Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2019 Matarkista Smáfuglarnir eru sólgnir í alls kyns ber, einkum reyniber, á haustin en í ár hefur verið gnægð af þessari gómsætu fæðu fuglanna í görðum landsmanna. Hari Íbúum í efri byggðum borg- arinnar finnst borg- aryfirvöld sinna þeim síður. Fram- kvæmdir og upp- bygging sé meiri í vesturhlutanum, auk þess sem dreg- ið er úr uppbygg- ingu í austurhluta Reykjavíkur. Tölur sýna að mun færri hafa kost á tónlistarnámi í efri byggðum, en yfir þrefaldur munur er á þessu milli hverfa. Í þessu felst mis- rétti sem þarf að bæta. Lokun Korpuskóla nú í vikunni er áfall fyrir Grafarvoginn og er sú ákvörðun að loka skólanum þvert á fyrri fyrirheit. Í stað þess að efla skólann var dregið úr honum með aðgerðum borg- aryfirvalda. Fækkað í skólanum markvisst af hálfu borgarinnar í stað þess að efla hann. Fækk- unin er síðan notuð sem rök til að loka skólanum. Þetta er ljót- ur leikur. Það að loka hverf- isskóla stríðir gegn skipulagi borgarinnar þar sem gert er ráð fyrir að Korpuskóli sé hluti hverfisins. Foreldrasamfélagið er algerlega hunsað í þessu máli og ákvörðun tekin á grundvelli hagræðingar sem er ekki í hendi. Þá liggur fyrir að 60 milljarða vantar til að standa straum af fram- kvæmdum við sam- gönguverkefni, borgarlínu og stokk fyrir Miklubraut. Þessa fjármuni á að innheimta með veg- gjöldum innan höf- uðborgarsvæðisins og mun að óbreyttu bitna mest á þeim hverfum sem eru í efri byggðum borg- arinnar. Þar þurfa flestir bíl til að komast leiðar sinnar og jafnframt þurfa marg- ir að sækja vinnu og nám til vesturhluta Reykjavíkur. Þessir þættir allir eru í raun árás á lífs- gæði þeirra sem búa í efri byggðum borgarinnar. Íbúar Grafarvogs, Grafarholts, Úlfars- árdals, Árbæjarhverfis og Breiðholts eiga sama rétt og þeir sem vestar búa. Gætum jafnræðis íbúa borgarinnar. Það er þeirra réttur sem borgarbúa. Eftir Eyþór Arnalds »Foreldrasamfélagið er algerlega hunsað í þessu máli og ákvörð- un tekin á grundvelli hagræðingar sem er ekki í hendi. Eyþór Arnalds Höfundur er oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn. Árásir á efri byggðir Menn sem nauðga eiga ekkert gott skilið. Hið sama gildir, og það jafnvel enn frekar, um þá sem misnota börn kynferðislega. Flestum okkar finnst þau brot með því auvirðilegasta sem fyrir ber. Mönnum sem þau fremja ber auðvitað að refsa þung- lega og má líklega telja að dómar hér á landi í svona málum séu frekar of vægir en þungir. Svo vitum við líka að dómar yfir þessum brotamönnum valda þeim oft miklu þyngri viðurlögum en þeim sem birtast í dómsorðinu, því aðrir taka að fyrirlíta þá auk þess sem þeir missa oft fjölskyldu sína og atvinnu. Segja má að þá verði dómsorðið að hálfgerðum hégóma við hliðina á öðr- um afleiðingum fyrir þessa af- brotamenn. Þessar kringumstæður gera það nauðsynlegt að dómstólar vandi sig alveg sérstaklega við meðferð þess- ara mála. Við viljum alls ekki að þessi þungu viðurlög séu lögð á sakborn- ingana nema alveg sé ljóst að þeir hafi drýgt þau brot sem þeim eru gef- in að sök. Enginn siðaður maður get- ur viljað að allt þetta harðræði sé lagt á aðra menn, sem ekki hafa til þess unnið. Öll vitum við að sönnunarstaða er oft mjög erfið í svona málum þegar sakborningur neitar sök. Stundum eru meint brot gömul og því enginn brotavettvangur til staðar. Þá er sjaldnast vitnum til að dreifa. Á hinn bóginn vitum við að brotaþolar segja langoftast satt og rétt frá brotunum, þó að ekki sé unnt að sanna þau. Mikill meirihluti af kær- um á örugglega við rök að styðjast. Þessar að- stæður hafa valdið því að fjöldi fólks hefur haft uppi kröfur um að slakað sé verulega á sönn- unarkröfum í þessum málum, þó að stjórn- arskrá, íslensk lög og alþjóðlegar skuldbindingar kveði skýrt á um að ekki megi refsa mönnum nema brot sé sannað með þeim hætti að sök verði ekki véfengd með skyn- samlegum rökum. Þessar sönnunarreglur gilda í öll- um ríkjum sem talist geta réttarríki. Ástæðan er auðvitað sú að við viljum alls ekki að saklausum sé refsað að ófyrirsynju. Samt er það svo að ís- lenskir dómstólar hafa látið undan þessum háværu kröfum í stórum stíl. Má jafnvel segja að búið sé að snúa sönnunarbyrði við. Séu sakir bornar fram verði hinn sakaði að sanna sak- leysi sitt. Stundum er því líka hrein- lega sleppt í forsendum dóms að geta um varnir sakbornings, sem lögskylt er að fjalla um. Þetta leiðir til þess að lesendur dóms geta þá ekki lagt sitt mat á úrlausnina, þar sem þeim atrið- um er sleppt sem henta ekki nið- urstöðunni. Afleiðingin af þessum vinnubrögðum er sú að svo og svo margir saklausir hafa verið ranglega dæmdir. Þessar kringumstæður eru m.a. til þess fallnar að gera fólki kleift að ná sér niðri á öðrum með því að bera fram rangar sakargiftir á hend- ur þeim. Dómstólar verða að taka sig á í þessum efnum. Dómarar verða að skilja að þeim er ekki ætlað að svara spurningu um hvað gerst hafi í raun og veru. Þeir eiga aðeins að svara spurningu um hvað sannast hafi með lögfullum hætti fyrir dómi um brot sem ákært er fyrir. Dómarar eiga líka að hafa þekkingu og þjálfun í að svara þeirri spurningu, þó að þeir geti ekki, fremur en aðrir menn, svarað því hvað gerst hafi á tilteknu augnabliki í fortíðinni, ef sönnunargögnum er ekki til að dreifa. Til þess þarf guð- lega hæfileika, sem dómarar búa að jafnaði ekki yfir. Dómarar verða að hafa þrek til að standa gegn háværum kröfum um að þeir geri eitthvað annað en að gegna starfsskyldum sínum, jafnvel þó að slíkt dragi úr persónulegum vinsæld- um þeirra á mannfundum. Getum við ekki flest verið sammála um það? Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » „Dómarar verða að skilja að þeim er ekki ætlað að svara spurn- ingu um hvað gerst hafi í raun og veru. Þeir eiga aðeins að svara spurn- ingu um hvað sannast hafi með lögfullum hætti fyrir dómi um brot sem ákært er fyrir.“Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Guðlegir hæfileikar?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.