Morgunblaðið - 22.10.2019, Side 6
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er meiri neysla í samfélaginu,
hvert sem litið er. Þetta er stórt
verkefni fyrir allt heilbrigðis- og fé-
lagskerfið,“ segir Valgerður
Rúnarsdóttir, forstjóri SÁÁ.
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum hafa lögregla og tollayfir-
völd lagt hald á um það bil 200 kíló
af fíkniefnum það sem af er ári.
Lögregluyfirvöld fullyrða að merki
séu um að innflutningur sé að
aukast en mikið sé einnig framleitt
af fíkniefnum hér á landi. Í fréttum
RÚV hefur verið fjallað um að mik-
ill styrkur kókaíns sem komi til
landsins bendi til tengsla íslenskra
glæpahópa í Suður-Ameríku beint
við framleiðendur þar. Alls hafa um
35 kíló af kókaíni verið tekin við
komuna til landsins í ár og gæti
söluverðmæti efnanna verið nálægt
tveimur milljörðum króna.
„Það er áhyggjuefni hversu mikið
eftirspurn eftir meðferð hefur auk-
ist hjá okkur,“ segir Valgerður. „Við
sjáum miklar breytingar í neyslunni
hjá þeim sem koma. Það er meira
um örvandi eiturlyf, fyrst og fremst
kókaín en einnig ópíóíða. Þá hefur
það aukist síðustu 2-3 ár að fólk
sprauti sig með eiturlyfjum.“
Valgerður kannast vel við aukið
framboð á kókaíni, neysla þess sé
augljóslega orðin miklu almennari
en áður.
„Fólk sem kemur inn á Vog með
kókaínfíkn keyrir sig fljótt í þrot
með þeirri neyslu. Það hefur
kannski verið að drekka áður en
missir svo alveg tökin þegar það fer
í kókaínið. Allt í einu eru komin
vandamál varðandi vinnu og fjöl-
skylduna. Þetta gerist hratt.“
Hún segir að rétt sé að staldra við
og velta þessari þróun fyrir sér,
hvar samfélagið sé statt þegar sí-
fellt fleiri bæti kókaínneyslu við
áfengisneyslu sína.
„Það er full ástæða til að tala um
það. Þetta getur ekki átt að vera hið
eðlilega viðmið. Þegar maður er far-
inn að þekkja marga sem nota kók-
aín með drykkjunni fer mælistikan
fljótt niður.
Þetta er auðvitað hluti af viðhorf-
inu í samfélaginu. Áfengið er alltaf
með og ef við normalíserum það
eykst neyslan. Sama með kannabis.
Þetta eru skaðleg efni sem gera fólk
óvirkt í vinnu og á heimilum.“
Getur valdið hjartaáföllum
Jón Magnús Kristjánsson, yfir-
læknir bráðalækninga á Landspít-
ala, segir að heildarfjöldi þeirra sem
leita á bráðadeild vegna neyslu hafi
verið stöðugur síðustu ár. „Í byrjun
árs 2018 sáum við mikið af komum
vegna sterkra verkalyfja, ópíóíða.
Núna sjáum við fleiri komur vegna
kókaíns,“ segir hann.
Hann segir að sterku verkjalyfin
séu fyrst og fremst sljóvgandi. Þau
geti leitt til öndunarstopps og jafn-
vel dauða. Kókaínið sé aftur á móti
örvandi efni og geti valdið háþrýst-
ingi hjá neytendum þess og jafnvel
hjartaáföllum. Sumir fái auk þess
mikinn kvíða eftir neyslu kókaíns.
„Áhrifin eru því öðruvísi, en oft
eru bæði þessi efni tekin í bland við
önnur lyf og þá verður myndin
nokkuð óskýrari,“ segir Jón Magn-
ús.
Aðspurður segir hann að þótt
neyslan hafi breyst sjái hann ekki
mikla breytingu á neysluhópnum.
„Nei, þetta er ekkert endilega ein-
hver annar þjóðfélagshópur sem er
að neyta efnanna. Það er bara mjög
blandað. Við fáum til okkar bæði
yngri og eldri einstaklinga. Fólk
sem hefur verið í neyslu í langan
tíma og svo þá sem eru að prófa að
taka lyfin í fyrsta skipti.“
Hann segir að á bráðadeildinni
hafi komið upp tilvik þar sem fólk
hafi fengið hjartaáfall eftir kók-
aínneyslu en enginn hafi látist þar
af þeim sökum. Við komu á sjúkra-
húsið sé hægt að meðhöndla fólk.
„Ef einstaklingur fær hjartaáfall
eftir að hafa tekið fíkniefni eða lyf
náum við að bjarga viðkomandi.
Dauðsföllin verða oftast í heima-
húsi.“
Sjö hundruð manns á biðlista
Valgerður segir að innlagnir á
Vog ár hvert séu á bilinu 2.100-
2.200. Biðlisti eftir innlögn hafi hins
vegar lengst. „Í fyrra voru 600 á
biðlista en í dag eru þeir 700. Allir
komast að en sumir þurfa að bíða
allt of lengi. Það er ekkert vit í því
að bíða í hálft ár eftir meðferð, sú
bið eykur álag á fjölskyldur og
snertir svo marga.“
Hún segir að nýverið hafi verið
tekið upp á því að bjóða upp á með-
ferð á göngudeild, sem vonandi
minnki álagið. „Stærsti hlutinn þarf
fráhvarfsmeðferð til að byrja með
og innlögn á Vog. En það hentar
kannski sumum að fá afeitrun hjá
heimilislækni og sækja svo meðferð
á göngudeild. Við viljum efla göngu-
deildina enn frekar og vonandi
hjálpar þetta.“
„Fólk keyrir sig fljótt í þrot“
Mikið framboð af kókaíni hér á landi og efnin sterkari en áður Áhyggjuefni hvað eftirspurn
eftir meðferð hefur aukist, segir forstjóri SÁÁ Fleiri sprauta sig og reykja kókaín á götunni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bráðamóttakan Tilvik vegna eiturlyfjaneyslu eru álíka mörg og í fyrra. Fleiri koma vegna kókaíns nú, en ópíóðar voru meira áberandi þá.
Valgerður
Rúnarsdóttir
Jón Magnús
Kristjánsson
Fleiri sprauta sig með kókaíni
SKAÐAMINNKUNARVERKEFNIÐ FRÚ RAGNHEIÐUR
Morgunblaðið/Hari
Frú Ragnheiður Svala Jóhannesdóttir hjá Rauða krossinum á vaktinni.
Svala Jóhannesdóttir, verkefnastjóri Frú Ragnheiðar hjá Rauða kross-
inum, hefur orðið vör við aukna neyslu kókaíns í ár. „Við finnum fyrir því
að á þessu ári hefur orðið aukning í að einstaklingar sem nota kókaín í
æð og reykja kókaín leiti til Frú Ragnheiðar. Styrkleiki efnanna hefur auk-
ist og þess vegna höfum við séð fleiri af okkar skjólstæðingum upplifa
það sem kallast ofskömmtunareinkenni,“ segir hún.
Svala segir að af þessum sökum hafi starfsfólk Frú Ragnheiðar bætt
ofskömmtunarforvörnum inn í þjónustu sína, sérstaklega fræðslu um of-
skömmtun á kókaíni.
„Við leiðbeinum fólki um örugga sprautunotkun og höfum bætt inn
leiðbeiningum um hver ofskömmtunareinkenni eru og hvernig best er að
bregðast við ef þau gera vart við sig.“
Svala segir að þessi þróun sé í takt við það sem er að gerast erlendis.
„Eina ástæðan fyrir því að þessi hópur hefur notað minna kókaín til
þessa er að það hefur verið dýrt og gæðin döpur. Það kemur manni því
ekki á óvart að neyslan hafi aukist með betri efnum og lægra verði.“
Hún segir jafnframt að starfsfólk Frú Ragnheiðar hafi veitt því eftirtekt
að minna framboð sé nú af rítalíni á götunni eftir að eftirlit og reglur
voru hert. „Rítalíntaflan á ólöglega markaðnum hefur hækkað og það
hefur áhrif á stöðuna á markaðnum. Við höfum séð skjólstæðinga sem
voru mikið að nota rítalín í æð komna meira í kókaín. Ég get ekki fullyrt
að það sé tenging en sögulega séð er það algengt að þegar verð á lyfseð-
ilsskyldum lyfjum hækkar færist hluti af notkuninni yfir í hættulegri efni
eða önnur efni.“
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf