Fréttir - Eyjafréttir - feb. 2019, Blaðsíða 22
22 | Eyjafréttir | Febrúar 2019
Hátíðarfundur bæjarstjórnar
var haldinn fimmtudaginn 14.
febrúar í bíósal Kviku. fund-
urinn var sá 1543. í röðinni
en þá voru liðin slétt 100 ár
frá fyrsta fundi bæjarstjórnar
Vestmannaeyja. fundinn sátu
elís Jónsson forseti bæjar-
stjórnar, njáll Ragnarsson
aðalmaður, Hildur sólveig sig-
urðardóttir aðalmaður, Trausti
Hjaltason aðalmaður, Helga
Kristín Kolbeins aðalmaður,
Íris Róbertsdóttir aðalmaður
og Jóna sigríður Guðmunds-
dóttir aðalmaður.
elís Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar setti fund og fór yfir
sögu samfélags og atvinnu-
lífs Vestmannaeyja síðustu
hundrað árin.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
fór yfir sögu bæjarstjórnar-
kosninga og bæjarstjórna
Vestmannaeyja. Ræða Írisar
var áhugaverð og má lesa í
heild sinni hér að neðan.
Forseti bæjarstjórnar, bæjarfulltrúar
og gestir.
Á þessum degi fyrir réttum 100
árum, hinn 14. febrúar 1919, var
haldinn fundur í húsinu Borg, sem
stóð neðst við Heimagötu og fór
undir hraun í gosinu. Sá fundur var
fyrsti fundur fyrstu bæjarstjórnar
Vestmannaeyja.
Í hinni vönduðu samantekt
Haraldar Guðnasonar, bókavarðar,
Við Ægisdyr er að finna ítarlega
samantekt um sögu bæjarstjórnar
þar sem saga Vestmannaeyja er
rakin frá 1918 til um 1978. Í um-
fjöllun Haraldar kemur fram að níu
einstaklingar hafi átt sæti í fyrstu
bæjarstjórninni. Meðal þeirra var
Halldór Gunnlaugsson læknir. Það
er áhugavert að hugsa til þess að
Halldór var aðalhvatamaðurinn að
stofnun kvenfélagsins Líknar, sem
átti 10 ára afmæli sama daginn og
bæjarstjórn kom saman í fyrsta
sinn. Var dagurinn ef til vill valinn
til heiðurs kvenfélaginu?
Í fyrstu bæjarstjórn Vestmanna-
eyja átti engin kona sæti - og
kemur sú staðreynd líklega fáum
á óvart miðað við jafnréttið, eða
öllu heldur misréttið, í þá daga.
Fyrsta konan sem sat fundi í bæjar-
stjórn Vestmannaeyja var Ólafía
Óladóttir, verkakona í Stíghúsi,
en það var árið 1934. Hún var á
lista Kommúnistaflokksins og var
varabæjarfulltrúi. Ólafía - Lóa
í Stíghúsi - var amma Sigríðar
Ingibjargar Ingadóttur, fyrrverandi
alþingismanns, sem nú er hagfræð-
ingur Alþýðusambandsins.
Hitt er ótrúlegt að fyrsta kjörna
konan í bæjarstjórn Vestmannaeyja
var hún Sigurbjörg okkar Axels-
dóttir, Dadda skó og var hún á lista
Sjálfstæðisflokksins. Það var árið
ekki fyrr en 1974 eða heilum 55
árum eftir að bæjarstjórn Vest-
mannaeyja kom fyrst saman. Með
öðrum orðum:
Í meirihluta þess tíma sem liðinn
er frá upphafi bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja var ekki ein einasta
kona kjörin í bæjarstjórn. Horfið
hérna á borðið við hliðina á mér,
konur eru nú í meirihluta í bæjar-
stjórn.
Mér reiknast svo til að frá 1919 til
1974, eða þangað til fyrsta konan
er kosin í bæjarstjórn, hafi verið
kosið um 120 sæti bæjarfulltrúa.
Vitaskuld hafa ekki 120 bæjar-
fulltrúar fyllt þessi 120 sæti, sumir
sátu tvö kjörtímabil, aðrir jafnvel
miklu lengur. En sem sagt alltaf
karlar.
Af samtals 16 bæjarstjórum Vest-
mannaeyja á þessum 100 árum
Margt er nú orðið með ólíkum hætti en var
:: Hátíðarræða bæjarstjóra á 100 ára hátíðarfundi bæjarstjórnar
Bæjarfulltrúar á hátíðarfundi bæjarstjórnar 14. febrúar 2019.
Elís með fyrstu
fundargerðarbók
bæjarstjórnar
Vestmannaeyja.
Kvenfélagið Líkn fagnar
110 ára afmæli í ár og var
þeim færður blómvöndur
á hátíðarfundinum.
Föstudaginn 15. febrúar
var haldinn bæjarstjórnar-
fundur unga fólksins.
Bæjarstjórn
unga fólkins.