Morgunblaðið - 09.10.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019
60 ára Birkir ólst upp
á Seltjarnarnesi og í
Garðabæ og býr á
Álftanesi. Hann er húð-
sjúkdómalæknir að
mennt og er einn eig-
enda og stofnenda
Húðlæknastöðvarinnar.
Maki: Friðbjörg Kristmundsdóttir, f.
1959, hárskeri og vefari og er með gall-
eríið MÝRÓ í Hafnarfirði.
Börn: Bjarki, f. 1982, og Hjalti, f. 1987.
Barnabörn eru Halla Salvör, Birkir Orri,
Egill Aron og Fannar Kári Bjarkabörn.
Foreldrar: Sveinn Matthíasson, f. 1936,
fyrrverandi verslunarstjóri hjá Samband-
inu og strætisvagnabílstjóri, og Marín
Ingibjörg Guðveigsdóttir, f. 1940, hús-
móðir. Þau eru búsett í Reykjavík.
Guðlaugur Birkir
Sveinsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Smávegis hugulsemi er það sem
færir öðrum hamingju og um leið ertu í
rauninni að gleðja sjálfa/n þig. Gefðu þér
tíma til þess að kanna málin, því flas er ekki
til fagnaðar.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er allt í lagi að gefa sig dag-
draumum á vald þegar aðstæður leyfa. Þú
nærð settu marki fyrr en þig grunar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst erfitt að sýna aðila inn-
an fjölskyldunnar samúð, finnst viðkomandi
ekki eiga það skilið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vingjarnlegar samræður við náung-
ann létta lund þína í dag. Reyndu eftir
fremsta megni að bæta heilsu þína með
gönguferðum eða einhverri annarri líkams-
rækt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu það eftir þér að fara í ferðalag
eða gera eitthvað fyrir sjálfa/n þig. Þú átt
það svo sannarlega skilið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er alltaf gaman að rekast á
gamla vini og rifja upp liðna tíð. Þú hittir
einn slíkan fljótlega og hann mun segja þér
svolítið sem kemur á óvart.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reyndu að láta ekki freistast þótt til-
boð sé á hlut sem þig hefur lengi langað í.
Líttu í kringum þig og sjáðu fegurðina í litlu
hlutunum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft ekki að breyta viðmóti
þínu, það er nógu aðlaðandi fyrir. Fram-
kvæmdu það sem þú hefur lengi ætlað að
gera.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ekki alltaf nauðsynlegt
að fá samþykki annarra fyrir því sem maður
gerir. Enginn hefur sama álit á hlutunum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú mátt ekki láta dagdrauma ná
yfirhöndinni. Leitaðu ráða þér eldri og
reyndari og þá áttu auðveldara með að taka
af skarið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert í náðinni þessa dagana,
en mátt auðvitað gá að þér, því skjótt skip-
ast veður í lofti. Stundum sér lífið um að
tuska okkur aðeins til en ekki örvænta, það
gengur fljótt yfir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reiði eykur bara á vanlíðan þína,
reyndu að elska friðinn og komast á þann
stað að fátt raski ró þinni.
Hekla hefur gegnt stöðu prófess-
ors í myndlist við Listaháskóla Ís-
lands frá árinu 2012. Þar kennir
Hekla m.a. nemendum á lokaári að
halda einkasýningu, en það nám-
skeið var sett á að frumkvæði
Kling & Bang 2018 kom út bókin Ég
er hér sem gefur yfirlit yfir afkasta-
mikinn feril listamannsins undan-
farin tuttugu ár og hugleiðingar um
verk hennar eftir Markús Þór
Andrésson.
H
ekla Dögg Jónsdóttir
fæddist 9. október
1969 í Reykjavík.
Fram að tveggja og
hálfs árs aldri átti
hún heima með foreldrum sínum og
systur í Kaupmannahöfn. Hún flutti
með móður, systur og stjúpföður til
Vestmannaeyja en þaðan í Mosfells-
sveit 1973 þegar Vestmannaeyja-
gosið hófst. Fjölskyldan dvaldi einn
vetur á Reykhólum í Barðastrandar-
sýslu en flutti þá aftur í Mosfells-
bæinn þar sem Hekla gekk í grunn-
skóla. Hún hóf nám í 10. bekk í
Æfingaskólanum þegar fjölskyldan
færði sig um set úr Mosfellsbænum
til Reykjavíkur.
„Ég var í sveit á Snæfellsnesi á
þremur bæjum, á Görðum hjá Svövu
og Símoni, í Dalsmynni hjá Mar-
gréti og Guðmundi og á Kálfár-
völlum hjá Sigrúnu og Bjarna. Einn-
ig á Brekkum 1 í Holtum hjá Ragn-
heiði og Ómari. Ég var líka eitt
sumar í Ottawa í Kanada hjá móður-
systur minni, Fríði, og fjölskyldu
hennar.“
Hekla gekk í Fjölbrautaskóla
Breiðholts á listabraut og stundaði
nám við Myndlista- og handíðaskóla
Íslands 1991-1994. Hún sótti skipti-
nám við Listaháskólann í Kiel í
Þýskalandi og viðbótarnám við
Staatliche Hochschule für Bildende
Künste í Frankfurt am Main. Að
loknu námi í Þýskalandi hélt Hekla
til Bandaríkjanna til náms við Cali-
fornia Institute of the Arts árið 1996
þaðan sem hún lauk MFA-prófi árið
1999. „Á lokaárinu tók ég „inte-
grated media“ og komst þá í aðrar
deildir, eins og kvikmyndir og tón-
list og það opnaði fyrir fleiri mögu-
leika. Svo var gott að læra bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum því nám-
ið þar er gjörólíkt innbyrðis.“
Allt frá útskrift hefur Hekla verið
virk í sýningarhaldi og hefur sýnt í
söfnum og á öðrum sýningarstöðum
bæði hér heima og erlendis, meðal
annars í Listasafni Íslands, Lista-
safni Reykjavíkur, Tate Modern-
safninu í London, Truck-samtíma-
listamiðstöðinni í Calgary í Kanada
og OMR Gallery í Mexíkóborg. Í til-
efni af sýningu Heklu, Evolvement, í
hennar. „Mér fannst það mikilvægt
svo nemendur átti sig á hvað fylgir
því öllu. Einkasýningunni fylgir síð-
an gagnrýnin umræða sem er part-
ur af námskeiðinu.“
Hvað varðar myndlistarmanninn
Heklu Dögg Jónsdóttur þá er ekk-
ert niðurneglt. „Ég er með marga
bolta á lofti og hef mikið verið að
vinna með öðrum listamönnum inni í
mínum verkum og hef hug á ein-
hvers konar útgáfu á því samstarfi.
Ég er alltaf innan handar í Kling og
Bang og er að fara að vinna að upp-
setningu finnskra listamanna í jan-
úar,“ en Hekla var einn af stofn-
endum gallerís Kling & Bang árið
2003. „Ég er líka að reyna að ein-
beita mér að mínum eigin verkum á
vinnustofunni minni og vinna áfram
með þróun hugmynda þar. Þegar
maður er í sköpun þá getur maður
dottið út og er bara hálf manneskja
á jörðinni. Ég get ekki skipt úr því
að vera prófessor fyrir hádegi og
listamaður eftir hádegi, ég þarf að
taka þetta í tímabilum. Ég stefni
samt á að vera með eitthvert list-
rænt útspil á afmælinu mínu, en ég
ætla að halda upp á það eftir tíu
daga.“
Verk Heklu hafa gjarnan ein-
hverja virkni og eru knúin áfram af
áhuganum á augnabliki ummynd-
unar og efnahvarfa. Hún hefur
áhuga á því óræða millirými sem
verður til við yfirfærslu, til dæmis
þegar hún notar aðgengilega nytja-
hluti og framandgerir þá með því að
færa þá yfir í annað samhengi.
„Ég hef áhuga á mörgu,“ segir
Hekla spurð út í áhugamálin. „En
ég hef gefið mér lítinn tíma í þau,
myndlistin tekur alltaf yfir. Ég held
samt að ég geti farið að stunda
áhugamálin oftar með sex ára snáð-
anum mínum, eins og að fara á skíði
sem mér finnst mjög gaman.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Heklu er Úlfur
Grönvold, f. 3.1. 1966 í Reykjavík,
myndlistarmaður og leikmynda-
hönnuður hjá RÚV. Foreldrar hans
eru Hjördís Guðbjörnsdóttir, f. 27.7.
1943, fyrrverandi skólastjóri, og
Karl Grönvold , f. 8.10. 1941, jarð-
Hekla Dögg Jónsdóttir, myndlistarmaður og prófessor við LHÍ – 50 ára
Fagnað Frá opnun Kling & Bang í Marshallhúsinu 2017. Hekla er í miðri
neðri röð og Úlfur annar frá hægri í efri röð ásamt félögum í Kling & Bang.
Augnablik ummyndunar
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamaðurinn Frá sýningu Heklu, Evolvement, í Kling & Bang í fyrra.
40 ára Guðrún er
Skagstrendingur
og hefur búið á
Skagaströnd alla
tíð fyrir utan fram-
haldsskóla- og há-
skólaárin. Hún er
kennari að mennt
og er aðstoðarskólastjóri í
Höfðaskóla.
Maki: Arnar Ólafur Viggósson, f.
1978, forstöðumaður íþróttamann-
virkja á Skagaströnd.
Börn: Arna Rún, f. 2003, og
Snæbjörn Elfar, f. 2007.
Foreldrar: Helgi Gunnarsson, f. 1952,
húsasmiður, og Ragnheiður Sigur-
jónsdóttir, f. 1951, fyrrverandi bréf-
beri. Þau eru búsett á Skagaströnd.
Guðrún Elsa
Helgadóttir
Til hamingju með daginn
Mosfellsbær Alex Helgi Hjaltalín
fæddist 22. janúar 2019 kl. 8.43 á
Landspítalanum við Hringbraut. Hann
vó 4.160 g og var 52 cm langur.
Foreldrar hans eru Guðmundur Helgi
Hjaltalín og Jóhanna María
Ríkharðsdóttir.
Nýr borgari
HLJÓÐMOGGI
BÝÐUR GÓÐAN DAG