Fréttir - Eyjafréttir - Feb 2019, Page 6
6 | Eyjafréttir | Febrúar 2019
Jórunn einarsdóttir kennari
og fyrrverandi bæjarfulltrúi í
Vestmannaeyjum er nú búsett
ásamt fjölskyldu sinni í Kaup-
mannahöfn. Upphaflega
flutti hún til að fara í
mastersnám sem hún
gerði og eftir útskriftina
fór boltinn að rúlla hjá
henni og núna í febrúar
leit fyrirtækið Katla dags-
ins ljós. aðal markmiðið
með fyrirtækinu Kötlu er
að bjóða upp á íslensku-
kennslu fyrir íslensk börn
búsett erlendis, blaða-
maður heyrði í Jórunni á
dögunum til að forvitnast
meira um málið.
mögulegt að þróa þessa
þjónustu áfram
Jórunn sagði að hugmyndin væri
fyrst og fremst að bjóða upp á
íslenskukennslu fyrir íslensk börn
búsett erlendis. „Það hafa ekki
öll íslensk börn sem búsett eru
erlendis jafnan aðgang að íslensku-
kennslu og mig langaði því að
bjóða upp á þann möguleika. Í
augnablikinu er ég að einblína á
íslenskukennslu fyrir börn sem
hafa ekki aðgang að slíkri kennslu
nú þegar. Hins vegar er mér alveg
ljóst að það er mögulegt að þróa
þessa þjónustu áfram. Ég sé t.d.
fyrir mér að geta einnig boðið
upp á aðstoð í dönsku, bæði fyrir
börn og fullorðna og svo íslensku
fyrir fullorðna. Mér eru að berast
allskonar fyrirspurnir t.a.m. frá for-
eldrum tvítyngdra barna, búsettum
á Íslandi sem eru að leita að aðstoð
við að efla íslenskukunnáttu barna
sinna. Þannig að það er töluvert af
fólki þarna úti sem vill efla færni
barna sinna í íslensku, hvort sem
heldur er að móðurmáli eða sem
þeirra annað tungumál.
að fara í framhaldsnám breytti
hugarfari mínu
Hvaðan kom hugmyndin og hvað
varð til þess að þú ákvaðst að
framkvæma hana? „Ég er auð-
vitað búin að vera kenna ansi lengi
en það hefur alltaf blundað í mér
að vera sjálfstætt starfandi en ég
einhvern veginn ekki séð fyrir
mér hvernig eða við hvað. Það var
svo ekki fyrr en ég útskrifaðist úr
CBS að ég fór að hugsa þetta sem
raunhæfan möguleika, að ég fékk
kjarkinn, sem skiptir öllu þegar
þú ert að velja þér nýjan starfs-
vettvang. Að fara í framhaldsnám
breytti hugarfari mínu og losaði
mig svolítið úr ákveðnum kassa
sem ég held ég hafi verið í. Ég var
reyndar ansi áttavillt þegar ég út-
skrifaðist og átti erfitt með að finna
rétta farveginn í atvinnumálum
enda markaðurinn hérna stór og
tengslanetið lítið. Og svo vissi ég
heldur ekkert almennilega hvað ég
vildi gera, og kannski sem betur
fer. Ég vissi samt að mig langaði
að kenna - því ég elska að kenna,
en mig langaði að hafa meira
sjálfræði yfir tíma mínum og þeim
verkefnum sem ég væri að sinna.
Ég hafði heyrt af KöruConnect sem
er íslensk vefþjónusta sem sérhæfir
sig í að veita meðferðar-aðilum
og skjólstæðingum þeirra
þjónustu í gegnum mynd-
fundi og eftir greinargóða
kynningu á þeirra starfsemi,
sem margir skólar á lands-
byggðinni eru að nýta sér, fór
boltinn að rúlla hjá mér.”
ég finn fyrir miklum
áhuga á þessu framtaki
Aðspurð sagði Jórunn að það
væru í raun og veru engin
takmörk fyrir því hverjir geta
nýtt sér þjónustu Kötlu. „Ég
ætla hins vegar að einbeita
mér að því núna að sinna
íslenskum börnum búsettum
erlendis. Ég finn fyrir miklum
áhuga á þessu framtaki og það er
alveg greinilegt að Íslendingar vilja
viðhalda íslenskukunnáttu barna
sinna og styrkja þannig tengslin við
uppruna þeirra,“ sagði Jórunn að
endingu.
Ég vissi að mig langaði að
kenna, því ég elska að kenna
:: Ákvað að stökkva í djúpu laugina eftir framhaldsnám
SARA SjöfN GREttiSdóttiR
sarasjofn@eyjafrett ir. is
” Ég ætla hins vegar að einbeita mér að því núna að sinna íslenskum börnum búsettum erlendis. Ég finn fyrir miklum
áhuga á þessu framtaki og það er alveg
greinilegt að Íslendingar vilja viðhalda
íslenskukunnáttu barna sinna og styrkja
þannig tengslin við uppruna þeirra