Morgunblaðið - 09.10.2019, Side 28

Morgunblaðið - 09.10.2019, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Heimilisofbeldi er örugg-lega eitt af því verstasem þolendur upplifa, ogætla má að þeir bíði þess aldrei bætur. Svíarnir Anders Ros- lund og Stefan Thunberg taka mál- efnið fyrir í spennusögunni Blóð- böndum og sýna meðal annars fram á að ekkert er heilagt þegar skyldleiki er ann- ars vegar. Það læra börn- in sem fyrir þeim er haft og helstu persónur í bók- inni gera það svo sannarlega, þó fordæmi feðr- anna sé ekki til eftirbreytni. Betr- unarvist breytir engu þar um. Þarna kemur skyldleikinn til sögunnar, innprentunin, meðvirknin, ofbeldið. Ekkert er sterkara en móðurástin en jafnvel hún má sín lítils, þegar valið stendur á milli þess að feta af- brotabrautina eða leið hins heiðvirða manns. Ekki síst þegar málið snýst um stærsta ránið. Sagan er vel skrifuð. Hún rokkar á milli bernsku helstu persóna og nútímans og er í raun sjálfstætt framhald á spennusögunni Dansað við björninn eftir sömu höfunda. Frásögnin snýst fyrst og fremst um Leó, bræður hans og foreldra, og Sam Larsen og John Broncks. Karlmennirnir eru eins ólíkir og þeir eru margir, að minnsta kosti á yfirborðinu, en þræðirnir liggja gjarnan saman, þegar að er gáð. Höfundar lýsa einstaklingunum sér- lega vel og sérstaklega eru Leó og John eftirminnilegir, hvor á sinn hátt. Afbrotamaðurinn Leó er skipu- leggjandi út í ystu æsar og ekki er annað hægt en að hrífast af hæfi- leikum hans, þó brotaferillinn eigi hvergi að eiga samúð. John svífst einskis og er augljóslega á rangri hillu. Vincent er yngstur og vill vel, en ekki verður við allt ráðið í heimi afbrota, ofbeldis og svika. Blóðbönd hitta svo sannarlega í mark, frábær sálfræðitryllir, en til- hneiging útgefanda að hafa spennu- sögur í lengri kantinum er feilskot fyrir þá sem vilja ekki leggja bókina frá sér fyrr en sagan er öll. Morgunblaðið/RAX Tvíeyki Rithöfundarnir Anders Roslund og Stefan Thunberg. Skyldleiki blindar sýn Spennusaga Blóðbönd bbbbn Eftir Anders Roslund og Stefan Thun- berg. Sigurður Þór Salvarsson þýddi. Veröld 2019. Kilja, 540 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Pabbi var enginn venjulegur pabbi, því hann var skáld, samkvæmt öllum var það bæði mjög eftirsóknarvert og merkilegt en líka fullkomlega gagnslaust og óarðbært,“ segir Mó- heiður Hlíf Geirlaugsdóttir í formála bókarinnar 100 ljóð. Faðir Móheiðar, sem í formál- anum er ræddur, var Geirlaugur Magnússon skáld. Hann lést árið 2005 en nú, á 75. afmælisári Geir- laugs, hefur Móheiður ásamt fleirum gefið út ljóðasafn með 100 ljóðum eftir hann. Geirlaugur sendi frá sér sautján ljóðabækur á sinni skálda- ævi og hafa þær allar verið ófáan- legar um nokkurt skeið. Erfitt að lesa síðustu ljóðin Móheiður segir að hún, og fleiri sem að bókinni standa, hafi byrjað að velta fyrir sér að gefa út ljóðasafn Geirlaugs strax eftir að hann féll frá. Von ritstjórnar bókarinnar, sem ásamt Móheiði skipa Einar Ólafsson, Gunnar Skarphéðinsson og Óskar Árni Óskarsson, er að greiða ljóða- unnendum leið að ljóðum Geirlaugs. „Ég hafði lesið öll ljóðin áður, en það var mjög erfitt að lesa þau sem hann skrifaði undir lokin þegar hann var orðinn veikur,“ segir Móheiður. „Þegar ég les ljóðin núna heyri ég hann lesa, sé ljósbláu augun, flökt- andi viðkvæm, heyri röddina skýru og sé gulnaða fingurna fletta bók- inni,“ segir Móheiður í formálanum. Geirlaugur glímdi við erfið veik- indi síðustu árin en hætti þó ekki að skrifa fyrr en rétt áður en hann féll frá. Ljóðabók Geirlaugs Tilmæli var gefin út sama ár og hann lést. Þar yrkir hann meðal annars um dauð- ann og spítalaleguna. Til dæmis í síðasta ljóðinu sem Geirlaugur orti, ljóðinu „Dauðastríð“: en það umflýr enginn sitt dauðastríð suma tekur það árin löng engjast í kvöl hvar sérhvert hlé er sem sigur stór annarra sem ör fljúgi af boga hálfkæft óp niðamyrkur en styrjöld samt Ljóð Geirlaugs hafa verið sögð torræð. Sjálfur sagði hann í viðtali við Einar Fal Ingólfsson, sem birtist í Morgunblaðinu fyrir aldamót, að meiningin væri ekki að gera lesend- um erfitt fyrir en heldur ekki að yrkja of ljóst. Móheiður sá nýjar hliðar á ljóðunum við þann lestur sem val á ljóðunum krafðist. „Þeir sem komu að þessu með mér sýndu mér nýja fleti á ljóðunum sem ég hafði ekki séð áður,“ segir Mó- heiður. Skáld elur upp skáld Það var snúið að gera upp á milli ljóða Geirlaugs, að sögn Móheiðar. „Smekkur okkar sem stóðum að val- inu réð því hvaða ljóð fóru í bókina. Við völdum hvert um sig þau ljóð sem við töldum að þar ættu að vera. Sum ljóðin höfðum við öll valið en önnur þurftum við að ræða og svo samræmdum við valið.“ Gyrðir Elíasson rithöfundur var ritstjórninni innan handar við val á ljóðum og auðveldaði valið. Móheiður fékk í vöggugjöf skáld- gáfu frá föður sínum en hún sendi frá sér ljóðabókina Flygildi árið 2016 og þýðingu á bókinni Pyrrhos og Kíneas eftir franska heimspek- inginn Simone de Beauvoir í fyrra. Ljóð Móheiðar eru full af húmor, órímuð og nútímaleg. Um það hvort hún sæki innblástur í skrif föður síns segir Móheiður: „Ætli ég geri það ekki ómeðvitað. Vinir pabba sem komu að útgáfu 100 ljóða með mér segja mér þó að ljóðin mín séu mjög ólík skáldskapnum hans pabba.“ Móheiður fann samt sem áður mikinn innblástur í ljóðum föður síns þegar hún vann að útgáfu 100 ljóða. Móheiður ritar fallegan formála að bókinni eins og áður sagði. Þar minnist hún föður síns og þeirra ótal stunda sem þau áttu saman. „Við vorum mjög góðir vinir,“ segir Mó- heiður. „Alla tíð.“ Vinir Geirlaugur og Gyrðir Elíasson á gangi við Reykjavíkurtjörn. 100 ljóð eftir Geirlaug  Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir stendur að útgáfu ljóða- safns föður síns  Kom auga á nýjar hliðar ljóðanna Ljósmynd/Petrína Rós Karlsdóttir Feðgin Geirlaugur og Móheiður í Provence í Frakklandi árið 1978. Móheið- ur hefur ásamt fleirum gefið út ljóðasafn með 100 ljóðum eftir Geirlaug. Morgunblaðið/Einar Falur sölu víða um heim og það þrátt fyr- ir að vera umdeild og gagnrýnd fyrir ofbeldi en í myndinni er rakin upprunasaga erkióvinar Leður- blökumannsins, Jókersins. Kvik- myndin var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í Kvikmyndin Joker, eða Jókerinn, var frumsýnd hér á landi föstudag- inn 4. október og sáu hana rúmlega 14 þúsund manns yfir frumsýning- arhelgi, að forsýningum á fimmtu- dagskvöldi meðtöldum. Skilaði það rúmum 20 milljónum króna í miða- sölu og segir í tilkynningu frá Sam- bíóunum að engin kvikmynd fram- leidd af fyrirtækinu Warner Bros. hafi náð slíkri upphæð áður hér á landi yfir frumsýningarhelgi. Joker var frumsýnd víðar um heim sama dag og sló einnig met í Bandaríkjunum. Miðasölutekjur námu þar 96 milljónum Bandaríkja- dala, jafnvirði um 12 milljarða króna og hefur engin kvikmynd skilað svo hárri upphæð áður yfir frumsýningarhelgi þar í landi í október. Fyrra met átti Venom, 80 milljónir dollara. Joker hefur að lokinni frumsýn- ingarhelgi rakað inn jafnvirði um 248 milljóna Bandaríkjadala í miða- síðasta mánuði og hlaut aðal- verðlaun hátíðarinnar. Fyrstu dóm- ar voru afar jákvæðir en síðan tóku að bætast við mjög neikvæðir dóm- ar og er myndin nú með meðalein- kunnina 58 af 100 á Metacritic og 69 af 100 á Rotten Tomatoes. Jókerinn sló miðasölumet Illmenni Joaquin Phoenix í hlutverki Arthur Fleck, Jókersins, í Joker. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.