Morgunblaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019
✝ Ingibjörg Stef-anía Eiðsdóttir
fæddist í Hörgsholti
í Miklaholtshreppi
5. ágúst 1927. Hún
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
í Fossvogi 29.
september 2019.
Foreldrar Ingi-
bjargar voru Anna
Björnsdóttir frá
Brekku í Seylu-
hreppi í Skagafirði, f. 23. feb.
1903, d. 13. okt. 2000, og Eiður
Sigurðsson frá Vilmundarstöðum
í Reykholtsdal, f. 27. júní 1893, d.
28. nóv. 1963.
Systkini hennar voru Guðrún
Hallfríður, f. 24.7. 1924, d. 14.7.
2014, Björn Andrés, f. 13.7. 1925,
d. 7.10. 2011, Sigrún, f. 13.9. 1933,
d. 14.6. 1972, Sigurður, f. 19.12.
1936, d. 15.1. 2019, Sveinn Magn-
ús, f. 28.1. 1942, d. 19.7. 2001.
Ingibjörg giftist Guðmundi
Ingimundarsyni, f. 9. mars 1927,
þann 16. maí 1948. Börn þeirra
eru Margrét Helga, f. 28. október
1948, og Pálmi, f. 18. maí 1959.
Margrét er gift Jóhannesi Ell-
ertssyni, f. 1941. Börn þeirra eru:
1) Ingibjörg, f. 1971, gift Hirti
Friðriki Hjartarsyni. Synir þeirra
eru: Sveinn Hjörtur, Jóhannes
Ernir og Guðmundur Logi. 2)
Guðmundur Ellert, f. 1976,
kvæntur Þorgerði
Tómasdóttur. Synir
þeirra eru: Gunnar
Þór, Haukur Ingi og
Ellert Helgi. 3)
Katrín, f. 1983. Frá
fyrra hjónabandi á
Jóhannes tvær dæt-
ur: 1) Margréti, f.
1964. ) Hólmfríði, f.
1969. Sonur hennar
er Jökull Kristins-
son.
Pálmi er kvæntur Elínu Magn-
úsdóttur, f. 1956. Börn þeirra
eru: 1) Guðmundur Birkir, f.
1980. Börn hans og Rakelar
Mánadóttur eru: Lilja Marín,
Máni Hrafn og Pálmi. 2) Hlynur,
f. 1984, sambýliskona hans er
Hildur Ýr Ómarsdóttir. Börn
þeirra eru: Ída Mekkín, Grímur
og Þorgils. 3) Ingibjörg Lilja, f.
1988. Synir hennar eru: Sigurður
Pálmi og Hlynur Darri. Frá fyrra
hjónabandi á Elín tvö börn: 1)
Bjarki Már Jóhannsson, f. 1973,
kvæntur Erlu Dögg Ásgeirs-
dóttur. Börn þeirra eru Arnór
Orri, Anna Rakel og Atli Már. 2)
Íris Heiður Jóhannsdóttir, f.
1976, gift Óskari Arasyni. Börn
þeirra eru Dagmar Lilja, Elín
Ósk og Ari Jökull.
Útförin fer fram frá Borgar-
neskirkju í dag, 9. október 2019,
klukkan 14.
Hvernig kveður maður ömmu
sína, sem alltaf hefur átt risastórt
pláss í hjarta mínu? Að fá ekki fleiri
faðmlög, fleiri símtöl, fleiri ráðlegg-
ingar um allt milli himins og jarðar
og fleiri kókoslagtertur, já, það er
svo margs að sakna. En minning-
arnar eru dýrmætar og svo ótal
margar sem ég ylja mér við og segi
drengjunum mínum frá.
Ég átti því láni að fagna að alast
upp í Borgarnesi, þar sem stutt
var að skottast til ömmu og afa.
Þar stóðu mér dyrnar ávallt opnar
og hlýr faðmurinn, fullur af ást og
umhyggju, alla tíð.
Amma var mögnuð kona á svo
margan hátt. Dugnaður og elju-
semi einkenndu hana. Hún vissi
hvað hún ætlaði sér og lét ekkert
stoppa sig. Hún kláraði það sem
hún byrjaði á og gafst ekki upp
fyrr en verkefnið var leyst.
Hún var hagsýn húsmóðir og
kunni að gera mikið úr litlu. Hún
var mikill kokkur og bakaði bestu
kökur í heimi, sem margir minn-
ast.
Það var alltaf gestkvæmt hjá
ömmu og afa og borðin alltaf full af
kræsingum, allt heimabakað og
nóg til handa öllum. Enda tvær
stórar frystikistur fullar af góð-
gæti í eldhúsinu.
„Vinnan er lífið,“ sagði hún oft,
enda hafði hún einstaka gleði af
vinnunni og naut þess að hafa nóg
fyrir stafni. Blómaræktin hennar
fram á síðasta dag segir mikið um
natnina og dugnaðinn. Hún sáði
fyrir sumarblómum, sáði gulrót-
um, káli og setti niður kartöflur,
svo garðurinn varð eins og skrúð-
garður þegar leið fram á sumarið.
Á haustin var það svo berjavertíð-
in sem átti hug hennar, þegar
brunað var á Volvonum um allar
trissur til að ná í bústin ber um
holt og hæðir. Þegar heim var
komið var allt sett á fullt í eldhús-
inu, það var sultað og saftað af
miklum móð, svo hægt væri að
fylla á frystikisturnar og bumb-
una hans afa.
Amma og afi voru samheldin
hjón. Þau gátu alveg látið heyra í
sér ef þau voru ekki sammála en
alltaf fann maður ástina og kær-
leikinn á milli þeirra.
Missir afa er mikill og söknuð-
urinn sár.
Ég kveð elsku ömmu með sár-
um söknuði en þakklæti fyrir alla
gleðina og hlýjuna sem hún hefur
gefið mér.
Guð geymi þig.
Þín
Ingibjörg.
Elsku langamma. Þakka þér
fyrir alla ástina sem þú gafst
okkur. Hlýju, fallegu vettlingarnir
sem þú prjónaðir minna okkur á
hlýjuna frá þér. Þú áttir alltaf ný-
bakaðar pönnukökur og annað
góðgæti þegar við komum í heim-
sókn. Við minnumst þín fyrir fal-
lega garðinn þinn og góðu gulræt-
urnar, sem þú ræktaðir. Þú varst
alltaf svo hress og hugarfarið þitt
jákvætt. Við munum aldrei
gleyma þér og ætlum að passa
langafa fyrir þig.
Hvíldu í friði elsku langamma.
Þínir ávallt,
Sveinn Hjörtur, Jóhannes
Ernir og Guðmundur Logi.
Fyrir rúmum 40 árum var ég
svo lánsöm að eignast þriðju
ömmuna og afann, hana Ingu
ömmu og Gumma afa. Þá tóku þau
okkur Bjarka opnum örmum og
hafa alla tíð gert. Fyrir það er ég
þeim ævinlega þakklát.
Með sorg í hjarta skrifa ég þessi
orð um elsku Ingu ömmu, sem við
kveðjum í dag, en um leið lifa ótal
fallegar minningar.
Ég á margar minningar af Þor-
steinsgötunni, allar eru þær góðar
og skemmtilegar. Margar þeirra
tengjast mat, því amma var svo
myndarleg í öllu sem tengist
matargerð. Mér fannst fátt
skemmtilegra en að aðstoða ömmu
við að útbúa rækjusalat fyrir sam-
lokurnar sem fóru á Esso. Þá fékk
ég líka vænan enda af glænýju
franskbrauði með besta rækjusal-
ati í heimi. Það allra skemmtileg-
asta var þegar við krakkarnir fór-
um með ömmu að skúra á Esso á
kvöldin. Þá fórum við í sjoppuleik
og yfirleitt fengum við að setja ís í
box og borðuðum með bestu lyst.
Það fór enginn vannærður heim úr
Borgarnesi, og man ég eftir
Gumma bróður eins og tungli í
fyllingu eftir nokkurra vikna dvöl í
dekrinu hjá ömmu.
Amma sá til þess að frystikist-
urnar tvær sem eru í eldhúsinu
væru vel nýttar, fullar af kökum,
rúgbrauði, slátri, kæfu, berjum og
fleira góðgæti. Mér er minnisstætt
þegar við Óskar komum eitt sinn í
heimsókn með krakkana okkar, og
á einu augnabliki voru 12 tegundir
komnar á borð, smurt brauð, lag-
tertur og smákökur. Í kveðjuskyni
fengum við svo gullfallega hand-
prjónaða vettlinga og nýupptekn-
ar gulrætur úr garðinum sem eru
betri en sælgæti.
Inga amma var engum lík,
hörkudugleg, góð og falleg kona
sem ég leit upp til. Það var alltaf
notalegt að koma til ömmu og afa í
Borgó og eiga gott spjall við eld-
húsborðið. Hjónaband afa og
ömmu var langt og fallegt, og er
hugur minn hjá afa á þessum erf-
iðu tímum.
Takk fyrir allt, elsku amma
mín.
Hvíl í friði.
Íris Heiður.
Ingibjörg Stefanía
Eiðsdóttir
Sálm. 17.5-6
biblian.is
Skref mín eru örugg
á vegum þínum,
mér skrikar ekki
fótur. Ég hrópa til
þín því að þú svarar
mér, Guð,...
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR ÁSGEIRSSON
vélvirkjameistari,
Ásakór 1,
lést á líknardeild Landspítalans
29. september.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn
10. október klukkan 13.
Erna Reynisdóttir
Guðmundur I. Guðmundsson
Helga Björt Guðmundsdóttir Emil Örn Valgarðsson
Guðmundur H. Pálsson Sif Björk Hilmarsdóttir
Linda Pálsdóttir Ólafur Helgi Þorgrímsson
Hermann Örn Pálsson Rakel Ósk Guðbjartsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ELSA LÁRA SVAVARSDÓTTIR
handavinnukennari,
Víðilundi 24,
er lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
föstudaginn 27. september, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 14. október kl. 13:30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að hafa samband
við Rebekkustúku nr. 2, Auði, á Akureyri.
Hannes Steingrímsson
Svavar Hannesson
Steingrímur Hannesson Erla Elísabet Sigurðardóttir
ömmu- og langömmubörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Fagurhólsmýri,
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík,
sem lést föstudaginn 27. september, verður
jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 18. október klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Ágúst Sigurjónsson Sesselja Hrönn Jensdóttir
Helga Jónína Sigurjónsdóttir Hafsteinn Már Ársælsson
Guðný Sigurjónsdóttir Svavar M. Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN KRISTINSDÓTTIR,
Ennisbraut 27,
Ólafsvík,
verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 12. október klukkan 14.
Svanur Kristófersson Guðrún Kjartansdóttir
Stefán Smári Kristófersson Hrefna Rut Kristjánsdóttir
Kristinn Kristófersson Auður Sigurjónsdóttir
ömmu- og langömmubörn
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUÐNI SVEINN JÓHANNSSON,
Sunnubraut 6, Þorlákshöfn,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
4. október. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju
laugardaginn 12. október klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Geirlaug Sveinsdóttir
Jóhann Sveinsson Hafdís Björk Guðmundsdóttir
Ólafur Helgi Ólafsson
Bjarni Ágúst Sveinsson Þóra Birna Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
INGVAR INGVARSSON
frá Birkilundi,
er látinn.
Úför verður auglýst síðar.
Sigrún Lena Ingvarsdóttir
Helga Vala Ingvarsdóttir
Ingvar Ingvarsson
Reuben Jens Ingvarsson
Helga Pálsdóttir
systkini og aðrir aðstandendur
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BIRGIR OLSEN,
Bjarnarvöllum 14, Keflavík,
áður til heimilis í Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 7. október.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jón Birgisson Olsen Erla Hólm Zakaríasdóttir
Ævar Birgisson Olsen Renate Vitola
María Magdalena Birgisdóttir Olsen
Björk Birgisdóttir Olsen Heiðar Víkingur Sölvason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir og afi,
BJÖRN SÆVAR ÁSTVALDSSON
framkvæmdastjóri,
Langholtsvegi 24,
lést á Landspítalanum 30. september.
Útför fer fram frá Áskirkju mánudaginn 14. október klukkan 13.
Kristín Rós Andrésdóttir
Svanfríður Steinsdóttir
Brynleifur Birgir Björnsson Ingibjörg Ösp Magnúsdóttir
Sandra Rós Björnsdóttir
Birna Karen Björnsdóttir Bjarki Hjálmarsson
Dagmar Þorsteinsdóttir Magnús J. Magnússon
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HELGA JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Gnoðarvogi 20, Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
3. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Kristjana G. Magnúsdóttir Egill Jónsson
Erla G. Magnúsdóttir
Helgi M. Magnússon Ingunn G. Björnsdóttir
Hafdís Magnúsdóttir Hjörleifur L. Hilmarsson
Jóna Björg Magnúsdótttir
Smári Magnússon Regína Ásdísardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
EMIL OTTÓ PÁLSSON,
fv. slökkviliðsmaður,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
22. september. Útför fer fram frá
Fossvogskapellu föstudaginn 11. október klukkan 13.
Valur Emilsson Guðný Harðardóttir
Halldóra Emilsdóttir
Brynjar Emilsson Eyrún Thorstensen
barnabörn og barnabarnabarn