Morgunblaðið - 24.10.2019, Síða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2019
✝ Guðrún Mar-grét Árnadótt-
ir fæddist 24. októ-
ber 1926 í Hólkoti á
Reykjaströnd í
Skagafirði. Hún
lést 9. október 2019
á Landspítalanum.
Foreldrar henn-
ar voru Árni Þor-
valdsson bóndi, f.
1891, d. 1965, og
Sigurbjörg Hálf-
dánardóttir húsfreyja, f. 1899,
d. 1967. Systkini Guðrúnar eru
Ingunn, f. 1922, d. 2010, Einar
1947, giftur Júlíönu Sigurðar-
dóttur, f. 1948. Dætur þeirra
eru Sólveig Guðrún, f. 1973,
Kristín Inga, f. 1976, og Þórunn,
f. 1982. 2) Sólveig Guðrún, f.
1952, gift Kristni Björnssyni, f.
1950, d. 2015. Börn þeirra eru
Pétur Gylfi, f. 1975, Björn Hall-
grímur, f. 1979, og Emilía Sjöfn,
f. 1981.
Fyrir átti Guðrún soninn
Grétar Vilhelmsson, f. 1943, sem
er giftur Eygló Kristjánsdóttur,
f. 1942, d. 1996. Synir þeirra eru
Kristján Vilhelm, f. 1964, Jón
Halldór, f. 1967, og Arnþór Ólaf-
ur, f. 1969.
Guðrún ólst upp í Skagafirði
og á Siglufirði en þaðan fluttist
hún ung til Reykjavíkur og bjó
þar alla tíð síðan.
Útför Guðrúnar fór fram í
kyrrþey 17. október 2019.
Jón Kristinn, f.
1923, d. 1962,
Kristín Ásta, f.
1931, d. 2015, og
Erla Hulda, f. 1934,
d. 2014.
Þann 17. júlí
1948 giftist Guðrún
Pétri Hannessyni
deildarstjóra, f.
1924, d. 2004. For-
eldrar Péturs voru
Hannes Jónas Jóns-
son kaupmaður og Ólöf Guðrún
Stefánsdóttir húsfreyja.
Börn þeirra eru: 1) Hannes, f.
Elsku mamma mín lést 9. októ-
ber sl. en hún hefði orðið 93 ára í
dag. Við vorum heppin að njóta
hennar svona lengi en hún var
einstaklega dugleg og lífsglöð
kona.
Henni leiddist aldrei, las og
spilaði á spil, leysti krossgátur og
var miðpunktur í öllum fjöl-
skylduboðum.
Mamma gaf mér og fjölskyld-
unni ástúð og umhyggju og ekki
stóð á stuðningi og hvatningu
þegar á þurfti að halda. Hún var
líka sérstaklega barngóð kona og
hugsaði vel um barnabörnin. Hún
kenndi þeim góða siði og hjálpaði
við handavinnu og heimanám
þegar á þurfti að halda. Við Krist-
inn heitinn maðurinn minn nutum
heldur betur þeirra bakhjarla
sem foreldrar mínir voru í okkar
lífi.
Mamma var af þeirri kynslóð
sem nú er að hverfa en lagði
grunninn að framtíð okkar Ís-
lendinga með elju og alúð. Hún
var fædd í torfbæ á Reykjaströnd
í Skagafirði. Foreldrar hennar
skildu árið 1935 og eftir það flutt-
ist mamma til Siglufjarðar þar
sem síldin bjargaði framfærsl-
unni. Mamma bjó á Siglufirði í
átta ár en hélt síðan til Reykjavík-
ur. Þar kynntist hún pabba, Pétri
Hannessyni, og áttu þau gott líf
saman.
Mamma og pabbi hófu sinn bú-
skap í Stórholtinu en byggðu síð-
an raðhús í Fossvoginum.
Mamma vann margvísleg störf
m.a. í þvottahúsi Landspítalans
og í Fossvogsskóla. Hún fékk
ekki tækifæri til að ganga
menntaveginn en lagði því meiri
áherslu á stuðning við börnin sín
á því sviði sem reyndist okkur
systkinunum ómetanlegt vega-
nesti út í lífið.
Það var gott að búa í Stórholt-
inu. Þar var lítið um efni en því
meira af væntumþykju og góðu
uppeldi sem við systkinin nutum
góðs af. Síðar meir hófum við
Kristinn okkar búskap í Stórholt-
inu og þar eignuðumst við okkar
fyrsta barn. Að sjálfsögðu var
mamma viðstödd fæðinguna.
Mamma gekk til allra verka af
miklum myndarskap og þegar ég
hóf þátttöku í stjórnmálum var
hún fyrsta manneskjan til að
halda úti glæsilegum veitingum á
prófkjörsskrifstofum mínum. Ég
er viss um að hún náði í mörg at-
kvæði fyrir mig þar.
Mamma fylgdist vel með þjóð-
málum og hafði sínar skoðanir á
þeim. Hún hélt þeim þó oft fyrir
sig og var almennt á því að menn
ættu að sýna nærgætni í orðræðu
sinni, ekki síst þegar hún fjallaði
um samborgarana. Hún var alla
jafnan ljúf í lund en átti þó til
ákveðið augnaráð sem maður
vildi helst ekki verða fyrir. Hún
var ættrækin, naut samvista við
stóra fjölskyldu pabba af Ásvalla-
götunni og var afar náin systrum
sínum. Enn fremur átti hún ein-
stakt samband við tengdabörnin
og fjölskyldur þeirra.
Pabbi lést 2004 eftir veikindi
þar sem mamma hjúkraði honum
og sinnti eftir bestu getu. Þau tvö
voru stór hluti í lífi okkar systkin-
anna og fjölskyldna. Við ferðuð-
umst með þeim jafnt innanlands
sem og vítt og breitt um heiminn.
Nú er þeirri vegferð lokið en eftir
sitja allar fallegu og góðu minn-
ingarnar. Síðustu æviárin bjó
mamma í Hæðargarði 35, naut
þar góðs atlætis og þjónustu og
eignaðist góða vini.
Það var mín gæfa að eiga hana
mömmu að í lífsins ólgusjó og fyr-
ir það er ég þakklát. Hún var
besta vinkona mín og ég mun ætíð
minnast hennar í mínum huga og
hjarta.
Sólveig Pétursdóttir.
Með fáeinum orðum langar
mig að minnast elskulegrar
tengdamóður minnar, Guðrúnar
M. Árnadóttur, sem lést 9. októ-
ber sl., hún hefði orðið 93 ára í
dag.
Það er margs að minnast þegar
litið er til baka og er ég þakklát
fyrir að hafa eignast Guðrúnu
sem tengdamóður og vinkonu,
hún var alla tíð svo hjálpsöm og
jákvæð og tilbúin að gera allt sem
hún gat fyrir okkur.
Nú þegar hún er horfin frá
okkur standa eftir dýrmætar
minningar, sem við eigum áfram
og þökkum fyrir það.
Guðrún, eða Nunna eins og
hún var ávallt kölluð af sínu fólki,
varð mér strax mjög náin. Við
Hannes bjuggum hjá þeim Pétri í
Stórholtinu fyrstu samveruárin
okkar meðan Hannes lauk há-
skólanámi og þar fæddist elsta
dóttir okkar, Sólveig.
Við ferðuðumst mikið saman
um landið á þessum tíma og leið
varla sú helgi að ekki var farið
eitthvað út fyrir bæjarmörkin.
Þau hjónin höfðu mjög gaman
af því að ferðast og komu oft út til
okkar Hannesar á meðan við
bjuggum í Bretlandi og fóru þau
ósjaldan ein keyrandi um ná-
grannasveitir okkar þar. Einnig
fórum við saman á þessum tíma í
margar ævintýraferðir, bæði til
meginlandsins og til Bandaríkj-
anna.
Á seinni árum, á meðan Pétur
lifði, fóru þau svo reglulega til
Kanaríeyja og nutu þess að vera
þar part af vetri. Þær systurnar,
Erla og Nunna, héldu svo áfram
að fara þangað á meðan heilsa
leyfði.
Guðrún var svo lánsöm að hafa
fest sér íbúð í Hæðargarði, sem
hún gat flutt í þegar Pétur féll frá.
Þar eignaðist hún góða spila-
félaga og spilaði hún brids með
þeim alla þriðjudaga og mátti
ekkert trufla hana frá því.
Ég vil þakka minni kæru
tengdamóður fyrir allar dýrmætu
samverustundirnar og vináttuna,
sem aldrei bar skugga á.
Júlíana.
Elsku amma. Þegar þú fórst
frá okkur sótti að mér undarleg
tómleikatilfinning. Þú varst alltaf
svo stór hluti af lífi mínu og okkar
í fjölskyldunni. Auðvitað vissi ég
undir niðri að enginn lifir að eilífu,
en samt, ef einhver gæti fundið
smugu, þá værir það þú. Það var
einhvern veginn eins og árin
næðu aldrei almennilegu taki á
þér. Hver á að fylla það stóra
skarð sem þú skilur eftir í lífi
mínu? Svarið við þeirri spurningu
hef ég ekki.
Þú lést aldrei neinn segja þér
fyrir verkum. Þú lifðir lífinu á þín-
um forsendum. Og þú fórst á þín-
um forsendum. Ekkert vesen.
Ekkert drama. Það er svo mikið
þú. Núna hefur þú nýjan og
spennandi hluta af ferðalaginu.
Þú stefnir út að sjóndeildarhring
að kanna hina miklu leyndardóma
alheimsins. Ég er viss um að þú,
sem unnandi góðra bóka, munt
kunna vel að meta þetta stóra æv-
intýri sem bíður okkar allra.
Við sem eftir sitjum höldum
upp á lífið. Það er það sem þú
hefðir viljað. Enginn bar hag okk-
ar fyrir brjósti eins og þú. Enginn
varð jafn glaður og þú yfir vel-
gengni í lífi okkar og enginn var
duglegri en þú að stappa stálinu í
okkur þegar blés á móti. Löng og
viðburðarík ævi hafði kennt þér
að lífið er hverfult og að eini klett-
urinn sem veitir skjól í gegnum
súrt og sætt er fjölskyldan og fyr-
irgefningin. Já, hver hefði trúað
því? Það síaðist loksins inn hjá
mér hversu öflug fyrirgefningin
getur verið. Þvílíkur léttir það var
þegar ég lærði að varpa af herð-
um mér hinum þungu byrðum
fortíðarinnar. Ég horfi léttur á
fæti til framtíðar og það er að
stórum hluta þér að þakka,
amma. Þinni ást og alúð í gegnum
árin, alveg sama hvaða vitleysu
manni tókst að koma sér út í.
Góðar minningar ylja mér um
hjartarætur. Minningar um góða
konu sem fór sína eigin leið í
gegnum lífið. Konu sem vildi allt
gera fyrir börn sín og barnabörn.
En var svo hógvær að það hálfa
væri nóg. Ég er þakklátur fyrir
allar góðu stundirnar sem við átt-
um saman, öll ferðalögin sem við
fjölskyldan fórum í saman, alla
bíltúrana sem við fórum í og þær
löngu samræður sem við áttum
um allt og ekkert.
Ég er sannfærður um að við
eigum eftir að hittast aftur ein-
hvers staðar þarna úti þegar mitt
stóra ævintýri hefst.
Takk fyrir allt,
Pétur Gylfi.
Elsku amma, það er skrítið til
þess að hugsa að þú sért farin frá
okkur. Allt mitt líf hefur þú verið
svo stór og órjúfanlegur hluti af
því. Frá því að ég man eftir mér
hefur þú verið að hugsa um okkur
barnabörnin og gefa gott vega-
nesti út í lífið.
Þú hafðir gaman af svo mörgu,
þú varst lunkin spilakona og last
heilmikið en umfram allt fannst
þér gott að verja tíma með fólkinu
þínu. Væntumþykjan og vinskap-
urinn í okkar litlu fjölskyldu er
heilmikill og að mestu leyti þér og
afa Pétri að þakka. Þið voruð
kjarninn sem við hin sóttum í og
eftir að afi dó sinntir þú því hlut-
verki ein með sóma.
Amma Nunna var hógvær
kona sem vildi ekki láta hafa mik-
ið fyrir sér. Hún hafði séð tímana
tvenna og fékk ekki tækifæri til
að ganga í skóla lengur en til 14
ára aldurs þegar Bretarnir her-
tóku barnaskólann á Siglufirði.
Hún hvatti því börnin sín og
barnabörn þeim mun meira til að
ganga menntaveginn og var ötull
stuðningsmaður okkar allra.
Ferðir upp í bústað á Þingvöll-
um, yahtzee-spil og harðfiskur
með nægu smjöri. Kaffið og
pönnsurnar þínar. Þetta er bara
brot af þeim góðu minningum
sem við eigum saman. Ég verð
þér ævinlega þakklát fyrir það
hversu mikilvægur og stór hluti
þú varst af lífi mínu, hvort sem
það var að sækja mig þegar ég
varð veik í skólanum, kenna mér
að spara afmælispeninginn eða
bara að vera góð vinkona. Ég
þakka þér fyrir samfylgdina,
amma.
Emilía Sjöfn Kristinsdóttir.
Amma var einstaklega hlý og
góð kona með þægilega nærveru.
Hún tók jafnan á móti manni með
bros á vör og opinn faðm. Hún
hafði mikinn áhuga á öllu sem var
að gerast í fjölskyldunni og sér-
staklega var hún áhugasöm um
barnabarnabörnin. Hún fylgdist
einnig vel með fréttum og þjóð-
málum og áttum við reglulega
skemmtileg samtöl um málefni
líðandi stundar.
Amma átti heima í sama hverfi
og ég þegar ég var barn og var
samgangurinn mikill. Ég er af-
skaplega þakklátur fyrir það og
hugsa oft til þeirra ára með hlýju.
Það var alltaf gaman að koma í
heimsókn til hennar og afa í Gilja-
landið og mikið dekrað við mann.
Minnist ég sérstaklega þess að
hún hafði alltaf tíma til að spila
eða gera eitthvað annað skemmti-
legt saman. Pönnukökugerð var
einnig listgrein hjá henni og voru
pönnukökur á boðstólum við ýmis
tækifæri og eins mikið og maður
gat í sig látið. Þegar jólin nálg-
uðust hlakkaði maður sérstaklega
til að koma í heimsókn til að bjóða
sig fram í að smakka allar smá-
kökusortirnar sem voru jafnan
bakaðar. Amma passaði okkur
krakkana líka oft á daginn eftir
skóla, þar til mamma og pabbi
komu heim úr vinnunni. Þar lærði
maður m.a. að illu væri best af
lokið enda var ekki í boði að fara
út að leika fyrir en heimalærdóm-
urinn væri búinn. Hún gaf sér
nægan tíma til að sitja yfir honum
með manni ef þess þurfti. Annað
sem ég lærði af henni var gildi
sparnaðar og að eiga fyrir hlut-
unum. Í fyrsta skipti sem ég eign-
aðist einhvern aur eftir afmæli þá
fórum við amma saman í banka og
stofnuð var bundin bók. Inn á
hana rötuðu allir peningar sem ég
fékk í afmælisgjöf og fyrir ýmis
viðvik fram eftir árum og úr varð
ágætis sparnaður.
Amma og afi voru ákaflega
samrýnd og flott hjón, voru dug-
lega að ferðast innanlands og fóru
einnig reglulega í utanlandsferðir
til að hlaða batteríin. Eftir að afi
féll frá fyrir 15 árum tók við nýr
kafli hjá ömmu. Hún lét samt eng-
an bilbug á sér finna og hélt
áfram að lifa lífinu. Hún flutti í
Hæðargarð og bjó þar fram til
dánardags.
Hún kynntist þar góðu fólki og
fór m.a. að spila bridds og var orð-
in nokkuð lunkinn spilari að eigin
sögn. Hún hélt áfram að ferðast
og áttum við fjölskyldan margar
góðar stundir saman í sólinni á
Flórída. Hún var sjálfstæð, vildi
helst ekkert láta hafa fyrir sér og
virkilega góð fyrirmynd í öllu fyr-
ir okkur barna og barnabarna-
börnin.
Ég kveð ömmu með virðingu
og þakklæti fyrir allt. Hún er nú
komin til afa og er ég viss um að
það urðu fagnaðarfundir. Blessuð
sé minning elskulegrar ömmu
minnar.
Björn Hallgrímur
Kristinsson.
Innilega til hamingju með af-
mælið, elsku amma.
Í dag hefði amma orðið 93 ára.
Við fjölskyldan vorum gífurlega
heppin að hafa ömmu við góða
heilsu í öll þessi ár. Er ég kveð
elsku ömmu Nunnu koma svo ótal
margar ljúfar minningar upp í
hugann og fyrir þær er ég enda-
laust þakklát.
Það sem stendur helst upp úr
er ég hugsa til ömmu er hversu
staðföst og glæsileg hún var. Því-
lík forréttindi að fá að alast upp
með svona flotta fyrirmynd sem
ömmu.
Hún amma kenndi mér svo
margt, hún var vinnusöm, trygg-
ur vinur, hlý og góð amma og ein-
staklega dugleg að hjálpa manni
með handavinnuna.
Stundum þegar maður var í
heimsókn hjá ömmu og afa gaf
amma mér smá pening og leyfði
mér að hlaupa í bakaríið og kaupa
mér snúð og kakómjólk eða
kringlu.
Einna skemmtilegast þótti
mér þó að fikta í búrinu hjá
ömmu, horfa á hana elda eða fela
mig með Sjöfn undir stiganum í
„leyni“horninu með ferðatöskun-
um. Þegar ég varð eldri áttum við
svo saman eðalstundir í Hæðar-
garðinum, þá fór ég til ömmu að
lakka á henni neglurnar. Þá gafst
okkur tækifæri að fá okkur kaffi
saman og spjalla um veginn og líf-
ið.
Ég kveð ömmu mína með
djúpu þakklæti og söknuði. Bless-
uð sé minning hennar sem lifir
áfram með okkur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Þórunn Hannesdóttir.
Elsku amma Nunna er fallin
frá. Ég get ekki komið því í orð í
stuttri minningargrein hversu
vænt mér þótti um hana og
hversu mikið ég mun sakna henn-
ar. Mig langar að þakka það sem
hún skildi eftir hjá mér, kenndi
mér og sýndi.
Amma kenndi mér að meta
krossgátur, prjónaskap og spila-
mennsku. Hún kenndi mér að
baka pönnukökur, brjóta saman
buxur á réttan hátt, vera þolin-
móðari og að vera til staðar hve-
nær og hvar sem er.
Amma var glaðlynd og hlý,
brosmild og úrræðagóð. Hún vildi
ekki láta hafa fyrir sér, ekki gera
mál úr hlutunum heldur taka líf-
inu með jafnaðargeði og æðru-
leysi. Að sama skapi óskaði hún
sér rólegs og kyrrláts andláts og
útfarar.
Amma átti viðburðaríka ævi.
Hún ólst upp í skugga Drangeyj-
ar og sagði margar sögur úr
Skagafirði og Siglufirði. Hún
fæddist í þiljuðum torfbæ og út-
skrifaðist fjórtán ára úr barna-
skóla Siglufjarðar, nokkrum dög-
um áður en Bretar hertóku
skólann árið 1940. Hún ferðaðist
víða um ævina og upplifði margt
sem hana hefur örugglega ekki
dreymt um að upplifa sem ung
stúlka fyrir norðan. Mikilvægast
af öllu fannst henni þó að eiga
innihaldsríkar stundir með sínum
nánustu. Fjölskyldan skipti hana
miklu máli og hún studdi við bak-
ið á mér og mínum alla tíð. Betri
bandamann er varla hægt að
eiga.
Mig langar að minnast elsku
ömmu Nunnu með ljóði eignuðu
annarri merkri konu að norðan
og um leið mjúka, breiða faðm-
sins sem umvafði mann hlýju og
væntumþykju, hvenær sem eftir
því var leitað.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Sólveig.
Þegar ég kynntist Bjössa fyrir
rúmum tveimur áratugum man
ég að ég öfundaði hann mikið að
eiga allar ömmur og afa á lífi. Því-
lík gæfa. Ég komst líka fljótt að
því að amma Nunna var stór
klettur í lífi hans og allra í fjöl-
skyldunni. Hún var þungamiðjan
sem allir leituðu til og það var hún
sem var alltaf mætt þegar á þurfti
að halda.
Amma Nunna var hlý, yfirveg-
uð og með góða nærveru og um
leið svo hnyttin og skemmtileg.
Það var alltaf gaman að vera í
kringum hana. Henni var annt
um alla í fjölskyldunni, hafði
áhuga á því sem fólk var að fást
við og það sem hún hafði gaman
af barnabarnabörnunum. Þau
hafa verið lánsöm að fá að kynn-
ast henni vel og njóta samveru-
stunda með henni í gegnum tíð-
ina.
Ég veit ekki hversu oft ég hef
sagt undanfarin ár pant fá að vera
eins og amma Nunna í framtíð-
inni. Það var aðdáunarvert hvað
hún lét fátt stoppa sig rúmlega ní-
ræð. Hún var dugnaðarforkur og
frábær fyrirmynd.
Guð blessi minningu elsku
ömmu Nunnu.
Herborg Harpa
Ingvarsdóttir.
Guðrún Margrét
Árnadóttir
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Sálm. 86.11
biblian.is
Vísa mér veg þinn,
Drottinn, að ég
gangi í sannleika
þínum, gef mér
heilt hjarta, að ég
tigni nafn þitt.