Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 28
71. sæti
IKEA
Stórt 72. sæti
Stefán R. Dagsson
S
töðugildin hjá IKEA eru nærri því
jafn mörg og dagar ársins og þeim
sinna um 460 starfsmenn í misháu
starfshlutfalli. Verkefnin og hand-
tökin eru ótalmörg og fjölbreytt. Fáir þekkja
þá staðreynd betur en Stefán R. Dagsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Meira en þrír
áratugir eru liðnir frá því að hann gerðist
kerrustrákur hjá IKEA og nauðsynlegt er að
ítreka að hér er ekki um misritun að ræða.
Hann var aðeins 13 ára gamall þegar vinnu-
sambandið komst á en móðir hans starfaði á
þessum tíma hjá fyrirtækinu. Síðan þá hefur
hann nær einvörðungu starfað við verslunina ef
frá eru talin tvö ár þegar hann vann hjá Jo-
hanni Rönning og stuttur tími hjá Hagkaup.
Síðarnefnda tímabilið telst þó varla með, enda
var verslunin í eigu sömu einstaklinga og þeirra
sem áttu þá, og eiga enn, húsgagnarisann í
Kauptúni í Garðabæ.
„Ég var svo fastráðinn þegar ég var 23 ára
og fór þá í innkaupadeildina sem sá um smávör-
una. Svo fór ég yfir í birgðamálin. Þá var ég
sölustjóri og sá um val á vörum og söluna. Í
kringum 2008 fór ég svo að aðstoða Þórarin
Ævarsson, þáverandi framkvæmdastjóra,
meira og meira,“ segir Stefán.
Verkefni innanlands og utan
En það er þó talsverð einföldun að halda því
fram að Stefán hafi aðeins komið að verslunar-
rekstrinum sem slíkum því hann hefur með
ólíkum hætti átt aðkomu að ýmsum stórstígum
breytingum í starfseminni.
„Ég tók þátt í að rífa verslunina sem staðsett
var í Húsi verslunarinnar. Þá var ég í hópi
þeirra starfsmanna sem komu að uppsetningu
verslunarinnar í Holtagörðum. Ég fékk að
koma að uppbyggingunni hér í Kauptúni og svo
var ég einnig í uppbyggingunni í Litháen
[starfsemin í Litháen og Lettlandi er undir
sama rekstrarleyfi og verslunin hér á landi].
Það var verkefni sem tók eitt og hálft ár og ég
var talsvert úti á þeim tíma. Nýi lagerinn í
Suðurhrauni var líka verkefni sem ég kom að
og einnig nýja íbúðablokkin í Urriðaholtinu,
skammt frá IKEA í Kauptúni.“
Spurður út í hvort hann hafi aldrei fengið
leiða á því að starfa fyrir sama fyrirtækið í öll
þessi ár segir hann að svo sé ekki.
„Í mínum huga hefur það verið frábært tæki-
færi að fá að starfa fyrir IKEA og það hefur
verið mjög gaman. Ég er stoltur af því að vinna
hér og ég er stoltur af fyrirtækinu sem slíku.
Það skiptir miklu máli. Hérna hef ég lært
gríðarlega margt og fjölbreytileikinn er svo
mikill að maður er alltaf í einhverju nýju. Það
er alltaf eitthvað nýtt að gerast.“
IKEA hefur vaxið mjög síðastliðinn áratug
og er orðið stórveldi á íslenskum húsgagna- og
smásölumarkaði. Stefán segir það hafa verið
fróðlegt að fylgjast með og vera þátttakandi í
þeim vexti.
„Það var mikill samdráttur eftir hrun, eða
um fjörutíu prósent mælt í rúmmetrum. En síð-
an þá hefur orðið hrein og klár sprenging. Við
erum með sölu sem er á svipuðum slóðum og
stærri markaðir á borð við Litháen og Lett-
land.“
Stefán tók við starfi framkvæmdastjóra fyrr
á þessu ári eftir að Þórarinn Ævarsson sagði
starfinu lausu. Þegar hann er beðinn um að
skyggnast yfir farinn veg og svara því hvað
tryggt hafi velgengni IKEA hér á landi stendur
ekki á svörum.
„Starfsfólkið skiptir höfuðmáli. Við leggjum
höfuðáherslu á að því líði vel og við leitum allra
leiða til að efla það alla daga ársins. Við erum
með allskyns námskeið og utanumhald í kring-
um það. Við leggjum okkur einnig fram um að
taka vel á móti nýju fólki þegar það byrjar hjá
okkur. Þá hefur alla tíð skipt miklu máli að allir
eru þátttakendur. Þetta er samvinnuverkefni
þar sem kallað er eftir sjónarmiðum allra
þeirra sem starfa hjá fyrirtækinu. Þessu hef ég
kynnnst mjög vel alveg frá því að hafa verið hér
í hlutastarfi sem unglingur og upp í það að
stýra fyrirtækinu frá degi til dags.“
Hann segir að með þessari nálgun forðist
stjórnendur fyrirtækisins að setja hlutina upp í
excel í von um að fá út rétta niðurstöðu.
„Við erum djörf og prófum hluti sem ekki
myndu koma út úr excel-skjalinu. Við fáum
ábendingar og hugmyndir alstaðar að úr fyrir-
tækinu og þegar stjórnendur þess koma saman
heyrast þá raddir starfsfólksins þegar kemur
að ákvarðanatökunni.“
Meiri þjónusta lykill að árangri
Djarfar tilraunir hafa leitt til þess að IKEA á
Íslandi hefur ekki endilega farið troðnar slóðir í
rekstrinum þegar litið er til þeirra rúmlega 430
verslana sem reknar eru undir sama heiti um
veröld víða. Stefán segir að þar hafi m.a. komið
í ljós að góður árangur hafi náðst af meiri þjón-
ustu en tíðkast hefur.
„Þetta sést t.d. á teikniþjónustunni hjá okk-
ur. Erlendis er fólki að mestu bent á að teikna
upp innréttingar sjálft og svo kemur það og fær
þjónustu í einn klukkutíma eða svo til að ganga
frá pöntun og endanlegu útliti. Við tökum hins
vegar niður beiðnir hjá fólki og teiknum svo
upp innréttingar eftir ákveðnum stöðlum og á
grunni þarfapýramída. Þannig sköpum við t.d.
eldhús sem flestir ættu að geta nýtt sér vel.
Með þessu dregur líka úr áhættunni að fólk fari
einhverjar leiðir sem það sér svo eftir því fólk
kann kannski ekki að forðast ákveðin vandamál
sem reyndir teiknarar þekkja út og inn. Svo
hefur fyrirtækjaþjónustan okkar einnig verið
mjög umfangsmikil og meiri en hjá flestum öðr-
um IKEA-verslunum í heiminum. Þar erum við
að þjónusta hótel, verktaka, Airbnb-rekstrar-
aðila, bændur í ferðaþjónustu og fleiri og fleiri.
Við teiknum, skipuleggjum og aðstoðum við að
koma heildarmynd á hlutina. Þessi þjónusta
hefur verið mikið nýtt og aukið umsvifin okkar
á þessum markaði gríðarlega.“
Veitingasalan vex og vex
Meðal þess sem dregur ótölulegan fjölda
fólks í verslun IKEA á hverjum degi er veit-
ingasala sem nú er í boði á báðum hæðum húss-
ins, annars vegar í matvöruverslun og bakaríi á
jarðhæð og á veitingastað og kaffihúsi á ann-
arri hæð. Stefán segir að þessari þjónustu hafi
verið afar vel tekið og að henni vaxi ásmegin
með hverju ári.
„Þetta eru um 15 prósent af veltunni hjá okk-
ur meðan hlutfallið er um 7% víðast hvar er-
lendis. Vöxturinn er talsverður á hverju ári. En
við höfum líka farið aðrar leiðir en aðrir. Við
bjóðum upp á 7 til 9 rétti að jafnaði meðan flest-
ir eru með 4 til 5. Svo erum við með rétti mán-
aðarins sem auka fjölbreytileikann enn frekar.“
Um helgar má sjá straum af fólki inn og út úr
versluninni allt frá opnun. Því ræður m.a. sífellt
meiri aðsókn í brauð og sætindi sem starfs-
menn fyrirtækisins galdra fram í risastóru bak-
aríinu. Stefán segir að það njóti sífellt meiri vin-
sælda og að sérstaða þess sé sú að nær allt
brauð og sætabrauð sem þar fæst sé bakað inn-
anhúss.
„Á flestum öðrum stöðum er verið að kaupa
hlutina inn að nokkru leyti tilbúna en hér erum
við með aðstöðu til að gera allt frá grunni. Það
nýtist bæði í bakaríinu, á veitingastaðnum og á
kaffihúsinu. Við steikjum t.d. kleinur og ástar-
punga. Á síðasta ári seldum við 862 þúsund
kleinur og salan hefur aukist enn í ár.“
Vandasamur tími
Á síðastliðnu ári nam hagnaður IKEA tæp-
lega 528 milljónum króna og dróst verulega
saman frá fyrra ári þegar hagnaðurinn slagaði í
nærri milljarð. Stefán segir að rekstrar-
umhverfið sé krefjandi og að í því felist helstu
áskoranirnar núna.
„Kostnaður fyrirtækja hefur aukist gríðar-
lega og farið raunar upp úr öllu valdi. Það er
mikil áskorun fyrir okkur að ná honum niður og
hagræða. Við teljum það rétta leið án þess að
segja upp fólki enda er fyrirtækið ekkert án
starfsfólksins sem þar starfar.“
Fyrrverandi framkvæmdastjóri vitnaði oft til
þess að smásala snerist um smáatriðin og Stef-
án segir að það sé hárrétt.
„Þetta snýst um það og að vanda sig. Við ein-
beitum okkur að því að halda versluninni í topp-
standi og þannig að hún sé alltaf áhugaverð.
Við erum svo svakalega lítill markaður að til
þess að halda uppi veltunni verðum við að fá
hvern Íslending að minnsta kosti sex sinnum á
ári í heimsókn. Til þess að það takist verðum
við að gera breytingar svo að fólk hafi eitthvað
nýtt að sjá. Svo viljum við hafa eitthvað
skemmtilegt að gerast og það skiptir líka miklu
máli.“
Á sama tíma og Stefán og hans fólk lítur inn
á við í rekstrinum hefur fyrirtækið tryggt sér,
fyrst íslenskra fyrirtækja, svokallaða AEO-
öryggisvottun sem Tollstjóri hefur komið á.
Um er að ræða alþjóðlega gæðavottun sem fel-
ur í sér að fyrirtæki er viðurkennt sem öruggur
hlekkur í aðfangakeðjunni, hefur tileinkað sér
ábyrga tollameðferð og uppfyllir kröfur um al-
þjóðlega vöruflutninga. Stefán segir þetta
mikla viðurkenningu fyrir IKEA hér á landi.
ses@mbl.is
Seldu 862 þúsund kleinur í fyrra
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019
IKEA hefur lengi verið í fararbroddi hvað varðar umhverfisvernd hérlendis. T.d. hefur ekk-
ert annað fyrirtæki byggt upp eins öfluga aðstöðu fyrir rafbílaeigendur. Stefán segir að
það sé mjög áhugavert að sjá hversu hröð þróunin í umhverfismálunum sé um þessar
mundir.
„Þessi áhersla hefur lengi verið til staðar en hún hefur aukist gríðarlega síðastliðin ár.
Það sjáum við t.d. með sífellt minni plastnotkun og frá næsta ári verður bannað að selja
einnota plast í verslunum fyrirtækisins. Þá höfum við líka tekið rafbílaþróunina föstum
tökum og viðskiptavinir okkar hafa í æ meira mæli nýtt sér rafskutlur sem við lánum í tvo
tíma í senn.“ Stefán segir vöruúrvalið að sjálfsögðu ekki undanskilið í þessum málum.
„Hver einasta vara er hönnuð með það í huga að hún hafi vistvæna eiginleika og það get-
ur þá átt við um notagildið, hráefnið eða framleiðsluaðferðir.“
Leggja stóraukna áherslu á um-
hverfismál og banna einnota plast
Morgunblaðið/Hari
Stefán R. Dagsson
hefur starfað hjá IKEA í
rúma þrjá áratugi.