Fréttir - Eyjafréttir - febr 2019, Qupperneq 16
16 | Eyjafréttir | Febrúar 2019
sigrún arna Gunnarsdóttir
lét gamlan draum rætast á
síðasta ári þegar hún skráði
sig í fjarnám í innanhúshönnun
á sænksu. núna er hún að
vinna lokaverkefnið og er með
mörg járn í eldinum
„Ég hef alltaf haft áhuga á að fara
í svona nám og hef mikið skoðað
þetta út um allan heim því þetta er
ekki kennt á Íslandi. Svo fann ég
þennan skóla og sendi fyrirspurn
um námið og þetta var það sem
hentaði mér og mér fannst mjög
áhugavert.“ Innanhúshönnunar-
námið er kennt hjá Inredningsaka-
demin í Stokkhólmi og er lotunám
með vinnulotum einu sinni í
mánuði úti í Stokkhólmi. „Námið
er fjölþætt og einskorðast ekki bara
við hönnun á heimilum eða íbúðum
heldur einnig skrifstofuhúsnæði,
veitingastöðum, verslunum, hót-
elum svo eitthvað sé nefnt. Það er
farið í teikningar á innveggjum,
innréttingum, stíliseringu og fleira
og förum við í öll atriði er snúa
að hönnun . Það er farið ítarlega
í lýsingu og hvernig lýsing er í
rýminu. Einnig litasamsetningu og
hvernig lýsing og litir falla saman
í umhverfniu. Við lærum hvernig
feng shui hefur áhrif á orkuna
okkar í umhverfinu. Einnig lærum
við ítarlega teiknivinnu bæði að
teikna upp samkvæmt máli og
hanna útfrá því og að nota forrit
eins og sketch up til að gera 3D
teikningar. Við lærðum stíleseringu
fyrir fasteignaauglýsingar, en
það er mikið um það í Svíþjóð að
hönnuðir og stílistar séu í vinnu á
fasteignasölum og í tengslum við
það var farið í hvernig á að taka
góðar ljósmyndir. Það er farið vel
í gerð kostnaðaráætlanna og út-
reikinga varðandi hvaða atriði eru
inn í kostnaðáætlunum og kunna
100% að gera kostnaðaráætlun
með verkefnum okkar. Eftir fyrstu
tvær loturnar fær maður einnig
Diplóma skírteini sem innan-
hússstílisti sem er partur af þessu
námi,“ sagði Sigrún Arna
frábær kostur að geta
menntað sig heima
Aðspurð um fjarnámið sagði
Sigrún Arna að það hefði virkað
vel fyrir, „frábært að hafa þenna
möguleika að geta lært þetta
að mestu hér heima í gegn um
fjarfundarbúnaðinn. En þetta
var hellings vinna og mun meiri
heimavinna á milli kennslulota en
mig hafði grunað. Mikið að skila
verkefnum og taka próf í fjar-
fundarbúnaðinum. Oft hefði ég
alveg viljað hafa einhverja hérna
með mér til að bera ýmislegt undir
eins og til dæmis varðandi skatt
og fleira í Svíþjóð því við þurftum
að læra mikið í tengslum við gerð
kostnaðaráætlunar og allt miðaðist
við Svíþjóð sem er mjög ólíkt því
sem er hér.“ Sigrún Arna fór út í
vinnulotur einu sinni í mánuði.
„Ég fór út einu sinni í mánuði í
vinnulotur og er ég búin að fara 5
sinnum út og fer næst í tengslum
við kynninguna á lokaverkefninu
mínu og vonandi verður það síðasta
ferðin.“
Námið á sænsku
Námið var allt á sænsku og sagði
Sigrún Arna að auðvitað hefði
verið smá kvíði fyrir því, „en ég
bjó í Svíþjóð þegar ég var barn og
eitthvað af sænskunni var þarna
einhversstaðar þannig að hún
var ekki framandi fyrir mér. Svo
töluðu kennararnir ensku við mig
ef þess þurfti, það voru allir bæði
kennarnar og samnemendur mjög
skilningsríkir og hjálplegir þar
sem ég var sú eina í hópnum sem
hafði ekki sænsku sem aðalmál.
Námið uppfyllti allar mínar kröfur
og gott betur því ég lærði alveg
ótrúlega margt þarna sem ég hafði
ekki órað fyrir að væri tekið fyrir
í þessu námi og víkkaði því sjón-
deildarhringinn hjá mér gífurlega
varðandi margt í tengslum við
hönnun.“
Opin fyrir stórum sem
smáum verkefnum
Framundan hjá Sigrún Örnu er
að klára lokaverkefnið sem er í
vinnslu. „Lokaverkefnið mitt er
mjög spennandi en það er tvíþætt.
Að hanna kaffihús og þar er fyrir-
fram ákveðinn stíll eða þema sem
ég þarf að fara eftir og hanna
eftir ákveðinni grunnteikningu
og fyrir fyrirfram ákveðið verð
sem sagt ég er að vinna verk fyrir
kúnna sem hefur ákveðið húsnæði
og fjárhagsáætlun og eftir hans
hugmyndum. Hins vegar er hinn
hlutinn af lokaverkefninu mínu
að hanna hótel á Spáni þá má
ég ráða hönnuninni, þemanu og
kostnaður er frjáls þannig þar fæ ég
að láta mína sköpun og minn stíl
koma fram. Þegar því er lokið er
ég orðin löggild en ég hef í raun
klárað námið sjálft og gekk það
allt mjög vel og get ég því farið
að vinna við þetta. Sigrún Arna
er með ýmislegt á döfinni, „ég
hef verið að teikna upp og koma
með hugmyndir og ráð um eldhús
í einbýlishúsi sem er í bygginu.
Svo hef ég fengið fyrirspurn um að
teikna upp hús sem er verið að fara
að endurbæta. Einnig hef ég verið
beðin um að stílesera og koma með
hugmyndir fyrir fólk sem er að fara
að flikka upp á sumarbústaðinn
sinn fyrir sumarið . Svo er ég opin
fyrir öllum verkefnum, stórum og
smáum – þannig að ef einhverjum
vantar ráðleggingar um litaval,
teikna innréttingar, stíleseringu,
skipulag , lýsingu bara hvað sem
er sem snýr að innanhúshönnun þá
má hafa samband.
Hægt er að fylgjast
með Sigrún Örnu á
Instagram undir nafn-
inu interior_sigrun
SARA SjöfN GREttiSdóttiR
sarasjofn@eyjafrett ir. is
Sigrún Arna innanhúshönnuður:
lét fjarnám á
sænsku ekki
stoppa sig
:: Víkkaði sjóndeildarhringinn