Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 94
94 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
G
uðbjörg Heiða Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Marels á Ís-
landi, segir að samfélagsábyrgð
og sjálfbærni hafi verið hluti af
starfsemi fyrirtækisins frá upphafi. Starf-
semin gangi út á að þróa og framleiða há-
tæknileg tæki, heildarkerfi og hugbúnað
sem umbylti matvælaframleiðslu á heims-
vísu, meðal annars með aukna nýtingu og
rekjanleika að leiðarljósi. Þannig megi einn-
ig ná fram meiri hagkvæmni, matvæla-
öryggi og sjálfbærni. „Það skiptir máli að fá
þessi hvatningarverðlaun Creditinfo fyrir
framúrskarandi samfélagsábyrgð. Verðlaun
sem þessi eru hvetjandi fyrir okkur til að
halda áfram á sömu braut. Við viljum vera
fyrirmynd í sjálfbærni og samfélagsábyrgð
og tökum það hlutverk okkar alvarlega. Við
erum stórt fyrirtæki og höfum þar af leið-
andi mikil tækifæri til þess að hafa jákvæð
áhrif á bæði okkar iðnað, sem er mat-
vælaframleiðsla, og samfélagið. Við erum
stolt af því að fá þessa viðurkenningu,“ seg-
ir Guðbjörg.
Hefur fengið aukið
rými í umræðunni
Spurð nánar um hvernig sjálfbærni og
samfélagsábyrgð hafi verið sinnt í gegnum
árin segir Guðbjörg að heilt yfir hafi starf-
semin snúist m.a. um nýsköpun og framþró-
un í matvælavinnslu. „Ég hef unnið hjá
Marel í átta ár. Það er gaman og þakk-
arvert að taka þátt í og fá að sjá núna síð-
ustu misseri þessar auknu áherslur og sam-
tal um loftslagsmál, samfélagslega ábyrgð
fyrirtækja og sjálfbærni. Með aukinni upp-
lýsingagjöf og tækniframþróun hafa þessi
málefni fengið aukið rými í umræðunni.
Fyrir nokkrum árum byrjuðum við að nálg-
ast sjálfbærni á markvissari máta til þess að
skerpa enn frekar á þessum málum. Þannig
að það má segja að þá hafi þetta verið sett
fram með skýrari og stefnumiðaðri
áherslum.“
Gott dæmi um það er að sögn Guðbjargar
innleiðing sjálfbærni sem eins af kerfis-
bundnum viðmiðum í allri vöruþróun fyrir-
tækisins, en Marel fjárfestir árlega um 6%
tekna sinna í nýsköpun. Þar er horft til
vatns- og orkunotkunarlausna Marels,
kolefnisfótspors, nýtingu hráefna, matvæla-
gæða og fleiri þátta. Samhliða því hafi fyrir-
tækið meðal annars innleitt stefnu um jafn-
rétti og fjölbreytileika og sett af stað fleiri
verkefni sem snúi að starfsfólki og sam-
félaginu. „Við þurfum að vera mjög mark-
viss í öllum aðgerðum okkar tengdum sam-
félagslegri ábyrgð því við viljum við vera
framúrskarandi þegar kemur að þeim þátt-
um samfélagsábyrgðar sem okkur varða.
Tökum sem dæmi jafnréttismál og fjöl-
breytileika. Menningin á vinnustaðnum
skiptir máli. Að þar viti fólk og finni að
stjórnendur hvetji til opinna og heiðarlegra
samtala, byggi árangur á bestu mögulegu
lausninni og gleðin fái að vera grundvallar-
atriði.“
ESG upplýsingar nauðsynlegar
Eitt er að vinna markvisst að uppbygg-
ingu sjálfbærrar starfsemi og annað er að
upplýsa um hana. Marel hefur um þriggja
ára skeið tekið þátt í verkefni með Nasdaq-
kauphöllinni um virka upplýsingagjöf um
svokallaða ESG (e. Environment, Social,
Governance – umhverfismál, samfélagslega
þætti og stjórnarhætti) sjálfbærni-
mælikvarða.
„Þar viljum við gefa góðar upplýsingar
um framvindu okkar. Á alþjóðamarkaði er
slík upplýsingagjöf einfaldlega nauðsynleg,
og aðgangsmiði að þeim mörkuðum sem við
störfum á. Það hefur til að mynda verið
mikilvægt að veita greinargóðar ESG-
upplýsingar við skráningu bréfa félagsins í
Euronext-kauphöllina í Amsterdam.“
Spurð hvernig gangi að fá alla starfsmenn
og hagaðila í mismunandi menningar-
heimum með sér í lið segir Guðbjörg að hjá
Marel starfi yfir sex þúsund starfsmenn á
yfir 30 starfsstöðvum um allan heim, og
stefnan sé að þrefalda tekjur fyrirtækisins á
næstu sjö árum. „Allt þetta felur í sér mikil
tækifæri til að vera áberandi rödd á mark-
aðnum og hafa jákvæð áhrif á eina stærstu
virðiskeðju heims – matvælaiðnaðinn. Allar
starfsmannakannanir sem gerðar eru leiða í
ljós að það má alltaf auka upplýsingagjöf,
en samt sem áður held ég að starfsmenn viti
almennt hvert við stefnum og hvað við
stöndum fyrir, því allt frá upphafi hefur
Marel haft skýra sýn og verið trú því að í
nánu samstarfi við viðskiptavini umbyltum
við því hvernig matvæli eru unnin með sjálf-
bærni og hagkvæmni að leiðarljósi.“
Guðbjörg segir að á sama tíma sé Marel
meðvitað um að það þurfi að laga skilaboð
og verkferla að einstökum löndum og mark-
aðssvæðum, allt eftir menningunni og laga-
umhverfinu á hverjum stað.
Áfram til fyrirmyndar
Guðbjörg nefnir að lokum að fyrirtækið
ætli að halda áfram að vera til fyrirmyndar
á öllum sviðum samfélagsábyrgðar. „Það er
mikilvægt að allir starfsmenn Marels viti að
þeir skipti máli og að þekking þeirra sé að
nýtast til að árangur náist. Þegar við mæt-
um í vinnuna á okkur að líða vel. Það er al-
veg skýrt að fram undan eru mikil tækifæri
og við munum grípa þau með því að vinna
saman. Auðvitað er svo miklu skemmtilegra
að vinna saman, þannig kemur gleði og
stolt, að vera hluti af liðsheild sem nær
markmiðum sem aldrei hefðu náðst án sam-
vinnu.“
Viljum vera fyrirmynd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framúrskarandi
samfélagsábyrgð
MAREL
Guðbjörg Heiða
Guðmundsdóttir
„Menningin á vinnustaðnum skiptir máli.
Að þar viti fólk og finni að stjórnendur
hvetji til opinna og heiðarlegra samtala,
byggi árangur á bestu mögulegu lausninni
og gleðin fái að vera grundvallaratriði.“
Hvatningarverðlaun Creditinfo „Framúrskarandi sam-
félagsábyrgð“ eru nú veitt þriðja árið í röð í samstarfi við
Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð. Þriggja manna
dómnefnd sá um að velja það fyrirtæki sem skaraði fram
úr, en í ár varð stórfyrirtækið Marel hlutskarpast.
Formaður dómnefndarinnar, Fanney Karlsdóttir, skrif-
stofustjóri Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs, verk-
efnastjóri í Norræna húsinu og fyrrverandi formaður
Festu, segir að dómnefndin hafi komið saman í ágúst og
september og farið yfir listann frá Creditinfo yfir fram-
úrskarandi fyrirtæki, ásamt því að skoða þær tilnefningar
sem bárust.
Með Fanneyju í dómnefnd voru þeir Sæmundur Sæ-
mundsson, forstjóri Borgunar og varaformaður Festu, og
Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki og sér-
fræðingur í góðum stjórnarháttum.
Spurð hvort valið hafi verið erfitt í ár segir hún að svo
hafi verið. Allnokkur fyrirtæki séu framarlega í þessum efnum og séu góðar fyrirmyndir í
samfélagsábyrgð og sjálfbærni. „Það var því talsverð vinna að finna út úr því hver ætti skilið
að vinna verðlaunin í ár. Við skoðuðum mörg fyrirtæki og veltum vöngum. Á endanum
fannst okkur Marel eiga verðlaunin mest skilið, einkum út frá ákveðnu frumkvæði sem fyrir-
tækið er að taka í að viða að sér upplýsingum um hvernig hægt er að gera betur, þar með
talið hvernig það mátar sig við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Forsvarsmenn Marels eru líka duglegir að miðla aðferðum sínum, þekkingu og reynslu til
annarra fyrirtækja, bæði forstjórinn sjálfur og sérfræðingar innan Marels,“ segir Fanney.
Hafa tekið taktföst skref
Hún segir að síðasttalda staðreyndin, um að forstjóri og sérfræðingar taki virkan þátt í
samtalinu, hafi einmitt unnið mikið með þeim. „Fyrirtækið notar líka viðurkenndar aðferðir
við að mæla allt sem þessu viðkemur og hefur farið í gegnum heildræna stefnumótun í
málaflokknum.“
Fanney segir að Marel hafi einnig tekið mjög taktföst skref í að innleiða sjálfbærni í stefnu
fyrirtækisins, og í leiðarljósi þess sé einnig áhersla á þessi mál. „Þannig að þau eru með
mjög góð vinnubrögð.“
Enginn er auðvitað fullkominn eins og Fanney bendir á, og Marel glímir við ýmsar áskor-
anir í sínum rekstri frá degi til dags. „Kolefnisfótspor þess er að aukast, enda fyrirtækið í ör-
um vexti, en þau eru mjög meðvituð um það og eru að skoða hvernig er best að mæta því.
Þau eru opin og hreinskilin í þessum efnum, og leita lausna.“
Fanney leggur áherslu á að um hvatningarverðlaun sé að ræða og vonar að þau hvetji
Marel til að gera enn betur í framtíðinni. „Það má ekki gleyma því að í dag þykir það vera
gott fyrir viðskiptin að vera framúrskarandi á sviði sjálfbærni og samfélagsábyrgðar. Þetta
vinnur vel saman.“
Marel tekur frumkvæði í að viða
að sér upplýsingum og miðla þeim
Fanney Karlsdóttir er formaður
dómnefndarinnar líkt og í fyrra.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon