Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 84
V
ið erum bara mjög sátt við stöðuna
hjá okkur og umhverfið sem við er-
um í. Við erum ungt félag, bara tíu
ára gömul á þessu ári, en samt
stórt félag á íslenskan mælikvarða. Okkur
hefur tekist að byggja upp sterka einingu
sem er að ná árangri fyrir hluthafa okkar,
viðskiptavini og samfélagið,“ segir Helgi S.
Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Reg-
ins. Það er óhætt að segja að félagið hafi
vaxið ört. Fram kom í hálfsársuppgjöri Reg-
ins að virði fasteignasafns þess næmi 133,8
milljörðum króna. Þá eru í eignasafni Regins
rúmir 377 þúsund fermetrar í 119 fasteignum
á Íslandi. „Þegar haft er í huga hvað þetta
hefur gerst á skömmum tíma held ég að við
megum vera virkilega sátt,“ segir Helgi.
Hafnartorg er líklega umtalaðasta verkefni
Regins að undanförnu enda á áberandi stað í
miðbænum og skiptar skoðanir um útlit og
eðli, en það er alls ekki stærsta eða flóknasta
verkefni félagsins, að sögn forstjórans. Hann
segir verkefnin sem hafa verið krefjandi og
umfangsmikil hafa fyrst og fremst verið þau
sem komu til félagsins við stofnun þess á ár-
unum eftir hrun. „Það eru stóru verkefnin
okkar – sem hefur tekist gríðarlega vel að
snúa við úr erfiðri stöðu – að taka við þeim
verkefnum sem Landsbankinn fékk í fangið.
Í þessu samhengi má kannski nefna Egils-
höll. Það er verkefni sem við fengum í fangið
við mjög erfiðar aðstæður. Þar var allt í upp-
námi, rekstur, starfsemi og hálfbyggð hús.
Það hefur tekist að snúa því algjörlega við og
byggja upp verkefni sem er einstakt á
íslenskum markaði. Við erum mjög sátt við
þá niðurstöðu.“
Tækifæri í íbúakjörnum
Um 1,4 milljónir gesta koma í Egilshöll á
hverju ári, svarar Helgi er hann er spurður
hvort það hafi verið áskorun að byggja
grundvöll að svo umfangsmiklum rekstri í út-
hverfi. „Þetta er samfélag sem er mjög
skemmtilegt. Þarna er fjölbreytt íþrótta-
starfsemi. Fótbolti, handbolti, körfubolti,
fimleikar, skautar, skotíþróttir og svo eru
einkaaðilar með sterkan rekstur eins og
World Class, Keiluhöllin, bíó og veit-
ingarekstur. Svo er komin þarna endurhæf-
ingarstöðin Hæfi. Þannig að þetta er fjöl-
breytt samfélag þar sem íþróttir, afþreying
og skemmtun eru allsráðandi, þetta er alls
ekki afskekkt heldur hringiðan í Grafarvogi.“
Þá kveðst hann sjá mikil tækifæri fram
undan fyrir sterka viðskipta-, atvinnu- og
íbúakjarna í ljósi þeirra breytinga sem eru
að verða í samfélagi okkar. Þar er lykillinn
meðal annars að breyta samgöngumáta og
þétting byggðar. „Þetta snýst um að það eru
ný viðhorf í samfélagi okkar sem snúast um
að huga betur að því umhverfi sem við búum
í. Minnka sóun, fækka ferðum, minnka
eldsneytisnotkun, að fólk búi þar sem það
vinnur, verslar og stundar afþreyingu.“ Telur
forstjórinn þessar breytingar vinna með
frekari uppbyggingu á svæðum sem áður
voru hugsanlega talin jaðarsvæði í úthverfum
höfuðborgarsvæðisins.
Smáralind áskorun
Helgi bendir á að Smáralind, sem er
stærsta einstaka eign félagsins, hafi verið í
erfiðri stöðu eins og Egilshöll. „Eins og með
Egilshöll keyptum við Smáralind í byrjun árs
2010 og tókum við henni í mjög erfiðu
ástandi, tekjur voru hnignandi og nánast allir
samningar að renna út eftir nokkur ár.
Stærsti leigutakinn var Hagar, sem leigðu
yfir 50% af því húsnæði en vildu minnka mik-
ið við sig. Við byrjuðum strax að huga að
stöðunni til framtíðar og hvernig við gætum
snúið henni við. Á árinu 2014 var ákveðið að
ráðast í endurreisnarferil sem taka myndi
4-5 ár. Núna sjáum við mjög skýrt að þessi
fimm ára vegferð okkar, sem m.a. hefur þýtt
að við fjárfestum fyrir sex milljarða, hefur
tekist vel. Það kemur fram í aðsóknartölum
og veltu leigutaka.“ Hann segir aðalmarkmið
Regins hafa verið að ná inn nýjum sterkum
leigutökum og vinna náið með þeim sterku
aðilum sem fyrir voru, meðal annars með
sterkri áherslu á fatamarkaðinn og vöru-
merki sem vinsæl eru hjá íslenskum neyt-
endum. „Það verkefni hefur tekist frábær-
lega. Í húsinu er nú samsetning alþjóðlegra
vörumerkja sem neytendur sækja í, eins og
Zara, H&M og Lindex og önnur sterk merki.
Þau eru meirihlutinn af leigutökum okkar í
Smáralind. Við erum algerlega ófeimin að
segja að við höfum spilað stórt hlutverk í því
að ná fataverslun heim.“
Það eru þó aðrar leiðir sem eru farnar á
Hafnartorgi að sögn forstjórans, enda aðrar
áherslur og að hluta annars konar markaður.
„Þetta er miðbæjarverslun og við erum að
endurvekja verslun í miðbænum.“ Aðspurður
segir hann sterk vörumerki komin og á leið í
verslunarrými Hafnartorgs. „Já, þau koma
hægt og bítandi, við erum á fínu róli þar. Við
erum með sterk alþjóðleg merki og sterka
innlenda verslunaraðila. Ný verslunarrými
eru stöðugt að opnast,“ segir hann og bendir
á að Rolex hafi nýlega opnað verslun á staðn-
um auk Optical Studio. „Þetta er á fínni sigl-
ingu og erum ágætlega sátt við verkefnið.“
Helgi viðurkennir þó að hann hefði viljað sjá
hlutina gerast hraðar, en að það sé nokkuð
sem þurfi að sætta sig við þegar um sé að
ræða alþjóðlegar keðjur og uppbyggingu
stórrar nýrrar verslunareiningar í miðbæ.
Það tekur allt mikinn tíma við aðstæður sem
þessar, mikilvægt er að hafa þolinmæði og
skýra framtíðarsýn.
Spurður hvort verslun Gucci sé væntanleg
á Hafnartorg hlær hann og segir spurn-
inguna orðið nokkuð þreytta. „En auðvitað
koma þessi merki einhvern tímann til Íslands
og vilja vera í miðbænum, það er alveg á
hreinu.“
Opinberar stofnanir kjölfestan
„Við lærðum af Smáralind að maður þarf
að vera reiðubúinn að bíða með leigurými til
þess að fá réttu samsetninguna, þar vorum
við með leigurými sem við biðum með í eitt
og hálft ár fyrir ákveðna leigutaka. Það þýðir
ekki að fylla rýmin af bara einhverju,“ út-
skýrir Helgi. Þá sé mikilvægt að sýna þolin-
mæði og vera ekki of gráðugur í að hækka
leiguverðið. „Þetta snýst ekki um að hækka
leiguverðið. Þetta snýst um réttu samsetn-
inguna og réttu upplifunina fyrir viðskipta-
vininn þannig að hann komi aftur og aftur.
Þannig byggist þetta upp hægt og rólega.“
Helgi telur að Laugavegurinn sé í tíma-
bundnum erfiðleikum af tveimur tengdum
orsökum. „Gríðarlega mikil uppsveifla í
ferðageiranum spennti upp fasteigna- og
leiguverð á miklum hraða og út fyrir öll
mörk, svo að þegar samdráttur kemur er
ekki við neitt ráðið. Leiguverð var bara kom-
ið á einhver mörk sem þessir leigutakar
þoldu ekki og þess vegna tæmast þessi
rými.“ Hann ítrekar að mikilvægt sé að nýta
tímann til að finna rétta leigutakann frekar
en að hámarka afkomu með hárri leigu.
„Þannig er markaðurinn og það þýðir ekkert
að bjóða viðskiptavininum eitthvað sem hann
vill ekki.“
Þó að Smáralind og Hafnartorg fái mikla
umfjöllun eru tæplega 40% af eignasafni
Regins í útleigu til opinberra aðila, ríkis og
sveitarfélaga. „Þar er stöðugleikinn sem við
sækjumst eftir. Við erum að leigja gríðarlega
mikið til Ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar, “
segir forstjórinn og bendir á að um fjölbreytt
húsnæði sé að ræða. „Þetta eru kjarna-
viðskipti okkar. Þetta eru sterkir leigutakar
og samningar til allt að 25 ára. Við teljum
þetta gera okkur frábrugðin öðrum leigu-
félögum, m.a. gefur þetta allt annan og hag-
stæðari áhættu prófíl.“
gso@mbl.is
Mikilvægt að vera ekki of gráðugur
Ljósmynd/Sigtryggur Ari Jóhannsson
Mikill lærdómur hefur fylgt því
að koma Smáralindinni úr erf-
iðri stöðu, að sögn Helga S.
Gunnarssonar sem segir lyk-
ilinn að finna rétta leigutakann.
14. sæti
REGINN
Stórt 14. sæti
Helgi S. Gunnarsson
84 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI