Morgunblaðið - 09.10.2019, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 09.10.2019, Qupperneq 17
Jón Baldvin Hannibalsson, var ritstjóri Alþýðublaðsins um skeið hafði Haraldur orð á því við mig að í því blaði birtust beztu leiðarar í íslenzkum blöðum þá stundina. Mér þótti vænt um þessi um- mæli hans um mína gömlu vini, sem ekki voru algeng í okkar her- búðum í þá daga. Það var mikil gæfa í mínu lífi að hafa Harald Sveinsson og með- eigendur hans að vinnuveitendum mestan hluta ævinnar. Styrmir Gunnarsson. Kveðja frá Blaðamannafélagi Íslands Fallinn er frá í hárri elli Har- aldur Sveinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Morgunblaðs- ins og formaður stjórnar Árvak- urs, útgáfufélags þess, um ára- tugaskeið. Þegar ég hóf störf á Morgun- blaðinu snemma á níunda ára- tugnum var Haraldur fram- kvæmdastjóri þar og var það lengst af því tímabili sem ég starf- aði þar, sem spannaði aldarfjórð- ung þegar upp var staðið. Í mín- um huga var Haraldur fyrirmynd atvinnuveitenda og hvernig á að nálgast það vandasama hlutverk. Morgunblaðið á þessum tíma var einstakur vinnustaður og ég hef ekki hitt gamlan vinnufélaga, sama úr hvaða starfsgrein, sem ekki er sama sinnis. Haraldur átti ekki lítinn þátt í því. Orðum hans mátti treysta fullkomlega. Maður upplifði sannan liðsanda sem starfsmaður á Morgunblaðinu og hafði það á tilfinningunni að vera hluti af heild og að ef eitthvað bjátaði á myndi vinnustaðurinn standa með manni. Eftir höfðinu dansa limirnir. Þar til viðbótar upplifði ég það aldrei þannig að Morgunblaðið væri rekið í hagn- aðarskyni fyrst og fremst, svo einkennilega sem það kann að hljóma í eyrum nútímans. Metn- aðurinn fyrir Morgunblaðinu og hlutverki þess í íslensku sam- félagi var alltaf í forgrunni, þó það sé auðvitað grunnforsenda alls rekstrar að tekjur séu umfram gjöld. Sannkölluð forréttindi að hafa fengið að starfa á Morgun- blaðinu á þessu tímabili. Ég hygg að þegar Morgunblað- ið var fyrirferðarmest á íslenskum fjölmiðlamarkaði hafi um þriðjung- ur fastráðinna félaga í Blaða- mannafélagi Íslands starfað þar. Eðlilega var oft tekist á um kaup og kjör, en þegar ég kom að því borði var Haraldur ekki lengur í forystu fyrir samninganefnd Fé- lags íslenskra prentiðnaðarins. Gamlir samninganefndarmenn Blaðamannafélagsins segja mér hins vegar að hann hafi verið ein- staklega réttsýnn og viðræðugóð- ur, þó hann héldi fram sínum mál- stað af einurð. Ég kynntist honum hins vegar í stjórn Lífeyrissjóðs blaðamanna, þar sem hann var for- maður um áratugaskeið. Ég held að Haraldur hafi litið þannig á að það væri ein af skyldum vinnuveit- enda að tryggja starfsmönnum sínum framfærslu eftir að starfs- deginum lyki. Í stjórn lífeyrissjóðs- ins var starfsandinn einstaklega góður. Þar höfðu allir það sameig- inlega markmið að tryggja ávöxt- un lífeyrissjóðsins sem best með sem minnstri áhættu og aldrei kom til umræðu að stjórnarlaun væru greidd fyrir starfið þar. Fólk sem sóttist eftir trúnaðarstörfum átti að gera það vegna áhuga á málefn- inu og ekki hafa af því persónu- legan ávinning. Reyndin var svo sú að þegar Lífeyrissjóður blaða- manna sameinaðist Lífeyrissjóði verslunarmanna um aldamótin 2000 vegna ákvæða laga um lág- marksstærð lífeyrissjóða, var hægt að auka réttindi sjóðfélaga um fjórðung vegna sterkrar eigna- stöðu sjóðsins. Að leiðarlokum þakkar Blaða- mannafélag Íslands Haraldi fyrir samfylgdina um áratugaskeið og biður fjölskyldu hans Guðs bless- unar. Hjálmar Jónsson, formaður BÍ. MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019 ✝ Svava Eiríks-dóttir fæddist á Helgastöðum í Biskupstungum 28. nóvember 1943. Hún lést á sjúkra- húsi Heilbrigðis- stofnunar Suður- lands 28. septem- ber 2019. Foreldrar Svövu voru þau Ei- ríkur Jónsson bóndi og Ólafía Guð- mundsdóttir húsfreyja. Svava var yngst í röð fjögurra systkina sinna, en þau hétu Guðný Erla Eiríksdóttir, Gísli Eiríksson og Jóna María Eiríksdóttir og eru þau öll látin. Eftirlifandi eigin- maður Svövu er Örn Guðmunds- son og giftu þau sig í Dóm- kirkjunni árið 1981 og eiga þau saman eina dóttur, Berglindi Evu Arnardóttur. Fyrir átti Svava tvö börn, þau Guðmund Egil Sigurðsson og Ólafíu Eyrúnu Sigurðardóttur. Örn á fjögur fyrir og heita þau Hörður Arnarson, Geir Arnarson, Sig- urgeir Arnarson og Þórlaug Svava Arnardóttir. Barna- börnin eru 11 talsins og barna- barnabörnin eru sjö. Svava útskrifaðist sem sjúkra- liði árið 1976 og vann við það alla tíð. Árið 1984 fluttu þau til Hveragerðis og bjuggu þar öll sín ár. Útförin fer fram í Hvera- gerðiskirkju í dag, 9. október 2019, klukkan 14. Ekki sofna á undan mér, mamma … Þetta sagði ég alltaf við þig þegar þú varst að svæfa mig þegar ég var lítil. Núna ertu sofnuð á undan mér, elsku mamma mín, svo fljótt og svo snemma. Ég hef stundum hugsað um það hvernig lífið væri án þín og pabba og hefur það verið óbærileg til- hugsun sem ég hef ýtt frá mér. Í meira en 42 ár hef ég séð þig eða heyrt í þér nánast á hverjum degi og þannig vildi ég hafa það alltaf. Ég er ekki búin að átta mig á því að þú sért farin frá okkur, elsku mamma. Ég heyri ennþá í þér og finn enn fyrir þér. Mér finnst eins og þú sért bara heima hjá pabba og ég sjái þig á eftir. Við áttum eft- ir að spjalla smá og hlæja smá og ég átti aðeins eftir að hitta þig en ég verð að geyma það þangað til seinna. Mig dreymdi þig í vikunni. Þú lást í sjúkrarúminu með sæng- ina yfir þér og brostir. Það var eins og þér liði vel og þannig ætla ég að túlka drauminn. Ég vona og veit að þú ert búin að hitta Jónu, ömmu og afa og fleiri sem þér þótti svo vænt um. Það hefur ald- eilis verið tekið vel á móti þér eins og þú tókst vel á móti öllum hér hjá okkur. Elsku yndislega mamma mín. Alltaf varstu glöð, alltaf jákvæð og alltaf sterk. Óvin- urinn sem sigraði þig núna hefur tapað fyrir þér áður. Þú varst æðrulaus og tókst hlutunum eins og þeir voru og aldrei vildirðu láta hafa fyrir þér. Þegar ég horfi til baka átta ég mig á því að þú ert mín stærsta fyrirmynd. Elsku mamma mín. Ég veit ekki hvernig lífið verður án þín en ég er svo heppin og þakklát fyrir pabba og allt yndislega fólkið mitt í kringum mig. Alltaf hafið þið pabbi verið mín hjálp, mín ró og mitt skjól. Elsku mamma. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og gefið mér í lífinu en mest af öllu takk fyrir að vera þú. Góða nótt, elsku mamma. Ég sé þig þegar ég sofna. Elska þig alltaf og geymi fallegar minningar um þig í hjarta mínu. Við skulum ímynda okkur að við stöndum í flæðarmálinu um sumarkvöld og horfum á fallegt fley sem býr sig undir að sigla úr vör. Seglin eru dregin upp. Seglin þenjast í kvöldgolunni og fleyið lætur úr höfn út á opið hafið. Við fylgjum því eftir með augunum þar til það siglir inn í sólarlagið. Það verður æ minna og að lokum hverfur það eins og lítill depill við sjóndeildarhringinn. Þá heyrum við sagt við hlið okkar: „Nú er það farið?“ Farið og hvað tekur við? Það að það minnki og hverfi að lokum er í rauninni bara það sem augu okkar sjá. Í raun og veru er það jafn stórt og fallegt og þegar það lá við ströndina. Á sama augnabliki og við heyrum röddina segja að það sé farið er ef til vill einhver á annarri strönd sem horf- ir á það birtast við sjóndeildar- hringinn, einhver sem bíður eftir að fá að taka á móti einmitt þessu fleyi þegar það nær nýrri höfn. Góða ferð, mamma. Berglind Eva Arnardóttir. Elsku yndislega amma mín. Ég trúi því varla að þú sért farin frá okkur, það er svo ósanngjarnt. Mér líður eins og það vanti brot í hjartað mitt þegar þú ert ekki lengur hérna hjá okkur. Þú varst ein af bestu konunum í mínu lífi og varst alltaf til staðar fyrir mig og alla í fjölskyldunni. Mér er það minnisstætt þegar ég kom heim til þín fyrir ekki svo löngu, þú hrósaðir mér aftur og aftur fyrir það hversu fín ég var og sagðir að ég ætti að segja mömmu minni hvað ég væri falleg í dag. Það er ekki til betri lýsing á þér en einmitt þessi stund, þú varst alltaf svo góð. Það var alltaf svo ynd- islegt að koma til þín og ég hlakk- aði alltaf til þess. Þú varst með svo góða nærveru og öllum leið vel í kringum þig. Þú þakkaðir mér alltaf fyrir það að koma til þín og varst alltaf svo glöð þegar ég kom og mér leið alltaf svo vel eftir að hafa komið, jafnvel þó það hafi bara verið í nokkrar mínútur, af því þú varst alltaf svo áhugasöm um allt sem ég var að segja þér og það gaf mér svo mikið. Ég mun sakna þess svo að geta ekki komið til þín hvenær sem er og bara spjallað við þig um allt og ekkert. Þessar minningar gera svo mikið fyrir mig núna og mun ég minnast þeirra að eilífu og hugsa um hversu falleg og ynd- isleg þú varst. Ég sakna þín mikið og þetta eru búnir að vera ótrú- lega furðulegir dagar án þín og er ég alltaf á leiðinni til þín. Samt sem áður er efst í huga hjá mér þakklæti. Ég er þakklát fyrir allan þann tíma sem ég fékk með þér og ég ætla að hugsa um þær minn- ingar sem við bjuggum til saman á hverjum degi. Þín Fanney Sara. Það er erfitt og óraunverulegt að elsku yndislega móðursystir okkar sé ekki lengur á meðal okk- ar. Fyrir nokkrum dögum hitt- umst við móðurfjölskyldan og átt- um dýrmæta stund saman. Þrátt fyrir erfið veikindi lét Svava það ekki stoppa sig að koma. Við syst- ur minnumst þess og yljum okkur við allar fjölmörgu minningarnar sem við eigum um Svövu. Hlátur og gleði kemur upp í hugann. Svava var með eindæmum glettin og gat alltaf séð spaugilegar hliðar á grafalvarlegum málum. Hlátur hennar og mömmu okkar munu lifa í hjörtum okkar. Þær systur voru mjög nánar. Nú munu þær hvíla hlið við hlið á Kotströnd. Það veitir huggun. Við varðveitum all- ar góðu minningarnar um yndis- legu frænku okkar og kveðjum hana með þessum fáu orðum. Elsku Örn, Egill, Eyrún, Eva og fjölskyldur, við systur sendum okkar einlægustu samúðar- kveðjur. Hrönn, Hrafnhildur, Heiðrún og fjölskyldur. Svava Eiríksdóttir  Fleiri minningargreinar um Svavu Eiríksdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Katrín Guð-mundsdóttir fæddist 19. maí 1921 í Selinu í Skaftafelli í Öræfa- sveit. Hún lést 24. september 2019 á Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík. Foreldrar Katrínar voru Guð- mundur Bjarnason, f. 1888, d. 1981, og Sigríður Gísladóttir, f. 1897, d. 1979. Systur hennar voru: Þur- íður Elín, f. 1917, d. 1959, Ragna Sigrún, f. 1927, d. 2011, og Theo- dóra, f. 1929, sem er enn á lífi og var gift Ragnari Ólafssyni, f. 1927, d. 2018. Katrín giftist 26. maí 1945 Ragnari Kjartanssyni leirlista- manni og myndhöggvara, f. 17.8. 1923, d. 26.10. 1988. Börn þeirra eru: 1) Kjartan, f. 18.9. 1945, kvæntur Sigríði Margréti Guð- mundsdóttur, f. 6.9. 1950, fv. eiginkona Guðrún Ásmunds- dóttir, f. 19.11. 1935, sonur þeirra er Ragnar, f. 3.2. 1976. Hann er kvæntur Ingibjörgu Sigurjónsdóttur, f. 9.10. 1985, dóttir þeirra er Sigurvina Zíta, f. 18.4. 2018. Dóttir Ragnars af fyrra hjónabandi er Sólveig f. 15.10. 2018. Dóttir Marteins af fyrra hjónabandi er Sigurlaug, f. 16.12. 2007. Sonur Ásgerðar úr fyrri sambúð: Kári Júlíus, f. 5.10. 2008. c) Birna Katrín, f. 18.4. 1986, sambýlismaður Guðni Her- mannsson, f. 13.8. 1988. 4) Inga Sigríður, f. 16.4. 1955, gift Stefan Klar, f. 24.8. 1953. Dætur þeirra eru: a) Katrín Agnes, f. 18.10. 1985, gift Lúkasi Kindermann, f. 20.8. 1984, börn: Elías Ragnar, f. 31.10. 2015, og Lilja Inga, f. 11.1. 2019, og b) El- ín Kristín, f. 20.5. 1988. Katrín ólst upp í Selinu í Skaftafelli. Hún hóf nám 15 ára í Verzlunarskóla Íslands en fór öll sumur heim þar til fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur árið 1939. Þá fékk hún nýútskrifuð starf í Útvegsbankanum. Katrín gerð- ist húsmóðir 1946 en hóf aftur störf árið 1965 og varð þá fljót- lega bankafulltrúi í innheimtu- deild bankans. Hún fór á eft- irlaun í bankanum 1991 sem þá var orðinn að Íslandsbanka. Síð- an vann hún um tíma lausráðin í Listasafni ASÍ. Hún söng í Skaftfellingakórnum og Kór eldri borgara og var einn af stofnfélögum Handprjónasam- bandsins. Árið 1940 fluttist Katrín í fjölskylduhúsið á Ljós- vallagötu 32 og bjó þar til 2017 þegar hún fluttist á Dvalarheim- ilið Grund. Útför Katrínar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 9. október 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Katrín, f. 9.8. 2010. Börn Guðrúnar af fyrra hjónabandi eru Sigrún Edda Björnsdóttir, f. 30.8. 1958, og Leif- ur Björn Björnsson, f. 28.10. 1966. Synir Sigríðar af fyrra hjónabandi eru: a) Svavar Orri, f. 8.3. 1979, dóttir hans er Hayley Barry, f. 4.7. 1997, og b) Guðmundur Karl, f. 17.3. 1982, sonur hans er Nökkvi Leó, f. 16.8. 2015. 2) Guðmundur Örn, f. 26.11. 1946, kvæntur Jónínu Láru Ein- arsdóttur, f. 1.3. 1947, synir þeirra eru: Bjartmar Orri, f. 25.11. 1969, Brynjar Frosti, f. 2.12. 1971, og Jökull Tandri, f. 15.6. 1981, d. 26.9. 2009. 3) Hörður, f. 20.11. 1951, kvæntur Jónínu Sigurlaugu Marteinsdóttur, f. 26.8. 1952. Börn þeirra eru: a) Tryggvi Freyr, f. 3.12. 1973, kvæntur El- ínu Þórarinsdóttur, f. 28.11. 1973; synir þeirra: Þórarinn Búi, f. 11.6. 2003, og Ari Freyr, f. 9.11. 2012, b) Marteinn Þór, f. 20.6. 1979. Sambýliskona: Ás- gerður Júlíusdóttir, f. 29.12. 1981; barn þeirra: Arney Myrra, Það er með miklum söknuði sem ég kveð mína ástkæru tengdamóður Katrínu, eða Dystu eins og við kölluðum hana. Allt frá því hún kom fyrst inn í líf mitt árið 1991 hef ég skynjað einhvern óútskýrðan styrk frá henni, jafn- lyndi, hlýju og svo fallega nær- veru. Hún bar einhvern veginn með sér æðruleysi þeirra sem bú- ið hafa í skjóli jökla, stórfljóta og ósnortinnar náttúru. Stórbrotin fegurð Öræfanna speglaðist í henni. Ég var ekki búin að þekkja Kjartan lengi þegar ég fann hvað hann bar mikla virðingu fyrir konum, ekki bara í orði, líka á borði – og ég þurfti ekki að hitta hana tengdamömmu mína oft til að vita af hverju það var. Hann átti þessa frábæru mömmu sem var honum fyrirmynd og hann bar svo takmarkalausa virðingu fyrir. Hann hafði líka mikla ástæðu til. Hún hafði svo ótal oft sýnt ótrúlega seiglu á erfiðum tímum. Ung kona með fjögur börn veiktist hún af lömunarveiki sem lagði hana í rúmið, en fyrir óbilandi hörku við sjálfa sig, píndi hún sig fram úr, dreif sig áfram og náði fullum bata. Ekkert vol eða væl á þeim bæ. Eftir að hún hætti að vinna sat hún löngum við að prjóna. Og það var þá sem hún kom heim til okk- ar á hverjum degi og var til stað- ar þegar strákarnir mínir komu úr skólanum. Gaf sér tíma til að spjalla og hita kakó. Fyrir það er ég ævinlega þakklát. Svona var hún, alltaf boðin og búin að hjálpa. Meira að segja að passa kisuna okkar hana Lísu, þó hún væri ekkert sérstaklega hrifin af köttum, enda engir kettir í Öræf- unum í hennar æsku. En Lísa elskaði Dystu og færði henni iðu- lega mús í þakklætisskyni. Sem Dysta kunni því miður ekki vel að meta. Samt urðu þær góðar vin- konur. Svo var það eitt árið að hún var alltaf að tala um við okkur að sig langaði í sumarbústað. Vildi að við Kjartan keyptum hann með henni og fékk okkur með sér að skoða. En við höfðum engan áhuga. Svo er það einn dag að hún segir galvösk með glampa í augum: „Ég er búin að kaupa sumarbústað og ég greiddi hann út í hönd.“ Allir ráku upp stór augu og spurðu: „Hvaðan fékkst þú peninga fyrir því?“ – „Nú þetta eru lopapeysupeningarnir mínir,“ sagði hún og brosti sínu kankvísa brosi. Svona gat hún líka verið fylgin sér. Og það eru margar ánægjustundir sem fjöl- skyldan hefur átt í þessum fal- lega reit við Þingvallavatn. Þegar við Kjartan komum heim frá ársdvöl erlendis 1997 fengum við að vita að Dysta ætti orðið náinn vin, Hjálmar Kjart- ansson sem var æskuvinur Ragnars Kjartanssonar, eigin- manns hennar. Fjölskyldurnar höfðu fylgst að í gegnum lífið. Þau voru bæði löngu orðin ein og þegar Dysta eignaðist sumar- bústaðinn fékk hún Hjálmar til að hjálpa sér við að dytta að einu og öðru. Þetta leiddi til þess að þau urðu nánir vinir og samferðafólk. Þegar Hjálmar var kominn á Grund leið ekki sá dagur að Dysta kæmi ekki til hans. Hjálmar lést árið 2007. Þar sem ég sit hér og læt hugann reika til baka streyma minningarnar að – svo ljúfar og fallegar og ég fyllist þakklæti fyrir þá gæfu að hafa eignast þessa einstöku tengdamóður. Hvíl í friði, elsku Dysta. Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Elsku amma, andleg nánd er ekki endilega háð staðsetningu. Þú varst okkur svo góður vinur sem við áttum að jafnvel þó að Atlantshafið skildi okkur oft að. Þegar við vorum á landinu vorum við svo heppnar að fá að búa hjá þér og svo heimsóttir þú okkur alltaf til Þýskalands á meðan heilsan leyfði. Þegar við urðum eldri fluttum við til Ís- lands, í nám eða vinnu hvor um sig og þá bjuggum við hjá þér og var sambúðin með þér ein- staklega verðmæt. Við spjölluð- um heilu kvöldin um heima og geima og alltaf var það svo skemmtilegt og gefandi. „Kósí- +kvöld“ heima með ömmu voru ekki sjaldan tekin fram yfir það að fara út að skemmta sér. Það var hægt að treysta þér fyrir öllu sem okkur lá á hjarta því við vissum að það færi ekki lengra og þú dæmdir aldrei. Þú varst alltaf svo áhugasöm um allt sem okkur öllum barna- börnunum þínum viðkom. Gladdist með okkur á góðum tímum og tókst þátt í þeim erf- iðu. Við erum svo þakklátar að þú naust þess virkilega núna undir lokin að vera með lang- ömmubörnunum þínum og að þau náðu að kynnast þér svona vel. Alltaf fylgdist þú með öllu hvort sem það voru stjórnmál eða það sem var að gerast á menningarsviðinu. Dæmi um hvað þú varst alltaf með á nót- unum og ótrúlega opin er hvað þú hafðir mikinn áhuga á því hvaða „pop-tónlist“ væri að koma út fyrir jólin og stundum sátum við saman, hlustuðum og ræddum hana. Svo valdir þú ákveðna tónlist fyrir okkur barnabörnin hvert og eitt, allt frá raftónlist til þungarokks, töffarinn sem þú varst. Meira að segja hikaðir þú ekki við að læra á skype og að senda sms, tæp- lega 90 ára að aldri. Það er svo mikil gæfa að fá að hafa kynnst hálfri Íslandssög- unni í gegnum þig því þú hopp- aðir eiginlega frá söguöld úr torfbæ og komst á hestum frá Skaftafelli yfir jökla og jökulár til Reykjavíkur í nútímann. Sem stuðningsmaður afa Ragnars í myndlistinni um miðja síðustu öld umgekkst þú alla helstu framúrstefnulistamenn landsins og varst með þína flottu afstöðu sem einkenndist af opnu hjarta og fordómaleysi. Fannst það sjálfsagt að vökva verk úr súkkulaði sem Dieter Roth gaf þér með súrmjólk einu sinni í viku sem þú hættir nú reyndar að gera þegar myglulyktin var orðin of ágeng í stofunni. Það var svo margt sem þú hafðir upplifað á þinni löngu ævi, minnið var ótrúlegt en þú varst aldrei margmál. Þú bjóst yfir visku þess sem lifað hefur nærri heila öld en varst um leið spaugsöm, opin og víðsýn. Svo skemmtileg til hinstu stundar. Þú varst sterk eins og klettur, hlý, lítillát og á sama tíma yfirvegaður höfðingi fjölskyldunnar með reisn í sinni fallegustu mynd. Þú ert okkur fyrirmynd, ein- stök kona sem þú varst. Við vissum að einn daginn myndum við þurfa að kveðja þig, elsku amma okkar. Nú eigum við eftir að sakna þín sárt. En umfram allt erum við óendan- lega þakklátar að hafa átt þig að og fyrir að hafa fengið að hafa þig svona lengi hjá okkur. Þínar elskandi, Elín Kristín og Katrín Agnes. Katrín Guðmundsdóttir  Fleiri minningargreinar um Katrínu Guðmunds- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.