Morgunblaðið - 22.10.2019, Side 15

Morgunblaðið - 22.10.2019, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019 Hari Leiðbeiningar Gata þrengist, ekki beygja, vinnusvæði, bannað að leggja, hjáleið og gjaldskylda. Allt eru þetta skilaboð til þeirra sem eru á ferð um miðbæ Reykjavíkur um þessar mundir. Enn er nokkur hóp- ur fólks hér í þjóð- félaginu, sem virðist telja að umræðum um breytingar á stjórn- arskránni hafi með einhverjum hætti lok- ið veturinn 2012 til 2013. Þá hafi verið settur lokapunktur fyrir aftan alla rök- ræðu um það hvort og þá hvernig skyldi breyta stjórn- arskránni og að allt sem sagt hef- ur verið og gert síðan sé einhvers konar ómark og að engu hafandi. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hversu stór þessi hópur er í dag – kannski ekki ýkja fjöl- mennur – en þeim mun háværari. Málflutningur þessa hóps geng- ur út á að skilyrðislaust beri að afgreiða og staðfesta tillögur stjórnlagaráðs frá árinu 2011, annað hvort óbreyttar eða lítt breyttar, allt annað feli í sér ein- hvers konar svik. Þannig beri að taka málið upp eins og skilið var við það á Alþingi veturinn 2012 til 2013. Stóru orðin eru sjaldnast spöruð í því samhengi. Það kom skýrt fram nú um helgina þegar sjö ár voru liðin frá afar sér- kennilegri þjóðaratkvæðagreiðslu um þessar tillögur. Af þessu tilefni er rétt að rifja upp nokkur atriði. Engin sam- staða var um þær aðferðir sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar- dóttur hafði forgöngu um við und- irbúning stjórnarskrárbreytinga á árunum 2009 til 2013. Þvert á móti var hart deilt innan þings og utan um flest skref í þeirri til- raunastarfsemi sem þáverandi stjórn beitti sér fyrir. Hart var deilt um markmið breytinga, að- ferðafræðina og loks um afurðina. Margt annað en skortur á sam- stöðu varð til þess að draga úr trúverðugleika þessa ferils. Efnt var til kosninga til svokallaðs stjórnlagaþings. Aðeins um þriðj- ungur atkvæðisbærra manna kom á kjörstað og slíkir ágallar voru á framkvæmdinni að Hæstiréttur ógilti kosningarnar. Engu að síð- ur lét meirihluti Alþingis niður- stöður hinna ólögmætu kosninga standa og fór framhjá niðurstöðu Hæsta- réttar með því að breyta stjórnlaga- þingi í nefnd kjörna af Alþingi, sem gefið var nafnið stjórnlaga- ráð. Þegar stjórnlaga- ráð hafði skilað af sér tillögum kom fram veruleg gagnrýni á þær. Það voru ekki bara þáverandi stjórnarandstöðu- flokkar sem gagnrýndu afurðina harðlega heldur fjöldamargir sér- fræðingar, ekki síst á sviði stjórn- skipunarréttar og stjórnmála- fræði. Meirihlutinn í þinginu fann að hann var kominn með málið í vandræðastöðu og ákvað því að reyna að styrkja málstað sinn með því að setja málið í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Tíma- setning atkvæðagreiðslunnar var sérstök í ljósi þess að ekki lágu fyrir fullmótaðar tillögur. Á sama tíma og atkvæðagreiðslan fór fram var bæði í gangi vinna sér- fræðinga við að laga tillögurnar og pólitísk vinna á vettvangi Al- þingis. Því var verið að kanna af- stöðu fólks til tillagna, sem alls ekki lágu fyrir í endanlegri út- færslu. Af þessu leiddi að meginspurn- ingin í atkvæðagreiðslunni var bæði opin og ómarkviss. Spurt var hvort kjósendur vildu stjórnar- skrárbreytingar á grundvelli til- lagna stjórnlagaráðs. Það gaf til- efni til margvíslegra túlkana. Aðrar spurningar voru líka óljós- ar þar sem spurt var hvort fólk vildi einhvers konar ákvæði af hinu eða þessu tagi inn í stjórn- arskrá, án þess að vísað væri beint til tiltekinnar útfærslu við- komandi ákvæðis. Kjörsókn var afar slök en innan við helmingur atkvæðisbærra manna kom á kjörstað. Var kjör- sóknin mun minni en í tveimur at- kvæðagreiðslum um Icesave, sem þá höfðu nýlega farið fram, svo ekki sé talað um þátttöku í al- mennum kosningum í landinu. Varð þetta auðvitað ekki til þess að auka vægi atkvæðagreiðsl- unnar. Eftir þetta hélt málsmeðferð á þingi áfram. Sérfræðingahópur skilaði af sér margvíslegum breytingum á tillögum stjórnlag- aráðs, einkum lagatæknilegum. Voru þær breytingar milli 40 og 50 og tók meirihluti stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar þingsins mark á sumum þeirra en alls ekki öllum. Málið var sent Feneyja- nefndinni, ráðgjafanefnd Evrópu- ráðsins um stjórnskipunarmál, sem fann marga annmarka á til- lögunum og hafði uppi ýmis við- vörunarorð. Loks strandaði málið í þinginu, ekki bara vegna harðrar og einbeittrar andstöðu þáverandi stjórnarandstöðuflokka, heldur líka vegna þess að sannfæring fyrir málinu var farin að dvína hjá ýmsum í þáverandi ríkisstjórn- arflokkum. Það var við þessar að- stæður sem frumvarp byggt á til- lögum stjórnlagaráðs lenti úti í skurði vorið 2013. Frá þessum tíma hefur þrisvar verið kosið til Alþingis. Flokkar sem höfuðáherslu hafa lagt á til- lögur stjórnlagaráðs hafa fengið takmarkað brautargengi. Mér er til efs að nokkurn tímann á þessu árabili hafi verið meirihluti á þingi fyrir þessum tillögum. Síðan þá hefur verið unnið að endur- skoðun stjórnarskrárinnar með öðrum hætti þar sem verkið er áfangaskipt og reynt að ná sam- stöðu um afmarkaðar breytingar. Menn kunna að hafa mismunandi viðhorf til þeirrar nálgunar en það er hins vegar óraunsæi að horfast ekki í augu við að vinnan í dag fer fram á þeim forsendum. Tíminn nam ekki staðar fyrir sjö eða átta árum. Hvorki þegar stjórnlagaráð skilaði tillögum sínum né þegar stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd lagði fram sína útgáfu af þeim. Eftir Birgi Ármannsson »Engin samstaða var um þær aðferðir sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur notaði við undirbúning stjórn- arskrárbreytinga á ár- unum 2009 til 2013. Birgir Ármannsson Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Tíminn nam ekki staðar 2013 Elías Elíasson, sér- fræðingur í orku- málum, skrifar um EES-skýrslu starfs- hóps utanríkis- ráðherra frá 1. októ- ber 2019 í Morgun- blaðið 21. október og segir í upphafi grein- ar sinnar: „Skýrslan er mjög gott yfirlit um sögu og starfsemi innan EES-sam- starfsins og þannig mikil fengur að henni. Hún er einnig vel skrif- uð og læsileg. Það sem stingur í stúf er að þetta er ekki skýrslan sem Alþingi bað um og ráðherra lagði upp í erindisbréfi sínu.“ Um leið og vinsamleg orð Elías- ar um skýrsluna eru þökkuð er óhjákvæmilegt að mótmæla því að skýrslan sé ekki í samræmi við er- indisbréf Guðlaugs Þórs Þórðar- sonar utanríkisráðherra. Fullyrð- ing í þá veru stenst alls ekki. Í erindisbréfinu segir að tekið skuli saman yfirlit og lagt mat á þann ávinning sem Ísland hafi haft af þátttökunni í EES- samstarfinu og helstu úrlausn- arefni sem stjórnvöld hafi tekist á við í framkvæmd EES-samnings- ins. Í öðru lagi bar starfshópnum að leggja mat á innleiddan laga- ramma á Íslandi vegna EES- samningsins og greina að auki við- skiptalega, efnahagslega, pólitíska og lýðræðislega þætti. Í þriðja lagi skyldi litið til þró- unar í samskiptum EES/EFTA- ríkjanna og ESB. Lagt skyldi mat á breytingar vegna brexit og litið til stöðu samskipta ESB og Sviss- lendinga. Í fjórða lagi skyldi taka mið af fyrri skýrslum um samskipti Ís- lands og ESB. Í fimmta lagi skyldi tekin sam- an heimildaskrá um skýrslur og fræðiritgerðir sem tengjast aðild Íslands að EES-samningnum. Telji Elías að starfshópurinn hafi ekki farið að þessum óskum í erindisbréfi utanrík- isráðherra við gerð skýrslu sinnar væri æskilegt að fá nánari útlistun á því en kem- ur fram í grein hans. Í niðurlagi grein- argerðar 13 þing- manna um skýrslu- beiðni til utanríkis- ráðherra vegna EES-aðildarinnar segir: „Einsýnt er að það er orðið mjög áríðandi fyrir ís- lenska hagsmuni að gerð verði svipuð úttekt [og birtist í norskri skýrslu árið 2012] á afleiðingum og virkni EES-samningsins hér á landi. Það væri við hæfi að gera þessa úttekt í ljósi þess að um næstu áramót verða liðin 25 ár frá gildistöku EES-samningsins. Ítar- legt og vandað stöðumat á EES- samningnum yrði aukinheldur verðugt framlag nú þegar Íslend- ingar minnast 100 ára afmælis fullveldis landsins.“ Þetta birtist 28. mars 2018 á vef Alþingis. Starfshópurinn leitast við að koma til móts við þetta sjónarmið. Í EES-samningnum er ekki nein fótfesta fyrir ásælni ESB í ís- lenskar orkulindir. Samningurinn takmarkar ekki heldur á neinn hátt rétt okkar til að nýta orku- auðlindirnar. Það er og verður skylda íslenskra stjórnvalda að standa vörð um þann rétt. Í skýrslunni eru einmitt lagðar fram tillögur í nokkrum liðum um hvernig best er að standa að rétt- argæslu á grundvelli EES- samningsins í nafni fullveldis þjóð- arinnar. Eftir Björn Bjarnason » Starfshópur um EES-skýrslu fór að því erindisbréfi sem utanríkisráðherra setti honum. Björn Bjarnason Höfundur var formaður starfshóps utanríkisráðherra um EES-skýrslu. Farið að erindis- bréfi ráðherra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.