Morgunblaðið - 09.10.2019, Page 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður
í knattspyrnu, er aftur kominn í
landsliðshópinn en liðið æfði á Laug-
ardalsvelli í gærmorgun. Fram-
undan eru leikir gegn heimsmeist-
urunum frá Frakklandi og Andorra í
undankeppni EM. Alfreð gat ekki
verið með þegar Ísland vann Mol-
dóvu heima og tapaði fyrir Albaníu
ytra í síðasta mánuði. Var hann þá að
jafna sig af meiðslum og tók sér tíma
til að byggja sig upp fyrir tímabilið.
Ísland hefur mætt Frakklandi þrí-
vegis frá árinu 2016. Einu sinni í
lokakeppni EM, einu sinni í vináttu-
leik og einu sinni í undankeppninni
sem nú stendur yfir. Íslensku lands-
liðsmennirnir eru því farnir að
þekkja franska liðið býsna vel.
„Við höfum jú spilað nokkrum
sinnum við þá en auk þess þekkjum
við þá vegna þess að flestir okkar
hafa séð þá spila reglulega í sjón-
varpinu. Þetta er auðvitað alveg
ótrúlega erfitt lið að eiga við. Við
verðum að horfa í þá leiki þar sem
okkur gekk vel á móti þeim. Sér-
staklega var það í vináttulands-
leiknum. Þótt það sé bara æfinga-
leikur þá vorum við í mjög góðum
málum á móti þeim þar til síðasta
korterið. Við vorum einnig í ágætri
stöðu þegar við mættum þeim í þess-
ari undankeppni ytra eða þar til á
síðustu tuttugu mínútunum þegar
þeir gengu á lagið.“
Góðar minningar í Laugardal
Spurður um stöðuna í riðli Íslands
segir Alfreð að íslenska liðið vilji búa
þannig um hnútana að síðustu tveir
leikirnir í nóvember skipti miklu
máli.
„Okkar örlög eru enn í okkar
höndum og það er alltaf jákvætt. Við
viljum auðvitað eiga möguleika í
næsta verkefni í nóvember og það
fer eftir úrslitunum gegn Frakklandi
og Andorra hvort möguleikarnir á
því að komast upp úr riðlinum verði
raunhæfir. Markmiðið er að setja
upp tvo risaleiki í nóvember án þess
að maður vilji fara eitthvað fram úr
sér,“ sagði Alfreð og hann segir að
íslensku landsliðsmennirnir geti leit-
að í góðar minningar frá Laug-
ardalsvelli áður en þeir mæta
Frökkum. Þar á hann við sigurleik-
ina gegn þjóðum eins og Hollend-
ingum og Króötum á undanförnum
árum.
Hefur unnið vel í líkamanum
Alfreð segist vera vel á sig kominn
líkamlega og hann hefur æft með
Augsburg í tvo og hálfan mánuð.
Hann segir hins vegar að líkaminn
hafi fyrir nokkru verið farinn að gefa
sterklega til kynna að hann þyrfti
hvíld. Þess vegna hafi hann glímt
nokkuð við meiðsli síðustu tvö árin
eða svo.
„Þegar maður spilar tæpur og fær
ekki tækifæri til að fá sig góðan þá
kemur það í bakið á manni síðar. Og
það gerðist hjá mér. Fótboltaheim-
urinn er stundum þannig að menn
spila leikina og eru dæmdir af
frammistöðu sinni þar en eru ekki
heilir heilsu. Þannig er þessi heimur
bara. En í sumar fékk ég góðan tíma
til að ná mér og menn sýndu þolin-
mæði hjá Augsburg. Ég hef unnið
mikið í líkamanum á meðan og það
er að skila sér núna,“ sagði Alfreð en
hann glímdi við meiðsli í kálfa á síð-
asta tímabili. Markheppnin yfirgaf
hann þó ekki þegar hann gat spilað
og skoraði til að mynda tvær þrenn-
ur í þýsku deildinni á síðasta tíma-
bili.
Ánægja hjá báðum aðilum
Alfreð er samningsbundinn Augs-
burg til ársins 2022 en í ágúst var til-
kynnt að hann hefði skrifað undir
nýjan samning hjá félaginu.
„Ég ákvað að vera áfram hjá
Augsburg eftir nokkuð langar samn-
ingaviðræður. Ég er ánægður hjá fé-
laginu og þess vegna skrifaði ég und-
ir. Báðir aðilar eru ánægðir með
niðurstöðuna og forráðamenn liðsins
hafa verið ánægðir með mína
frammistöðu. Slíkt getur hins vegar
verið fljótt að breytast í fótbolt-
anum. Breytist nánast frá degi til
dags. Ef lið tapar tveimur leikjum í
röð er komin upp gerbreytt staða,“
sagði Alfreð ennfremur við Morgun-
blaðið í gær.
Risaleikir í nóvember?
Alfreð Finnbogason lætur vel af sér Fékk góðan tíma í endurhæfingu í upp-
hafi tímabilsins í Þýskalandi Segir ýmislegt gott hafa verið í vináttuleiknum
Morgunblaðið/Hari
Landsliðið Alfreð Finnbogason hefur misst af síðustu fjórum leikjum Íslands en er klár í slaginn núna.
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í
handknattleik, er einn fjögurra leik-
manna sem tilnefndir eru í kjöri á besta
leikmanni septembermánaðar í þýsku
1. deildinni. Bjarki kom til Lemgo í sum-
ar frá Füchse Berlín og hefur farið á
kostum, skoraði 13 mörk gegn Kiel um
síðustu helgi og er markahæstur í
deildinni með 64 mörk. Auk hans eru
tilnefndir Stefan Cavor hjá Wetzlar og
þeir Morten Olsen og Demenico Ebner
hjá Hannover-Burgdorf.
Elías Már Halldórsson þjálfari karla-
liðs HK í handknattleik var í gær úr-
skurðaður í eins leiks bann og stýrir því
ekki Kópavogsliðinu gegn Stjörnunni á
laugardaginn. Elías var rekinn af bekkn-
um í leik HK gegn KA á sunnudaginn,
vegna „grófrar óíþróttamannslegrar
hegðunar“, eins og það er orðað í úr-
skurðinum.
Knattspyrnumarkvörðurinn Har-
aldur Björnsson hefur skrifað undir nýj-
an samning við Stjörnuna til þriggja ára
en hann var að ljúka sínu þriðja tímabili
með Garðabæjarfélaginu. Haraldur er
þrítugur og varði mark Stjörnunnar í
öllum leikjum liðsins í úrvalsdeildinni á
nýliðnu tímabili. Hann hefur leikið 91
leik í efstu deild hér á landi með Stjörn-
unni og Val, lék einn-
ig með Þrótti í 1.
deild, en var lengi
erlendis þar sem
hann var fyrst í
röðum Hearts í
Skotlandi og síð-
an með Lille-
ström,
Strömmen,
Fredrikstad
og Sarps-
borg í Noregi og
Östersund í Sví-
þjóð.
Eitt
ogannað
EKKI GLEYMA AÐ SKRIFA UNDIR
Á FINNUMLAUSNIR.IS
„Það eru einhverjar þreifingar búnar að eiga sér stað en
ekkert sem hefur verið nægilega spennandi í hreinskilni
sagt,“ sagði Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, við Morgunblaðið fyrir æfingu liðsins á Laug-
ardalsvelli í gær. Emil hefur verið án félags síðan í sum-
ar eftir að samningur hans við ítalska A-deildarfélagið
Udinese rann út.
„Ég vona hins vegar að það fari að detta inn einhver
spennandi tilboð sem henta bæði mér, mínum metnaði
og fjölskyldunni vel. Sjálfur væri ég auðvitað mest til í
að mín mál væru löngu komin á hreint en þetta hefur
tekið mun lengri tíma en ég átti von á. Ég hef verið í
góðu sambandi við mitt fyrrverandi félag Udinese en ég á ekki von á að
fara þangað aftur í hreinskilni sagt. Hlutirnir eru hins vegar fljótir að
breytast í fótbolta og maður á víst aldrei að segja aldrei. Fyrsta val var allt-
af að vera áfram á Ítalíu. Ég hef verið þar undanfarin tólf ár og mér líður
mjög vel þar. Það þekkja mig allir þar og ég vonast til þess að vera þar
áfram. Það hafa komið einhver tilboð líka frá ansi framandi löndum en til-
boðið þarf að vera afar gott ef maður ætlar að flytja fjölskylduna þangað.
Að sama skapi er maður líka kominn á þann stað að maður þarf að fara að
skoða almennilega hvort það sé þess virði að fara hinum megin á hnöttinn
til þess að spila fótbolta,“ sagði Emil. bjarnih@mbl.is
Ekkert nægilega spennandi
komið upp ennþá
Emil
Hallfreðsson