Morgunblaðið - 22.10.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 22.10.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019 Njóttu þess að hlakka til Tvær ferðir á framandi slóðir Grand Indókína 1. – 19. febrúar Páskar í Kína 3. – 17. apríl Ferðakynning hjá VITA fimmtudaginn 24. október kl. 17:30 á skrifsto Skógarhlíð 12. Bílastæði og inngangur neðan við hús Fararstjóri: Héðinn Svarfdal Björnsson ÍS LE N SK A/ SI A. IS VI T 92 91 1 10 /1 9 fuVITA, ið. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Tvær aflvélar virkjana Landsvirkjun- ar í Búrfelli biluðu í síðustu viku. Önn- ur vélin komst fljótlega í lag en við- gerð á hinni mun taka lengri tíma. Bilun kom fram í rafala aflvélar 6 í Búrfellsstöð aðfaranótt fimmtudags- ins 17. október. Í stöðinni eru sex afl- vélar og uppsett afl þeirrar sem bilaði er 48 MW. Taka þurfti vélina tíma- bundið úr rekstri. Unnið var að bilanagreiningu í gær en ljóst þótti að viðgerð myndi taka nokkrar vikur, samkvæmt upplýsing- um frá Landsvirkjun. Sama dag kom upp bilun í gangráði aflvélar Búrfellsstöðvar II. Það er eina aflvél stöðvarinnar og er uppsett afl hennar 100 MW. Viðgerð á gang- ráðinum lauk á laugardaginn var og hefur vélin verið í fullum rekstri síð- an. Landsvirkjun getur staðið við all- ar skuldbindingar sínar um raforku- afhendingu til viðskiptavina þrátt fyrir þessar bilanir, að sögn Magn- úsar Þórs Gylfasonar, yfirmanns samskiptasviðs Landsvirkjunar. Vélarbilun í Búrfellsvirkjun  Önnur vélin komin í lag, við- gerð hinnar tefst Morgunblaðið/Ómar Búrfellsvirkjun Ein aflvél af sex bilaði og eins vél Búrfellsvirkjunar II. Vaskur hópur manna á veg- um Reykjavíkurborgar sást í gær við vinnu í Hlíðahverfi, í Lönguhlíð milli Miklubrautar og Eskitorgs. Var hópurinn að vinna við framkvæmd þriggja sebrabrauta sem þar hafa staðið hálfkláraðar vik- um saman. Um helgina var greint frá því í Morgun- blaðinu að framkvæmdin hefði verið stöðvuð tíma- bundið vegna mistaka í aug- lýsingu. Sagði þá borgar- fulltrúi tafir á gerð gang- brautanna „óviðunandi fyrir öryggi gangandi vegfarenda í þessu hverfi“ en hálfu brautirnar geta valdið rugl- ingi hjá fólki með tilheyrandi slysahættu. „Það er allt farið í gang núna,“ segir Bjarni Brynj- ólfsson, upplýsingastjóri hjá Reykjavíkurborg, en til stendur að klára sebrabraut- irnar þrjár, setja upp viðeig- andi umferðarskilti við hlið þeirra, bæta lýsingu og setja leiðarlínur fyrir blinda og sjóndapra sem þvera þurfa Lönguhlíð. khj@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinna hafin á ný í Hlíðunum Guðni Einarsson gudni@mbl.is Reykjavíkurborg sendi í gær út fréttatilkynningu um að meirihlutinn í skóla- og frístundaráði borgarinnar hefði lagt fram tillögu um breytingar á skólahaldi í norðanverðum Grafar- vogi. Tveir skólar verði fyrir nem- endur í 1.-7. bekk sem starfi í Borga- skóla og Engjaskóla. Einn skóli á unglingastigi, Víkurskóli, verði fyrir nemendur í 8.-10. bekk. Skólahald í Korpu leggst af, a.m.k. tímabundið. Nemendum verður boðin skólavist í Engjaskóla þar sem öll yngri skóla- börn úr Staðahverfi sameinast. Tryggja á skólaakstur eða strætó- kort til frjálsra afnota þar til fjöldi 6- 12 ára nemenda í Staðahverfi er orð- inn 150. Í tilkynningunni er vitnað í Skúla Helgason, formann skóla- og frí- stundaráðs, sem segir að nemendum í Korpu hafi fækkað verulega und- anfarinn áratug. Þar séu nú aðeins 59 börn og hafi fækkað um meira en helming á síðustu sjö árum. Forkastanleg vinnubrögð „Maður spyr sig til hvers verið er að halda fundi í skóla- og frístunda- ráði ef það er búið að taka ákvarðanir fyrirfram og senda út tilkynningar um það. Við sættum okkur ekki við slík vinnubrögð,“ sagði Marta Guð- jónsdóttir borgarfulltrúi, sem á sæti í skóla- og frístundaráði. Hún sagði undarlegt að Reykjavíkurborg skyldi senda út fréttatilkynningu í gær með tillögu meirihlutans, degi áður en taka átti málið fyrir á fundi í ráðinu í dag. Marta kvaðst hafa feng- ið málsgögn fundarins með fundar- boði og þar væri tekið fram að fund- argögn væru trúnaðarmál þar til fundi væri lokið. Hún sagði þetta for- kastanleg vinnubrögð. Tillögu meiri- hlutans hefði átt að sýna íbúum og foreldrum áður en hún fór í fjölmiðla. „Hvorki kjörnir fulltrúar, foreldr- ar, skólastjórnendur né íbúar hverf- isins fá tækifæri til að ræða þessa ákvörðun,“ sagði Marta. Ef málið hefði verið lagt fram og rætt með eðlilegum hætti hefði það mögulega getað tekið breytingum. „En það gefst ekki tækifæri til þess. Það er greinilega búið að taka þessa ákvörð- un,“ sagði Marta. Hún sagði það hafa legið fyrir lengi að loka ætti Korpuskóla. For- eldrar í Grafarvogi höfðu samband við Mörtu í gær og furðuðu sig á því að sjá þetta boðað í fréttatilkynn- ingu. „Fólk gerir ráð fyrir því að það sé skóli í hverju hverfi,“ sagði Marta. „Skólinn er einn af mikilvægustu innviðum hvers hverfis. Börn geta ekki gengið eða hjólað í skólann sinn ef honum er lokað eins og í Staða- hverfi. Þá þurfa þau að sækja skóla í öðru hverfi. Annaðhvort þarf að skutla þeim eða hafa skólabíl. Skóla- aksturinn hefur ekki gengið vel það sem af er vetri í þessu hverfi. Það hafa ítrekað fallið niður ferðir og for- eldrar kvartað yfir því.“ Marta sagði að Korpuskóla væri lokað á þeirri forsendu að þar væru of fáir nemendur. „Við höfum lagt til að það verði bæði leik- og grunnskóli í Korpuskóla til að styrkja skólann og koma í veg fyrir að honum verði lokað. Einnig hefur minnihlutinn lagt til að unglingarnir úr hverfinu komi aftur í Korpuskóla. Þeir voru sendir úr hverfinu. Það eru 140 grunnskólabörn í hverfinu en bara 59 í skólanum vegna þess að ungling- arnir eru í öðrum skóla.“ Logandi óánægja í hverfinu „Börnin mín fá ekki að vera í Korpuskóla en eru flutt yfir í Vík í unglingadeild,“ sagði Ingvar Guð- mundsson, faðir í Staðahverfi. Hann á tvö börn í unglingadeild. Þau voru flutt ásamt öðrum á sama aldri á milli skóla. Ingvar sagði að foreldrar hefðu almennt mótmælt því. „Það er löng og torsótt leið að komast fyrir börn úr Staðahverfi yfir í Vík. Leiðin er jafn löng og frá Aust- urbæjarskóla og vestur í Ánanaust. Það eru engar strætósamgöngur á þessari leið. Ef kennsla fellur niður þá er enginn skólabíll og börnin þurfa að fara yfir móana. Það er eng- in gönguleið,“ sagði Ingvar. „Sam- kvæmt deiliskipulagi á að vera ung- lingadeild í hverfinu okkar. Það voru þarna skólastofur sem voru farnar að mygla. Þá var samið við foreldra um að flytja börnin í eitt ár yfir í Vík á meðan byggt var við skólann. Svo var það svikið.“ Ingvar sagði að Korpuskóli og Víkurskóli hefðu verið sameinaðir. Með sameiningunni væri hægt að flytja börnin á milli skólabygginga. „Foreldrar í hverfinu fá ekki að koma með börnin sín í Korpuskól- ann,“ sagði Ingvar. Hann sagði að foreldrarnir væru mjög reiðir yfir þessu. „Staðahverfið logar á facebooksíð- unum og eins er mikil óánægja í for- eldrafélaginu. Foreldrar vilja að Korpuskóli verði opinn áfram og borgin fari eftir deiliskipulaginu sem segir að þarna eigi að vera skóli al- veg upp í unglingadeild. Nú ætla þeir að leggja fram á fundi að loka skól- anum og það er brot á deiliskipulagi. Þeir hefðu átt að byrja á að breyta deiliskipulaginu, fá umsagnir um það frá íbúunum og koma því í gegn með eðlilegum hætti,“ sagði Ingvar. Óánægja með lokun Korpuskóla  Meirihluti skóla- og frístundaráðs sýndi á spilin í fréttatilkynningu  Leggur til að leggja skólastarf í Korpuskóla af  Borgarfulltrúi furðar sig á vinnubrögðunum  Facebooksíður loga af óánægju Ljósmynd/Aðsend Grafarvogur Skólamál í Staðahverfi í Grafarvogi hafa lengi verið í deigl- unni. Myndin var tekin á hitafundi um skólamál í hverfinu í apríl sl. Skúli Helgason Marta Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.