- ur í vetur,“ segir Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herj- ólfs. Nýr Herjólfur sigldi fyrstu áætl- unarferð sína með farþega frá Vest- mannaeyjum til Þorlákshafnar á mánudaginn. Ófært var til Land- eyjahafnar vegna veðurs og sjólags. Sama var upp á teningnum í gær. Guðbjartur segir í samtali við Morgunblaðið að skipið sé vissulega hannað fyrir styttri siglingar til Landeyjahafnar, þótt alltaf hafi verið viðbúið að það þyrfti að taka ein- hverjar ferðir til Þorlákshafnar. „Núna erum við að vinna í að átta okkur á því hvernig skipið fer með farþega á þessari leið. Það er mikil- vægt að fá upplýsingar um aðbúnað farþega á siglingunni.“ Hann segir að ekkert hafi enn komið upp á í siglingum nýja Herj- ólfs til og frá Þorlákshöfn. Siglinga- tíminn sé sá sami og hjá eldra skip- inu, tveir tímar og 45 mínútur. „Síðan eru aðstæður misjafnar. Eldri er mun lengur þegar veður er vont og það er eins með þann nýja. Við erum alltaf að glíma við aðstæðurnar í þessum siglingum, sá nýi er teikn- aður inn og fer á sömu siglingatíðn- inni og sá eldri. Siglingin er samt öðruvísi. Það breytir því ekki að þeir sem eru viðkvæmir fyrir öldugangi finna fyrir honum. Og það eru færri kojur í nýja skipinu, sem vissulega hefur áhrif á þjónustuna sem verið er að veita. Farþegar munu alveg finna fyrir því. Þó er ráðgert að bæta við 32 kojum og þá verður munurinn þrjátíu. Þetta skiptir fólk máli.“ Guðbjartur segir að ekki sé búið að loka Landeyjahöfn fyrir veturinn og breyta áætlun Herjólfs. „Það eru hins vegar margir þættir sem hafa áhrif á siglingar í Landeyjahöfn; ölduhæðin, straumar, vindar, öldu- lengd og öldutíðni. Aðstæðurnar eru svo vaktaðar hverju sinni. Við erum með nýtt skip sem við þurfum að máta í þessar aðstæður.“ Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Herjólfur Nýja skipið á leið í áætlunarferð til Þorlákshafnar með farþega. Máta nýja Herjólf í vetraraðstæður Nýi Herjólfur » Hinn nýi Herjólfur fór í sína fyrstu áætlunarferð í lok júlí. Skipið var smíðað í Póllandi og kostaði á endanum 4,3 millj- arða króna. » Nýja ferjan má flytja allt að 540 farþega í hverri ferð milli Landeyjahafnar og Vest- mannaeyja yfir sumarið. Þegar siglt er í Þorlákshöfn að vetri má flytja allt að 400 farþega í hverri ferð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.