Brautin - 15.12.1988, Blaðsíða 3
BRAUTIN
3
Jólahugleiðing
Halda vörð í haga
hirðar yfir nótt.
Ljós um bláinn braga
blærinn andar rótt.
Fjarri feigð og voða
friðsæl blundar hjörð.
Englar bjartir boða
blessun yfir jörð.
Frelsarinn er fæddur
fagnar Davíðs-borg.
Kóngur reifum klæddur
kvaddi burtu sorg.
Værð hinn unga vefur
vaggan þótt sé hörð.
Friðarfurstinn sefur.
Friður Guðs á jörð.
Brátt líður að jólum og við fáum að
heyra frá kirkjum landsins, að sungið
er: Fœddur er frelsari vor.
Já, þá kemur í hugann hin hugljúfa
frásögn um hirðana á Betlehems-
völlum. Um hvað skyldu þessir fátæku
fjárhirðar hafa verið að hugsa þessa
kyrrlátu nótt? Ef til vill um spádóma
Biblíunnar um komu Messíasar, sem
þeir höfðu lesið um í hinum helgu
ritum og sem Gyðingaþjóðin var að
vonast eftir samkvæmt spádómum.
Þá skeður undrið. Engill Drottins
stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði
í kringum þá og þeir urðu mjög
hræddir. Var það furða, að þeir yrðu
hræddir? Nei. Hvað var að gerast?
Engill Drottins var kominn til þeirra.
Pá segir engillinn: Verið óhræddir! Sjá
ég boða ykkur mikinn fögnuð, sem
veitast mun öllum lýð. Yður er í dag
frelsari fœddur, sem er Kristur drottinn
í borg Davíðs. Farið og þér munið
finna ungbarn reifað og lagt í jötu.
Þegar engillinn hafði sagt þetta, þá var
eins og himininn ljómaði allur.
Komnar voru himneskar hersveitir,
sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé
Guði í upphœðum ogfriður á jörð með
mönnum, sem hann hefur velþóknun á.
Já, þvílíkt undur, sem hirðarnir urðu
vitni að. Himneskar verur syngja Guði
dýrð. Þegar þessi mikla dýrð hvarf,
sögðu hirðarnir hver við annan: Förum
beint til Betlehem. Sjáum hvað gerst
hefur og Drottinn hefur kunngert oss. Jú,
þeir fundu allt eins og englarnir höfðu
sagt og þegar þeir fóru aftur til vinnu
sinnar, þá lofuðu þeir Guð fyrir það,
sem þeir höfðu séð og heyrt.
I þessu er mikill leyndardómur.
Guðs sonur fæddur meðal manna. Því-
líkur kærleikur, sem Guð sýnir okkur,
vinir. Nú, þegar komið er að jólum,
ættum við þá ekki að reyna að taka
okkur tíma og hugsa um þennan stór-
kostlega atburð? Við ættum líka að
hugsa um það, sem Jesús sagði, þegar
hann var hér: Ég mun koma aftur til
þessarar jarðar, ekki sem barn heldur
sem konungur konunganna og drottinn
drottnanna, já, í skýjum himins með
mœtti og mikilli dýrð.
I Jóh. 3,f 6 lesum við: Þvísvo elskaði
Guð heiminn, að hann gaf son sinn
eingetinn, til þess að hver sem á hann
trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.
Hugsum um þetta, vinir, og gerum
Krist að frelsara okkar. Því að hann
segir: Ég kem aftur og launin hef ég
með mér.
Ósk mín er sú, að laun okkar allra,
sem lesa þessar línur mættu vera þau
að heyra af vörum frelsara okkar: Þú
góði og trúi þjónn, yfir litlu varst þú
trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk
inn til fagnaðar herra þíns.
Eg óska öllum Eyjabúum gleðilegra
jóla og Guðs blessunar á komandi ári.
Arnmundur Þorbjömsson.
Bœjarstjórn
Vestmannaeyja
sendir öllum Vestmannaeyingum
bestu jóla- og nýársóskir
Jólakveðja
frá
IOWA
Séra Kjartan Örn
Sigurbjörnsson og fjölskylda
senda Vestmanneyingum öllum nœr og fjœr,
bestu jóla- og nýárskveðjur!
Biðjum ykkur Guðsblessunar.
Sjáumst heil á næsta ári í Eyjum.
KATRÍN, KJARTAN ÖRN,
GUÐRÚN BIRNA OG ÞÓRLINDUR.
Helgihald í
Landakirkju
yfir jól og
áramót 1988/1988
AÐFANGADAGUR 24. DESEMBER:
Aftansöngur kl. 18:00.
Náttsöngur kl. 23:30.
JÓLADAGUR 25. DESEMBER:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00
ANNAR ÍJÓLUM 26. DESEMBER:
Jólasöngur á Sjúkrahúsinu k. 13:15.
Skírnarguðsþjónusta kl. 14:00.
Helgistund á Hraunbúðum kl. 15:15.
GAMLÁRSDAGUR 31. DESEMBER:
Aftansöngur kl. 18:00.
NÝÁRSDAGUR 1. JANÚAR 1989:
Guðsþjónsta kl. 14:00.
— SR. BRAGI SKÚLASON. —
Jóladagskrá
Betelsafnaðar
19 8 8
AÐFANGADAGUR 24. DESEMBER:
Aftansöngur kl 18. Stjórnandi Snorri Óskarsson.
JÓLADAGUR 25. DESEMBER:
Hátíðarsamkoma kl. 16:30.
Stjórnandi Hjálmar Guðnason.
ANNAR JÓEADAGUR 26. DESEMBER:
Samkoma fyrir ungt fólk.
Stjórnandi Sigurmundur Einarsson.
29. DESEMBER:
Jólahátíð Sunnudagaskólans kl. 16.
GAMLÁRSDAGUR 31. DESEMBER:
Samkoma kl. 18. Stjórnandi Geir Jón Þórisson.
NÝÁRSDAGUR 1. JANÚAR 1989:
Hátíðarsamkoma kl. 16:30.
Stjórnandi Óskar Guðjónsson.
ALLIR ÁVALLT VELKOMNIR
Á SAMKOMURNAR í BETEL!