Morgunblaðið - 09.10.2019, Side 11

Morgunblaðið - 09.10.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Við kynnum nýju varalitina Rouge Allure Ink Fusion – mattur, mjúkur varalitur sem helst lengi á vörunum. Sérfræðingur frá CHANEL tekur vel á móti þér og veitir þér faglega ráðgjöf Chanel kynning í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ 9.-11. OKTÓBER 20% afsláttur af CHANEL vörum kynningardagana Verið velkomin Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Í upphafi nýs vatnsárs Landsvirkj- unar eru öll miðlunarlón á hálend- inu full. Landsvirkjun er því í góðri stöðu til að tryggja orkuafhendingu til viðskiptavina sinna á komandi vatnsári, en ef innrennsli verður undir meðallagi í haust getur það haft áhrif á framboð orku frá fyrir- tækinu, segir í frétt á heimasíðu Landsvirkjunar. Það skiptir miklu fyrir fyrir- tækið að vatnsbúskapur sé góður. Skemmst er að minnast ársins 2014, þegar vatnsbúskapur var með verra móti og skammta þurfti orku. Tekjutap Landsvirkjunar vegna skerðinga á raforku hljóp á hundr- uðum milljóna króna. Nýtt vatnsár hefst hjá Lands- virkjun 1. október ár hvert, en um það leyti eru miðlanir yfirleitt í hæstu stöðu eftir vorleysingar, jöklabráð sumarsins og upphaf haustrigninga. Þegar haustrign- ingum lýkur og vetur gengur í garð er byrjað að nýta miðlunarforðann. Vatn frá miðlunum stendur undir um helmingi af orkuvinnslu Lands- virkjunar yfir veturinn og fram á vor. Innrennsli á nýliðnu vatnsári var kaflaskipt og í heild rétt í meðallagi, segir enn fremur í frétt- inni. Haustið 2018 var kalt og niðurdráttur hófst óvenju snemma. Við tók síðan mildur vetur, með hlýindaköflum. Staða lóna fyrir vorflóð var því góð. Vorflóðin komu í apríl, fyrr en venja er. Fylling lóna í sumar gekk síðan ágætlega framan af og fylltust Þórisvatn og Hálslón í byrjun ágúst. Þá tók við kaldur ágústmán- uður og innrennsli til miðlunarlóna dróst saman. Leit þá út fyrir að ekki næðist að fylla Blöndulón fyrir veturinn, en rigningar í september leiddu síðan til þess að Blöndulón fylltist 19. september. Þetta kom sér vel fyrir veiði- menn í Blöndu, sem losnuðu við að veiða í gruggugu vatni árinnar. Hægt er að fylgjast með vatns- hæð lóna daglega á vöktunarsíðu vefs Landsvirkjunar: www.lands- virkjun.is/rannsoknirogthroun/ voktun. Nýtt vatnsár hófst hjá Landsvirkjun 1. október og horfur með orkuafhendingu eru góðar Öll miðlunarlón á hálendinu full Ljósmynd/Landsvirkjun Tilkomumikið Þegar vatn rennur á yfirfalli í Hálslóni myndast fossinn Hverfandi við vestari enda Kárahnjúkastíflu.  Rennsli á nýliðnu vatnsári kaflaskipt Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta var ekkert mál, ég er vön að vinna hratt. Mér finnst rosa- lega gaman að gera þetta. Það tilheyrir haustinu að taka slátur,“ sagði Dóra Steindórsdóttir, sem bráðum verður 85 ára. Hún keypti 31 slátur á sláturmarkaði SS og Hagkaupa á fimmtudaginn var og vann úr þeim daginn eftir. Dóttir hennar, Steinunn Þorvaldsdóttir, var með henni og voru þær mæðgur um sjö klukkutíma að þessu smáræði sem Dóru fannst. Lifrar- pylsan fer á fjögur heimili og verður borðuð með góðri lyst í vetur. Dóra er fædd í Vestmannaeyjum og kennd við Hlíðardal þar sem hún ólst upp. Guðjón Jónsson, fósturfaðir hennar, var sjó- maður og líka með kindur sem var slátrað heima. Dóra kynntist því snemma sláturgerð. Hún lærði líka að reyta lunda og fýls- unga og sat við að reyta fýlinn frá morgni til kvölds á meðan fýlatíminn stóð yfir. Dóra kunni vel að meta saltaðan fýl. Hún giftist Þorvaldi Ingólfssyni og stofnuðu þau heimili í Vestmannaeyjum og eignuðust dæturnar Steinunni og Ingu Hrönn. Eftir eldgosið í Heimaey 1973 flutti fjölskyldan til Reykjavíkur. Þar vann Dóra lengi sem dagmóðir og á þeim ár- um tók hún 60-70 slátur á hverju hausti. „Ég er ekkert þreytt eftir sláturgerðina, þótt ég finni að ég er ekki alveg eins og þegar ég var ung,“ sagði Dóra. „Ég er nýhætt að nota vambir í keppina. Þetta er ekkert orðið í dag eftir að pokarnir komu og mörinn fæst brytjaður. Steina setti hræruna í pokana og svo var bara lokað fyrir með nælu.“ Lifrarpylsan sem Dóra býr til þykir einstaklega ljúffeng. En hvernig fer hún að? „Það er ekkert leyndarmál. Ég vigta allt. Er ekki svo klár að ég geti bara slumpað, eins og sagt var í gamla daga. Vil bara hafa mína uppskrift. Ég hræri ekki mikið í þessu en í gamla daga var blandað svo mikið til að fá meira út úr þessu.“ Það tilheyrir haust- inu að taka slátur  Dóra Steindórsdóttir er snögg að gera lifrarpylsu Ljósmynd/Bjarni Sveinsson Keypt inn Dóra gerir lifrarpylsu á hverju hausti. Hún segir að þetta sé ekkert mál nú til dags. Tíu lifrar 20 nýru eða ein aukalifur 2½ l mjólk 5 dl vatn 5 msk. kjötkraftur (pulver buljong) fæst í Hagkaupum 5 msk fínt salt 900 g haframjöl 1.750 g rúgmjöl 3 kg brytjaður mör Salt og kjötkraftur sett í kalt vatnið í potti, hitað og leyst upp. Lifur og nýru hökk- uð og hrærð saman. Mjólkinni bætt í hræruna og vatninu með kjötkraftinum og saltinu. Mjölinu bætt út í sitt á hvað og hrært vel. Síðast er mörnum bætt við. Þetta passar í um 30 poka. 450 g af hræru eru sett í hvern poka og lok- að með nælu. Gott er að nota stút til að fylla á pokana. Lifrarpylsan er soðin í 2½ klukkustund í vel söltu vatni. Lifrarpylsa Dóru

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.