Morgunblaðið - 24.10.2019, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
V
ið Urðarhvarf í Kópavogi eru höf-
uðstöðvar Bluebird Nordic. Þótt
margir kannist við nafn félagsins og
viti að þar fari félag sem sérhæfi sig í
fraktflutningum eru fæstir meðvitaðir um að
langstærstur hluti umsvifa þess er alls ótengd-
ur Íslandi.
Forstjóri og einn af stærstu hluthöfum fé-
lagsins er Steinn Logi Björnsson. Hann hefur
víða komið við í íslensku viðskiptalífi á undan-
förnum áratugum en hann starfaði lengi fyrir
Flugleiðir og síðar Icelandair, bæði hér heima
og erlendis.
Aðkoma Steins Loga að Bluebird rekur sig
aftur til ársins 2013 en félagið var stofnað árið
1999 og er því tuttugu ára í dag.
„Félagið á rætur að rekja til umsvifa Cargo-
lux hér á landi. Hér var starfrækt félag sem
nefndist Flugflutningar og það höndlaði með og
miðlaði frakt fyrir félagið til og frá Íslandi, m.a.
fiski. Þegar var komið undir aldamótin hætti
Cargolux þessari starfsemi hér og þá ákváðu
forsvarsmenn Flugflutninga að stofna frakt-
félag sem myndi fljúga milli Íslands og Evrópu.
Þeir keyptu farþegavél og breyttu í flutningavél
og hún var m.a. nýtt til að flytja sendingar fyrir
UPS. Síðar bættist þjónusta við FedEx og fleiri
við og vélunum fjölgaði,“ segir Steinn Logi þeg-
ar hann rifjar upp aðdragandann að stofnun fé-
lagsins og upphafsár þess.
Endurskipulögðu fyrirtækið
Starfsemin var einkum byggð á svokallaðri
blautleigu (e. wet lease) það er þjónustu við
önnur fyrirtæki þar sem Bluebird lagði til flug-
vél, áhöfn, viðhald og tryggingar en verk-
kauparnir greiddu annan kostnað sem til féll
vegna flutninganna.
„Þessi starfsemi hefur jafnt og þétt undið upp
á sig en þegar við komum að félaginu þá þurft-
um við að fara í talsverða endurskipulagningu á
starfseminni.“
Þar vitnar Steinn Logi til þess að Icelandair
Group hafði keypt Bluebird árið 2005. Eftir að
fyrrnefnda félagið fór í gegnum fjárhagslega
endurskipulagningu var Bluebird tekið út úr
samstæðunni og sett í söluferli.
„Það gekk mjög illa að selja félagið og það
tapaði miklum fjármunum 2012 og 2013, ekki
síst vegna þess að það missti samninga við
DHL. Á þessum tíma var ég nýhættur sem for-
stjóri Skipta sem nú heitir Síminn. Þá hafa sam-
band gamlir félagar frá Icelandair-árunum, sem
eru núverandi eigendur Air Atlanta. Þeir höfðu
verið að skoða félagið og töldu tækifæri í því.
Þeir höfðu hins vegar ekki tíma til að halda
áfram með málið og þannig fór að ég tók við
keflinu. Viku síðar keyptum við félagið í samein-
ingu.“
Þar var Steinn Logi kominn á heimavöll, ekki
aðeins vegna þess að nú var hann að nýju kom-
inn í flugbransann, heldur vegna þess að á ár-
unum eftir hrun hafði hann komið að mörgum
verkefnum tengdum endurskipulagningu fyrir-
tækja, ekki aðeins á vettvangi Skipta heldur
einnig sem stjórnarmaður í Högum og TM, svo
dæmi séu nefnd.
Nýir eigendur biðu ekki boðanna. Félagið
sneri taflinu sér í hag á fyrsta rekstrarári í
þeirra höndum. Það skilaði jákvæðri rekstrar-
niðurstöðu strax árið 2014.
„Við gengum hreint til verks. Við endur-
skipulögðum flutningastarfsemina til og frá Ís-
landi. Hættum að fljúga til Köln og byrjuðum
nýja flutningaleið milli Keflavíkur, Dublin á Ír-
landi og Liège í Belgíu. Þá seldum við eina vél
sem var í eigu félagsins og náðum að borga upp
allar skuldir félagsins með því. Vélina leigðum
við svo aftur með svokölluðum sölu- og endur-
leigusamningi (e. sale and leaseback). Þetta
skilaði tilætluðum árangri og við höfum náð að
bæta við okkur vélum.“
Stærstur hluti starfseminnar erlendis
Bluebird er þannig með eina vél í förum á
leiðinni sem þræðir Ísland, Írland og Belgíu. En
félagið hefur haft sjö aðrar vélar í verkefnum
erlendis á síðustu misserum. Nú stendur félagið
hins vegar í stórræðum og endurskipuleggur
flotann sem samanstendur af Boeing 737-300-
og 737-400-vélum.
„Þetta eru verkefni sem teygja sig víða. Tvær
vélar hafa verið í verkefnum fyrir FedEx með
aðsetur í Liège í Belgíu, tvær hafa verið í verk-
efnum fyrir DHL og þá erum við einnig með
vélar að fljúga fyrir spænska félagið Swift. Síð-
ustu mánuði hefur hins vegar staðið yfir nokkur
endurskipulagning á flotanum og þess vegna
höfum við verið að skoða endurnýjun á honum.
Nú þegar höfum við selt tvær vélar og erum að
leita að vélum til að fylla þeirra skarð.“
Á tímamótum þegar félög endurskoða flota
sinn er ekki hjá því komist að spyrja um vaxtar-
tækifæri. Steinn Logi segir að þau séu til stað-
ar.
„Þau eru fyrir hendi. Við höfum líka alltaf
haft augun opin fyrir því að fara út í farþega-
flutninga. Þess vegna breyttum við fyrir tæpum
tveimur árum nafni félagsins úr Bluebird Cargo
í Bluebird Nordic. Það var gert til þess að geta
farið inn á þennan markað ef færi gefst. Í því
sambandi erum við ekki endilega að tala um
áætlunarflug til og frá Íslandi heldur blautleigu
fyrir önnur flugfélög.“
Hann segir þó að ytri aðstæður valdi því að
þessar vangaveltur séu í raun á ís.
„Við höfum skoðað þetta og séð tækifæri í að
fara út í þetta með Boeing 737-800-vélum.
Vandinn sem við stöndum hins vegar frammi
fyrir er eftir að 737-MAX vélarnar voru kyrr-
settar þá hafa allir flugrekstraraðilar framlengt
leigu sína á 737-800 og verðið á þeim markaði
hefur rokið upp úr öllu valdi. Þeir sem ætluðu
að skipta yfir í MAX, sem voru að mestu félög
með 737-800 vélar, hanga á þeim og munu gera
það meðan þessi óvissa skýrist ekki.“
Um 70% starfsfólksins erlendis
Hjá Bluebird starfa um 100 manns. Steinn
Logi segir að stærstur hluti hópsins sé dreifður
um Evrópu þar sem vélar félagsins eru stað-
settar.
„Þetta eru að stærstum hluta flugmenn. Hér
á skrifstofunni í Kópavogi eru um 30 manns.
Svo erum við með viðhaldsstöðvar á þeim stöð-
um þar sem verkefnin eru hverju sinni. Þannig
erum við í dag með slíkar stöðvar í Liège, Kaup-
mannahöfn, Leipzig og Madrid.“
Spurður út í hvort það flæki ekki starfsemina
að starfsmannafjöldinn skuli dreifður svo víða
segir Steinn Logi að það komi ekki að sök.
Starfsemin sé afar vel skipulögð og það sé hluti
af eðli flugstarfsemi sem þessarar að hún bygg-
ist á mjög ítarlegum handbókum. Þá geri tölvu-
tæknin skipulagninguna einfalda. Það birtist
m.a. í því að hver einasti flugmaður hafi spjald-
tölvu í sínum fórum þar sem þeir geti nálgast
allar þær upplýsingar sem þá vanhagar um í
tengslum við umsvif fyrirtækisins.
Á sama tíma og Bluebird flytur vörur til og
frá Íslandi í eigin nafni byggja verkefnin er-
lendis á einskonar verktakasamningum við risa-
fyrirtæki á borð við FedEx og UPS. Steinn
Logi segir viðskiptasambandið við þessi fyrir-
tæki gott.
„Þessi viðskipti eru í föstum skorðum og við
erum með tengiliði hjá þessum fyrirtækjum
sem halda utan um þá samninga sem við erum
með.“
Ekki margir á þessu sviði
Hann bendir þó á þá áhugaverðu staðreynd
að það eru ekki mörg fyrirtæki í Evrópu sem
starfa á þeim markaði sem Bluebird hefur hasl-
að sér völl síðastliðna tvo áratugi.
„Það eru ekki mörg félög í samkeppni við
okkur. Það má segja að það séu tveir risar, ann-
ars vegar ALS, sem reist var á grunni þess sem
áður var TNT Airways og hins vegar Swift. Að
þessum tveimur risum undanskildum þá eru
það í raun aðeins við og eitt annað fyrirtæki.
Það hefur verið talsvert um samruna á þessum
markaði á síðustu árum.“
Hann segist ekki sjá við sjóndeildarhringinn
að Bluebird verði þátttakandi í slíku ferli en
ítrekar þó að það eigi við á þessum markaði eins
og mörgum öðrum að afar erfitt sé að spá fyrir
um framtíðina.
Þegar Steinn Logi vísar til óráðinnar fram-
tíðar er ekki úr vegi að spyrja hann út í stöðuna
á flugmarkaðnum almennt, markaði sem hann
hefur lifað og hrærst í með stuttum hléum í ára-
tugi. Flest flugfélög á farþegamarkaði eru í
þröngri stöðu og fátt bendir til þess að rofa
muni til á komandi mánuðum.
„Staðreyndin er sú að það er held ég enginn
geiri í heiminum sem verður fyrir öðrum eins
áhrifum frá þáttum sem menn hafa enga stjórn
á sjálfir. Það birtist í því hvernig stríðsátök eins
og þau sem nú geisa milli Tyrkja og Kúrda hafa
áhrif á alla ferðaþjónustu í Tyrklandi. Þá þurfa
flugfélögin að beina vélum sínum annað til að
halda þeim í verkefnum. Þetta getur birst í af-
leiðingum hryðjuverka í Bandaríkjunum og svo
sáum við bara um daginn hvernig átök milli Ír-
ana og Sádi-Araba leiddu til þess að eldsneytis-
verð hækkaði um 16% á einum degi. Þá eru ótal-
in áhrifin af sveiflum gjaldmiðla og svo mála á
borð við brexit eða viðskiptastríð milli Banda-
ríkjanna og Kína. Þessir þættir hafa allir mikil
áhrif auk almennrar eftirspurnar í heims-
hagkerfinu. Það á ekki aðeins við um ferðaþjón-
ustuna heldur einnig fraktina sem byggist á
flutningi á vöru sem verið er að selja milli landa
og heimsálfa,“ segir Steinn Logi.
Kyrrsetning haft mikil áhrif
Þá bendir hann á að kyrrsetning Boeing 737-
MAX-vélanna fyrr á þessu ári hafi dregið dilk á
eftir sér og mat hans er að markaðurinn muni í
raun ekki komast í eðlilegt horf á ný fyrr en bú-
ið verði að leysa rembihnútinn sem myndast
hefur vegna þeirrar flugvélagerðar.
„Það koma sífellt verri fréttir af þeim málum.
Það sem hefur gerst er að tortryggnin er orðin
gríðarleg og enginn ætlar að sitja uppi með
Svarta-Pétur í málinu. Hér áður fyrr var það
þannig að bandarísk flugmálayfirvöld nutu
óskoraðs trausts þegar kom að því að votta am-
erískar flugvélar. Það kvittuðu öll flugmála-
yfirvöld upp á slíka vottun. Það var gagnkvæmt
þegar evrópsku yfirvöldin vottuðu vélarnar frá
Airbus. Nú er annað uppi á teningnum og ég
held að þetta sé í fyrsta sinn sem sú staða kem-
ur upp. Það veldur því að það getur tekið langan
tíma að koma þessum vélum aftur í loftið.“
Steinn Logi segir það koma til greina að
sækja stærri flugvélar inn í rekstur Bluebird ef
tækifæri skapast til þess.
„Það kemur vel til greina og við höfum reynd-
ar gert tilboð í slík verkefni. Við höfum hins
vegar reynt að reka félagið með íhaldssömum
hætti. Okkur hefur ekki legið á að vaxa og aldrei
sett upp plan um að við ætlum að vera með svo
og svo margar vélar eftir tiltekinn tíma. Við höf-
um einfaldlega ákveðið að sæta færis þegar
tækifærin koma. Þannig viljum við tryggja okk-
ur vélar og verkefni þegar við höfum eitthvað að
sækja. En ef við stækkum væri rökrétt að fara í
737-800 vélar frá Boeing. Það myndi gefa okkur
færi á að nýta starfskrafta flugmannanna okkar
betur því þeir eru hlutfallslega lítið í loftinu
vegna eðlis starfseminnar. Þar væri tækifæri í
að auka framlegð.“
Vinnugleðin skiptir máli
Bluebird er í hópi framúrskarandi fyrirtækja
og þá má spyrja Stein Loga, sem komið hefur
að rekstri og stjórnun afar ólíkra fyrirtækja,
hvaða lærdóm hann hafi dregið af því hvað komi
fyrirtækjum í fremstu röð.
Í mínum huga skiptir góður andi á vinnustað
miklu máli. Það er mikilvægt að halda gleðinni
og þar skiptir miklu máli að fólk hafi nóg að
gera. Vinnugleði er mikilvæg. Það versta sem
gerist á vinnustöðum er þegar fólk hefur of lítið
að gera. Þá fer mórallinn niður. Annað sem
skiptir máli líka og það er að allir séu meðvitaðir
um stjörnuna eins og ég kalla það, þ.e. viti að
hverju er stefnt. Þá þarf ekki á hverjum degi að
setja stefnuna og það eflir félög.“
ses@mbl.is
Farþegaflutningar inni í myndinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
165. sæti
BLUEBIRD
NORDIC
Stórt 142. sæti
Steinn Logi Björnsson
Steinn Logi Björnsson
keypti fyrirtækið í félagi
við fleiri árið 2013.