Fréttir - Eyjafréttir - feb. 2019, Blaðsíða 2
2 | Eyjafréttir | Febrúar 2019
Þegar við fjölskyldan fluttum
aftur heim til Eyja eftir sjö ár
í borginni var ég búin að búa
hérna í viku þegar ég áttaði mig
á öllum tímanum sem ég hafði
fengið tilbaka. Ég labbaði með
barnið á leikskólann á fimm
mínútum og gat einnig labbað til
vinnu á öðrum fimm. Áður hafði
ég setið í bíl í einn og hálfan
tíma á dag til að koma öllum að
heiman til og frá vinnu og þá átti
ég eitt barn.
Þetta er bara einn af kostunum.
Þegar við fluttum þá fann ég
strax fyrir mikilli neikvæðni
meðal heimamanna gagnvart
samgöngum og heilbrigðis-
málum. Skiljanlega! En ég man
að ég hugsaði eftir nokkrar vikur,
hvað vorum við eigilega að spá?
Hérna væri allt á niðurleið. Ég
jafnaði mig reyndar fljótt á því,
því kostirnir eru svo miklu fleiri
og ekkert er fullkomið.
Stundum þarf aðra til að benda
manni á hvað maður á og hefur
eins og hún Daney Götchi gerði
þegar ég tók viðtal við hana fyrir
þetta tölublað Eyjafrétta. Hún
talar um stórkostlegan íslenskan
vetur, sérstaklega hérna í Vest-
mannaeyjum. Ég er nokkuð
viss um að ég hafi aldrei heyrt
neinn tala svona um veturinn.
Hún hættir ekki að dásama
ferska loftið hérna, kyrrðina og
náttúruna. Sem mér finnst vera
svo sjálfsagðir hlutir, en hún
minnti mig á að svo er ekki, þó
ég hafi reyndar kunnað að meta
náttúruna talsvert betur eftir að
ég flutti aftur heim.
En það er samt ekki nóg að hafa
stórbrotna náttúru, ferskt loft og
einstakan stað á heimsvísu eins
og Vestmanneyjar eru þó það
komi okkur mjög langt og setji
okkur fram fyrir marga. Inn-
viðirnir skipta máli og sértaklega
á þeim tímunum sem við lifum
í dag.
Í febrúar hef ég setið nokkur
erindi um tækifæri og ógnanir
sem snúa að Vestmannaeyjum.
Annarsvegar á vegum Þekkingar-
setursins og hins vegar málþing
í tilefni af 100 ára afmæli Vest-
mannaeyjabæjar. Það leyndi sér
ekki að í öllum þessum erindum
kom fram hversu mikil tækifæri
eru hér og í raun mörg vannýtt
tækifæri. Við eigum mikið inni
í ferðaþjónustunni. Heimaey er
staður sem við eigum að geta
markaðsett fyrir ríkasta fólki
þessa heims segja þeir. Við eigum
fullt inni hvað varðar nýsköpun
í tengslum við sjávarútveginn,
höfum allt til alls, þessi stærsti
sjávarútvegsbær landsins. Þarna
er sóknarfæri til að sækja ungt,
menntað barnafólk. En það er
akkúrat markhópurinn sem við
eigum að sækjast eftir að komi
og búi hérna. Því þetta er paradís
til að ala börn upp í og hérna er
allt til alls. En það þurfa að vera
réttar aðstæður til að þetta eigi
sér stað og það er undir okkur
öllum komið að skapa þær.
En ég þarf ekkert að minna ykkur
á hvert vandamálið er, sam-
göngur! Sem voru einnig nefndar
í öllum þessum erindum. Ef
ósk okkar um Herjólf sem siglir
mögulega 8-10 mánuði á ári til
Landeyjahafnar rætist, þá þýðir
það algjöra byltingu og flösku-
hálsinn í andskotans öllu hérna
losnar.
Ef þetta verður að veruleika, þá
er óvissa mín um bjarta framtíð í
Vestmannaeyjum af borðinu, við
getum hætt að röfla um sam-
göngur og haldið áfram með
okkar góða líf sem við lifum á
Heimaey!
Sara Sjöfn Grettisdóttir
ritstjóri Eyjafrétta.
Af hverju vil ég
búa hérna?
Efnisyfirlit
[04] Þrjátíu lóðum úthlutað á síðustu
tólf mánuðum
[05] Aukið framboð íbúða er jákvætt
fyrir bæjarfélagið
[06] Ég vissi að mig langaði að kenna,
því ég elska að kenna
[08] Stunda þetta á meðan ég hef gaman
af þessu og atvinnu
[10] Millilandaflug til Eyja og óháð úttekt
á Landeyjahöfn
[12] Byrjuð að telja niður fyrir næstu
þjóðhátíð
[14] Ógleymanlegt og bestu stundir
lífs míns
[16] Lét fjarnám á sænsku ekki stoppa sig
[18] Ekki í neinu spretthlaupi
[20] Ógleymanlegar stundir á Anfield
og Old Trafford
[21] Matgæðingurinn: Ljúffengur satay
kjúklingarétturog kaka sem slær
í gegn í saumó
[23] Margt er nú orðið með ólíkum
hætti en var
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
Ritstjórn og ábyrgð: Sara Sjöfn Grettisdóttir
- sarasjofn@eyjafrettir.is
Umbrot: Sæþór Vídó - sathor@eyjafrettir.is
Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf.
Aðsetur ritstjórnar: Ægisgata 2, Vestm.eyjum.
Sími: 481 1300
Netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is
Veffang: www.eyjafrettir.is
Eyjafréttir er áskriftarblað.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Næsta blað Eyjafrétta kEmur út 20. fEbrúar 2019
m i t t m á l
Liðurinn „Mitt hjartans mál“ er tilraun til að efla samfélagsvitund með því fá unga
sem aldna einstaklinga úr bæjarfélaginu til að segja það sem þeim liggur á hjarta.