Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - feb. 2019, Blaðsíða 5

Fréttir - Eyjafréttir - feb. 2019, Blaðsíða 5
Febrúar 2019 | Eyjafréttir | 5 samkvæmt tölum frá þjóð- skrá Íslands þá seldust 88 eignir í eyjum árið 2018 þar af 39 í sérbýli og 49 í fjölbýli. er þetta aðeins undir fjölda seldra eigna árið 2017 þar sem fjöldi eigna var um 100 en í takti við árin þar á undan en fjöldi seldra eigna undan- farin ár hefur verið um 80 til 90 seldar eignir á ári. fast- eignmarkaður hefur farið vel af stað á fyrstu vikum ársins 2019 eftir rólegar síðustu vikur ársins 2018. Helgi Bragason lögfræðingur og fasteignasali sagði í samtali við eyjafréttir að fermetraverðið væri að hækka um 10-15% á ári og að með hækkandi sól væri erfiðara að fá leiguhúsnæði í bænum. „Meðalverðið allt árið 2018 var rúmlega 190 þús á fermeter að meðaltali ef skoðað er saman fjölbýli og sérbýli. Árið 2017 var meðalverð á fjölbýli rúmlega 180 þúsund en á sérbýli um 170 þúsund. Þannig að verð á sérbýli virðist hafa verið að hækka hlut- fallslega meira sem er í takti við mína tilfinningu. Markaðurinn í Vestmannaeyjum er frekar grunnur og því eru þessi meðaltöl ekki að gefa alveg rétta mynd af mark- aðnum,“ sagði Helgi, en vildi jafn- framt benda á að nýbyggingar sem hafa verið að seljast eru í mörgum tilfellum seldar ekki fullbúnar og því gefa þeir kaupsamningar sem eru undirliggjandi í þessum tölum ekki rétta mynd af heildarverði eigna. „Nýjar íbúðir sem seldar voru m.a. við miðbæinn voru að seljast ófullbúnar á um 300 - 400 þúsund á fermeter og fullbúnar eru þær því komnar í kringum 500 þúsund á fermeter. Ef við skoðum meðalverðið síðustu fjóra mánuði ársins 2018 þá er meðalverð íbúða í fjölbýli komið í 208 þúsund á fermeter og sérbýli í 204 þúsund á fermeter. Þetta er í samræmi við þá þróun sem mér hefur fundist verið í gangi og verð að hækka um 10 - 15% á árinu,“ sagði Helgi. sýnir dug og þor Helgi segir að það sé jákvætt hversu mikill fjöldi nýbygginga séu í Vestmannaeyjum og eru í kortunum, „að mínu áliti sýnir það trú þeirra sem þær eru að byggja og kaupa á samfélaginu. Aukið framboð íbúða er jákvætt fyrir bæjarfélagið, sýnir dug og þor og hefur auk þess skapað fjölda starfa og gefur möguleika á fjölgun íbúa ef aðrir þættir eru í lagi eins og samgöngur, atvinnuframboð og fleira.“ meðalverðið í Eyjum er því ekki hátt „Landsbankinn gaf nýlega út hagsjá um fasteignamarkaðinn þar sem skoðað var meðalverð í stærri bæjum á landsbyggðinni og svo í Reykajvík. Vestmannaeyjar voru ekki í þessum samanburði Landsbankans en meðalverð í Eyjum er ennþá um 25 - 30% undir verði íbúða í bæjarfélögum eins og Selfossi, Akur- eyri, Akranesi og Reykjanesbæ og um það bil 50% undir meðal- fermetraverði í Reykjavík. Meðalverð á íbúð í fjölbýli í Reykjavík er um 450 þúsund, 340 þúsund á Akur- eyri, 302 þúsund í Árborg, 317 þúsund á Akranesi og í Reykjanesbæ en í Eyjum var meðalverðið á fjölbýli síðustu fjóra mánuði ársins 2018 um 208 þúsund. Meðalverðið í Eyjum er því ekki hátt í þessum samanburði og kaupandi ætti að geta fengið tvær íbúðir í Eyjum fyrir eina á höfuðborgarsvæðinu.“ leiguverð hefur verið að hækka Aðspurður um leigumarkaðinn sagði Helgi að langtímaleigu- markaðinn hafi verið ágætlega virkur, „tilkoma leigufélaga hefur gert hann örugggari fyrir leigutaka en þau eru oftast tilbúin að leigja til lengri tíma en einstaklingar sem eru meira að leiga út tímabundið.“ Samkvæmt þjóðskrá þá voru 47 þinglýstir leigusamningar í gangi árið 2018, „talsvert af samningum er ekki þinglýst þannig að áætla má að ekki undir 100 eignir hafi verið í leigu á árinu en það er ágiskun, gæti verið meira,“ sagði Helgi. „Leiguverð hefur verið að hækka og sem dæmi þá er meðalleiguverð á þriggja herbergja íbúð vestur í Áshamri og Folda- hrauni þar sem flestar leiguíbúðir eru c.a. 140 - 150 þúsund eða í kringum 1.600 á fermeter og á tveggja her- bergja íbúðum er meðalverðið c.a. 110 - 120 þúsund eða um 1.800 á fermeter. Betri íbúðir nær mið- bænum leigjast út á aðeins hærra verði en stærra húsnæði og einbýli leigist út á lægra fermetraverði. Minna framboð er á stærra húsnæði og einbýli. Mér sýnist vera ágætt framboð af minna húsnæði til leigu en markaðurinn hérna hefur verið eins undanfarin ár, með hækkandi sól þá verður erfiðara að finna leiguhúsnæði og yfir sumartímann getur verið mjög erfitt að finna leiguhúsnæði en svo hefur losnað um og framboð aukist í lok sumars eða um haustið. Svo er spurning hvaða áhrif nýr Herjólfur hefur á það,“ sagði Helgi að endingu. Helgi Bragason lögfræðingur og fasteignasali. Einbýlishús rís við Gerðisbraut. SARA SjöfN GREttiSdóttiR sarasjofn@eyjafrett ir. is Helgi Bragason lögfræðingur og fasteignasali: aukið framboð íbúða er jákvætt fyrir bæjarfélagið :: fermetraverð í Vestmannaeyjum um 208.000 kr :: Kaupandi getur fengið tvær íbúðir í eyjum fyrir eina á höfuðborgarsvæðinu. Aukið framboð íbúða er jákvætt fyrir bæjarfélag- ið, sýnir dug og þor og hefur auk þess skapað fjölda starfa og gefur möguleika á fjölgun íbúa ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.