Morgunblaðið - 22.10.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.10.2019, Blaðsíða 27
Eitt ogannað ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019 Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: 1. deild karla Sindri – Álftanes................................... 82:90  Staðan: Hamar 6, Breiðablik 4, Höttur 4, Álftanes 4, Vestri 2, Selfoss 2, Snæfell 2, Sindri 0, Skallagrímur 0. Svíþjóð Nässjö – Borås ..................................... 81:89  Elvar Már Friðriksson skoraði 17 stig, tók 1 frákast og gaf 4 stoðsendingar fyrir Borås á 25 mínútum. KÖRFUBOLTI  Terje Svendsen, forseti norska knattspyrnusambandsins, vill halda Lars Lagerbäck í starfi sem landsliðs- þjálfara karlalandsliðsins. Samningur Lagerbäck við sambandið rennur út eftir úrslitakeppnina á EM á næsta ári. Svíinn, sem stýrði íslenska landsliðinu frá 2011 til 2015, tók við þjálfun norska liðsins í febrúar 2017.  Skoski knattspyrnumaðurinn Marc McAusland hefur yfirgefið herbúðir Grindavíkur eftir eitt ár hjá félaginu. Hann kom til Grindavíkur frá Keflavík og á 41 leik að baki í efstu deild og 91 leik alls hér á landi þar sem hann hef- ur skorað þrjú mörk. McAusland fór með Keflavík upp úr 1. deild sumarið 2017.  Akureyringarnir og Þórsararnir Arnór Þór Gunnarsson og Oddur Gretarsson voru í sitt hvoru horninu í úrvalsliði 10. umferðar í þýsku Bun- desligunni í handknattleik. Oddur skoraði átta mörk úr níu skotum fyrir Balingen í sigri gegn Füchse Berlín, 31:30 á laugardag og á sama tíma skoraði Arnór Þór sex mörk úr sex skotum fyrir Bergischer í 25:25- jafntefli á móti Göppingen. ur stig og gaf ellefu stoðsendingar gegn Anadolu Efes frá Tyrklandi. „Ég væri til í að skora aðeins meira. Í Tyrklandi meiddist ég í upp- hafi þriðja leikhluta en ég hefði getað farið langleiðina með að bæta fé- lagsmetið í stoðsendingum í Euro- League. Það var því svekkjandi að meiðast. Það hefði verið gaman að fá eina mínútu í viðbót. Það er gaman að geta sýnt að ég get stjórnað leik liðs á hæsta stigi. Ég hef sannað áður að ég get skorað líka og það er gam- an að sýna fólki öðruvísi hliðar á mér og að ég geti aðlagast alls konar að- stæðum. Það er nýr hæfileiki sem ég er að uppgötva hjá sjálfum mér.“ Alba hafði betur gegn Zenit en tapaði fyrir Anadolu Efes í framleng- ingu. Liðið tapaði svo með 19 stiga mun gegn Barcelona í leik sem var erfiður fyrir Martin. Vonbrigði í Barcelona „Barcelona-leikurinn var mikil vonbrigði. Ég lenti í villuvandræðum strax og var kippt út og komst aldrei í takt við leikinn. Maður var orðinn rosalega spenntur að spila þann leik. Það var draumur að spila á móti Barcelona og þessum NBA- stjörnum. Það var tekið fast á manni og ég var á móti mönnum sem eru með meiri virðingu en ég í þessum heimi og ég fékk ekki alveg að gera það sama til baka. Þetta er klárlega eitt besta félagslið sem ég hef mætt. Þeir eru með fótboltapeninga og með leikmenn sem hafa verið að spila með bestu liðunum í NBA. Ég fann að þeir lögðu mikla áherslu á að stoppa mig og að allur sóknarleikurinn var að fara í gegnum mig. Það er ekkert veikleikamerki á svona sterku liði og þetta er langstærsta áskorunin sem ég hef farið á móti og það er leið- inlegt að dómararnir hafi séð til þess að ég hafi ekki komist í takt við leik- inn og fengið að njóta mín betur.Von- andi getur maður rétt úr kútnum aft- ur á föstudaginn á móti CSKA Moskvu, sem er meistari frá því í fyrra.“ Martin er sáttur við spilamennsku Alba til þessa og að ná í einn sigur í þremur leikjum í sterkustu keppni álfunnar. Mikið sterkari en ég bjóst við „Það var rosalega gaman að ná að vinna fyrsta leikinn og markmiðið er að ná að vernda heimavöllinn, eins erfitt og það verður. Það er gott að sjá að við getum farið á útivelli og spilað á móti bestu liðum Evrópu og staðið í þeim. Við töpuðum með tæp- um 20 í Barcelona en þetta var samt leikur allan tímann og það var jafnt í hálfleik þótt ég hafi varla verið með í leiknum. Við erum með hörkulið og liðsandinn er góður. Það sést í þýsku deildinni að við erum búnir að fara nokkuð þægilega í gegnum fyrstu fjóra leikina á móti sterkum liðum. Vonandi er þetta það sem koma skal og við verðum enn betri.“ Martin spilar oft þrjá leiki í viku og er mikið af ferðalögum um alla Evrópu. „Það eru rosalega margir leikir og ferðalög og við þurfum á öllum okk- ar mönnum að halda. Ég fann í þess- ari viku að líkaminn er orðinn þreyttur, en þetta er ógeðslega gaman og EuroLeague er mikið sterkari en ég bjóst við ef ég á að vera hreinskilinn.“ Næsti leikur hjá Martin er gegn ríkjandi meisturum í CSKA Moskvu á föstudag. Hann fær því sjaldgæfa hvíld á milli leikja. „Ég fór í golf í dag og kúplaði mig alveg út úr öllu og var úti í náttúr- unni. Annars er þetta ekki mikið frí. Það er æfing á morgun (í dag) og á miðvikudag og fimmtudag. Þetta er rosalega fljótt að líða. Eini munur- inn er að fá að sofa í eigin rúmi, elda ofan í sjálfan sig og maður er farinn að líta á það sem forréttindi að geta verið einn með sjálfum sér. Fjöl- skyldan kemur svo á morgun (í dag) og ég er spenntur að hitta þau,“ sagði Martin Hermannsson. Gengið vonum framar í sterkustu keppni Evrópu  Martin spilar yfir 60 leiki á tímabilinu  Jafnaði félagsmet strax í öðrum leik Ljósmynd/albaberlin.de Álag Martin Hermannsson spilar rúmlega 60 leiki á tímabilinu með Alba Berlín. KÖRFUBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Martin Hermannsson, landsliðs- maður í körfubolta, stendur í ströngu á tímabilinu með þýska lið- inu Alba Berlín. Martin spilar meira en 60 leiki á leiktíðinni og leikur liðið m.a. í EuroLeague, sterkustu keppni Evrópu. „Þetta hefur í raun gengið vonum framar. Þetta hefur verið smá furðulegt í byrjun því ég er bara að spila sem leikstjórnandi á þessu tímabili en var meira í skotbakverð- inum á síðasta tímabili. Ég átti að deila mínútum með öðrum leik- stjórnanda sem heitir Peyton Siva og hefur m.a. verið í NBA. Hann byrjaði tímabilið á því að meiðast svo ég stóð einn eftir og þurfti að taka það algjörlega að mér að stjórna liðinu á leiðinni inn á fyrsta EuroLeague-tímabil mitt,“ sagði Martin í samtali við Morgunblaðið. Martin hefur skorað mikið í gegnum tíðina en nú hefur stigunum fækkað. Þess í stað er hann í öðru sæti í EuroLeague yfir flestar stoðsend- ingar í leik, eða sjö að meðaltali. Dælir út stoðsendingunum „Þetta er risastór áskorun en mér finnst ég standa mig vel. Ég hef ver- ið að dæla út stoðsendingum, sem kemur niður á stigaskorinu mínu. Ég hef þurft að breyta leik mínum. Þegar maður er kominn á þetta stig þarf ekki að vera leikstjórnandi sem skorar allar körfurnar eins og á Ís- landi. Þetta snýst meira um að koma liðsfélögum mínum inn í leikinn og reyna að finna besta kostinn hverju sinni.“ Martin skoraði sjö stig og gaf níu stoðsendingar gegn Zenit Péturs- borg í fyrsta leik Alba í EuroLeague á tímabilinu. Hann skoraði svo fjög- Nýliðar Sheffield United unnu verð- skuldaðan 1:0-sigur á Arsenal í loka- leik 9. umferðar ensku úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu í gærkvöldi. Franski sóknarmaðurinn Lys Mous- set skoraði sigurmarkið á 30. mín- útu. Þótt Arsenal hafi verið meira með boltann gekk bölvanlega að skapa færi gegn skipulögðu og bar- áttuglöðu liði Sheffield United. Með sigrinum fór Sheffield-liðið upp í tólf stig og níunda sæti en Arsenal mis- tókst að fara upp í þriðja sæti. Skytt- urnar eru í fimmta sæti með fimm- tán stig. Í níu leikjum hefur Sheffield að- eins skorað átta mörk og fengið á sig sjö, en það hefur nægt til þess að vinna þrjá leiki og gera þrjú jafn- tefli. Nýliðunum líður vel gegn stóru liðunum því þeir unnu Chelsea fyrr á leiktíðinni og voru nálægt því að ná í stig gegn toppliði Liverpool. AFP Sigurmark Liðsmenn Sheffield United fagna sigurmarki Lys Mousset. Verðskuldaður sigur nýliðanna á Arsenal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.