Morgunblaðið - 09.10.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.10.2019, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eins ogmbl.isgreindi frá í gær batnaði eignastaða heimil- anna í landinu árið 2018 frá fyrra ári og hefur farið hratt batnandi á liðnum árum. Þetta skýrist að stórum hluta af hækkandi fasteignaverði enda eru fasteignir um þrír fjórðu hlutar eigna almennings. Þó hafa hlutföll annarra eigna auk- ist með sambærilegum hætti, sem er einnig jákvætt. Ánægjulegt er að batinn er mestur hjá ungu fólki, á aldr- inum 25 til 34 ára, og skiptir miklu að sá hópur sjái eigna- myndun en er nokkuð ólíkt því sem stundum mætti ætla af opinberri umræðu. Þá kemur fram í þessum töl- um, sem Hagstofan tekur sam- an, að eiginfjárstaðan batni óháð fjölskyldugerð. Eigin- fjárstaðan er því að batna hjá einstaklingum, hjónum án barna, hjónum með börn og ein- stæðum foreldrum. Ekki skiptir minna máli að fjölskyldum með neikvætt eigið fé í húsnæði fækkaði líkt og undanfarin ár. Þó eru enn rúm- lega þrjú þúsund fjölskyldur í þessari óþægilegu stöðu og brýnt er að áfram fækki í þeim hópi. Það neikvæða í tölunum er að þrátt fyrir eignamyndunina jukust skuldir á milli ára. Þetta er nokkuð sem fólk ætti í ljósi reynslunnar að vara sig á, en helst í hendur við hækkandi fast- eignaverð og eftir því sem hægir á þeirri hækkun verður vonandi tækifæri til að lækka skuldir. Stundum er því haldið fram að auðurinn safnist á færri hendur en þessar tölur gefa til kynna að svo er ekki. Þannig fer hlutfall þeirra sem mest eiga af heildareignum minnk- andi á milli ára, sem er enn ein vísbending þess að sá bati sem tölurnar sýna dreifist vel yfir þjóðfélagið og að almenningur í heild njóti batnandi eigna- stöðu. Í þeirri neikvæðu umræðu sem átti sér stað fyrir um ára- tug voru þeir líklega fáir sem trúðu því að staðan hefði batn- að svo mjög áratug síðar. Og í því sambandi er ástæða til að hafa í huga að ekki voru allar þjóðir í okkar heimshluta svo lánsamar að vinna sig hratt út úr skuldafeni, en þær þjóðir sátu og sitja fastar í feni yfir- þjóðlegrar myntar. Íslendingar eiga mikil og góð tækifæri til að vinna sig áfram hratt í rétta átt. Til að það náist þarf almenningur meðal annars að búa við sanngjarnt skatt- kerfi, til að eiga kost á að leggja fyrir í stað þess að greiða ofurskatta, auk þess sem leggja verður áherslu á að fólk geti keypt eigið húsnæði og þannig aukið áfram hreina eign sína. Almenningur hefur bætt eiginfjárstöðu sína verulega} Jákvæð eignamyndun VinstristjórnSamfylkingar og Vinstri grænna, sem sat frá árinu 2009 til ársins 2013 þegar kjósendur höfnuðu henni með afgerandi hætti, hækkaði flesta skatta og lagði á nýja. Einn þessara skatta var erfðafjárskattur, sem var flatur 5% skattur þeg- ar þessi alræmda stjórn tók við en tvöfaldaðist í tíð hennar og var 10% þegar hún hrökklaðist frá völdum. Þennan skatt hefði að sjálf- sögðu átt að færa niður í fyrra horf þegar stefnu vinstri- stjórnarinnar hafði verið hafn- að, en var ekki gert. Nú hefur fjármálaráðherra kynnt áform um frumvarp sem ætlað er að vinda að hluta til ofan af þess- ari skattahækkun, en gerir það því miður ekki að fullu og mun að auki flækja kerfið. Áformin ganga út á að taka upp þrepa- skipt erfðafjárskattkerfi, sem er í þeim anda sem núverandi ríkisstjórn starfar, að fjölga skattþrepum. Hugmyndin er að í stað þess að hafa eitt 10% þrep verði bætt við 5% þrepi fyrir fjár- hæðir sem eru undir 75 milljónum króna. Fyrirframgreiddur arf- ur verði áfram í hærra þrep- inu. Þessar hugmyndir eru fram- faraskref, þó að smátt sé, en vonandi er að skrefið verði stigið til fulls og skattþrepið verði eitt og ekki hærra en 5%. Athygli vekur að á sama tíma og fjármálaráðherra set- ur fram hugmyndir um að bæta við einu lægra þrepi stíga þingmenn Viðreisnar fram og kynna frumvarp um erfða- fjárskatt í þremur þrepum, 10%, 15% og 20%. Með þessu tekst þeim að ganga mun lengra í þá átt að flækja skatt- kerfið, auk þess að leggja til að skatthlutfallið verði hækkað verulega. Hvers vegna hafa þingmenn Viðreisnar svo mikinn áhuga á að taka sér stöðu vinstra megin við vinstristjórnina alræmdu? Ekki er ástæða til að flækja skattkerfið meira en orðið er} Erfðafjárskattur lækki L öngu er ljóst að skerðingar á bót- um almannatrygginga fara fram úr öllu hófi. Þetta fyrirkomulag, sem virðist gert af miklu hugviti, er í senn fallið til að meina eldra fólki að bæta hag sinn með aukinni vinnu í krafti eðlilegrar sjálfsbjargarviðleitni og að hvetja til svartrar atvinnustarfsemi. Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur birti í sumar grein um efnið þar sem niðurstaða hans er að samanlögð skerðing og skattlagning tekna á tekjubilinu 25 þús. til 570 þús. króna nemi 93,8%. Öllum má ljóst vera að þetta hlutfall nær engri átt og rifjar upp alræmt 95% skatt- hlutfall í Bretlandi á sínum tíma sem sætti gagnrýni sem vakti heimsathygli. Engum þjóðfélagshópi öðrum yrði gert að þola svo hörð kjör sem hér er boðið upp á. Sé einstaklingur með atvinnutekjur hefjast skerðingar bóta almannatrygginga við krónur 100 þús. á mánuði. Þessi tala er allt of naumlega skömmtuð. Gjalda ber var- hug við aðgerðum sem vinna gegn sjálfsagðri sjálfs- bjargarviðleitni fólks til að bæta hag sinn. Vel er þekkt að málið snýr að lýðheilsu og félagslegum þáttum þar sem fólki gefst kostur á virkri þátttöku í atvinnulífi og samfélagi. Af hálfu fjármálaráðuneytis hefur verið haldið fram að kostnaður ríkissjóðs við að slaka á klónni í þessu efni sé milljarðar króna. Þær fullyrðingar styðjast ekki við gildan rökstuðning. Fyrir liggur skýrsla dr. Hauks Arnþórssonar um fjárhagslega stöðu aldraðra unnin fyrir Félag eldri borgara dagsett í nóvember 2017 þar sem ítarlega er rökstutt að kostn- aður ríkissjóðs af því að fella brott þetta 100 þúsund króna viðmið sé ekki svo mikið sem króna. Þeir þættir sem skýrsluhöfundur dregur fram eru tekjuskattur af auknum vinnu- tekjum og veltugjöld, virðisaukaskattur og vörugjöld, auk samfélagslegra áhrifa. Ekki hafa verið bornar brigður á útreikninga Hauks. Miðflokkurinn leggur áherslu á að fast verði tekið á skerðingum bóta eins og hér hef- ur verið rakið. Þessar skerðingar hafa grafið undan tiltrú á lífeyriskerfinu og skilja aldrað láglaunafólk eftir jafnsett og fólk sem ekkert hefur greitt í lífeyrissjóð á starfsaldri. Þá vill Miðflokkurinn að öldruðum sé gert kleift að búa á heimilum sínum sem lengst. Til þess þarf að efla heimaþjónustu við aldraða. Jafnframt þurfa að vera fyrir hendi viðunandi húsnæðisúrræði þegar slíks er ekki lengur kostur þrátt fyrir stuðning heima fyrir. Miðflokkurinn telur brýnt að gangast fyrir átaki til að reisa hjúkrunarheimili fyrir aldraða sem mæti þeirri þörf sem fyrir hendi er á hverjum tíma, m.a. með breyt- ingum á lögum um Framkvæmdasjóð aldraðra. Aldraðir sem skilað hafa ævistarfi sínu eiga skilið að búa við góð kjör og öryggi. olafurisl@althingi.is Ólafur Ísleifsson Pistill Brýnt afnám óhæfilegra skerðinga Höfundur er alþingismaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Stjórnvöld eru skuldbundin tilað uppfylla afkomuregluna,en hún segir til um að yfirfimm ára tímabil skuli af- koma hins opinbera ávallt vera já- kvæð og árlegur rekstrarhalli má ekki vera yfir 2,5% af VLF. Verði samdráttur meiri en 1% á árinu 2020 er hætta á að afkomureglan verði brotin og grípa þurfi til neyðar- ráðstafana. Er þetta meðal þess sem fram kemur í umsögn Samtaka atvinnu- lífsins (SA) um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2020. Óskað var eftir 34 umsögnum um frumvarpið og hafa alls 13 erindi borist. Eru þau að- gengileg á heimasíðu Alþingis. Samtök atvinnulífsins benda á að aukin óvissa ríki um stöðu efna- hagsmála og búast megi við að áhrif samdráttar í flugiðnaði muni vara fram á árið 2020. „Efnahags- forsendur frumvarpsins gera ráð fyrir að hagvöxtur á næsta ári verði 2,6%. Það er mikil bjartsýni að gera ráð fyrir að hagkerfið taki strax svo fljótt við sér þegar enn mælist veru- legur samdráttur í komum ferða- manna til landsins og óljóst er hversu mikil áhrifin muni verða á hagkerfið og í hve langan tíma þau munu vara,“ segir í umsögn SA. Þótt ekki sé æskilegt að ráðast í mikinn niðurskurð í núverandi ár- ferði segir SA það blasa við að eftir mikinn útgjaldavöxt sl. ára séu víða tækifæri til úrbóta. „Í ljósi þessa eru það vonbrigði að í fjármálafrumvarpi næsta árs er aðhaldskrafa í rekstri ekki nema ríflega fjórir milljarðar króna. Heildarútgjöld ríkisins aukast um 73 milljarða króna milli ára og er heildarumfang ríkisins yfir 1.000 milljarðar króna,“ segir SA. Rekstrarfé ófullnægjandi Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segist fagna því að fjármagn sé veitt til að hraða uppbyggingu á nýjum Landspítala en lýsir „verulegum áhyggjum“ af því að rekstrarfé til sjúkrahússins sé ófullnægjandi. „Fyrir liggur að rekstur sjúkra- húsþjónustunnar er nú þegar þung- ur á mörgum sviðum, mönnun ófull- nægjandi og biðlistar óhóflegir. Við það bætist að grípa þarf til viða- mikilla aðhaldsaðgerða til að halda rekstri innan fjárheimilda. Ljóst er að miðað við umfang og eðli starf- semi sjúkrahússins er sá rekstr- argrunnur sem honum er ætlað að starfa innan of þröngur,“ segir í um- sögn ASÍ, en alþjóðlegur saman- burður á fjármögnun heilbrigðis- þjónustu og samanburður á rekstri sambærilegra stofnana erlendis hef- ur staðfest þetta. „Óbreytt staða mun fyrr eða síðar hafa alvarleg áhrif á sjúklinga og starfsfólk í heilbrigðisþjónustu. Stjórnvöldum ber að svara ítrekuðu ákalli þjóðarinnar um fullnægjandi fjármögnun heilbrigðisþjónust- unnar,“ segir ASÍ enn fremur. Í umsögn Reykjavíkurborgar er bent á að veruleg og vaxandi vanfjár- mögnun hafi verið á stórum verk- efnum á borð við rekstur grunnskóla og þjónustu við fatlað fólk. „Þessi verkefni áttu að vera full- fjármögnuð. Það þarf að taka fyrir það að ríkið með lagasetningu, reglu- gerðum eða öðrum stjórnvaldsfyr- irmælum taki ákvarðanir sem skylda sveitarfélög til að veita ákveðna þjónustu án þess að þeim sé tryggð full fjármögnun á auknum verk- efnum sbr. lögum um opinber fjár- mál. Framkvæmd ríkisins á þessum skýru lagaákvæðum hefur ekki verið í samræmi við lagaskyldur,“ segir í umsögn borgarinnar. Þá er þar bent á að forsendur frumvarpsins byggist á spá sem er „talsvert bjartsýnni“ en spár annarra. Aukin óvissa ríkir um stöðu efnahagsmála Morgunblaði/Arnþór Birkisson Mannlíf Nokkrar umsagnir hafa borist um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar fyrir árið 2020. Nálgast má frumvarpið og umsagnir á síðu Alþingis. BSRB segir í umsögn sinni stefnu stjórnvalda eiga að endurspegla mikilvægi upp- byggingar velferðarþjónust- unnar í stað þess að draga úr getu hennar til að veita þjón- ustu. „BSRB lýsir yfir vonbrigðum með að forsendur frumvarpsins byggist á kaupmáttarrýrnun launa ríkisstarfsmanna og niðurskurði til mikilvægra mála- flokka sem mun valda meira álagi á starfsfólk sem starfar nú þegar undir of miklu álagi og grafa undan þjónustunni. At- gervisflótti og veikindi starfs- manna í almannaþjónustu vegna skipulags og aðbúnaðar á vinnustað er kostnaðarsamur og tímabært að stjórnvöld grípi til aðgerða. Skilaboðin sem fjár- lagafrumvarpið sendir inn í yfir- standandi kjaraviðræður eru ekki til þess fallin að vekja von um að ríkið sem atvinnurekandi hafi skilning á brýnni nauðsyn bættra kjara,“ segir þar. Lýsa yfir vonbrigðum UMSÖGN BSRB

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.